Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjármálafyrirtækin hlíti niðurstöðu Hæstaréttar Forsvarsmenn Bændasamtaka Íslands og Landssambands smábátaeigenda undrast fálmkennd og ómarkviss viðbrögð stjórnvalda og fjármálafyrirtækja við dómi Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðra lána sem þeir segja að hafi verið skýr. Forsvarsmenn samtakanna funduðu fyrr í dag um niðurstöðu Hæstaréttar. 29.6.2010 15:05
Talið að erlend glæpasamtök hafi sent konurnar Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar hjá lögreglunni, segir að það sé eðlileg ályktun að telja að erlend glæpasamtök hafi sent tvær konur til landsins með 20 lítra af amfetamínbasa þann 17. júní síðastliðinn. 29.6.2010 14:10
Einn slasaður eftir sprengingu í járnblendiverksmiðju Einn er slasaður eftir að sprenging varð í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga. Engar upplýsingar er að fá frá lögreglunni á borgarnesi um málið. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti hinn slasaða til Reykjavíkur. 29.6.2010 20:03
Verðbólgan búin - verðhjöðnun tekin við Hin mikla verðbólga sem varð landlæg eftir hrun krónunnar er nú búin í bili, segir sérfræðingur í greiningardeild. Verðbólga mælist nú 5,7 prósent á ársgrundvelli og hefur ekki mælst lægri síðan í góðærinu 2007. 29.6.2010 18:35
Fyrstu hvalirnir komnir á land Kjötið af langreyðunum sem voru skotnar í gær verður selt á innlendum og erlendum mörkuðum að sögn Kristjáns Loftssonar forstjóra Hvals hf. Hann segist þegar vera búinn að finna kaupendur og er bjartsýnn á að hvalavertíðin verði góð. Höskuldur Kári Schram var í Hvalfirði í dag. 29.6.2010 18:29
Kínverjar kanna Drekasvæðið Kínverska ríkisolíufélagið Sinopec, sem hefur víðtæka reynslu af olíuborun á miklu hafdýpi, hefur ákveðið að gera forkönnun á fyrirliggjandi gögnum um Drekasvæðið. 29.6.2010 18:26
Íslandsstofa stofnuð Stofnfundur Íslandsstofu var haldinn í sjóminjasafninu Víkinni í dag en Alþingi samþykkti í lok aprílmánaðar lög um stofnunina. Markmið með Íslandsstofu er að efla ímynd og orðspor Íslands, styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á erlendum mörkuðum og laða erlenda ferðamenn og fjárfestingu til landsins. 29.6.2010 16:44
21 stofnun með uppsafnaðan halla Færri stofnanir voru með verulegan uppsafnaðan halla í árslok 2009 en á sama tíma undanfarin ár. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga. 29.6.2010 16:12
Auður Lilja tekur við af Drífu Auður Lilja Erlingsdóttir, varaþingmaður VG og fyrrverandi formaður ungliðahreyfingar flokksins, tekur við af Drífu Snædal sem framkvæmdastjóri Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs næstkomandi fimmtudag. Þetta var tilkynnt á flokksráðsfundi VG um helgina. Drífa hefur gegnt embætti framkvæmdastýru undanfarin fjögur ár. 29.6.2010 13:40
Matvælaverð á Íslandi 4 % hærra en í samanburðarlöndum Niðurstöður úr evrópskri könnun á verði matvæla, áfengis og tóbaks, sem gerð var vorið 2009, hafa verið gefnar út og er að finna á vef Hagstofu Íslands. 29.6.2010 13:25
Iðnaðarráðherra fundaði með kínverskum olíurisa Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra fundaði með Zhang Yaocang, varaforseta kínverska olíurisans SINOPEC Group í ferð sinni til Kína nú í júní. 29.6.2010 13:17
Pétur Blöndal: Skuldarar horfa í naflann á sér Það var líf í tuskunum á borgarafundi í Iðnó í gær. Talsmaður samtaka lánþega sagði þar mikilvægt að almenningur léti ekki vaða yfir sig á skítugum skónum. Þingmaður sagði skuldara hins vegar horfa í naflann á sér og þeir hefðu misst sjónar á heildarmyndinni. 29.6.2010 13:12
Málning á Suðurlandsvegi: Lögreglan óskar eftir vitnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að atviki á Suðurlandsvegi, skammt norðan Bláfjallaafleggjarans, eftir hádegi síðastliðinn fimmtudag, 24. júní. 29.6.2010 12:48
