Fundi lokið í viðskiptanefnd - Umræður hefjast innan skamms 6. október 2008 21:08 Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, er formaður viðskiptanefndar Alþingis.
Fundi viðskiptanefndar Alþingis lauk klukkan rúmlega hálf níu fyrr í kvöld og hafði nefndin þá tekið á móti rúmlega 20 gestum. Þar á meðal voru fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar, atvinnurekenda, fjármálastofnanna, Fjármálaeftirlitisins og Íbúðalánasjóðs. Fyrir Alþingi liggur fyrir frumvarp um aðgerð ríkisstjórnar vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði. ,,Við fórum yfir málið og öllum gafst tækifæri á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri," segir Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar og formaður viðskiptanefndar Alþingis, og bætir við að allir hafi gert sér grein fyrir að um neyðarlög sé að ræða til að mæta þeim efnhagslegu þrengingum sem heimurinn gengur nú í gegnum. ,,Með lögunum á að tryggja að séreignasparnaður og innistæður fólks í innistæðu formi séu öruggar og að bankaþjónusta verði starfandi í landinu um ókomna framtíð. En höggið verður talvert en við megum heldur ekki gleyma því að innviðirnir eru traustir og langtímahorfur jákvæðar. Við munum komast út úr þessu," segir Ágúst Ólafur. Ágúst Ólafur á von á því að frumvarpið verði að lögum síðar í kvöld. Umræða um frumvarpið hefst klukkan 21:40. Samkvæmt Ágúst Ólafi hyggst Framsóknarflokkurinn styðja frumvarpið með fyrirvara en Vinstri grænir og Frjálslyndi flokkurinn skila séráliti.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira