Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Óeirðadeildin fullmönnuð Flestir þeir lögreglumenn sem ákváðu að ganga úr óeirðadeild lögreglu í síðasta mánuði hafa nú gengið til liðs við hópinn á ný. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins töldu lögreglumennirnir sig hafa komið óánægju sinni á framfæri með því að hætta í mannfjöldastjórnunarhópi lögreglu, svokallaðri óeirðadeild. Því myndi ekkert frekar vinnast með því að halda sig utan við hópinn áfram. 3.9.2009 06:30
Ólga í Framsókn vegna Magma-sölu Bakland Framsóknarflokksins í Reykjavík virðist missátt við að Orkuveitan hafi gengið að kauptilboði Magma Energy. Formaður borgarráðs segir að þrýstingur frá óánægðu framsóknarfólki breyti ekki niðurstöðu málsins. 3.9.2009 06:15
Lést í vinnuslysi í Árbæ Karlmaðurinn sem féll af húsþaki við vinnu sína í Árbæjarhverfi var úrskurðaður látinn við komu á slysadeild á sjötta tímanum á þriðjudag. Maðurinn hét Gísli Ágústsson og var á fimmtugsaldri. Hann var til heimilis að Vagnhöfða 7 í Reykjavík. Gísli lætur eftir sig tvö börn. 3.9.2009 06:00
Árni Helgason formaður Heimdallar Árni Helgason lögfræðingur var kjörinn formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, á fjölmennum aðalfundi félagsins sem fram fór í Valhöll í kvöld. Ellefu manna hópur sem bauð sig fram með Árna til stjórnar Heimdallar náði einnig kjöri. 3.9.2009 06:00
Tvö þúsund félög hunsa skattstjóra Ríkisskattstjóri undirbýr aðgerðir gegn hlutafélögum sem ekki hafa skilað ársreikningum fyrir árið 2007. Sektin er 250.000 krónur. Hann skortir úrræði til að bregðast harðar við málum og hefur nefnt það við fjármálaráðuneytið. 3.9.2009 06:00
Ætlar í mál við Ríkisútvarpið Borgarfulltrúinn Ólafur F. Magnússon hefur ákveðið að höfða meiðyrðamál gegn Ríkisútvarpinu vegna fréttaflutnings af deilum hans við Frjálslynda flokkinn um fjárframlög frá Reykjavíkurborg. Ólafur kvaddi sér hljóðs á borgarstjórnarfundi á þriðjudag og kynnti þessi áform sín. 3.9.2009 05:45
Prentlög og útvarpslög verða samræmd Unnið er að endurskoðun fjölmiðlafrumvarps í menntamálaráðuneytinu. Frumvarp verður jafnvel lagt fyrir Alþingi í haust. Löggjöf allra fjölmiðla verður samrýmd og tekið á eignarhaldi. Sérstaklega verður hugað að netinu. 3.9.2009 05:30
Níu af tíu segja ekki nóg gert Ríflega 91 prósent þeirra sem afstöðu tóku í skoðanakönnun sem unnin var af Capacent Gallup fyrir ASÍ telur stjórnvöld þurfa að gera meira til að mæta greiðsluvanda heimilanna. 3.9.2009 05:30
Jafnvel rætt við umsækjendur Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, bræðir nú með sér hvort rætt verður við umsækjendur um stöðu þjóðleikhússtjóra. Nokkuð var kvartað yfir því að umsagnaraðilinn, þjóðleikhúsráð, hefði ekki tekið viðtal við umsækjendur. 3.9.2009 05:00
Fólk í greiðsluaðlögun ekki á vanskilaskrá Fyrirtækið Creditinfo hefur breytt skráningarferli sínu á þann veg að innköllun vegna nauðasamninga til greiðsluaðlögunar verður ekki lengur skráð á vanskilaskrá. 3.9.2009 05:00
Gengið á sjö stöðum Árleg styrktarganga til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini, Göngum saman, verður haldin næsta sunnudag. Gengið verður á sjö stððum á landinu; Reykjavík, Ísafirði, Akureyri, Mývatnssveit, Egilsstöðum, Höfn og Vestmannaeyjum. Þáttaka kostar 3.000 krónur og renna göngugjöldin óskipt í styrktarsjóð félagsins. Öll vinna við undirbúning og framkvæmd er unnin af sjálfboðaliðum. 3.9.2009 04:30
Bensínafgreiðslumaður ærðist Lögreglumál „Hann var alveg viti sínu fjær,“ segir yfirmaður bensínafgreiðslumanns Olís í Norðlingaholti sem ærðist við störf í gær. Hann veittist að viðskiptavinum bensínstöðvarinnar og samstarfsmönnum sínum og var að lokum færður burt í járnum. 3.9.2009 04:15
Styrktu krabbameinssjúk börn Nokkrir ungir menn sem standa að baki vefsíðunni 24tindar.com afhentu í gær Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna 109.000 krónur sem þeir söfnuðu í sumar. 3.9.2009 04:15
Atvinnulausum fjölgaði í ágúst Atvinnulausum fjölgaði í ágústmánuði. Er það í fyrsta sinn sem þeim fjölgar frá því í mars síðastliðnum, samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun. Þetta kemur fram í morgunkorni Íslandsbanka. 3.9.2009 04:00
ESB og evra besti kosturinn að mati sérfræðinga OECD Stærð íslensku bankanna, lánveitingar til tengdra aðila og flókin eignatengsl gerðu þá veika fyrir í alþjóðlegri kreppu, segir sérfræðingur OECD. Halda þarf gjaldeyrishöftum og háum stýrivöxtum enn um sinn. 3.9.2009 03:45
Ríkisstjórnin á að mótmæla íhlutun OECD í íslensk stjórnmál Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, segir sérfræðinga Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) hafi blandað sér í íslensk stjórnmál með yfirlýsingum í dag þar sem þeir hvöttu til upptöku evru á grundvelli ESB-aðildar. Hafi þetta ekki verið gert í samráði við ríkisstjórnina á hún að mati Björns að mótmæla þessari íhlutun OECD í íslensk stjórnmál. 2.9.2009 23:30
Kjörnir fulltrúar sem fengu greitt frá Landsvirkjun verða að víkja Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG, segir að sveitarstjórnarmenn sem hafa þegið greiðslur frá Landsvirkjun verði að víkja. Skipa verði nýja menn í þeirra stað. 2.9.2009 21:30
Metuppskera hjá kartöflubændum í Hornafirði Kartöflubændur í Hornafirði hafa ástæðu til að brosa breitt þessa dagana þegar þeir taka upp úr kartöflugörðum sínum því uppskeran er afar góð, að fram kemur á vefsíðunni Ríki Vatnajökuls sem er frétta og upplýsingavefur Hornafjarðar. 2.9.2009 22:05
Loftrýmisgæslu Bandaríkjamanna lokið Loftrýmisgæslu bandaríska flughersins hér við land er lokið að sinni, að fram kemur á vef Varnarmálastofnunnar. 2.9.2009 21:45
Greiðslur Landsvirkjunar til sveitarstjórnarmanna út úr kortinu „Þetta lyktar ekki vel,“ segir formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands um greiðslur Landsvirkjunar til sveitarstjórnarmanna sem greint var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2. „Mér finnst þetta vera út úr kortinu,“ segir formaðurinn. 2.9.2009 19:38
Ekið á gangandi vegfarenda Fólksbifreið var ekið á gangandi vegfarenda á Vífilstaðavegi á áttunda tímanum í kvöld. Einn var fluttur á slysadeild. Ekki fengust upplýsingar hjá lögreglu eða slökkviliði um hvort vegfarandinn sé mikið slasaður. 2.9.2009 19:52
Kúabændur uggandi Kúabóndi á Suðurlandi segist uggandi um stöðu landbúnaðarins, enda sé ekkert vitað hvað morgundagurinn muni bera í skauti sér. Skuldir hans hafa tvöfaldast og segir hann allt undir ef ekki fæst leiðrétting, bæði heimili fjölskyldunnar og ævistarfið. 2.9.2009 19:09
Leiðin á milli Reykjavíkur og Ísafjarðar styttist á morgun Ein mesta bylting sem um getur í samgöngumálum Vestfjarða verður á morgun þegar nýja bogabrúin yfir Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi verður vígð. Samgönguráðherra klippir á borðann klukkan tvö og eftir það verður brúin opnuð umferð. 2.9.2009 18:58
Icelandair skoðar minni þotur Icelandair stefnir að ákvörðun í næsta mánuði um kaup á minni þotum í flugflotann. Boeing 757 yrði þó áfram aðalvél félagsins. Ólíklegt er að Dreamliner-vélarnar, sem eru í pöntun, verði teknar inn í áætlunarflugið. 2.9.2009 18:50
