Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vilja friðlýsa Skjálfandafljót Þingmenn þriggja flokka hafa lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um friðlýsingu Skjálfandafljóts og alls vatnasviðs þess ofan Mjóadalsár. Fyrsti flutningsmaður tillögunnar er Þuríður Backman, þingmaður VG. 3.11.2009 10:45
Vegurinn um Óshlíð nýttur sem hjólaleið Óshlíðarvegur verður væntanlega nýttur sem útivistar- og jafnvel hjólaleið þegar hann verður lagður af sem stofnvegur þegar jarðgöng milli Bolungarvíkur og Hnífsdals verða tilbúin árið 2011. Frá þessu er greint á vef Bæjarins besta. 3.11.2009 10:26
Kostnaður við ESB-þýðingar hleypur á tugum milljóna Kostnaður ríkissjóðs vegna þýðingar á efni sem tengist mati framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á hæfi Íslands til að sækja um aðild að ESB hleypur á tugum milljóna króna. Gera má ráð fyrir að um sé að ræða 12 mánaða vinnu fyrir sex þýðendur. Þetta kemur fram í svari Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, við fyrirspurn Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. 3.11.2009 09:43
Greiddi 1,6 milljarð í atvinnuleysisbætur Vinnumálastofnun greiddi í gær rúmlega 1,6 milljarða króna í atvinnuleysistryggingar til um 13.100 einstaklinga. Á vef Vinnumálastofnunar kemur hins vegar fram að heildargreiðslur í september voru rétt rúmlega 1.8 milljarður króna og var þá greitt til 15.324 einstaklinga. 3.11.2009 09:35
Garðyrkjubændur mótmæla við Alþingishúsið Íslenskir garðyrkjubændur neyðast til þess að draga verulega úr framleiðslu sinni í vetur og fækka starfsfólki gangi fyrirhugaðar hækkanir á raforkuverði eftir. Í auglýsingu í Fréttablaðinu í dag segja garðyrkjubændur að hækkunin sé rothögg fyrir stéttina og rekstrargrundvöll íslenskrar framleiðslu. Í dag klukkan hálfeitt ætla garðyrkjubændur að mæla með íslenskri garðyrkju fyrir framan Alþingishúsið áður en þingfundur hefst í dag. Landsmenn eru hvattir til að mæta og taka þátt. 3.11.2009 08:51
AGS skýrslan birt í dag Skýrsla sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda verður birt í dag klukkan tvö að íslenskum tíma. 3.11.2009 07:20
Brutu rúðu í Alþingishúsinu Lögregla handtók í nótt ungt fólk á Austurvelli sem brotið hafði rúðu í Alþingishúsinu. Fólkið bar því við að það væri að mótmæla Icesave-samningunum að sögn lögreglu. Fólkinu var sleppt að lokinni skýrlutöku en þau mega búast við ákæru fyrir rúðubrotið. 3.11.2009 07:15
Keyrðu á og hlupu á brott Lögregla veitti tveimur mönnum eftirför í Teigahverfi í gærkvöldi eftir gáleysisakstur á Kringlumýrarbraut. Mennirnir voru á Volkswagen jeppa og keyrðu þeir meðal annars yfir girðingu og klesstu að minnsta kosti einn bíl. Að lokum staðnæmdist bíllinn við Grand hótel við Sigtún og mennirnir hlupu út í náttmyrkrið. Nokkurt lið lögreglu leitaði þeirra í hverfinu meðal annars með aðstoð hunda, en án árangurs. 3.11.2009 07:13
Tóku út upplýsingar um skuldir Actavis Seðlabanki Íslands bað um frestun útgáfu skýrslu sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda. 3.11.2009 06:30
Sætir ákæru fyrir milljónaskattsvik Íslendingurinn sem situr í gæsluvarðhaldi grunaður um tengsl við glæpamálið umfangsmikla sem upp kom á Suðurnesjum um miðjan október sætir ákæru fyrir skattsvik upp á tæpar tuttugu milljónir. 3.11.2009 06:00
Skjóta á rjúpur úr bílunum „Okkur hafa borist tilkynningar um að rjúpnaveiðimenn séu að þvælast upp á hálendið á jeppum og skjóta á fuglinn úr bílunum,“ segir Adolf Árnason, lögreglumaður á Hvolsvelli. 3.11.2009 06:00
