Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lögreglan handtók sjö meðlimi Saving Iceland Lögreglan handtók sjö félaga í Saving Iceland sem stóðu fyrir mótmælum á Hengilssvæðinu í morgun. Samtökin stöðvuðu vinnu við eina af helstu jarðhitaborholum á svæðinu. Hinir handteknu eru frá Bretlandi, Bandaríkjunum, Belgíu, Danmörku, Hollandi og Svíþjóð. 28.7.2008 17:30
Munu líklega áfrýja Kastljósdómi Dögg Pálsdóttir lögfræðingur Birnis Orra Péturssonar og Luciu Celeste Molina Sierra segir að allar líkur séu á því að dómi Héraðsdóms Reykjavíkur verði áfrýjað. 28.7.2008 16:55
Gæsluvarðhaldsúrskurður staðfestur yfir Þorsteini Kragh og Hollendingnum Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tónleikahaldaranum Þorsteini Kragh og Hollendingi sem grunaðir eru um umfangsmikið smygl á fíkniefnum til landsins með Norrænu um miðjan júní. 28.7.2008 16:27
Kastljós sýknað af ásökunum um ærumeiðingar Páll Magnússon útvarpsstjóri og ritstjórn Kastljóss voru sýknuð, í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, í meiðyrðamáli sem Lucia Celeste Molina Sierra, tengdadóttir Jónínu Bjartmarz, og Birnir Orri Pétursson sonur Jónínu höfðuðu gegn þeim. 28.7.2008 16:02
Fornleifuppgröftur í vetur Hugsanlega gætu fornminjar frá Landnámsöld leynst undir Alþingisreitnum við Kirkjustræti. Fornleifafræðingar ætla að beita óvenjulegum aðferðum til að rannsaka svæðið í vetur. 28.7.2008 19:15
Brotist inn í bíla í Reykjavík Brotist var inn í sex bíla víðsvegar í Reykjavík um helgina og úr þeim stolið ýmsum munum. Á sama tímabili var þremur bílum stolið á höfðuborgarsvæðinu en í tveimur þeirra voru kveikjuláslyklar skildir eftir af eigendum eða umráðamönnum ökutækjanna og því voru hæg heimatökin hjá þjófunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 28.7.2008 19:00
Dræm lundaveiði í Eyjum Lundaveiði í Vestmannaeyjum hefur verið afar dræm það sem af er veiðitímabilinu. Veiðin er aðeins brot af því sem eðlilegt getur talist. Veiðimenn telja ástæðuna vera þá að ungfuglinn vantar en hann er að öllu jöfnu uppistaðan í veiðinni. 28.7.2008 19:00
Afskaplega ánægður með niðurstöðu dómsins Þórhallur Gunnarsson ritstjóri Kastljóss segist vera mjög sáttur við sýknunina í Héraðsdómi í dag. „Þetta er niðurstaðan sem ég átti von á en ég er mjög ánægður með að þetta hafi verið niðurstaða dómsins," segir Þórhallur. 28.7.2008 16:28
Ökumaður ætlaði aldeilis að hafa vaðið fyrir neðan sig Karl á þrítugsaldri var stöðvaður við akstur í Hafnarfirði í gærmorgun en bíllinn hans var enn á nagladekkjum. Þetta segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 28.7.2008 16:10
Árni Johnsen enn að fara yfir stöðuna Einar Hugi Bjarnason, lögfræðingur Árna Johnsen alþingismanns, vildi ekki gefa upp hvort Árni komi til með að stefna Agnesi Bragadóttur, blaðamanni Morgunblaðsins, fyrir meiðyrði. „Við erum að fara yfir stöðuna en það ætti að liggja fyrir á miðvikudag hvað við gerum," útskýrði Einar Hugi. 28.7.2008 15:05
Minnst fjórir handteknir í mótmælum Saving Iceland Að minnsta kosti fjórir hafa verið handteknir í mótmælum Saving Iceland á Hengilssvæðinu. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var fólkinu gefið fyrirmæli um að yfirgefa svæðið og ákveðinn frestur til að hlýða þeim fyrirmælum. 28.7.2008 14:37