Skylt að merkja ferskar matjurtir eftir uppruna Vegna þýðingarvillu í Evróputilskipun hefur fólk ekki getað tekið upplýsta ákvörðun í matvöruverslunum um að velja íslenskt - eða útlenskt grænmeti. Búið er að leiðrétta villuna og seljendur ferskra matjurta eru nú skyldugir að upplýsa fólk hvar grænmeti og ávextir voru ræktaðir. 2.9.2009 18:50
HS orka reynir að semja við lánardrottna HS orka, orkufyrirtæki Reykjaness, á í samningum við lánardrottna sína, sem nú geta gjaldfellt hátt í 30 milljarða króna skuldir félagsins. Kaup Kanadamanna á hlut Orkuveitunnar í fyrirtækinu, velta á því að HS orka endursemji við lánardrottna. 2.9.2009 18:43
Landsvirkjun greiddi sveitarstjórnarmönnum fyrir skipulagsvinnu Landsvirkjun greiddi fyrir fundarsetu sveitarstjórnarmanna í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, um fyrirhugaðar virkjanir í hreppnum. Hver sveitarstjórnarmaður fékk 200 þúsund krónur, segir fyrrverandi sveitarstjóri. Oddviti hreppsins staðfestir að hafa fengið greiðslur frá Landsvirkjun, í gegnum hreppinn, en er ósáttur við að vera sakaður um mútuþægni. 2.9.2009 18:30
Auðlindagjald Reykjanesbæjar hærra en tíðkast hér á landi Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir að auðlindagjald sveitarfélagsins sé mun hærra en tíðkast hér á landi. 2.9.2009 18:18
Maður fótbrotnaði í 12 metra hæð Karlmaður fótbrotnaði við vinnu í 12 metra háu sílói í Norðuráli í dag. Björgunarfélag Akraness var kallað út en maðurinn var látinn síga niður á börum. 2.9.2009 17:43
Seinheppinn þjófur Karl á þrítugsaldri var handtekinn við verslunarmiðstöð á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld. Hann var grímuklæddur og vopnaður barefli og viðurkenndi að tilgangur hans hefði verið að ræna peningum úr verslun sem þarna er. 2.9.2009 16:42
Starfsmaður á plani gekk í skrokk á viðskiptavini Starfsmaður var handtekinn á Olís í Norðlingaholti milli tvö og þrjú í dag vegna átaka sem þar áttu sér stað. Samkvæmt lögreglunni lenti starfsmanninum saman við samstarfsfólk auk viðskiptavina. Lögreglan var kölluð á vettvang í kjölfarið og maðurinn handtekinn. 2.9.2009 16:39
Benda á hvorn annan vegna hjartveiku barnanna Upplýsingafulltrúar gamla og nýja Landsbankans hafa ekki viljað tjá sig um stefnu Styrktarsjóðs hjartveikra barna á hendur gamla bankanum og Landsvaka heldur benda á hvorn annan. Sjóðurinn hefur stefnt Landsvaka, sem nú tilheyrir nýja Landsbankanum og Lárusi Finnbogasyni, fyrrverandi formann skilanefndar gamla Landsbankans, vegna ráðstöfunar með fé sjóðsins í peningamarkaðssjóði Landsvaka fyrir bankahrun. 2.9.2009 15:27
Þátttaka atvinnurekenda í stjórnun lífeyrissjóða verði endurskoðuð Sjómannafélag Íslands hvetur önnur stéttarfélög í landinu til að endurskoða þátttöku atvinnurekenda í stjórnum lífeyrissjóða. Í ályktun stjórnar sem samþykkt var í dag segir að við blasi að fjármunir flestra lífeyrissjóða séu eign launafólks en ekki atvinnurekenda. 2.9.2009 15:08
Fjórir þjófar í gæsluvarðhald Fjórir menn af erlendum uppruna voru handteknir í Árbæ í gærkvöldi grunaðir um innbrot og þjófnað. Lögreglan fékk tilkynningu um innbrot og greip mennina í kjölfarið. Á þeim fannst mikið af tóbaki að sögn lögreglunnar 2.9.2009 13:56
Þrílitu bindin seldust upp Krabbameinsfélag Íslands stóð í annað sinn fyrir átakinu „Karlmenn og krabbamein" í mars. Átakið vakti mikla athygli en því var ætlað að vekja karlmenn til vitundar um krabbamein og þátt heilbrigðs lífsstíls í forvörnum gegn þessum erfiða sjúkdómi. Þrílit bindi sem seld voru til styrktar átaksins í verslunum Herragarðsins eru nú uppseld. Ágóðinn af sölunni var ríflega 1,2 milljónir króna en alls seldust 279 bindi. 2.9.2009 13:27
