Fleiri fréttir

Fá ráðgjöf Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

Fulltrúar frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum eru staddir hér á landi og hafa veitt stjórnvöldum tæknilega ráðgjöf við yfirstandandi efnahagsaðgerðir, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Hamstra innfluttar nauðsynjar

Fólk er farið að hamstra ýmsar erlendar nauðsynjavörur af ótta við miklar hækkanir á næstu dögum í kjölfar falls krónunnar.

Biskup boðar tungumál umhyggjunnar

Karl Sigurbjörnsson biskup segir í pistli á heimasíðu kirkjunnar að eftir tungumál óttans, sem hefur verið yfirgnæfandi að undanförnu, skulum við nú tala tungumál umhyggjunnar.

Fundað í Landsbankanum í nótt

Fundahöld voru í Landsbankanum í nótt en ekki liggur fyrir hvort Fjármálaeftirlitið yfirtekur rekstur hans, eins og það hefur nú heimild til, reynist bankinn ekki getað staðið við skuldbindingar.

Fáir ráðherrar nenntu að hlusta á Guðna Ágústsson

Nú stendur yfir umræða um frumvarp ríkisstjórnarinnar um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðan á fjármálamarkaði. Frumvarpið var kynnt í kvöld af Geir H. Haarde forsætisráðherra en var síðan rætt m.a í viðskiptanefnd Alþingis.

Bjartsýn fyrir sína hönd og þjóðarinnar

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sem gekkst undir aðgerð í Bandaríkjunum í síðustu viku sagði í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins að sér liði vel og hún fylgdist vel með stöðu mála.

Segir drauma Íslendinga að verða að engu

Breska blaðið Daily Telegraph fjallar í kvöld um hinar miklu breytingar sem eru yfirvofandi á íslensku efnahagslífi og segir mikið hafa breyst í landinu á einu ári.

Handtekinn með amfetamín í Grafarvogi

Karl á þrítugsaldri var handtekinn í Grafarvogi um helgina en hann var með rúmlega 100 grömm af fíkniefnum í fórum sínum, mestmegnis amfetamín. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.

Fundi lokið í viðskiptanefnd - Umræður hefjast innan skamms

Fundi viðskiptanefndar Alþingis lauk klukkan rúmlega hálf níu fyrr í kvöld og hafði nefndin þá tekið á móti rúmlega 20 gestum. Þar á meðal voru fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar, atvinnurekenda, fjármálastofnanna, Fjármálaeftirlitisins og Íbúðalánasjóðs.

Greiðslukortin virka áfram

Valitor, sem gefur út VISA-kort hér á landi fyrir hönd banka- og sparisjóða, segir að notkun korta verði eftir sem áður með eðlilegum hætti.

Vill að ókeypis verði í strætó

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, hyggst á morgun leggja fram tillögu í borgarráði um að fargjöld með Strætó verði felld niður frá og með áramótum.

Mikið áfall fyrir Sjálfstæðismenn

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var gestur í Kastljósi Sjónvarpsins fyrir stundu. Þar sagði hún m.a að ljóst væri að staðan sem nú er komin upp sé mikið áfall fyrir Sjálfstæðismenn og landið allt. Hún sagði hinsvegar að það sem skipti mestu máli núna væri að byggja upp almennilegt fjármála- og bankakerfi og hafa undirstöðurnar traustar.

Biskup: Kreppa er tækifæri

Herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, segir að kreppa sé tækifæri og nú fái ríki og fjármálstofninar og einstaklingar tækifæri til að endurskipuleggja sig með visku, hagsýni, hófsemi og umhyggju að leiðarljósi. Þetta kemur fram í pistli sem biskup ritar og birtur er á heimasíðu Þjóðkirkjunnar.

Peningamálastefnan komin í þrot

Ólafur Ísleifsson lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík sagði Ríkisstjórnina hafa tekið ákvörðun sína í algjörri nauðvörn og nú þyrfti að vinna á grundvelli þessarar ákvörðunar. Ólafur var gestur í Íslandi í dag fyrir stundu. Hann sagði jákvætt að stjórnvöld hefðu gefið það út að heimilin og fyrirtækin í landinu verði varin skilyrðislaust.