Ekki grunaður um ölvunarakstur Ökumaður bifreiðarinnar sem valt á Holtavörðuheiðinni á föstudag liggur ekki undir grun um ölvun við akstur. 28.7.2008 14:09
Harður árekstur á Eyjafjarðarbraut Harður tveggja bíla árekstur varð við Eyjafjarðarbraut vestri við Kjarnaskóg um hálftólf í dag. 28.7.2008 13:37
Leiðbeinendur Vinnuskólans lögðu niður störf Leiðbeinendur hjá Vinnuskóla Reykjavíkur lögðu niður störf í hádeginu. Nemendur Vinnuskólans verða í einhverjum tilfellum sameinaðir í hópa og vinnu haldið áfram, en ljóst er að margir þeirra verða sendir heim. 28.7.2008 12:56
Rannsóknarnefnd flugslysa kannar þrjú atvik tengd Icelandair Rannsóknarnefnd flugslysa rannsakar nú atvik sem varð í gær þegar vél Icelandair var snúið við skömmu eftir flugtak frá Keflavíkurflugvelli vegna bilunar í hreyfli. 28.7.2008 12:46
Hlaut opið beinbrot við fall af hesti Alvarlegt hestaslys varð á Völlum í Ölfussi á ellefta tímanum í morgun þegar knapi féll af hesti sínum og varð undir hestinum. Að sögn lögreglunnar á Selfossi hlaut viðkomandi opið beinbrot og var fluttur á slysadeild. 28.7.2008 12:22
Tuttugu mótmælendur hafa læst sig við vinnuvélar á Hengilssvæðinu Umhverfishreyfingin Saving Iceland stöðvaði í morgun vinnu við eina af helstu jarhitaborholum á Hengilsvæðinu, þar sem Orkuveita Reykjavíkur stækkar nú Hellisheiðarvirkjun. 28.7.2008 12:08
Rannsókn á Frakkastígsmáli enn ólokið Rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu bíður enn eftir niðurstöðum réttarkrufningar vegna andláts Pólverja sem féll í götuna af húsi á Frakkastíg í júní. 28.7.2008 10:01
Stór jarðskjálfi við Grímsey í morgun Klukkan 07:09 í morgun varð jarðskjálfti upp á 4,5 á Richter um 13 km austnorðaustur af Grímsey. 28.7.2008 08:08
Tófa beit konu í fótinn Tófa beit konu í fótinn, þar sem hún var í gönguhópi í hlíðum Húsfells, suðaustur af Hafnarfirði í fyrradag. 28.7.2008 07:56
Leiðbeinendur í vinnuskólanum leggja niður vinnu í dag Hundrað og þrjátíu leiðbeinendur hjá Vinnuskóla Reykjavíkur ætla að leggja niður störf í hádeginu í dag og halda niður í ráðhús, til að fylgja eftir kröfum sínum um launaleiðréttingu. 28.7.2008 07:35
Fimm ferðamenn sluppu vel úr umferðaróhappi Fimm erlendir ferðamenn sluppu ótrúlega vel, að sögn sjónarvotta, þegar þeir misstu stjórn á bíl sínum á Uxahryggjarvegi um kvöldmatarleitið í gærkvöldi með þeim afleiðingum að bíllinn fór útaf og endastakkst 28.7.2008 07:32
Dópuð kona ók á brúarstólpa Kona sem var svo vönkuð af lyfjaáti að hún stóð vart í fæturna, missti stjórn á bíl sínum og ók honum á brúarstólpa í nótt, þar sem Krókháls liggur undir Suðurlandsveginn. 28.7.2008 07:28
Lögreglan leitar að þremur handrukkurum Lögreglan leitar enn þriggja manna , sem grunaðir eru um að hafa misþyrmt manni, sem færður var af heimili sínu í Hafnarfirði aðfararnótt sunnudags og fluttur upp í Heiðmörk. Talið er að um handrukkun hafi verið að ræða. 28.7.2008 07:23
