Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hreinsun hafin á ný í höfninni Síldveiði hófst að nýju í höfninni í Vestmannaeyjum í gær til að hreinsa höfnina. Samkvæmt rannsókn Hafrannsóknastofnunar eru allt að 90 prósent af síldinni sýkt. 30.3.2009 03:30
Ákvörðun um sumarannir í vikulokin „Það er vinna í gangi á öllum fræðasviðum og niðurstöður varðandi það hvað við getum boðið stúdentum upp á í sumar ættu að liggja fyrir í lok þessarar viku," segir Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands (HÍ). Samkvæmt könnun Stúdentaráðs HÍ gætu þúsundir háskólanema verið án atvinnu í sumar. 30.3.2009 03:00
Lækka lífeyri um tíu prósent Nokkrir lífeyrissjóðir munu að öllum líkindum skerða réttindi í vor, vegna slæmrar stöðu í kjölfar bankahrunsins. Þeir eru Gildi, Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Almenni lífeyrissjóðurinn, Stafir, Lífeyrissjóður Vestfirðinga og Festa. Almennt munu þeir skerða réttindin um tíu prósent. 30.3.2009 02:45
Vesturlandsvegur um Kjalarnes lokaður Tímabundin lokun á Vesturlandsvegi við Kjalarnes verður nú framkvæmd vegna veðurs og færðar. Lokunin nær frá Leirvogstungu-hringtorgi að Hvalfjarðargöngum. Ekkert ferðaveður er á þessum slóðum og er fólk beðið um að fylgjast vel með upplýsingum um færð og veður áður en haldið er að stað. 29.3.2009 20:26
Óásættanlegt að heimilin beri allan skaða hrunsins Sigrún Elsa Smáradóttir var fyrsti flutningsmaður tillögu um almennar aðgerðir vegna verðtryggðra lána heimilanna á landsfundi Samfylkingarinnar um helgina. Tillagan var samþykkt í dag og segist Sigrún Elsa fagna þeirri niðurstöðu. Hún segir óumdeilt að efnahagshrunið hafi verið ófyrrisjáanlegt fyrir allan almenning 29.3.2009 20:46
Vilja Sjálfstæðisflokkinn áfram í stjórnarandstöðu Samfylkingin vill fleiri konur í lykilstöður, að ríkið eigi ráðandi hlut í einum banka, fækka ráðuneytum og Sjálfstæðisflokkinn áfram í stjórnarandstöðu eftir kosningar. Þetta kom fram í stefnuræðu Jóhönnu Sigurðardóttur nýs formanns flokksins nú síðdegis. Tillaga um að skipta tjóni vegna verðbólgu milli skuldara og lánveitenda var samþykkt. 29.3.2009 18:24
Síldveiði hafin að nýju í Vestmannaeyjahöfn Síldveiði er nú hafin að nýju í í höfninni í Vestmannaeyjum en talið er að allt að 90% af síldinni sé sýkt. Sótt var um leyfi hjá sjávarútvegsráðuneytinu til þess að hreinsa upp síldina því að lokinni rannsókn Hafró var talið að um 90% síldarinnar myndi drepast. Lítið annað er því í stöðunni en að hreinsa síldina upp því af henni kemur mikil mengun. 29.3.2009 17:45
Þorgerður hlaut 80,6% atkvæða í varaformanninn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var kjörin varaformaður Sjálfstæðisflokksins með 80,6% greiddra atkvæða fyrir stundu. Alls greiddu 1618 atkvæði. Auðir seðlar voru 92 og ógildir 9. 29.3.2009 17:16
Mótmælt við Héraðsdóm Reykjavíkur Um fjörutíu til fimmtíu manns komu saman til mótmælafundar fyrir framan Héraðsdóm Reykjavíkur á fjórða tímanum í dag. Vildi hópurinn vekja athygli á því að í þessari viku átti að senda fimm hælisleitendur aftur til Grikklands. 29.3.2009 16:51
