Innlent

400 milljónir í viðhald vega

Tæplega 390 milljónir fara í viðhald og rekstur þjóðvega í Reykjavík.fréttablaðið/heiða
Tæplega 390 milljónir fara í viðhald og rekstur þjóðvega í Reykjavík.fréttablaðið/heiða

Vegagerðin og Reykjavíkurborg hafa endurnýjað samning sinn um viðhald og rekstur þjóðvega innan borgarmarkanna. Samningurinn felur í sér að Framkvæmda- og eignasvið borgarinnar annast yfirlagnir malbiks, fræsun gatna, vetrarþjónustu, gatnamerkingar, umferðarljós, umferðarmerki, gatnahreinsun, gatnalýsingu og skiltabrýr er tengjast þjóðvegum í Reykjavík. Sambærilegir samningar eru við önnur sveitarfélög í nágrenni höfuðborgarinnar.

Samningsupphæðin er 390 milljónir króna. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×