Innlent

Geta vel mætt nýrri bylgju svínainflúensu

Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Ísland er vel búið undir að hefja aftur fjöldabólusetningu gegn svínainflúensu komi til þess að ný bylgja ríði yfir á komandi misserum, að því er fram kemur í upplýsingum frá sóttvarnalækni og greint er frá vef heilbrigðisráðuneytisins.

Sóttvarnalæknir bendir á að allir fyrri heimsfaraldrar hafi gengið yfir í bylgjum. Því sé mikilvægt að til sé í landinu virkt bóluefni, en nú eru til bóluefnabirgðir fyrir meira en 100 þúsund manns.

Í mars á þessu ári höfðu um 150 þúsund manns látið bólusetja sig gegn svínainflúensu hér á landi, en reglulega kemur fólk á heilsugæslustöðvar til bólusetningar.

Í júní hafa um 300 manns látið bólusetja sig gegn inflúensunni. Fyrst var tilkynnt um nýjan stofn inflúensu A (H1N1) í lok apríl 2009 í Mexíkó. Hér á landi var fyrsta tilfelli inflúensunnar staðfest í maí í fyrra.

Mesta aukningin í útbreiðslu faraldursins var í október, en hann fjaraði út í árslok. Talið er að um 55 þúsund manns hafi fengið sjúkdóminn hér á landi árið 2009 eða um 17% þjóðarinnar. Um 170 manns voru lagðir inn á sjúkrahús og a.m.k. tveir létust af völdum svínainflúensunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×