Fleiri fréttir

Mikið af fólki í miðbænum í nótt en allt fór vel fram

Talsverður fjöldi fólks var í miðbæ Reykjavíkur í nótt en að sögn lögreglu fóru skemmtanahöldin tiltölulega vel fram. Nokkuð var um ölvun en fólk hélt sig þó innan skynsamlegra marka í hegðun sinni. Sex ökumenn voru teknir grunaðir um ölvun og gistu fjórir fangageymslur lögreglunnar vegna ölvunar.

Hafði áður ráðist á stelpuna

Ein stúlknanna sem réðst að fimmtán ára gamalli stúlku með fólskulegum hætti og lamdi hana í Heiðmörk hefur áður ráðist að stelpunni og lamið hana. Það var fyrir tveimur vikum síðan. Þetta staðfestir Hrönn Óskarsdóttir, systir árásarþolans, í samtali við fréttastofu.

Greiða Geira á Goldfinger 800 þúsund í skaðabætur

Hæstiréttur dæmdi í dag Jón Trausta Reynisson og Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttur til að greiða Ásgeiri Þór Davíðssyni, betur þekktum sem Geira á Goldfinger, 800 þúsund krónur í skaðabætur með dráttarvöxtum vegna ummæla sem skrifuð voru í tímaritið Ísafold um veitingastaðinn Goldfinger sem Ásgeir rekur. Þá skyldu ummæli í greininni dæmd ómerk.

Spá 40% verðhækkun á áli

Verð á áli gæti hækkað um 40% undir lok ársins, samkvæmt spá sem Bloomberg fréttastofan birti í dag. Vitnað er til sérfræðinga sem telja að vaxandi eftirspurn muni vega upp offramboð á áli og vísað til þess að álnotkun hafi aukist hratt á fyrstu mánuðum þessa árs.

Utanríkisráðuneytið varar við ferðum til Mexíkó

Utanríkisráðuneytið ráðleggur Íslendingum að ferðast ekki til Mexíkó nema brýna nauðsyn beri til vegna svínainflúensu (H1N1), sem komið hefur upp þar í landi og smitast manna á milli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Viðhald flugvéla eflist með falli krónu

Aldrei fyrr hafa jafnmargir flugvirkjar verið að störfum hérlendis. Viðhaldsskýli Icelandair á Keflavíkurflugvelli hefur ekki undan að sinna verkefnum fyrir erlend flugfélög.

Dómskerfið ekki hliðhollt blaðamönnum

„Það eina sem við vorum að gera var að skoða skilgreininguna á mansali og bera hana saman við raunveruleikann á Íslandi með því að tala við fólk sem hefur starfað í þessum bransa," segir Jón Trausti Reynisson.

Dekk sprungu á Fokker í lendingu

Tvö dekk sprungu á Fokker flugvél sem var að lenda á flugvellinum í Reykjavík klukkan sjö í kvöld Tuttugu og sjö voru um borð í flugvélinni en engan sakaði að sögn slökkviliðs- og sjúkraflutningamanns sem fréttastofa talaði við.

Þunglyndi eykst í kreppunni

Kreppan hefur leitt til þess að tilfellum um alvarlegt þunglyndi hefur fjölgað. Einnig má merkja aukningu í sjálfsvígshugsunum hjá þeim sem verst eru haldnir, segir sálfræðingur, sem telur brýnt að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða.

Vökunætur fara í hönd

Tími vökunátta fer í hönd í sveitum landsins nú þegar sauðburður er að hefjast. Kristján Már leit á nýborin lömb í fjárhúsum suður með sjó.

Hraðbankaþjófar handteknir

Mennirnir fjórir sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitaði að og lýsti eftir vegna ítrekaðra tilrauna til innbrota í hraðbanka og verslanir undanfarna daga voru handteknir í gær. Þrír mannanna voru handteknir í Leifsstöð þegar einn þeirra var á leið úr landi og sá fjórði gaf sig fram við lögreglu, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá lögreglu. Mennirnir eru allir af erlendu bergi brotnir.

Áhyggjufullir svínabændur

Svínabændur hafa áhyggjur af því að ef svínaflensa greinist hér á landi þá berist hún frá mönnum í svín. Svínabúin eru þó nokkuð lokuð sem getur hjálpað þeim að koma í veg fyrir að svo fari.

Reynir ritstjóri í Hæstarétti: Braut áfengislög

Hæstiréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms yfir Reyni Traustasyni ritstjóra DV sem dæmdur var til fjársektar vegna brota á áfenigislögum. Þrjár áfengisauglýsingar birtust í tímaritinu Mannlíf og fylgiriti þess undir ritstjórn Reynis sem hélt því fram að ekki hefði verið um auglýsingar að ræða, heldur umfjallanir um áfengi. Hæstiréttur var hinsvegar ekki á því máli.