Hagsmunir almennings þurfa að ríkja - flokkshagsmunir að víkja Ábyrgðarmenn kjosa.is sem söfnuðu vel á ellefta þúsund undirskriftum þar sem skorað var á forseta Íslands að synja staðfestingar lögum um ríkisábyrgð vegna svonefndra Icesave-samninga segja að almenningur þurfi að fá sjálfstæðan rétt til þess að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslur. Forsetinn staðfesti lögin með undirskrift sinni í morgun. 2.9.2009 13:05
Íslendingar trúðu á endalausa uppsveiflu - en þeir trúa líka á álfa Ef Íslendingar eru nógu ruglaðir til þess að koma sér í efnahagslegar hamfarir, þá gætu þeir verið nógu klikkaðir til þess að vinna sig aftur úr þeim. 2.9.2009 12:35
Piparúði notaður gegn ísbjörnum Pottar og pönnur og piparúði eru meðal helstu vopna í innbyrðisátökum Íslendinga síðustu mánuði og misseri. En þessir hlutir eru líka prýðilegar ísbjarnafælur. Sú er að minnsta kosti reynsla íslenskra ferðamanna sem fóru um Grænland fyrir skömmu og glímdu við birni. 2.9.2009 12:32
Frístundastrætó í Grafarvogi Reykjavíkurborg hyggst freista þess að útrýma skutli foreldra með börn til og frá tómstundastöðum í Grafarvogi með því að fjölga strætóferðum síðdegis í samvinnu við frístundafélög hverfisins. Vonast er til að hægt verði spara foreldrum hátt í níutíuþúsund kílómetra akstur á viku. 2.9.2009 12:26
Enn beðið eftir framsalsgögnum vegna Ramos Smári Sigurðsson yfirmaður alþjóðadeildar Ríkislögreglustjóra segir að viðeigandi gögn vegna framsals á Brasilíska lýtalækninum Hosmany Ramos sem handtekinn var hér á landi hafi ekki enn borist. Yfirvöld í Brasilíu hafa staðfest að þau muni krefjast framsals á Ramos en hann var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi hér á landi. Ramos mun losna úr haldi þann 11.september. 2.9.2009 12:20
Yfirmaður afgönsku leyniþjónustunnar á meðal fallinna Abdullah Laghmani, einn æðsti yfirmaður afgönsku leyniþjónustunnar, er meðal minnst tuttugu og þriggja sem féllu í sjálfsvígssprengjuárás Talíbana í bænum Mehtar Lam í austurhluta Afganistans í morgun. 2.9.2009 12:19
Flugvél nauðlenti á Kjalarnesi Flugvél nauðlenti á túninu gegnt Grundarhverfi á Kjalarnesi nú um hálf tólf. Um litla flugvél var að ræða en flugmaðurinn tilkynnti að hann þyrfti að nauðlenda skömmu áður. 2.9.2009 11:49
Forsetinn skrifaði undir lög um ríkisábyrgð í morgun Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands skrifaði í dag undir lög um ríkisábyrgð á Icesave samningana. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá forsetaembættinu. Um tíu þúsund manns höfðu skrifað undir áskorun til forsetans þess efnis að skrifa ekki undir lögin og vísa málinu þannig til þjóðarinnar. Forsetinn rökstyður ákvörðun sína hins vegar með því að vísa til þeirra fyrirvara sem settir voru við ríkisábyrgðina af hálfu Alþingis og þingmenn samþykktu með afgerandi hætti. 2.9.2009 11:13
Ágúst Einarsson: Harmar hnífaárás á Bifröst „Það er alltaf leiðinlegt þegar svona lagað gerist,“ segir Ágúst Einarsson rektor háskólans á Bifröst vegna hnífabardaga sem átti sér stað á skólalóðinni um klukkan fjögur í nótt. Maður skar annan mann í hendina. Sá slasaði var fluttur á slysadeild en reyndist ekki mikið meiddur. 2.9.2009 09:55
Átök á Bifröst - eggvopni beitt Karlmaður var handtekinn á Bifröst í Borgarfirði í nótt, eftir átök sem brutust þar út laust upp úr klukkan fjögur. Hinn handtekni beitti eggvopni og var þolandinn fluttur á heilsugæslustöðina í Borgarnesi þar sem gert var að sárum hans. 2.9.2009 08:18