Heimilin fái greiðsluplan en fyrirtækin afskrifað Þingmenn spurðu ráðherra um verklagsreglur bankanna og um traust á bankakerfinu í gær, í kjölfar frétta af hugsanlegum milljarða afskriftum Nýja Kaupþings á skuldum 1998, sem á Haga, sem á meðal annars Bónus. Því var haldið fram að bankar færu mýkri höndum um fyrirtæki en einstaklinga. 3.11.2009 06:00
Margt hefur áunnist með Schengen-aðild Smári Sigurðsson, yfirmaður alþjóðadeildar embættis Ríkislögreglustjóra, telur úrsögn úr Schengen-samstarfinu ekki leysa þann vanda sem afbrot útlendinga á Íslandi er. Upptaka landamæraeftirlits í stað Schengen-aðildar væri skref aftur á bak. Hann bendir á að margt hafi unnist með aðild, helst þó aðgangur lögreglu að alþjóðlegum gagnagrunnum sem sé hrein bylting. Með honum hafi lögreglan til að mynda fundið eftirlýsta glæpamenn sem ella hefði ekki orðið. 3.11.2009 06:00
Óttaðist róg og baktal skósveina Óskars Gestur Guðjónsson, sem meðal annars hefur verið formaður kjördæmasambands Framsóknarflokksins í Reykjavík og varaformaður umhverfis- og samgönguráðs borgarinnar, sagði sig frá öllum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn í kjölfar deilu við borgarfulltrúann Óskar Bergsson. Í bréfi sem Gestur sendi borgarstjórnarflokknum fyrir tveimur vikum, og Fréttablaðið hefur undir höndum, segist hann hafa hætt af ótta við róg og baktal skósveina Óskars. 3.11.2009 06:00
Ætla að miðla góðum fréttum Samtök atvinnulífsins kalla eftir jákvæðum fréttum úr atvinnulífinu og ætla að miðla þeim áfram. Fréttum er hægt að koma til skila á vef samtakanna, www.sa.is. 3.11.2009 05:00
Vilja hagstæð lán Nýstofnuð Samtök ungra bænda vilja að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra beiti sér fyrir að ungt fólk geti fengið hagstæð lán til jarðakaupa og þannig hafið búskap. 3.11.2009 04:00
Stefna að útboði á næsta ári Samkvæmt frummatsskýrslu Vegagerðarinnar verða umhverfisáhrif af gerð jarðganga milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar að mestu óveruleg. 3.11.2009 04:00
Stal peningaskáp úr Bautanum Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið, fyrir að stela peningaskáp, auk fleiri brota. Skápnum, sem innihélt 154 þúsund krónur, stal hann með því að brjótast inn í veitingastaðinn Bautann á Akureyri. 3.11.2009 03:00
Skil skilyrði fyrir leikskólaplássi Borgaryfirvöld hafa ákveðið að skilyrði fyrir leikskóladvöl barna sé að foreldrar þeirra séu ekki í vanskilum við leikskólasvið borgarinnar. 3.11.2009 02:00
Noro-veirur í hindberjum Matvælastofnun bendir almenningi á að hitun á frosnum innfluttum hindberjum sé fyrirbyggjandi til að forðast sýkingar af völdum noro-veira. 3.11.2009 01:00
Púað á félagsmálaráðherra Félagsmálaráðherrann Árni Páll Árnason var púaður niður á fundi Hagsmunasamtaka Heimilanna sem var haldinn í Iðnó í kvöld. 2.11.2009 22:06
Fyrirtæki á undanþágu uppvís af milljarða gjaldeyrisbraski Um það bil fjörtíu fyrirtæki hafa orðið uppvís af því að misnota undanþágu um gjaldeyrishöft frá Seðlabanka Íslands með stórfelldu gjaldeyrisbraski samkvæmt fréttastofu RÚV. 2.11.2009 19:38
Fyrrverandi lögga með fíkniefni í Argentínu Íslendingur á sextugsaldri, sem áður starfaði sem rannsóknarlögreglumaður hjá ríkislögreglustjóra, situr nú í gæsluvarðhaldi í Argentínu eftir að hann var handtekinn með fimm kíló af kókaíni í fórum sínum. 2.11.2009 18:45
Vörður samþykkir prófkjör Á fundi Varðar - Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, sem haldinn var í dag mánudaginn 2. nóvember, var samþykkt að prófkjör skuli fara fram í Reykjavík um val frambjóðenda á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar vorið 2010. 2.11.2009 18:08
