Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ásta fundar með forseta Evrópuþingsins Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, mun eiga fund með Jerzy Buzek, forseta Evrópuþingsins, í Brussel á miðvikudaginn. Þau munu ræða samskipti þinganna í aðildarumsóknarferli Íslands að Evrópusambandinu. 2.11.2009 09:56
Sextíu ár frá því fyrstu umferðarljósin voru tekin í notkun Í dag eru liðin 60 ár frá því fyrstu umferðarljósin tekin í notkun á Íslandi en þau voru staðsett á gatnamótum Austurstrætis og Pósthússtrætis. Í beinu framhaldi komu svo ljós á þrenn önnur gatnamót í miðbæ Reykjavíkur, við Lækjartorg og á Laugavegi við Ingólfsstræti og Skólavörðustíg, að fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 2.11.2009 09:33
Fjármögnun virkjana Orkuveitunnar á lokastigi Evrópski fjárfestingarbankinn hefur samþykkt að lána Orkuveitu Reykjavíkur 30 milljarða króna. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins barst samningur þess efnis til fyrirtækisins á föstudag, þar sem skilyrði bankans fyrir lánveitingu eru tíunduð. Það er fyrirtækisins að ákveða hvort það samþykkir þau skilyrði og þar með lánið. Verði það gert verður skrifað undir í vikunni, samkvæmt heimildum blaðsins. 2.11.2009 06:00
Borgarafundur í Iðnó í kvöld Hagsmunasamtök heimilanna efna til borgarafundar í Iðnó klukkan átta í kvöld. Yfirskrift fundarins er: Aðgerðir stjórnvalda, bjargráð eða bjarnargreiði? Framsöguerindi flytja þeir Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra, Marinó G. Njálsson, stjórnarmaður í samtökunum, Jóhann G. Jóhannsson og Theódór Norðkvist. Að loknum framsögum verða pallborðsumræður með þátttöku þingmanna úr öllum flokkum, auk framsögumanna. Öllum ráðherrum og þingmönnum hefur verið sérstaklega boðið á fundinn, en fundarstjóri verður Vilhjálmur Árnason.- kóp 2.11.2009 05:45
Engar upplýsingar um sparnað vegna opins hugbúnaðar Ríkið hefur ekki heildarupplýsingar um kostnað stofnana hins opinbera vegna leigu á leyfum á séreignahugbúnaði. Ekki liggja því fyrir upplýsingar um hugsanlegan sparnað ríkisins af innleiðingu opins hugbúnaðar. 2.11.2009 05:15
Flensan gæti enn átt eftir að versna Aldrei hafa fleiri sjúklingar legið á Landspítalnum með svínaflensu. Þar liggja nú 45 sjúklingar með flesuna, þar af ellefu á gjörgæsludeild. Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að hann eigi von á því að í vikunni komi í ljós hvort flensan eigi enn eftir að versna eða hvort nú muni loks fara draga úr henni. Svo gæti farið að um 100 manns til viðbótar þyrftu að leggjast inn. Þar með gætu sjúklingar á gjörgæsludeild orðið allt að þrjátíu talsins en að jafnaði hefur fólk, þungt haldið af svínaflensu, þurft að dvelja þar í þrjá til fjórar vikur. Spítalann segir hann þó geta annað slíku álagi. 2.11.2009 05:00
Telur verðfall á fiskmörkuðum kalla á rannsókn Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, segir að leita þurfi skýringa á því hvers vegna verð á fiskmörkuðum hér á landi og útflutningsverð þróaðist ekki í takt við gengisfall krónunnar framan af ári. 2.11.2009 04:00