Slæm færð við Húsavík - óvissustig á Vestfjörðum Lögreglan á Húsavík vill koma þeim skilaboðum til vegfarenda að veður og færð eru tekin að spillast víða í umdæminu. Í Köldukinn eru akstursskilyrði slæm sem og í Ljósavatnsskarði vegna snjókófs. Þá hafa ökumenn einnig lent í vandræðum vegna þessa á Tjörnesi. 29.3.2009 16:28
Munstrar sig í áhöfn Bjarna Ben Kristján Þór Júlíusson óskaði Bjarna Benediktssyni innilega til hamingju með kosninguna í formannsstól Sjálfstæðisflokksins í ræðu sem hann hélt eftir að ljóst var að sá síðarnefndi var kjörinn formaður. Hann sagði að nú væru ekki nema sjö sólarhringar síðan hann tilkynnti um framboð sitt og sá tími sem liðinn sé síðan þá hafi verið ævintýri líkastur. Hann sagði það kannski hljóma væmið en í hans augum væri Sjálfstæðisflokkinn hluti af fjölskyldu sinni. 29.3.2009 16:17
Bjarni Ben kosinn formaður Sjálfstæðisflokksins Bjarni Benediktsson var rétt í þessu kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins í Laugardalshöll. Bjarni sigraði Kristján Þór Júlíusson nokkkuð örugglega en hann hlaut 58% greiddra atkvæða á móti 40,4% sem Kristján hlaut. Alls voru 1705 atkvæði greidd en auðir seðlar voru 5 og ógildir 2. Bjarni er níundi formaður Sjálfstæðisflokksins. 29.3.2009 16:03
Lögreglan upprætir kannabisræktun í Úlfarsárdal Fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu upprætti fyrir stundu kannabisræktun í Úlfarsárdal í Reykjavík. Umfang ræktunarinnar er mikið og plönturnar nokkuð stórar samkvæmt heimildum fréttastofu. 29.3.2009 13:59
Snjóflóðahætta á Vestfjörðum Lýst hefur verið yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Veðurstofan spáir stormi, norðlægri átt 15-20 m/s og sums staðar jafnvel 15-25 m/s, á norðanverðu landinu fram á morgundaginn. 29.3.2009 13:31
Ummæli Davíðs ómakleg og óverðskulduð Geir. H. Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins sagði á landsfundi Sjálfstæðiflokksins í morgun að ummæli Davíðs Oddssonar í gær í garð Endurreisnarnefndar flokksins og formanns hennar væru ómakleg og óverðskulduð. Geir kvaddi sér óvænt hljóðs til þess að mótmæla ummælum Davíðs. Þetta kemur fram á Eyjunni 29.3.2009 12:46
Vilja ekki afnema verðtrygginguna Samfylkingin greiðir nú atkvæði um stefnumál sín á lokadegi landsfundar í Smáranum. Endurreisnarnefnd landsfundar vill að dregið verði úr vægi verðtryggingar í lánaviðskiptum - en ekki að hún verði afnumin. Umhverfishópurinn leggur til að kvótar verði innkallaðir í Auðlindasjóð á næstu tuttugu árum. 29.3.2009 12:14
Útskrifast af gjörgæslu í dag Llíðan konunnar sem slasaðist við Skessuhorn í gær er sögð góð eftir atvikum. Hún útskrifast frá gjörgæsludeild í dag og fer á aðra deild. Konan var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús um klukkan tíu í gærkvöld. 29.3.2009 12:02
Geiri á Goldfinger segist hafa styrkt alla flokka - líka VG Ásgeir Davíðsson, betur þekktur sem Geiri á Goldfinger, segist hafa styrkt alla stjórnmálaflokka undanfarin ár. Mikið hefur verið rætt um 300 þúsund króna styrkt Baltic sem er fyrirtæki Geira til Sjálfstæðisflokksins. Hann segist hinsvegar hafa styrkt alla flokka og meira að segja Vinstri græna. Geiri er staddur í Tælandi en ætlar að fá upplýsingar frá endurskoðanda um styrki til stjórnmálaflokkanna þegar hann kemur heim. 29.3.2009 11:50