Foreldrar töldu rétt að rýma Götusmiðjuna Forsvarsmenn Barnaverndarstofu funduðu í gær með aðstandendum ungmenna sem voru í meðferð í Götusmiðjunni. Faðir pilts sem þar dvaldi segir að sættir hafi náðst við Barnaverndarstofu og greinilegt sé á þeim gögnum sem lögð voru fyrir foreldra að rétt hafi verið að rýma staðinn. Nýtt meðferðarúrræði verður tekið í notkun kvöld. 29.6.2010 12:21
Lögmaður Styrmis: Haldlaus ákæra Ragnar H. Hall, lögmaður Styrmis Þórs Bragasonar, telur ákæru á hendur honum haldlausa, en Styrmir er ákærður fyrir hlutdeild í meintum umboðssvikum Ragnars Zophoníasar Guðjónssonar, sparissjóðsstjóra Byrs og Jóns Þorsteins Jónssonar, fyrrverandi stjórnarformanns sparisjóðsins. 29.6.2010 12:15
Icesave gæti tafið endurskoðun AGS Yfirmaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi útilokar ekki að Icesave málið kunni að tefja þriðju endurskoðun sjóðsins á efnhagsáætlun Íslands. Hann segir hins vegar að sjóðurinn setji ekki það skilyrði fyrir frekari lánveitingum að Icesave málið verði klárað. 29.6.2010 12:07
Funda í Höfða um norrænt samstarf Forsætisnefnd Norðurlandaráðs fundar í Höfða í Reykjavík í dag um norrænt samstarf í kjölfar Stoltenberg-skýrslunnar um utanríkis- og öryggismál á Norðurlöndum. Auk þess verður fjallað um norræna upplýsingaskrifstofu í Minsk í Hvíta-Rússlandi og þátttöku Norðurlanda á fundum G20 hópsins. Þing Norðurlandaráðs verður svo í Reykjavík í nóvember og er búist við allt að 800 gestum. 29.6.2010 11:49
Svanfríður áfram bæjarstjóri J listinn, óháð framboð, og A-listinn, Byggðalistinn, hafa myndað meirihluta í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar. Í tilkynningu um málið segir að það sé stefna meirihlutans að eiga gott samstarf við alla bæjarfulltrúa og því munu fulltrúar B listans og D listans, sem ekki eru í meirihlutanum, fá formennsku í nefndum. 29.6.2010 11:42
Dæmd fyrir að löðrunga lögregluþjón Átján ára stúlka var dæmd í morgun í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að löðrunga lögregluþjón í Kópavogi. Konan sló lögregluþjóninn í nóvember árið 2009. Samkvæmt ákæruskjali hlaut lögreglumaðurinn mar á kinnbeinsboga. 29.6.2010 11:32
Geta vel mætt nýrri bylgju svínainflúensu Ísland er vel búið undir að hefja aftur fjöldabólusetningu gegn svínainflúensu komi til þess að ný bylgja ríði yfir á komandi misserum, að því er fram kemur í upplýsingum frá sóttvarnalækni og greint er frá vef heilbrigðisráðuneytisins. 29.6.2010 11:28
Skaftá vex enn í byggð Skaftá hefur enn verið að vaxa í morgun í byggð í Skaftártungu og á Síðu en vatnamælingamenn telja að þar nái hlaupið hámarki í dag. Rennsli Skaftár inni á hálendi virðist hafa náð hámarki um hádegisbil í gær við Sveinstind á móts við Langasjó. Þaðan á Skaftá eftir að renna um fimmtíu kílómetra niður á láglendi og rennslismælar bæði við Kirkjubæjarklaustur og við Ása hjá Eldvatni hafa sýnt stöðugan vöxt í allan morgun. Snorri Zóphóníasson hjá vatnamælingum Veðurstofu telur þó að þar sé hlaupið við það að ná hámarki. Hann segir að áhrifa þess muni gæta næstu daga í Eldhrauni þar sem vatnið heldur áfram að safnast upp og gæti svo farið að þar flæddi upp á hringveginn síðar í vikunni. Vegna hlaupsins hafa vegir lokast á tveimur stöðum, við Skaftárdal og Skál. Þá flæðir upp á veginn á Fjallabaksleið nyrðri neðan Hólaskjóls en aðeins yfir annað hjólfarið, að sögn vegagerðarmanna, sem skoðuðu veginn þar í morgun og segja þeir að hann sé fær. 29.6.2010 10:59