Nýr ráðuneytisstjóri ráðinn í fjármálaráðuneytið Mennta- og menningarmálaráðherra hefur í dag fallist á ósk fjármálaráðherra um að Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti, flytjist í embætti ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu frá og með 1. nóvember 2009 samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu. 2.11.2009 18:01
Vopnfirðingar sjá fram á hátíð eftir 2 ár Vopnfirðingar telja sig ljónheppna að nýr vegur til héraðsins skyldi hafa sloppið í útboð rétt fyrir hrun. Fyrir vikið sjá þeir fram á hátíðarhöld eftir tvö ár. 2.11.2009 19:15
Evrópska lánið sterk skilaboð um Ísland Lánveiting Evrópska fjárfestingarbankans til Orkuveitu Reykjavíkur er gríðarlega sterkt merki út í hinn alþjóðlega fjármálaheim, að mati forystumanna orkufyrirtækjanna, og jafnvel upphafið að endurreisn íslensks efnahagslífs. 2.11.2009 19:06
Stefán Haukur stýrir aðildarviðræðum Íslands Utanríkisráðherra hefur falið Stefáni Hauki Jóhannessyni sendiherra að vera aðalsamningamaður Íslands í fyrirhuguðum aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins. Stefán Haukur er einn reyndasti samningamaður Íslands á alþjóðavettvangi. Hann hefur verið sendiherra Íslands gagnvart Evrópusambandinu í Brussel frá árinu 2005. 2.11.2009 16:37
Árásarkonan í Keflavík áfram í gæsluvarðhaldi Lögreglustjórinn á Suðurnesjum krafðist þess í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness að gæsluvarðhald yrði framlengt yfir Selmu Gunnarsdóttur sem grunuð er um að hafa stungið telpu með hnífi í brjóstið 27. september en atburðurinn átti sér stað á heimili telpunnar í Reykjanesbæ. 2.11.2009 16:25
Bæjarstjóri: Ekkert athugavert þótt fólk skoði atvinnutækifæri Það er ekkert athugavert við það þótt að fólk skoði spennandi tækifæri á vinnumarkaði og freisti gæfunnar innanlands sem utan, segir Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri Seltjarnarness. 2.11.2009 16:20
Vilja fá fund með framkvæmdastjóra AGS Hóps fólks hefur sent Dominique Strauss-Kahn, framkvæmda Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, bréf og óskað eftir fundi með honum til að leita svara vegna efnahagsáætlunar sjóðsins. Meðal þeirra sem skrifa undir bréfið eru Lilja Mósesdóttir þingmaður VG, Ólafur Arnarson rithöfundur, Einar Már Guðmundsson rithöfundur og Halla Gunnarsdóttir fyrrverandi aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra. 2.11.2009 16:17
127% verðmunur á léttöli Um 127% verðmunur er á ódýrasta fáanlega 500 millilítra léttölinu í nýrri verðkönnun ASÍ. Þar kemur fram að léttölið hafi kostað 79 krónur í Bónus en 179 krónur í 10-11. Verðmunur á drykkjarvörum sé hins vegar oftast á bilinu 90-110%. 2.11.2009 16:07
Bjarni: Ekki hægt að skýla sér á bak við bankaleynd „Staðreyndin er að það er ekki endalaust hægt að skýla sér á bak við bankaleynd. Það á að vera tiltölulega auðvelt að setja skýrar reglur sem allir geta skilið þar sem tryggt er að sambærileg mál fái líka meðhöndlun og þar sem bankarnir geta tjáð sig um það að þeir telja að í tilteknu tilviki hafi áframhaldandi eignarhald viðkomandi eiganda verið mikilvægt,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokknum, í umræðum á Alþingi í dag. 2.11.2009 15:29
Enginn biðlisti á frístundaheimilum í Reykjavík Enginn biðlisti er til staðar á frístundaheimilunum á vegum Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar fyrir utan 3 nýjar umsóknir. Sigrún Sveinbjörnsdóttir, verkefnisstjóri á sviði tómstundamála, segir að ástæðan sé sú að vel hafi gengið að ráða starfsfólk. „Við höfum alltaf verið undirmönnuð á þessum tíma,“ segir Sigrún. Nú sé svo til búið að ráða í allar stöður og starfsmannamálin komin í eðlilegan farveg. 2.11.2009 15:19
