Handtökur í Keflavík: Segja manninn hafa dottið Breki Logason skrifar 27. júlí 2008 12:00 Sérsveit Ríkislögreglustjóra aðstoðaði við handtökuna.
Vísir sagði frá því í gær að fjölmennt lögreglulið með aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra hefði ráðist inn í samkvæmi í Keflavík um sex leytið í gærmorgun. Þar voru átta handteknir eftir að maður fannst illa leikinn fyrir utan samkvæmið. Jón Þór Karlsson varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurnesjum segir að samkvæmið hafi verið fjölmennt og þar inni hafi verið menn sem réttast sé að nálgast með varúð. Ekki er talið að um uppgjör í fíkniefnaheiminum sé að ræða. „Þarna inni voru menn sem við höfum þurft að hafa afskipti af áður í tengslum við fíkniefnamál. Þegar ráðist er svona inn þá verðum við að hafa eitthvað til þess að verja okkur og fengum aðstoð frá sérsveitinni til þess að tryggja vettvang sem best," segir Jón Þór en sérsveitarmennirnir eru þjálfaðir í að takast á við aðstæður sem þessar. Jón Þór segir að ekki hafi komið til handalögmála á milli lögreglu og þeirra sem inni voru. „Það var ráðist inn með miklum látum og ákveðni. Það hlýddur allir fyrirmælum og enginn meiddist." Átta voru handteknir en þeir eru allir á milli tvítugs og þrítugs, en þremur var sleppt strax þar sem þeir voru ekki taldir tengjast málinu. Hinir fimm voru yfirheyrðir en þeim var sleppt síðdegis í gær. „Það vantaði hinsvegar einn sem við vissum að hefði verið þarna. Hann var svo handtekinn eftir miðnætti í gær." Jón Þór segir að mennirnir séu allir íslendingar en lítið hafi komið út úr yfirheyrslunum. „Menn eru svosem ekkert að tjá sig mikið og segja að hann hafi bara dottið," segir Jón Þór en maðurinn var ökkblabrotinn, nef- og kinnbeinsbrotinn auk þess sem tennur höfðu brotnað. Nokkuð ótrúverðugt þykir að maðurinn hafi dottið en Jón Þór segir þó ekkert benda til þess að um einhverskonar uppgjör í fíkniefnaheiminum hafi verið að ræða. „Þetta er bara partý sem er í gangi langt fram undir morgun og fer úr böndunum, þá fer þetta oft svona."
Mest lesið „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Innlent Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Innlent Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Innlent Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Innlent Fleiri fréttir Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Sjá meira