Jóhanna: Skjaldborg um heimilin

Með frumvarpi ríkisstjórnarinnar vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði er verið að slá skjaldborg um heimilinn, að sögn Jóhönnu Sigurðardóttur félags- og tryggingamálaráðherra.

Vilhjálmur Bjarnason: Helst hægt að líkja þessu við Kúbudeiluna

Vihjálmur Bjarnason, formaður félags fjárfesta, segir ástandið óljóst eins og staðan er í dag. Í viðtali á Stöð 2 benti hann á að frumvarpið sem lagt var fyrir Alþingi í dag veiti ákveðnar heimildir en að það sé ekki lýsing á aðgerðum. Það sem stendur upp úr að hans mati er það að Fjármálaeftirlitið fær víðtækar heimildir til þess að hafa afskipti af fjármálafyrirtækjum lendi þau í kröggum. „Hvernig þeim verður beitt veit ég ekkert um á þessari stundu og það getur enginn séð fyrir hvernig þessu lyktar.“

Tími sparðatínings í stjórnsýslu liðinn

Tími sparðatínings í íslenskri stjórnsýslu er liðinn og fara verður í allar þær framkvæmdir sem í boði eru, þar á meðal byggingu álvera í Helguvík og á Húsavík, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann segir að ekkert verði eins og það var áður eftir atburði dagsins.

Rafmagnslaust að hluta í Miðbænum

Fyrir stundu varð bilun á háspennustreng og varð rafmagnslaust á Laugavegi frá Barónsstíg að Hafnarstræti. Samkvæmt tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur er unnið að viðgerð og vonast til að rafmagn komist á bráðlega.

Býst við uppstokkun á fjármálamarkaði

Forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi fyrir stundu að hagsmunir þjóðarinnar eru ríkari en hagsmunir einstakra bankastofnanna. Hann sagði að alþjóðleg fjármálakreppa væri farin að segja til sín að fullri alvöru á Íslandi og að bankarnir væru fórnarlömb ytri aðstæðna.

Össur: Þeir sem fóru gáleysislega eiga að blæða

Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra og starfandi utanríkisráðherra, segir að þeir sem farið hafi gáleysislega í efnahagslífinu á undanförnum málum eigi að blæða en ekki fólkið í landinu. Þeir sem komið hafi bönkunum í þá stöðu sem þeir eru komnir í eigi að taka fyrsta skellinn.

Eins og þruma úr heiðskíru lofti

Aðgerð ríkisstjórnar um heimild til fjárveitinga úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði kom eins og þruma úr heiðskýru lofti, að mati Grétars Þorsteinssonar forseta ASÍ.

Guðjón deilir á samráðsleysi

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagði að hans flokkur myndi greiða bankafrumvarpinu götu inn í nefndir þingsins. Hann bætti því við að hans menn myndu krefjast svara við ýmsum áleitnum spurningum í nefndarvinnunni. Í ræðu sinni á þingi sagði Guðjón að eðlilegt hefði verið að stjórnarandstaðan hefði fengið að koma meira að þeim málum sem nú hafi verið leidd til lykta.

„Sumir bankanna munu standa af sér storminn“

Björgvin G. Sigurðsson tók til máls á Alþingi fyrir stundu og ræddi um frumvarpið sem forstætisráðherra mælti fyrir nokkrum mínútum áður. Þar sagði Björgvin m.a að hann væri sannfærður um að þeim heimildum sem lagðar eru til í frumvarpinu muni ekki þurfa að beita í ölllum tilfellum og sagðist hafa trú á því að sumir bankanna myndu rífa sig í gegnum storminn. Hann sagði að nú horfðum við á fordæmislausar efnahagslegar hamfarir sem riðu yfir heimsbyggðina, og felldi banka tugum saman um allan heim.

Lögregla leitar árásarmanna - Myndir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú tveggja manna sem eru grunaðir um rán og líkamsárás á Laugavegi um hálffjögurleytið aðfaranótt sunnudags. Þá var karl á sjötugsaldri barinn og rændur en árásarmennirnir eru taldir vera á aldrinum 25-30 ára og af erlendu bergi brotnir.

Steingrímur: Efnahagslegar náttúruhamfarir af manna völdum

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir að það sé dapurlegt að grípa þurfi til sérstakra aðgerða með frumvarpi um heimild til fjárveitinga úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði.