Lundaveiðin framlengd til 15. ágúst Bjargveiðifélag Vestmannaeyja ákvað á fundi sínum í gærkvöldi að framlengja lundaveiðitímann til fimmtánda ágúst,en til stóð að veiðitímabilinu lyki um mánaðamótin. 28.7.2008 07:20
Tvö þúsund manns á skátamóti á Akureyri Um tvö þúsund manns eru á Landsmóti skáta að Hömrum á Akureyri en þáttakendur koma frá fjórtán löndum. 27.7.2008 19:05
Bílvelta skammt frá Þingvöllum Bíll með fjórum mönnum valt á Uxahryggjaleið, skammt frá Þingvöllum, fyrir stundu. Að sögn lögreglunnar á Selfossi er ekki talið að alvarleg slys hafi orðið á fólki. Lögreglan gat ekki gefið frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. 27.7.2008 18:53
Hrossaþjófur felldur með DNA sýni Þegar Sæunn Oddsdóttir á Steinum í Stafholtstungum lánaði hann Baldur sinn til hestaferðar, átti hún ekki von á öðru en hún fengi hann aftur eftir nokkra daga. Síðan eru liðin þrjú ár. 27.7.2008 18:15
Bilun í hreyfli Boeing 757 vélar Icelandair - lenti án vandræða Boeing 757 vél Icelandair á leið til New York var nýfarin í loftið þegar henni var snúið við. Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli fékk tilkynningu um bilun í hreyfli vélarinnar, en um 170 manns voru um borð. 27.7.2008 17:47
Sleppt eftir handtöku vegna handrukkunar í Heiðmörk Rúmlega tvítugum karlmanni sem handtekinn var í tengslum við handrukkun í Heiðmörk í nótt hefur verið sleppt. Að sögn lögreglu var hann yfirheyrður en málið er enn í rannsókn. Það var um tvö leytið í nótt sem alblóðugur maður bankaði upp á í verslunarmiðstöðinni Kauptúni í Garðabæ. 27.7.2008 16:22
Handtökur í Keflavík: Segja manninn hafa dottið Vísir sagði frá því í gær að fjölmennt lögreglulið með aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra hefði ráðist inn í samkvæmi í Keflavík um sex leytið í gærmorgun. Þar voru átta handteknir eftir að maður fannst illa leikinn fyrir utan samkvæmið. Jón Þór Karlsson varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurnesjum segir að samkvæmið hafi verið fjölmennt og þar inni hafi verið menn sem réttast sé að nálgast með varúð. Ekki er talið að um uppgjör í fíkniefnaheiminum sé að ræða. 27.7.2008 12:00
Leiðbeinendur í unglingavinnu í vinnustöðvun Leiðbeinendur við Vinnuskólann eru um 160 talsins. Með þessri vinnustöðvum vilja þeir leggja áherslu á ranglæti sem þeir segjast vera beittir þar sem þeir séu skráðir í rangan launaflokk. 27.7.2008 11:18
Annríki á Mærudögum á Húsavík Nokkur erill var hjá lögreglunni á Húsavík í nótt. Nú standa þar yfir Mærudagar og telur lögreglan að fimm til sex þúsund manns hafi verið í bænum um helgina. 27.7.2008 11:06
TF Líf sótti slasaða konu í Flatey TF Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar, var fyrir stundu að taka á loft frá Flatey þar sem hún sótti slasaða konu sem þarf að komast undir læknishendur. 27.7.2008 10:43
Alblóðugur eftir handrukkun í Heiðmörk Um tvö leytið í nótt bankaði alblóðugur maður maður upp á í verslunarmiðstöðinni Kauptúni í Garðabæ. Maðurinn hafði verið tekinn við heimili sitt og farið var með hann upp í Heiðmörk þar sem hann var laminn illa. 27.7.2008 09:52