Fimm mánaða fangelsi fyrir að stela þremur Smirnoff flöskum Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í fimm mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir innbrot og þjófnað í ÁTVR á Höfn í Hornafirði í febrúar á þessu ári. Þar stal maðurinn í félagi við annan, þremur Smirnoff vodkaflöskum. Þeir brutu rúðu í versluninni að nóttu til og tóku flöskurnar. 29.6.2010 10:28
Siðareglur samþykktar í Hafnarfirði Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur samþykkt siðareglur starfsmanna bæjarfélagsins en markmiðið er að skilgreina hátterni og viðmót þeirra. Í reglunum er meðal annars kveðið á um að starfsmönnum sé óheimilt að þiggja og/eða sækjast eftir gjöfum, boðsferðum eða fjármunum frá einstaklingum, fyrirtækjum eða öðrum nema að um sé að ræða óverulegar gjafir eða verðmæti 29.6.2010 10:24
Dæmdir fyrir að stela kaffikönnu og flatskjá Tveir karlmenn um tvítugt voru dæmdir í Héraðsdómi Suðurlands fyrir fjölmörg innbrot í sumarbústaði í Grímsnes- og Grafningshreppi um jólin 2008. 29.6.2010 10:23
30 ár frá kjöri Vigdísar Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti Íslands á þessum degi árið 1980 og gegndi því embætti til ársins 1996. Hún var fyrsta konan í heiminum sem kosin var þjóðhöfðingi í lýðræðislegum kosningum. 29.6.2010 09:56
Ögmundur: Sérlega ógeðfellt Næstu þrjú árin fær Ísland ríflega fjóra milljarða króna úr sjóðum Evrópusambandsins til að búa sig undir aðild. "Sérlega ógeðfellt," segir Ögmundur. 29.6.2010 09:06
Allt fór friðsamlega fram í Héraðsdómi Reykjavíkur Fyrirtaka í máli níumenninganna, sem ákærðir eru fyrir brot gegn Alþingi, brot gegn valdstjórninni, almannafriði og allsherjarreglu vegna atburða sem áttu sér stað í desember árið 2008, hófst í morgun. Þó nokkuð af fólki var saman kominn í Héraðsdómi Reykjavíkur en þó fékk aðeins hluti hópsins að fara inn í réttarsalinn. 29.6.2010 09:04
Nítján vilja bæjarstjórastól Tuttugu manns sóttu um starf bæjarstjóra á Fljótsdalshéraði en einn dró umsókn sína til baka eftir að tilkynnt var að ekki væri nafnleynd yfir umsóknunum. Austurglugginn hefur birt nöfn þeirra nítján sem sækja um á heimasíðu sinni. 29.6.2010 06:00
Hannar nýja Bleika slaufu Ragnheiður I. Margeirsdóttir vöruhönnuður mun hanna Bleiku slaufuna sem seld er til styrktar Krabbameinsfélaginu í ár. 29.6.2010 06:00
Fengu frest fram til ágústloka Starfshópur á vegum fjármálaráðuneytis sem leggja á fram tillögur að heildstæðum breytingum og umbótum á skattkerfinu fundar í fyrsta sinn með samráðsnefnd hagsmunaaðila í dag.„Þetta verður örugglega gagnlegur fundur,“ segir Maríanna Jónasdóttir, formaður starfshópsins. 29.6.2010 05:00
Ragnheiður ósátt við landsfundarsamþykkt Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, segist langt frá því að vera sátt við samþykkt landsfundar Sjálfstæðisflokksins um Evrópusambandið. 29.6.2010 05:00
Of margir bankar á Íslandi Fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segja íslenskt efnahagslíf komið fyrir vind þótt erfiðir tímar séu fram undan. Icesave gæti tafið þriðju endurskoðunina og beðið er niðurstöðu Hæstaréttar varðandi gengislán. 29.6.2010 04:30
Smíða reiknivél vegna gengisdómsins „Frá því dómur Hæstaréttar féll hefur umræða tengd gengistryggðum bílalánasamningum verið mjög ruglingsleg. Við ákváðum því að smíða reiknivél svo fólk geti séð svart á hvítu hvaða áhrif þær leiðir sem ræddar hafa verið hafa á lán fólks,“ segir Ingólfur H. Ingólfsson, stjórnarformaður ráðgjafarfyrirtækisins Sparnaðar. 29.6.2010 04:00
Segir fáa hafa skráð sig úr flokknum „Það er bæði um að ræða nokkrar úrsagnir en líka inngöngur í flokkinn en það er ekkert sem er teljandi í rauninni og bara svipað því sem gengur og gerist,“ sagði Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, spurður hvort mikið hafi verið um úrsagnir úr flokknum eftir landsfund hans um helgina. 29.6.2010 04:00