Greiðir fyrir klámmyndaáhorf eiginmannsins Innanríkisráðherra Bretlands segir að hún muni endurgreiða kostnað sem hlaust af því að eiginmaður hennar horfði á klámmyndir á leigurás í sjónvarpinu sem er á heimili þeirra. 29.3.2009 09:53
Rólegt hjá helstu lögregluembættum landsins Nóttin virðist hafa verið róleg hjá helstu lögregluembættum landsins. Einn var þó stöðvaður á Akranesi grunaður um ölvun við akstur og fimm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu 29.3.2009 09:33
Hálka víða um land Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að víða um land sé hálka. Þar segir frá hálkublettum á Reykjanesi og Kjalarnesi auk þess sem hálka og snjóþekja sé víða á Suðurlandi. 29.3.2009 09:10
Nýr formaður Sjálfstæðisflokksins kosinn í dag Nýr formaður Sjálfstæðisflokksins verður kosinn í dag en í dag er síðasti dagur landsfundar flokksins. Það eru þeir Kristján Þór Júlíusson og Bjarni Benediktsson sem slást um formannsstólinn og er reiknað með að mjótt verði á mununum. Þá er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ein í framboði til varaformanns flokksins. 29.3.2009 09:04
Opið á skíðasvæðum Opið er í Bláfjöllum í dag, gullfallegt veður, er orðið bjart og nýr snjór yfir öllu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bláfjöllum nú í morgun. Einnig er opið í Hlíðarfjalli til klukkan 16:00 í dag. Þar er logn -4° og smá snjókoma. 29.3.2009 09:01
Flutt með þyrlu til Reykjavíkur Kona sem slasaðist í Skessuhorni í gær var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík um 22:00 í gærkvöldi. Hún var borin niður fjallið og komið í snjóbíl sem flutti hana þangað sem þyrlan gat sótt hana 29.3.2009 08:58
Björgunarfólk komið að hinni slösuðu Um 120 björgunarsveitarmenn hafa í allan dag reynt að komast að slasaðri konu í fjallinu Skessuhorni. Tólf manna gönguhópur var þar á göngu þegar ein úr hópnum slasaða. Björgunarfólkið er nú komið á staðinn og verið er að undirbúa flutning á fólkinu niður fjallið en aðstæður er gríðarlega erfið. Mikil ísing er á svæðinu og snjóflóðahætta. 28.3.2009 19:17
Segir ummæli Davíðs ómakleg Vilhjálmur Egilsson formaður samtaka atvinnulífsins segir ummæli Davíðs Oddssonar á landsfundi flokksins hafa verið ómakleg en hann láti þau ekki hafa áhrif á sig. Davíð sagði skýrslu Endurreisnarnefndar flokksins sem Vilhjálmur stýrði vera hrákasmíð og hann sæi eftir þeim trjágróðri sem notaður var í prentun skýrslunnar. Vilhjálmur segir að með þessu sé Davíð að gera lítið úr þeim 80 einstaklingum sem stóðu að skýrslunni. 28.3.2009 19:07
Kynferðisbrotamenn eiga ekki að vinna með börnum Fólk sem hlotið hefur dóm fyrir kynferðisbrot gegn börnum á ekki að vinna með börnum og unglingum, segir framkvæmdastjóri Barnaheilla. Varsla barnakláms er ein tegund slíks ofbeldis. 28.3.2009 18:43
Dagur B varaformaður - Jóhanna fékk 97% atkvæða Dagur B. Eggertsson var kosinn varaformaður Samfylkingarinnar fyrir stundu eftir sig á Árna Páli Árnasyni þingmanni. Dagur hlaut 65,6% en Árni Páll 33,9% greiddra atvkæða á landsfundi flokksins. Dagur sagði að flokkurinn myndi sækja um aðild að ESB að loknum kosningum og myndi bjóða til samstarfs með það að leiðarljósi. Hann sagði Samfylkinguna vera eina flokkinn með plan. Jóhanna Sigurðardóttir var kosinn formaður Samfylkingarinnar með 97% greiddra atkvæða. 28.3.2009 17:37