Leita læknis eftir neyslu orkudrykkja Töluvert er um að fólk leiti sér læknisaðstoðar eftir að hafa drukkið svokallaða orkudrykki. Þetta segir Ófeigur T. Þorgeirsson, yfirlæknir á slysa- og bráðasviði. Hann segir nauðsynlegt að fólk lesi innihaldslýsingar og virði ráðlagðan hámarksskammt. „Þetta eru mjög varasamir drykkir í of miklu og of hröðu magni,“ segir Ófeigur um orkudrykki almennt. 2.11.2009 03:00
„Við erum rosalega bjartsýn og vongóð“ „Þetta er örugglega létt geggjun. En við erum rosalega bjartsýn og vongóð,“ segir Telma Birgisdóttir, einn eigenda Tekk ehf., sem hefur tekið við rekstri Habitat. 2.11.2009 02:30
Hálf milljón gefin í fótabað Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands hefur styrkt Hveragerðisbæ um fimm hundruð þúsund krónur til að gera fótabað. „Verkefnið er hluti af endurbótum og uppbyggingu svæðisins með það að markmiði að auka aðsókn ferðamanna á Hverasvæðið," segir um málið í fundargerð mannvirkjanefndar Hveragerðis. „Hverasvæðið er eitt af fáum svæðum þar sem hægt er að sjá fjölbreytta nýtingu jarðhita á Íslandi með ræktun í gróðurhúsum, fótabaði í hveravatni, borholum, suðu á eggjum, rúgbrauðsbakstur auk goshvera, leirhvera og hveralækja."- gar 2.11.2009 02:00
Vill breyta turni í hótel Þyrping hefur sótt um leyfi til að fá að breyta einum íbúðaturni í Skuggahverfi í hótel. Það mundi rúma allt að 160 herbergi. Þetta kom fram í fréttum RÚV í gær. 2.11.2009 02:00
Sjaldan veldur einn þá tveir deila Vegna fréttar sem birtist á Vísi í gærkvöldi um slagsmál í Keiluhöllinni vill fyrirtækið taka nokkur atriði fram, þar sem ekki hafi verið greint rétt frá í fréttinni. Málið snýst um átök sem brutust út seint á föstudagskvöldið milli tveggja hópa sem voru á brautum hlið við hlið. 1.11.2009 20:00
Aldrei fleiri á spítala með svínaflensu Aldrei hafa fleiri sjúklingar legið á Landspítalnum með svínaflensu en 45 sjúklingar liggja þar nú, þar af ellefu á gjörgæslu. Undanfarna daga hafa borist fréttir af því að flensan sé í rénun en í dag var tekin ákvörðun um að hafa spítalann áfram á svokölluðu virkjunarstigi. 1.11.2009 18:05
TF-Líf sótti slasaðann ökumann TF-Líf þyrla Landhelgisgæslunnar var beðin um að sækja slasaðan ökumann sem hafði velt bíl sínum á Holtavörðuheiði í dag. Sjúkrabíll bað um aðstoð þyrlunnar í gegnum neyðarlínuna klukkan 13:52 og var hún farin í loftið tuttugu mínútum síðar. 1.11.2009 17:25
Hvers vegna verndar íslenska ríkið ekki borgara sína? Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor í stjórnmálafræði ræðir um flókinn málarekstur Jóns Ólafssonar í Bretlandi, en Hannes segist hafa verið eitt fórnarlambið í því máli. Tilefni skrifanna er úttekt Sunday Times í morgun sem birtir fréttaskýringu um málið. Hannes rekur málið sem snýst í grunninn um ummæli Hannesar í garð Jóns. Hann spyr síðan að lokum hversvegna kostnaður við meiðyrðarmál í Bretlandi sé óbærilegur fyrir aðra en auðmenn og hversvegna íslenska ríkið verndi ekki borgara sína gegn því einkennilega réttarfari sem ríki í landinu. 1.11.2009 17:03
Búast má við jarðskjálftahrinu áfram í dag Jarðfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að búast megi við að jarðskjálftahrinan sem gekk yfir vestur af Reykjanesi í nótt haldi áfram í dag. Ekki er þó neinn gosóróa að sjá á jarðskjálftamælum. 1.11.2009 11:49