Lunda fækkar í Vestmannaeyjum Lunda hefur fækkað svo í Vestmannaeyjum að ekki er talið víst að nóg veiðist til þess að seðja þjóðhátíðargesti þegar þar að kemur. Á vefsíðu Suðurlands segir frá því að á Sky sjónvarpsstöðinni hafi verið sagt frá vandamálum í breska lundastofninum á eyjunni Farne. 27.7.2008 09:37
Á slysadeild eftir höfuðhögg í sumarbústað Einn var fluttur á slysadeild eftir bílveltu á Bræðratunguvegi um kvöldmatarleytið í gær. Þá var annar maður fluttur á slysadeild rétt eftir miðnætti eftir að hann fékk skurð á hnakka. Maðurinn var í sumarbústað í Úthlíð og datt þegar hann var að standa upp frá borði. 27.7.2008 09:36
Handtekinn fyrir að sparka í löggubíl Lögreglan á Suðurnesjum handtók í nótt karlmann á þrítugsaldri eftir að hann sparkaði í lögreglubíl. Bílinn var að aka hægt niður Hafnargötu í Reykjanesbæ þegar maðurinn, sem var mikið ölvaður, sparkaði í bílinn. 27.7.2008 09:21
Íbúar langþreyttir á kappakstri við Hringbraut Kappakstur tveggja bíla eftir Hringbraut í nótt endaði með þriggja bíla árekstri. Íbúar eru orðnir langþreyttir á síendurteknum hraðakstri á Hringbrautinni og telja aðeins tímaspursmál hvenær alvarlegt slys hlýst af. 26.7.2008 20:00
Sérsveitin handtók átta í Keflavík Um klukkan sex í morgun var tilkynnt um liggjandi mann fyrir utan hús í Keflavík. Reyndist hann vera öklabrotinn og með töluverða áverka í andliti. Maðurinn hafði verið gestkomandi í húsi þar skammt frá. Var hann fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild í Reykjavík. 26.7.2008 19:16
Ótímabært að hafna eða samþykkja vinningstillögu LHÍ Ólöf Guðný Valdimarsdóttir varaformaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar segir ótímabært að hafna eða samþykkja vinningstillögu að byggingu nýs Listaháskóla við Laugaveg. Í sama streng tekur fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í ráðinu. Borgarstjóri fullyrðir að hún verði ekki samþykkt í skipulagsráði óbreytt. 26.7.2008 18:47
Harður árekstur á Suðurlandsvegi Nokkuð harður árekstur varð á Suðurlandsvegi á móts við Biskupstungnabraut um tvö leytið í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi rákust tveir bílar saman en í öðrum bílnum voru þrír og einn var í hinum bílnum. 26.7.2008 15:46
Enginn hægagangur á máli Paul Ramses Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra segir það ekki eiga við nein rök að styðjast að hægagangur sé á máli Keníamannsin Paul Ramses hjá ráðuneytinu. 26.7.2008 15:36
Tillagan um LHÍ ekki samþykkt í óbreyttri mynd Borgarstjóri segir tillögu um nýjan Listaháskóla Íslands í miðborg Reykjavíkur ekki verða samþykkta í skipulagsráði borgarinnar í óbreyttri mynd. Aðstandendur skólans segja að fullt tillit hafi verið tekið til sjónarmiða skipulagsyfirvald við gerð tillögunnar og að þeir treysti því að tillagan fái málefnalega umfjöllun í ráðinu. 26.7.2008 12:12
Segist hafa talað kjarnyrta íslensku og vitnað í dóm Hæstaréttar Agnes Bragadóttir segist hafa verið að tala kjarnyrta íslensku og vitna í dóm Hæstaréttar þegar hún lét ummæli falla um þingmanninn Árna Johnsen í þættinum „Í bítið á Bylgjunni“ fyrir skömmu. Fram hefur komið í fréttum að Árni íhugi að fara í meiðyrðarmál vegna ummælanna og er kominn með lögfræðing í málið. 26.7.2008 11:38