Innlent

Garður fyrir alla borgarbúa

Í endurnýjunardrögunum felast meðal annars hugmyndir um rósagarð, hlaupahring og buslutjörn.
 fréttablaðið/stefán
Í endurnýjunardrögunum felast meðal annars hugmyndir um rósagarð, hlaupahring og buslutjörn. fréttablaðið/stefán

„Við lítum á Miklatún sem garð fyrir alla borgarbúa en ekki eingöngu sem hverfisgarð. Þess vegna hvetjum við alla Reykvíkinga til að mæta á fundinn, segja sínar skoðanir og koma með ábendingar,“ segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi, sem situr í starfshóp um endurnýjun Miklatúns. Næsta miðvikudag, hinn 6. maí, verður samráðsfundur Reykjavíkurborgar og borgarbúa um endurnýjun túnsins haldinn á Kjarvalsstöðum.

Að sögn Þorbjargar hefur starfshópurinn verið við störf í nokkurn tíma. Í samstarfi við Ragnar Vilhjálmsson landslagsarkitekt hafa verið unnin drög að breytingum og bótum á Miklatúni, og verða þau drög til sýnis fyrir almenning á fundinum á Kjarvalsstöðum. „Til dæmis er þar að finna hugmyndir um rósagarð, hlaupahring, buslutjörn og betri tengingu milli Kjarvalsstaða og garðsins. Það yrði gaman ef fólk gæti setið á Kjarvalsstöðum og fylgst með yngstu börnunum leika sér skammt frá,“ segir Þorbjörg.

Spurð hvort til greina komi að færa nafn túnsins aftur til fyrra horfs og kalla það Klambratún segist Þorbjörg viss um að slíkar ábendingar komi fram á fundinum. „Það eru alltaf skiptar skoðanir á þessu. Mögulegt væri að hluti túns-ins yrði endurnefndur Klambratún eða eitthvað slíkt.“

Mánudaginn 4. maí verður borgarbúum boðið upp á fræðslugöngu um Miklatún, þar sem saga túnsins og nágrennis verður rakin. - kg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×