Rúv brást ekki í umfjöllun um viðskiptalífið Páll Magnússon segist hafa litlar áhyggjur af þeim röddum sem nú heyrast að Ríkisútvarpið sé að draga taum ríkisstjórnarinnar. Hann segir að eitt sinn hafi hann verið sagður framlenging hinnar svokölluð bláu handar. Nú eigi hann að vera málpípa vinstri manna, þetta fari bara eftir því hvernig vindar blása. 1.11.2009 11:43
Segir Egil Helgason hafa lagt son sinn í einelti Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi þingmaður segir að Egill Helgason þáttastjórnandi á Rúv hafi eftir hrunið lagt son sinn og einn af seðlabankastjórunum í einelti. Þessi orð lét Jón falla í umræðuþættinum Á Sprengisandi á Bylgjunni fyrir stundu. 1.11.2009 11:22
Snarpir skjálftar á Reykjanesi í nótt Mikil jarðskjálftahrina gekk yfir vestur af Reykjanesi í nótt. Flestir jarðskjálftanna urðu við Geirfugladrang og Eldeyjarboða vestur af Reykjanesi. Stærstu skjálftarnir voru um 4 stig á Richter. 1.11.2009 09:39
Passið ykkur á hálkunni Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að á Suður- og Vesturlandi sé víða hálka eða hálkublettir, vegir í öðrum landshlutum séu víðast auðir en þó megi búast við hálku eða hálkublettum á heiðum. Það er því betra að hafa varann á þegar maður fer af stað í morgunsárið. Einn ökumaður í Reykjanesbæ fór heldur ógætilega og hafnaði á ljósastaur í morgun. 1.11.2009 09:36
Minna atvinnuleysi hjá rafiðnaðarmönnum Atvinnuleysi meðal rafiðnaðarmanna er töluvert minna en almennt gerist á vinnumarkaðnum eða 4,3 prósent samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Rafiðnaðarsambandið í september. En almennt atvinnuleysi í landinu er hins vegar um 9 prósent. 1.11.2009 09:23
Strokupiltur fannst á Akureyri Lögreglan lýsti í gær eftir tveimur piltum sem struku af meðferðarheimilinu Árborg rétt fyrir utan Húsavík í fyrrakvöld. Annar pilturinn fannst á Akureyri í gærkvöldi og er hann nú á lögreglustöðinni þar í bæ. 1.11.2009 09:17
Lögreglumaður fékk glas í höfuðið Lögreglumaður sem var við störf fyrir utan 800 Bar á Selfossi fékk glas í höfuðið um klukkan þrjú í nótt. Að sögn lögreglu var árásin með öllu tilefnislaus en það var stúlka sem henti glasinu í lögreglumanninn. Hlaut hann kúlu á höfði og mar en stúlkan sefur nú úr sér í fangageymslum. Þá var einn ökumaður tekinn grunaður um ölvunarakstur og ein bílvelta varð í bænum. 1.11.2009 09:10
Lögreglan hafði afskipti af slagsmálum í Keiluhöllinni Lögreglan var kölluð að Keiluhöllinni í Öskjuhlíð um klukkan hálf eitt í nótt vegna slagsmála innan dyra. Að sögn varðstjóra var lítið bókað um atvikið en faðir stúlku sem varð fyrir árás segist undrandi á viðbrögðum starfsfólks Keiluhallarinnar. Dóttir hans hlaut áverka eftir að hópur fólks réðst að henni og félögum hennar. 31.10.2009 21:00
Pólitískar stöðuveitingar í æðstu störf ríkisins Næstum því helmingur af öllum stöðuveitingum í æðstu störf ríkisins síðustu ár eru pólitískar. Þetta kemur fram í tveimur rannsóknum sem Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í fjölmiðlafræði kynnti í gær. 31.10.2009 18:39