Sundlaugaperri fékk skilorðbundinn dóm í Hæstarétti

Hæstiréttur dæmdi í dag erlendan karlmann í hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir að leita ítrekað á átta ungar stúlkur í sundlaug í Keflavík og fróa sér fyrir framan þær í janúar og febrúar á síðasta ári. Hæstiréttur staðfesti þar með dóm Héraðsdóms Reykjaness frá því í júní 2008 en gerði manninum að greiða hærri sakarkostnað. Héraðsdómur dæmdi manninn til að greiða 1,1 milljón króna en Hæstiréttur hækkaði upphæðina í rúmlega 1,6 milljón.

Móðir Heiðmerkurhrotta: „Þetta er bara rosalegt"

„Ég get bara sagt þér það að ég var ekki búin að heyra neitt af þessu nema úti í bæ," sagði móðir unglingsstúlku sem er sökuð um að vera ein af sjö árásamönnum sem gengu hrottalega í skrokk á fimmtán ára stúlku í gær.

Heiðmerkurhrottarnir ekki yfirheyrðir

Allar stúlkurnar sem hafa verið kærðar fyrir að ganga í skrokk á fimmtán ára stúlku í Heiðmörk í gær gáfu sig fram við lögregluna í hádeginu. Þær fóru síðar án þess að skýrsla væri tekin af þeim. Þegar haft var samband við yfirlögregluþjóninn Friðrik Smára Björgvinsson sagði hann að málið myndi fara sömu leið og sakamál gegn lögráða einstaklingum, enda eru þær sakhæfar. Aftur á móti þarf að kalla til foreldri eða barnaverndaryfirvöld þegar skýrsla er tekin af ungmennum undir átján ára aldri. Fórnalamb stúlknanna er búið að kæra árásina. Skýrslutöku er nýlokið. Stúlkurnar gengu í skrokk á fimmtán ára stelpu í Heiðmörk í gær eftir að hafa lokkað hana upp í bíl. Ástæðan á að hafa verið sú að fórnarlambið á að hafa skrifað eitthvað á netið sem þeim mislíkaði. Samkvæmt heimildum Vísis höfðu tvær stúlkur sig mest frammi í málinu. Reynt var að hafa uppi á foreldrum stúlknanna án árangurs. Báðar stúlkurnar sem eiga að bera höfuðsökina eru nemar í Flensborg.

Gagnrýna hægagang í stjórnarmyndunarviðræðum

Þingflokkur Borgarahreyfingarinnar lýsir áhyggjum sínum af hægagangi í yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræðum og því sem þingflokkurinn kallar foringjastjórnmál. Þingmennirnir hvetja til víðtækara samráðs við nýkjörið þing sem þeir vilja að verði kallað saman hið fyrsta.

Ný ríkisstjórn ekki mynduð á morgun

Engar líkur eru á því að ný ríkisstjórn verði mynduð í dag. Þá eru hverfandi líkur á því að flokkarnir nái saman á morgun og myndi hina umtöluðu 1.maí ríkisstjórn. Þetta segir Katrín Jakobsdóttir varaformaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs sem var á rúntinum með Steingrími Jóhanni Sigfússyni formanni þegar fréttastofa heyrði í henni hljóðið.

Katrín um launamál Rúv: Vel í lagt hjá efstu mönnum

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir að vinna sé þegar hafin við endurskoðun á þjónustusamningi við Rúv og meðal annars sé verið að skoða launauppbygginguna innan félagsins. Í árshlutauppgjöri Rúv frá 1.september til loka febrúar á þessu ári kemur fram að tap félagsins sé rúmar 365 milljónir króna. Páll Magnússon útvarpsstjóri fær rúma 1,5 milljón króna á mánuði. Katrin segir vel í lagt hjá efstu mönnum.

Hollenskir sparifjáreigendur ætla að kæra Ísland sjötta maí

Hópur sparifjáreigenda sem átti fé á reikningum Icesave í Hollandi hefur ítrekað kröfur sínar til Jóhönnu Sigurðardóttur um að lausn verði fundin á málum þeirra. Að öðrum kosti verður lögð fram kæra gegn íslenska ríkinu þann 6. maí næstkomandi hjá Eftirlitsstofnun EFTA og hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.

