Greiða Geira á Goldfinger 800 þúsund í skaðabætur Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. apríl 2009 20:39 Fyrrum blaðamenn á Ísafold þurfa að greiða Geira 800 þúsund í bætur fyrir ummæli í blaðinu.
Hæstiréttur dæmdi í dag blaðamennina Jón Trausta Reynisson og Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttur til að greiða Ásgeiri Þór Davíðssyni, betur þekktum sem Geira á Goldfinger, 800 þúsund krónur í skaðabætur með dráttarvöxtum. Ásgeir stefndi blaðamönnunum vegna ummæla sem skrifuð voru í tímaritið Ísafold um veitingastaðinn Goldfinger sem Ásgeir rekur. Þá komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að fimm ummæli í greininni skyldu dæmd dauð og ómerk. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt að ummæli í greininni skyldu dæmd ómerk og Jón Trausti og Ingibjörg skyldu greiða Ásgeiri 1 milljón króna í skaðabætur. Í greininni er fullyrt að strax við komuna taki yfirmenn danssstúlkna á Goldfinger jafnvel flugmiðana eða vegabréfin af þeim. Þær verði að vinna fyrir farmiða og kostnaði áður en þær vinni sér inn réttinn til að yfirgefa staðinn.Þá er fullyrt að umboðsmenn séu mafía. Þessi ummæli eru á meðal þeirra sem Héraðsdómur dæmdi dauð og ómerk. Hæstiréttur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að þessi tvennu ummæli væru almenns eðlis í því samhengi sem þau voru sett fram í, en ekki beint að Ásgeiri. Því skyldi sýkna þau Jón Trausta og Ingibjörgu af kröfu hans um ómerkingu þessara tveggja ummæla. Auk þess að greiða Ásgeiri 800 þúsund í skaðabætur þurfa Jón Trausti og Ingibjörg að greiða Ásgeiri 350 þúsund krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti.
Mest lesið Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Innlent Epstein-skjölin birt Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Innlent Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Innlent Pútín sagður hafa valið Witkoff Erlent Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Innlent Talinn hafa komið til landsins til að stela Innlent Fleiri fréttir Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla „Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Götulokanir í miðborginni á Þorláksmessu og um áramót Logi kynnti aðgerðir í þágu fjölmiðla Einn handtekinn í aðgerð sérsveitar á Selfossi Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Sjá meira