100 þúsund Íslendingar á McDonalds í vikunni Tæplega 100 þúsund Íslendingar hafa farið á McDonalds í vikunni til að kveðja hamborgarastaðinn sem lokar nú á miðnætti. Eigandi staðarins hefur farið í viðtöl hjá öllum helstu fjölmiðlum heims en brotthvarf veitingakeðjunnar er orðið eitt stærsta fréttamál sem komið hefur frá Íslandi á þessu ári. 31.10.2009 18:30
Fjörutíu á Landspítalanum vegna svínaflensu Fjörutíu manns liggja á Landspítalanum vegna svínaflensunnar þar af tíu á gjörgæslu. Flestir sem eru á gjörgæslu eru um fimmtugt, yngsti sjúklingurinn er tveggja ára og sá elsti um áttrætt. 31.10.2009 18:29
Furða sig á misrétti í Háskóla Íslands Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir furðu sinni á því misrétti sem viðhefst milli trúarhópa í Háskóla Íslands. Í umfjöllun fjölmiðla undanfarna daga hefur komið fram að í skólanum sé aðstaða til trúariðkunar, en aðeins í formi kapellu fyrir þá sem játa kristna trú. Múslimar hafa að vísu fengið aðgang að kapellu þessari um tíma en nú hefur verið tekið fyrir að aðrir trúarhópar en kristnir fái að nýta hana. 31.10.2009 17:26
Hefur mætt á 50% funda í Skipulagsráði Framsóknarmaðurinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur mætt á 18 af þeim 36 fundum sem hann hefur átt að sitja í Skipulagsráði Reykjavíkurborgar. Alls hafa verið haldnir 43 fundir síðan Sigmundur var kosinn í ráðið þann 21.ágúst 2008 en hann var í leyfi á 7 af þeim fundum. Fulltrúar Vinstri grænna og Samfylkingarinnar í ráðinu kölluðu eftir yfirliti um fundarsetu Sigmundar á síðasta fundi. 31.10.2009 16:15
Rjúpnaskytta varð fyrir slysaskoti Rjúpnaskytta varð fyrir slysaskoti við veiðar á Bjarnarfelli í Laxárdal í Dölum fyrr í dag. Veiðifélagar mannsins höfðu samband við Neyðarlínuna og létu vita. 31.10.2009 15:27
Flutt á slysadeild eftir árekstur Stúlka var flutt með sjúkrabíl á slysadeild eftir árekstur tveggja bíla á Bíldshöfða í hádeginu í dag. Keyrt var inn í hlið á bíl og þurfti að hreinsa upp töluvert af olíu á vettvangi að sögn slökkviliðsins. 31.10.2009 15:01
Verðlaunaður fyrir framlag sitt til læknavísindanna Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og prófessor við Háskóla Íslands tók í gær við Anders Jahre verðlaununum sem veitt eru árlega í viðurkenningarskyni fyrir framúrskarandi árangur við rannsóknir í læknavísindum á Norðurlöndum. 31.10.2009 13:53
Sígarettuþjófar aftur á ferð á Selfossi Í nótt var brotist inn í Vínbúðina við Vallholt á Selfossi og þaðan stolið 300 lengjum af vindlingum. Þjófarnir komust inn í húsið með því að brjóta rúðu á bakhlið þess og skríða þar inn. Engar upplýsingar liggja fyrir um hvenær í nótt innbrotið átti sér stað né hverjir voru þar að verki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi. 31.10.2009 13:07
Davíð Oddsson fær ókeypis hamborgara Í dag er síðasta tækifærið til þess að fá sér McDonalds á Íslandi en eins og kunnugt er mun nýr hamborgarastaður koma í stað þess fornfræga og opna formlega á morgun. Sá mun bera nafnið Metro og opna á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu. 31.10.2009 09:52
Einum í hópnauðgunarmálinu sleppt Einn af þeim sex ungu mönnum sem setið hafa í gæsluvarðhaldi undanfarna daga vegna aðildar að hrottafengnu hópnauðgunarmáli í Bandaríkjunum var sleppt úr haldi í morgun. 31.10.2009 09:43
