Erlent

Sprengju­flug­vélar loga víða í Rúss­landi

Samúel Karl Ólason skrifar
Skjáskot úr myndbandi frá herflugvelli í Rússlandi, sem sýnir þó nokkrar flugvélar í ljósum logum.
Skjáskot úr myndbandi frá herflugvelli í Rússlandi, sem sýnir þó nokkrar flugvélar í ljósum logum.

Úkraínumenn hafa gert umfangsmiklar árásir með smáum sjálfsprengidrónum á að minnsta kosti tvo herflugvelli í Rússlandi og mögulega fjóra. Úkraínumenn segjast hafa grandað tugum flugvéla, eins og langdrægnum sprengjuflugvélum og eftirlitsvélum, sem eru Rússum gífurlega mikilvægar. Yfirlýsingar Úkraínumanna eru studdar af myndefni í dreifingu á samfélagsmiðlum eystra.

Fregnir af þessum árásum eru enn mjög óljósar, þegar þetta er skrifað, en rússneskir fjölmiðlar og herbloggarar hafa sagt frá því að drónum hafi verið flogið úr gámum sem hafði verið keyrt á svæðið við flugstöðvarnar. Myndbönd sem birt hafa verið á samfélagsmiðlum sýna fjölda dróna flogið úr einum slíkum  gámi og er haft eftir bílstjóranum sem flutti hann á svæðið að honum hafi verið sagt að einhver myndi hitta hann á staðnum.

Þá bendir eitt myndband til þess að þegar síðasta drónanum var flogið út úr einum gámnum hafi kviknað í honum.

Blaðamaður Financial Times hefur eftir heimildarmönnum sínum úr úkraínsku leyniþjónustunni SBU að árásirnar hafi verið gerðar af þeim og að rúmlega fjörutíu flugvélum hafi verið grandað eða þær skemmdar.

Ein árásin var gerð á flugvöll í um 5.500 kílómetra fjarlægð frá Úkraínu.

Flugvélarnar sem um ræðir eru Rússum mjög verðmætar og hafa meðal ananrs verið notaðar til að skjóta stýri- og skotflaugum að Úkraínu. Margar þeirra eru einnig hannaðar til að bera kjarnorkuvopnu en mjög fáar slíkar eru framleiddar í Rússlandi þessa dagana.

Meðal þeirra flugvéla sem hýstar eru á umræddum flugvöllum eru A-50 eftirlits og ratstjárvélar, Tupolev Tu-95, Tu-22 og Tu-160 sprengjuvélar.

Rússneskir herbloggarar, sem sérhæfa sig í málefnum flughers Rússlands, segja að í framtíðinni verði talað um daginn í dag sem svartan í sögu rússneska hersins.

Úkraínskir herbloggarar hafa eftir sínum heimildarmönnum innan SBU að árás þessi hafi verið í undirbúningi í meira en eitt og hálft ár. Aðgerðin beri titilinn „Vefur“ og henni hafi verið stýrt af Vasyl Malyuk, yfirmanni SBU, og Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu.

Aðgerðin mun hafa verið mjög flókin, enda þurfti að koma drónunum til Rússlands og fela þá þar. Síðar hafi þurft að koma þeim fyrir í gámum og undirbúa árásirnar frekar. Þeir sem komu að árásunum eru sagðir vera komnir aftur til Úkraínu.

Hér að neðan má sjá myndir sem sýna hvernig búið var um drónana í gámunum.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Útsendarar SBU sagðir hafa ráðið herforingjann af dögum

Úkraínskir embættismenn segja að útsendarar Öryggisstofnunar Úkraínu, sem er leyniþjónsta og í daglegu tali kallast SBU, hafi ráðið rússneskan herforingja af dögum í Mosvku í morgun. Herforinginn var í gær ákærður í Úkraínu fyrir notkun efnavopna.

Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði

Ráðamenn í Úkraínu segja að komið hafi verið í veg fyrir ráðabrugg um að ráða Vólódómír Selenskí, forseta Úkraínu, og aðra háttsetta embættismenn af dögum. Ráðabruggið er sagt eiga rætur í Rússlandi og þá sérstaklega hjá rússnesku leyniþjónustunni FSB.

Njósnarar þjálfaðir af CIA heyja skuggastríð gegn Rússum

Hópar úkraínskra njósnara sem hafa náin tengsl við Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) og hafa jafnvel verið þjálfaðir í Bandaríkjunum eru sagðir heyja eigið stríð gegn Rússlandi í skuggunum. Þeir eru meðal annars sagðir hafa myrt Daríu Dugina í sprengjuárás, samverkamenn Rússa í austurhluta Úkraínu og rússneska hermenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×