Auddi: Ekki tilgangur okkar að niðurlægja beljuna „Það var aldrei tilgangur okkar að niðurlægja beljuna," segir Auðunn Blöndal sjónvarpsmaður. 2.11.2009 15:00
Tíu á gjörgæslu vegna svínaflensu Tíu sjúklingar liggja á gjörgæsludeild Landspítalans vegna svínaflensu eða H1N1 inflúensunnar. 39 eru inniliggjandi á spítalanum vegna flensunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá farsóttarnefnd spítalans. 2.11.2009 14:47
Krefst rannsóknar á kúasæðingu Audda Dýralæknafélag Íslands krefst rannsóknar á kúasæðingu Auðuns Blöndal sem fjallað var um í Fréttablaðinu í dag. „Þeir eru að gera eitthvað sem leikmenn mega ekki gera og þetta er niðurlægjandi fyrir dýrið. Tiltækið er fámunalega ósmekklegt og það er spurning hvort þetta sé ekki dýraverndarmál,“ segir Guðbjörg Þorvarðardóttir, formaður Dýralæknafélag Íslands, sem er allt annað en sátt með framgöngu sjónvarpmannanna Auðuns Blöndal og Sverris Þór Sverrissonar, betur þekktir sem Auddi og Sveppi. 2.11.2009 14:00
Þrír af fimm framkvæmdastjórum yfirgefa Seltjarnarnesbæ Tveir framkvæmdastjórar af fimm hjá Seltjarnarnesbæ hyggjast segja upp störfum og einn sagði upp störfum í morgun. Ástæðan er sögð vera óánægja með breytingar sem hafa orðið í stjórnsýslu bæjarins eftir að Ásgerður Halldórsdóttir tók við stöðu bæjarstjóra fyrr á árinu. 2.11.2009 13:27
Bjóða fyrrum vistmönnum Silungapolls viðtöl Nefnd sem kannar starfsemi vist- og meðferðaheimila fyrir börn kannar um þessar mundir starfsemi vistheimilisins Reykjahlíðar, heimavistaskólans Jaðars og vistheimilisins Silungapolls 2.11.2009 13:08
Krefst fundar í viðskiptanefnd vegna afskrifta hjá Högum Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur farið fram á að viðskiptanefnd Alþingis komi saman vegna frétta um afskriftir af skuldum eigenda Haga við Kaupþing. 2.11.2009 12:39
Evrópulánið tryggir orku í fyrsta áfanga Helguvíkur Ákvörðun Evrópska fjárfestingabankans, að gefa grænt ljós á þrjátíu milljarða króna lán til Orkuveitu Reykjavíkur, þýðir að Orkuveitan getur tryggt nægilegt rafmagn til fyrsta áfanga álvers Norðuráls í Helguvík. Stjórnarformaður Orkuveitunnar segir lánskjörin ásættanleg. 2.11.2009 12:32
Hlín: Ráðning þjóðleikhússtjóra var leikrit Einn umsækjenda um stöðu þjóðleikhússtjóra gagnrýnir ráðningarferlið harðlega og segir það sýndarmennsku frá upphafi til enda. Hún segir að aldrei hafi annað staðið til en að ráða niðurskurðarmeistara í starfið og íhugar að kæra ráðningarferlið til umboðsmanns Alþingis. 2.11.2009 12:27
Sýkingin í síldinni alvarlegri en í fyrra Sýking í íslensku sumargotssíldinni, sem fundist hefur í Breiðafirði, er alvarlegri en í fyrra og mælir Hafrannsóknastofnunin með veiðibanni. Þetta er mikið áfall fyrir síldveiðiflotann og vinnslufyrirtæki í landi og ljóst að þjóðarbúið verður af milljarðaverðmætum. 2.11.2009 12:09
Skýrsla sendinefndar AGS ekki birt á áður tilkynntum tíma Skýrsla sendinefndar AGS á Íslandi sem átti að birtast á heimasíðu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í hádeginu í dag gerði það ekki. Heimila átti birtingu skýrslunnar klukkan tvö í dag og áttu blaðamenn að fá hana fyrirfram til þess að geta kynnt sér efni hennar, en í skýrslunni er meðal annars lagt mat á skuldaþol íslenska ríkisins verði ríkisábyrgð heimiluð á Icesave-samningana. 2.11.2009 12:08
Icesave afgreitt í næstu viku Talið er nánast öruggt að Icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar hafi meirihluta á Alþingi. Málið verður væntanlega afgreitt lög frá Alþingi í lok næstu viku. 2.11.2009 12:07