Innlent

Móðir Heiðmerkurhrotta: „Þetta er bara rosalegt"

Valur Grettisson skrifar
Stúlknaofbeldi. Myndin er sviðsett.
Stúlknaofbeldi. Myndin er sviðsett.

„Ég get bara sagt þér það að ég var ekki búin að heyra neitt af þessu nema úti í bæ," sagði móðir unglingsstúlku sem er sökuð um að vera ein af sjö árásamönnum sem gengu hrottalega í skrokk á fimmtán ára stúlku í gær.

Móðir stúlkunnar var í miklu tilfinningalegu uppnámi þegar blaðamaður ræddi við hana.

Hún sagðist ekki hafa talað við dóttur sína síðan málið komst í fréttirnar, né hafði nokkur annar haft samband við hana. Það eina sem hún vissi var það sem hún las og heyrði í fjölmiðlum.

Stúlkurnar gáfu sig fram upp úr hádeginu í dag en lögreglan tók ekki skýrslu af þeim. Ástæðan er sú að stúlkurnar eru undir lögaldri og því þarf að hafa samband við foreldri eða barnaverndaryfirvöld.

Samkvæmt heimildum Vísis voru það tvær stúlkur sem höfðu sig mest frammi í árásinni. Dóttir móðurinnar sem Vísir ræddi við, er önnur þeirra. Stúlkurnar eru nemar í Flensborg. Þær eru sautján ára gamlar.

Líkamsárásin var hrottaleg og fólskuleg. Stúlkurnar linntu ekki barsmíðunum fyrr en piltur, sem var með þeim, stöðvaði þær. Í kjölfarið var fórnalambinu ekið inn í Hafnarfjörð og það skilið eftir við verslunarmiðstöðina Fjörðinn. Þaðan hringdi hún í foreldra sína sem komu henni undir læknishendur. Hún er mjög bólgin og illa farin eftir árásina samkvæmt systur hennar.

Þegar blaðamaður spurði móður stúlkunnar sem er sökuð um ódæðið hvað henni fyndist um málið, svaraði hún grátandi: „Þetta er bara rosalegt."


Tengdar fréttir

Námu fimmtán ára stúlku á brott og börðu í Heiðmörk

Fimmtán ára stúlka var göbbuð upp í bíl við heimili sitt í gær undir þeim formerkjum að hún væri að fara að sættast við stúlku sem hún hafði átt í útistöðum við. Fljótlega komu fimm aðrar stúlkur upp í bílinn, en þar voru tvær fyrir, og óku með hana upp í Heiðmörk. Þar gengu tvær þeirra í skrokk á henni svo stórsér á henni.

Heiðmerkurhrottar kærðir í dag

Stúlkurnar sem námu 15 ára stúlku á brott og börðu í Heiðmörk í gær verða kærðar í dag, segir Hrönn Óskarsdóttir, systir fórnarlambsins. Fjölskyldan hefur fengið afar sterk viðbrögð í kjölfar árásarinnar.

Heiðmerkurhrottarnir ekki yfirheyrðir

Allar stúlkurnar sem hafa verið kærðar fyrir að ganga í skrokk á fimmtán ára stúlku í Heiðmörk í gær gáfu sig fram við lögregluna í hádeginu. Þær fóru síðar án þess að skýrsla væri tekin af þeim. Þegar haft var samband við yfirlögregluþjóninn Friðrik Smára Björgvinsson sagði hann að málið myndi fara sömu leið og sakamál gegn lögráða einstaklingum, enda eru þær sakhæfar. Aftur á móti þarf að kalla til foreldri eða barnaverndaryfirvöld þegar skýrsla er tekin af ungmennum undir átján ára aldri. Fórnalamb stúlknanna er búið að kæra árásina. Skýrslutöku er nýlokið. Stúlkurnar gengu í skrokk á fimmtán ára stelpu í Heiðmörk í gær eftir að hafa lokkað hana upp í bíl. Ástæðan á að hafa verið sú að fórnarlambið á að hafa skrifað eitthvað á netið sem þeim mislíkaði. Samkvæmt heimildum Vísis höfðu tvær stúlkur sig mest frammi í málinu. Reynt var að hafa uppi á foreldrum stúlknanna án árangurs. Báðar stúlkurnar sem eiga að bera höfuðsökina eru nemar í Flensborg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×