Þyrla Landhelgisgæslunnar kemst ekki að slasaðri konu Um 100 björgunarsveitamenn aðstoða nú tólf manna gönguhóp niður af Skesskuhorni. Beðið var um aðstoð um klukkan tvö í dag þegar kona í hópnum féll og slasaðist. Veður er afleitt á svæðinu, það er hvasst auk þess sem snjóflóðahætta er töluverð. 28.3.2009 17:23
Líkti starfslokum sínum við krossfestingu Krists Davíð Oddsson hélt ræðu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins fyrir stundu sem endaði með dúndrandi lófataki viðstaddri. Davíð fór um víðan völl og talaði meðal annars um aðgerðarleysi minnihlutastjórnarinnar auk þess sem hann sagði Björgvin G. Sigurðsson eiga drengjamet í að leka upplýsingum í fjölmiðla. Hann sagði Jóhönnu Sigurðardóttur líta dálítið út eins og álfur út úr hól og ræddi einnig um starfslok sín í Seðlabankanum, sem hann líkti við krossfestingu Krists. 28.3.2009 17:05
Lyftustopp í Hlíðarfjalli: Fólkið komið niður Stólalyftan í Hlíðarfjalli stoppaði um 14:00 í dag. Björgunarsveitin var kölluð á vettvang þegar ákveðið var að ná fólkinu niður en um 200 manns voru í lyftunni þegar hún stoppaði. Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli segir að engin hætta hafi verið á ferðum þó einhverjir hafi eflaust fengið um sig hroll. 28.3.2009 15:40
Bílvelta á Grindavíkurvegi: Fjórir fluttir á sjúkrahús Bílvelta varð á Grindavíkurvegi fyrr í dag. Að sögn lögreglu voru fjórir fluttir á sjúkrahús en ekki er vitað hversu alvarelga slasaðir þeir eru. Um var að ræða jeppa sem fór útaf veginum og að sögn vegfaranda fór hann nokkuð langt útaf veginum en mikil hálka er á vettvangi. Verið er að rannsaka tildrög slyssins að sögn lögreglu. 28.3.2009 15:19
Föst í skíðalyftunni í Hliðarfjalli í tvo tíma Nokkur fjöldi fólks hefur setið fastur í skíðalyftunni í Hlíðarfjalli í nærri tvo klukkutíma. Einhverjir björgunarsveitarmenn úr Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri, voru á svæðinu og hafa hafið aðgerðir til aðstoðar fólkinu og fleiri eru á leiðinni með búnað sem til þarf til að ná fólkinu úr lyftunni. 28.3.2009 14:58
Margt ósmekklegt og rangt sagt um hjónaband okkar Kristjáns Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins hélt ræðu á landsfundi flokksins fyrir stundu en hún sækist eftir endurkjöri í embætti varaformanns. Hún sagði uppgjöf ekki vera til í orðabókum sjálfstæðismanna en hún var einnig á persónulegu nótunum. Ræddi hún meðal annars um hlutabréfakaup eiginmanns síns og kjaftasögurnar um hjónabandið. Hún sagði Steingrím J. vera hinn nýja Skattmann og að skikkjan hefði verið send með hraðpósti frá Bessastöðum. 28.3.2009 14:41
Kynferðisbrot á meðferðarheimili: Ekki hægt að reka nema ákært sé Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu segir að séu starfsmenn meðferðarheimilis ákærðir fyrir kynferðisbrot sé þeim sagt upp störfum varanlega. Sjái ákæruvaldið hinsvegar ekki ástæðu til þess að gefa út ákæru séu menn í erfiðri stöðu og ekki hægt að reka viðkomandi. Rannsókn fer nú fram á meintum kynferðisbrotum starfsmanns meðferðarheimilis á Norðulandi en honum hefur verið sagt upp störfum tímabundið. Sami maður laut rannsókn vegna svipaðra brota fyrir ári síðan 28.3.2009 14:12