Seilast í vasa skattborgara eftir misheppnaða viðskiptahugmynd

Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi segir að bærinn ætli ekki að verða við kröfum um riftun á mörg hundruð milljóna kaupsamningi sem gerður var við byggingafélagið Þyrpingu. Hann segir að Þyrping ætli að reyna að sækja fórnarkostnaðinn af misheppnaðri viðskiptahugmynd í vasa skattborgara á Seltjarnarnesi.

Rekstur RÚV á áætlun

Ríkisútvarpið tapaði 365 milljónum króna á sex mánaða tímabili frá byrjun september til loka febrúarmánaðar síðastliðins. Þetta kemur fram í árshlutareikningi sem birtur var í dag. Aukinn fjármagnskostnaður skýrir tapið segir útvarpsstjóri. Hann segir rekstur RÚV vera á áætlun.

Svínaflensan: Þrjátíu einstaklingar verið rannsakaðir hér á landi

Hátt í þrjátíu einstaklingar hafa verið rannnsakaðir hér á landi þar sem grunur hefur leikið á að þeir væru með svínaflensu. Enginn hefur þó reynst vera smitaður. Þetta segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir í samtali við fréttastofu. Um er að ræða fólk sem nýkomið er frá Bandaríkjunum eða Mexíkó en einnig fólk sem hefur sýnt ákveðin flensueinkenni og því hefur þótt rétt að rannsaka hvort um svínaflensu væri að ræða.

Leyfi Bolla Þórs framlengt um mánuð

Tímabundið leyfi sem ráðuneytisstjórinn í forsætisráðuneytinu fékk þegar að ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar tók við í febrúar hefur verið framlengt út maí.

Frjálslyndi flokkurinn starfi áfram

Guðjón Arnar Kristjánsson telur að Frjálslyndi flokkurinn eigi að starfa áfram. Hann hyggst ekki víkja sem formaður flokksins. Miðstjórn Frjálslynda flokksins kemur saman til fundar í dag til að ræða stöðuna sem upp er komin eftir þingkosningarnar á laugardaginn þegar flokkurinn þurrkaðist út af þingi.

Árni vegur ómaklega að flokkssystkinum sínum í Árborg

Ólafur Hafsteinn Jónsson, formaður fulltrúaráðs sjálfstæðismanna í Árborg, segir fásinnu að sjálfstæðismenn í Árborg hafi tekið þátt í atlögu gegn Árna Johnsen þar sem kjósendur hafi verið hvattir til að strika yfir nafn Árna í kosningunum síðastliðinn laugardag. Hann segir Árna vega ómaklega að flokkssystkinum sínum. Þetta kemur á fréttavefnum Sunnlending.

Heiðmerkurhrottar kærðir í dag

Stúlkurnar sem námu 15 ára stúlku á brott og börðu í Heiðmörk í gær verða kærðar í dag, segir Hrönn Óskarsdóttir, systir fórnarlambsins. Fjölskyldan hefur fengið afar sterk viðbrögð í kjölfar árásarinnar.

Flestir fjallvegir lokaðir vegna aurbleytu

Vegagerðin hefur lokað öllum fjallvegum nema upp í Snæfell og að Langjökli úr Húsafelli. Frost er nú að fara úr jörðu á hálendinu og mikil aurbleyta í vegunum, sem ekki eru uppbyggðir eins og þjóðvegir. Við slíkar aðstæður eru þeir meira og minna ófærir og hætt við utanvegaakstri.

Flatskjá stolið úr sumarbústað

Brotist var inn í sumarbústað í Grímsnesi einhvern tímann í vikunni og þaðan stolið 50 tommu flatskjá. Þjófurinn hreyfði ekki við neinu öðru en í bústaðnum var meðal annars áfengi og margvísleg verðmæti. Þjófurinn og skjárinn eru ófundnir.

Ekið á tvö hross

Jeppa var ekið á tvö hross á Skeiðavegi í Árnessýslu á ellefta tímanum í gærkvöldi með þeim afleiðingum að annað hrossið drapst samstundis en hitt meiddist talsvert.

Þór sjósettur í Chile í gær

Nýtt varðskip Landhelgisgæslunnar var sjósett í skipasmíðastöð í Chile í gær og gefið nafnið Þór. Smíðinni verður þó ekki lokið fyrr en snemma á næsta ári.