Piltarnir fundnir Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lýsti í morgun eftir tveimur piltum sem struku af meðferðarheimilinu Árborg við Húsavík um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Þeir eru nú komnir í leitirnar að sögn lögreglu. 31.10.2009 09:34
Rólegt hjá lögreglunni um allt land Nóttin virðist hafa verið nokkuð róleg hjá helstu lögregluembættum landsins í nótt. Á Akranesi var þó töluvert um ölvun í bænum og mikið af fólki. Í gærkvöldi opnaði nýr skemmtistaður í bænum auk þess sem fjölbrautarskólinn var með ball. Engin teljandi vandræði þar að sögn lögreglu. 31.10.2009 09:25
Um 1.100 uppvís að því að svíkja út bætur Um ellefu hundruð manns hafa orðið uppvísir að því að svíkja út atvinnuleysisbætur síðustu tvo mánuði. Vinnumálastofnun hóf nýverið sérstakt eftirlit með slíkum svikum. Þetta kom fram í máli Gissurar Péturssonar, forstjóra Vinnumálastofnunar, á ársfundi stofnunarinnar í gær. 31.10.2009 07:30
Vilja að dómarinn víki sæti Lögmenn Árna M. Mathiesen og íslenska ríkisins kröfðust þess fyrir dómi í gær að Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari viki sæti í skaðabótamáli sem Guðmundur Kristjánsson hæstaréttarlögmaður hefur höfðað vegna skipunar Þorsteins Davíðssonar í embætti héraðsdómara. 31.10.2009 07:00
Höftum létt af innstreymi gjaldeyris Búist er við að Seðlabankinn kynni í dag ákvörðun um að stigið verði fyrsta skrefið í áætlun bankans um afnám gjaldeyrishafta. Með því yrðu afnumin höft af innstreymi erlends gjaldeyris sem ætlað er í nýjar fjárfestingar. 31.10.2009 06:30
Dæla vatni í jörðina til að lengja líftíma orkusvæðis HS Orka dælir nú niður vatni í jörðina til að vinna á móti þrýstilækkun, lægra vatnsborði undir jörð, í Svartsengi og í Reykjanesvirkjun. 31.10.2009 06:00
Lögreglumenn vilja Ísland úr Schengen Félagsmenn í Lögreglufélagi Vestfjarða vilja að Ísland hætti þátttöku í Schengen-samstarfinu og taki í staðinn upp vegabréfaeftirlit eins og tíðkaðist áður en til Schengen-aðildar kom 2001. 31.10.2009 06:00
Eiginfjárstöðu og gengishruni að kenna Sigurður Magnússon, fyrrverandi bæjarstjóri á Álftanesi, segir að vegna veikrar eiginfjárstöðu sveitarfélagsins hafi hrunið á gengi krónunnar valdið meiri skaða á efnahag Álftaness en flestra annarra sveitarfélaga. Álftanes hefur nú óskað eftir aðstoð Eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga við að greiða úr miklum fjárhagsvanda. 31.10.2009 05:30
Meirihlutann skortir kjark „Þessi áætlun tekur ekkert á breyttri og verri stöðu bæjarsjóðs og virðist meirihlutinn ekki hafa kjark til taka á brýnum málum hvað varðar fjárhag bæjarins,“ segir í bókun sem bæjarfulltrúar minnihluta Neslistans lögðu fram á síðasta bæjarstjórnarfundi á Seltjarnarnesi. Þar var kynnt fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árin 2010 til 2012. 31.10.2009 05:15
Aldrei fleiri flensusjúklingar á spítala Aldrei hafa fleiri legið inni á Landspítala af völdum svínaflensu en í gær. Þá höfðu átta nýir lagst inn en enginn verið útskrifaður. Samtals voru 43 inniliggjandi, þar af ellefu á gjörgæslu. Yngsti gjörgæslusjúklingurinn var tveggja ára en sá elsti rúmlega áttræður. 31.10.2009 05:00