Davíð Oddsson ávarpar landsfund Davíð Oddsson fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins mun ávarpa landsfund Sjálfstæðismanna klukkan 16:00 í dag. Ekki er vitað hvað Davíð ætlar að segja en mikil eftirvænting er í landsfundargestum vegna ræðu Davíðs. 28.3.2009 14:00
Bílvelta á Grindavíkurvegi Jeppi fór útaf Grindavíkurvegi fyrir stundu og valt. Að sögn vegfaranda er mikil hálka á veginum og lá bíllinn talsvert utan við veginn. Lögregla og sjúkrabíll voru komin á staðinn og slökkvilið var einnig á leið á vettvang. 28.3.2009 13:55
Eva Joly kostar 70 milljónir á ári Áætlaður kostnaður ríkissins vegna starfa Evu Joly sem ráðgjafa hjá sérstökum saksóknara bankahrunsins er um 70 milljónir á ári. Inni í þeirri tölu er allur kostnaður en hún er með aðstoðarmann á sínum snærum. Sjálf fær Eva átta þúsund evrur í laun á mánuði sem er um 1.300.000 íslenskar krónur. Þetta kom fram á blaðamannafundi í morgun þar sem starf Evu var kynnt. 28.3.2009 13:03
Ætlar ekki í varaformanninn Kristján Þór Júlíusson segist ekki ætla að bjóða sig fram til varaformanns Sjálfstæðisflokksins tapi hann fyrir Bjarna Benediktssyni um formannsstól flokksins. 28.3.2009 12:19
Fráleitt að bera saman Icesave og lífeyrissjóðinn Ögmundur Jónasson segir fráleitt að bera saman skuldbindingar ríkisins vegna lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Icesave ævintýrið. 28.3.2009 12:14
Fjárhagsstaða ríkisins leyfir ekki 20% niðurfellingu skulda Fjárhagsstaða ríkisins leyfir ekki flata 20 prósenta niðurfellingu skulda. Kostnaðurinn myndi jafngilda tvöföldum heildarútgjöldum ríkissjóðs á síðasta ári. 28.3.2009 12:00
Íslands bíður björt framtíð handan við hornið Bjarni Benediktsson gerði grein fyrir stjórnmálaályktun Sjálfstæðisflokksins sem í kjölfarið var lögð fyrir landsfund flokksins til umfjöllunar. Meðal þess sem kom fram í máli Bjarna var að flokkurinn telur að Ísland eigi að standa utan við Evrópusambandið en flokkurinn telur að ísland eigi að vera virkir þátttakendur í alþjóðasamfélaginu. 28.3.2009 11:33
Vilja að ný ríkisstjórn sæki um aðild að ESB Fjöldi fólks héðan og þaðan í samfélaginu skrifar undir áskorun sem birt er með auglýsingu í dagblöðunum í dag, um að ríkisstjórn sem tekur við eftir kosningar til Alþingis í apríl, hafi það sem eitt af forgangsverkefnum sínum að skilgreina samningsmarkmið Íslendinga og sæki síðan um aðild að Evrópusambandinu. 28.3.2009 10:06
Ný forysta Samfylkingar kosin í dag Ný forysta Samfylkingarinnar verður kosin í dag á landsfundi flokksins í Smáranum. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er ein í framboði til formanns en tveir menn berjast um varaformannsembættið, þeir Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi og Árni Páll Árnason þingmaður. 28.3.2009 10:03
Vilja að neitunarvaldi sé beitt gegn Fogh Rasmussen Forsætisráðherra Tyrklands segir að múslimaríki biðji Tyrki um að beita neitunarvaldi til þess að koma í veg fyrir að Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur verði næsti framkvæmdastjóri NATO. 28.3.2009 09:52