Allir vilja launin í evrum

Allir starfsmenn CCP á Íslandi fá nú greitt í evrum. „Við tilkynntum í október síðastliðnum að starfsmönnum stæði þetta til boða frá og með 1. janúar,“ segir Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP. „Þá ákváðu flestir að nýta sér það og nú í apríl er þannig komið að við greiðum öllum í evrum en lítill hluti hefur valið að fá helming launa sinna í krónum.“

Stefnir í að lögreglumönnum fækki í maí

Fáist ekki auknar fjárveitingar munu 20 lögreglumenn láta af störfum um miðjan maí. Lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins heldur í vonina um að fé fáist til að endurráða hópinn. Verður skoðað um mánaðamót segir dómsmálaráðherra.

Verði kært til ríkislögreglustjóra

Skattrannsóknarstjóri rannsakar nú hugsanleg skattabrot félags og býst við að kæra málið til ríkislögreglustjóra. Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri segir þetta mál vera hluta af stærra máli. Það teygi anga sína til Lúxemborgar, eins og mörg önnur mál sem tengjast bankahruninu. Lengra komist rannsókn slíkra mála ekki, vegna bankaleyndar þar ytra.

Áhyggjur af áhrifum flensu

Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustu, SAF, segir að aðilar innan ferðaþjónustu hafi áhyggjur af svína-flensunni í heiminum og hugsanlegum áhrifum hennar á íslenska ferðaþjónustu. Allir séu á varðbergi og fylgist vel með þróuninni.

Garður fyrir alla borgarbúa

„Við lítum á Miklatún sem garð fyrir alla borgarbúa en ekki eingöngu sem hverfisgarð. Þess vegna hvetjum við alla Reykvíkinga til að mæta á fundinn, segja sínar skoðanir og koma með ábendingar,“ segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi, sem situr í starfshóp um endurnýjun Miklatúns. Næsta miðvikudag, hinn 6. maí, verður samráðsfundur Reykjavíkurborgar og borgarbúa um endurnýjun túnsins haldinn á Kjarvalsstöðum.

Ný kolategund sögð ógna bleikjustofnum

Áhugamenn um stangveiði tengja minnkandi veiði á sjóbleikju við landnám flundru; kolategundar sem numið hefur hér land. Rannsókna á flundrunni er þörf en sérfræðingar telja hlýnandi veður líklegri orsök minni fiskgengdar.

400 milljónir í viðhald vega

Vegagerðin og Reykjavíkurborg hafa endurnýjað samning sinn um viðhald og rekstur þjóðvega innan borgarmarkanna. Samningurinn felur í sér að Framkvæmda- og eignasvið borgarinnar annast yfirlagnir malbiks, fræsun gatna, vetrarþjónustu, gatnamerkingar, umferðarljós, umferðarmerki, gatnahreinsun, gatnalýsingu og skiltabrýr er tengjast þjóðvegum í Reykjavík. Sambærilegir samningar eru við önnur sveitarfélög í nágrenni höfuðborgarinnar.

Eigið fé 110 milljarðar 2007

Eigið fé íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja í árslok 2007 var 110 milljarðar, eða 25,3 prósent. Þetta kemur fram í ritinu Hagur fiskveiða og fiskvinnslu árið 2007 sem Hagstofa Íslands hefur gefið út. Niðurstöður efnahagsreiknings sýna að heildareignir sjávarútvegsins voru 435 milljarðar króna en heildarskuldir 325 milljarðar.

Lögfræðingum fækkaði í þingliðinu

Þingmennirnir 63 sem landsmenn kusu á laugardag eiga fjölbreytta menntun að baki. Flestir þeirra, níu, lærðu lögfræði en lögfræðingum á þingi fækkaði frá síðasta kjörtímabili. Þá voru þeir þrettán.

Minnstar líkur á Íslandi

Minnstar líkur eru á að Ísland verði fyrir barðinu á svínaflensu af öllum Evrópulöndum, samkvæmt Paddy Power, stærsta veðmálafyrirtæki Írlands. Frá þessu segir á veðmálavefsíðunni Oddspreview.

Kannabisræktandi dæmdur

Karlmaður á þrítugsaldri af erlendum uppruna hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu fíkniefna, sem hann er talinn hafa ætlað til sölu. Maðurinn var einnig dæmdur fyrir ræktun á kannabisplöntum.

Ók ölvaður og slasaði fernt

Ríflega þrítugur karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að valda alvarlegu bílslysi undir áhrifum áfengis í febrúar 2007.

Breytir ekki áherslum hér á landi

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hækkaði í gær viðbúnaðarstig vegna svínaflensunnar í fimmta stig af sex. Sérfræðingar stofnunarinnar telja því að heimsfaraldur gæti verið yfirvofandi. „Í heimsfaraldri er mannkynið allt í hættu,“ segir Margaret Chan, framkvæmdastjóri WHO.

Sjá næstu 50 fréttir