Álag á starfsmönnum mikið vandamál Álag á vinnustöðum hefur aukist til muna en laun lækka eða standa í stað, samkvæmt nýlegri kjarakönnun Bandalags háskólamanna (BHM). Um sjötíu prósent félagsmanna telja að álag á vinnustöðum þeirra hafi aukist, en svipuð niðurstaða kom fram fyrir ári í hliðstæðri könnun, þar sem hlutfallið var 60 prósent. Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM, segir niðurstöðuna ekki koma á óvart. 29.6.2010 03:00
Skrifa bréf til fyrirmynda Bréfsefni með yfirskriftinni Takk fyrir að vera til fyrirmyndar verður dreift inn á heimili landsins í dag og á morgun. Bréfsefnið er ætlað til bréfaskrifta til þeirra sem fólk telur hafa verið sér fyrirmynd á einn eða annan hátt. 29.6.2010 02:30
Tíu rússneskir njósnarar handteknir í Bandaríkjunum Bandaríkjamenn handtóku í dag tíu einstaklinga grunaða um að vera rússneskir njósnarar. Einn gengur enn laus. Ákærur á hendur njósnurunum hljóma líkt og reyfari frá Kalda stríðs árunum en fólkið hafði búið í Bandaríkjunum í um 20 ár og hafði það markmið að koma sér fyrir í mikilvægum stöðum í stjórnkerfinu. 28.6.2010 21:59
Vinnuafköst minni hjá konum með legslímuflakk Vinnuafköst eru 38% minni hjá konum sem þjást af legslímuflakki eða endómetríósu eins og sjúkdómurinn er kallaður. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samtökum kvenna með endómetríóusu. 28.6.2010 21:35
Styrmir Þór sá þriðji sem er ákærður Þriðji maðurinn sem er ákærður í fyrstu ákærum sérstaks saksóknara er Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka, en eins og fréttastofa greindi frá voru fyrrverandi sparissjóðsstjóri og fyrrverandi stjórnaformaður Byrs, auk ónafngreinds þriðja manns, ákærðir fyrir umboðssvik í tengslum við lánveitingar Byrs sparisjóðs til félagsins Exeter Holding. 28.6.2010 21:07
Vöktuðu tölvupóst brottrekins starfsmanns Starfsmaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna kvartaði til Persónuverndar yfir því að tölvupóstur hans var áframsendur á þriðja aðila eftir að samið var um starfslok hans hjá félaginu. Persónuvernd segir áframsendingu póstsins óheimila. 28.6.2010 20:34
Stefnir í einhver mestu flóð í sögu Skaftárhlaupa Tvö Skaftárhlaup, sem nú koma hvort ofan í annað, eru talin geta valdið mestu flóðum í þekktri sögu þessara náttúruhamfara. Vegir eru farnir í sundur á nokkrum stöðum, varnargarðar hafa brostið og á næstum dögum er búist við að flætt geti yfir hringveginn í Eldhrauni. 28.6.2010 19:06
„Mér er fullkomlega misboðið" Sjúkratryggingar Íslands neita að greiða tannlæknakostnað lítillar stúlku sem missti báðar framtennurnar í hjólaslysi. Helga Vala Helgadóttir, móðir stúlkunnar, segir ríkið beita stúlkuna óréttlæti. Stúlkan þarf að gangast undir aðgerð þar sem hluti verður tekin af mjaðmabeini hennar til að setja í góminn. 28.6.2010 18:44
Kreppunni lokið Sendinefnd frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum hefur verið hér á landi undanfarnar tvær vikur til að undirbúa þriðju endurskoðun sjóðsins á efnhagsáætlun Íslandi. Nefndin hefur meðal annars fundað með íslenskum stjórnvöldum til að fara yfir fjárlagahugmyndir næsta árs en miðað er við að stjórn sjóðsins afgreiði þriðju endurskoðun í lok sumars. 28.6.2010 18:28
Þýskar konur handteknar með 20 lítra af amfetamíni Lögreglan tilkynnti á blaðamannafundi í klukkan fjögur að lögreglan hefði fundið 20 lítra af amfetamíni í þýskri bifreið í Norrænu 17. júní síðastliðinn. 28.6.2010 16:03
Skólastjóri Hraðbrautar segir ekkert athugavert við arðgreiðslur Skólastjóri Hraðbrautar, Ólafur H. Johnson, segir í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum að arðgreiðslur til eigenda skólans, sem DV minntist á í fréttum sínum, ekki athugaverðar. Þá segist hann ennfremur ekki kvíða niðurstöðu Ríkisendurskoðunar þar að lútandi. 28.6.2010 15:05