Bankarnir þjóðnýttir - Þrot vofir yfir

Fjármálaeftirlitið mun fyrir hönd ríkissins taka að sér rekstur bankanna fari þeir í þrot. Þetta kemur fram í frumvarpi ríkisstjórnarinnar um björgun efnahagslífsins.

Björgunarfrumvarp lagt fram á þingi

Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, setti þingfund fyrir stuttu þar sem lagt var fram frumvarp ríkisstjórnarinnar til bjargar íslensku efnahagslífi.

Atli: Snúa verður af braut græðgi og misréttis

Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, segist vera harmi sleginn yfir atburðum seinustu daga. Hann segir að að snúa verði af braut græðgi og misréttis. Næstu skref verði að taka með samfélagsábyrgð í huga og víkja verður af braut einkavæðingar.

Þorgerður Katrín: Aðgerðin tryggi framtíð Íslendinga

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir að boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar séu til þess gerðar að tryggja almannahagsmuni í því gjörningaveðri sem nú stendur yfir. Í viðtali í Alþingishúsinu eftir að Geir Haarde flutti ávarp til þjóðarinnar sagði hún að frumvarpið sem kynnt verður innan tíðar sé lagt fram til þess að tryggja að þær skuldir sem eru að plaga fjármálakerfið færist ekki yfir á ríkið og landsmenn.

Frumvarp til að laga bankakerfið að íslenskum aðstæðum

Ríkisstjórnin mun leggja fram frumvarp um að laga bankakerfið að íslenskum aðstæðum og endurvinna traust á kerfinu. Þetta kom fram í ávarpi forsætisráðherra til þjóðarinnar nú klukkan fimm,. Hann sagði jafnframt að ríkið myndi tryggja atvinnulífinu aðgang að fjármagni og koma í veg fyrir upplausnarástand.

Hæstaréttardómarar fagna rannsókn á Hafskipsmáli

Tveir dómarar Hæstaréttar, þeir Markús Sigurbjörnsson og Gunnlaugur Claessen hvetja Valtý Sigurðsson, ríkissakskóknara til að verða við beiðni um opinbera rannsókn á hafskipsmálinu. Ríkissaksóknari fékk þessa beiðni í síðustu viku frá lögmanninum Ragnari Aðalsteinssyni fyrir hönd fyrrverandi stjórnenda Hafskips með Björgólf Guðmundsson í broddi fylkingar.

Aðstoða vélarvana bát

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst kl. 12:29 tilkynning frá Dagnýju SU 129 um að báturinn væri vélarvana með einn mann um borð fyrir utan Hólmanes í Reyðarfirði, var báturinn þá búinn að leggja út ankeri.

Skilorðsbundinn dómur fyrir að slá mann í andlitið

Karlmaður hefur verið dæmdur í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist að öðrum karli og slegið hann í andlitið við Draugabarinn á Stokkseyri fyrir tæpu ári. Tönn í efri gómi fórnarlambsins brotnaði.

Nokkrir teknir fyrir fíkniefnamisferli á Akureyri

Lögreglan á Akureyri gerði húsleit í tveimur íbúðum á föstudagskvöld og aðfaranótt laugardags. Í annarri íbúðinni fundust tæki og tól til fíkniefnaneyslu auk fíkniefnaleyfa en í hinni var lagt hald á sex grömm af kannabisefnum og þrjú grömm af ætluðu amfetamíni.

Boðað til þingflokksfunda klukkan þrjú

Engar fregnir er enn að hafa af aðgerðum ríkisstjórnarinnar í efnhagsmálum en þingflokksfundir hafa verið boðaðir klukkan þrjú. Þetta fékkst staðfest hjá Alþingi fyrir stundu. Misskilningur varð þess valdandi að í stutta stund sagði Vísir frá því að til stæði að kalla Alþingi saman. Það mun ekki vera rétt.

Leigubílsferð JP Morgan manna kostnaðarsöm

Fulltrúar bandaríska fjárfestingarbankans JP Morgan þurftu að greiða hátt í 20 þúsund krónur fyrir leigubílinn sem flutti þá til fundar við ráðherra í nótt. Bíllinn beið mannanna á meðan fundinum stóð.

Sjá næstu 50 fréttir