Sjómannadagurinn

Bréf til Kára
Sæll Kári Stefánsson og takk kærlega fyrir þitt hressilega innlegg í hátíðarhöld Sjómannadagsins. Þú hefur löngum haft lag á því að taka til máls með þeim hætti að fólk leggi við hlustir. Þess vegna var ádrepan þín í Grindavík ekki bara skemmtileg heldur góð brýning.

Grindvíkingar fögnuðu Sjómannadeginum með pompi og prakt
Sjóarinn síkáti, sjómanna- og fjölskylduhátíð Grindvíkinga var haldin með pompi og prakt um helgina. Bylgjulestin kíkti við og hélt uppi fjörinu ásamt fjölbreyttri dagskrá heimamanna.

Kári hvetur til byltingar sjómanna
Sjómenn verða að krefjast aðgangs að gögnum um íslenskan sjávarútveg og taka þátt í endurreisn hans. Þetta sagði Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar í ræðu sinni á sjómannadaginn í dag. Dapurlegt sé að sjómannastéttin hafi glatað þeim stað sem hún ætti að hafa í hjarta þjóðarinnar.

Svona verður Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur um land allt
Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur á sunnudaginn og verða af því tilefni mikil dagskrá víða um land og sums staðar alla helgina.

Fyrsti áttæringurinn frá bátasmiðum í heila öld
Bátasmiðir voru í dag að leggja lokahönd á fyrsta áttæringinn sem smíðaður hefur verið á Íslandi í meira en öld. Máttarviðir bátsins eru afrakstur íslenskrar skógræktar.

Sigurður hættir sem framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs
Sigurður Garðarsson hefur beðið um að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs. Aríel Pétursson, formaður stjórnar ráðsins, tekur við störfum Sigurðar þar til nýr framkvæmdastjóri er ráðinn.

„Ekki hægt að fjalla um strandveiðar öðruvísi en að tala um kvótakerfið“
Sigurður Þórðarson, meðlimur Strandveiðifélagsins, segir að Anna Björk Árnadóttir, framkvæmdastjóri Sjómannadagsins 2022, hafi ávítt sig fyrir að hafa verið með pólitískan áróður á deginum og sakað félagið um að hafa skemmt hátíðarhöld fyrir gestum. Sigurður segir að ekki sé hægt að fjalla um strandveiðar nema að fjalla um kvótakerfið.

Ógeðslegt en líka „low key æðislegt“ að flaka fisk
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur víða um landið í dag. Í Reykjavík var líf og fjör á Grandanum þar sem hátíðargestir fengu meðal annars heldur óhefðbundna kennslu í hvernig flaka á fisk frá Æði strákunum. Ekki það æðislegasta sem þeir hafa gert en þó ekki það ógeðslegasta.

Umferðin gengur hægt en gengur þó
Umferðin frá hátíðarsvæðinu á Granda hefur gengið hægt í dag. Hún hefur gengið hægast yst á tanganum á meðan bílastæði innar hafa verið að tæmast.

Kveður hafið eftir rúma hálfa öld á sjó
Eftir 55 ára sjómennsku ákvað Kristján Björnsson, sem varð sjötugur um síðustu áramót, að setjast í helgan stein. Björn Steinbekk, sonur Kristjáns, ákvað að skrásetja kveðju föður síns til hafsins.

Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur
Mikil hátíðarhöld fara fram um allt land í dag í tilefni sjómannadagsins. Í Reykjavík hefst dagskráin klukkan ellefu fyrir hádegi og stendur fram eftir degi.

Bættar forvarnir á sjó
Sjósókn við Íslandsstrendur hefur ávallt verið einn af okkar helstu atvinnuvegum. Oft hefur verið rætt um hetjur hafsins en í gegnum aldirnar hefur ýmis áhætta fylgt því að starfa á sjó og sjóslys voru tíð hér á árum áður.

Koddaslagur: Sá sem tapar fer beint í sjóinn
Fatamerkið Bið að heilsa niðrí slipp eða BAHNS líkt of það er kallað stendur fyrir Koddaslag á bryggjunni í dag, á sjálfan sjómannadaginn. Glódís Guðgeirsdóttir, Guðbjörg Valkyrja, Ilona Grimm og Sylvía Lovetank ætla að taka slaginn þetta árið.

Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur víðs vegar um land
Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur víðs vegar um land í dag, þótt samkomutakmarkanir setji vissulega sinn svip á daginn. Ýmislegt verður um að vera í Hafnarfirði, Þorlákshöfn, Vestmannaeyjum, á Ólafsfirði, Neskaupstað og Bolungarvík.

Hálfur álfur í Hellisgerði á sjómannadaginn
Landsmenn bíða margir spenntir eftir hátíðahöldum sumarsins eftir langan og óvenjulegan vetur. Það eru þó ekki eingöngu mennskir Íslendingar sem hlakka til að sletta úr klaufunum, sjálfir álfarnir í Hellisgerði í Hafnarfirði virðast hafa fengið nóg af slökun og bjóða því til mikillar gleði í garðinum á sunnudaginn.

Lítið um hátíðarhöld í dag
Sjómannadagurinn fer fram með óhefðbundnum hætti í dag vegna kórónuveirunnar. Engin hátíðarhöld eru í Reykjavík en á landsbyggðinni eru hátíðarhöld víðast hvar minni en alla jafna.

Sjómannadagur 2020
Kæru landar, til hamingju með sjómannadaginn. Frá landnámi hefur verið dreginn fiskur úr sjó á Íslandsmiðum og nú sem áður fyrr eru fiskimiðin matarkista og grunnur byggðarlaga hringinn í kringum landið.