Innlent

Dæmdir fyrir að stela kaffikönnu og flatskjá

Tveir karlmenn um tvítugt voru dæmdir í Héraðsdómi Suðurlands í morgun fyrir fjölmörg innbrot í sumarbústaði í Grímsnes- og Grafningshreppi um jólin 2008.

Mennirnir stálu öllu mögulegu sem þeir komust í. Allt frá kaffikönnum upp í flatskjá. Þá stálu þeir áfengi og geisladiskum einnig.

Mennirnir hafa áður komist í kast við lögin, meðal annars líkamsárás.

Héraðsdómur Suðurlands dæmdi annan manninn í 30 daga fangelsi en hinn í 3 mánaða fangelsi. Refsingin fellur niður haldi þeir skilorð í tvö ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×