Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kveikt í tveimur húsum í Bolungarvík í gær Kveikt var í tveimur húsum í Bolungarvík í gær. Um var að ræða hús sem á að rífa þar sem þau falla inn á snjóflóðavarnarsvæði í bænum, en alls á að fjarlægja sex hús við Dísarland, sem flest voru byggð á níunda áratug síðustu aldar. 25.7.2008 19:41
Telja sig hafa farið eftir ábendingum skipulagsyfirvalda í einu og öllu Aðstandendur samkeppni um nýbyggingu Listaháskóla Íslands, Samson Properties og Listaháskóli Íslands, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar þeir segja m.a. að efnt hafi verið ,,til samkeppninnar með vitund og vilja borgaryfirvalda og farið var eftir ábendingum skipulagsyfirvalda í einu og öllu í forsendum keppninnar. Dómnefnd tók jafnramt fullt tillit til sjónarmiða skipulagsyfirvalda í sinni vinnu." 25.7.2008 18:08
Sniglarnir kalla eftir bættri umferðarmenningu „Við sem erum á hjólum erum gjörsamlega óvarin, en fólk hikar ekki við að keyra fyrir okkur," segir Ólafur Hrólfsson, upplýsingafulltrúi Sniglanna. 25.7.2008 17:04
Ölvaður á bremsulausum bíl Lögreglan stöðvaði í gær og nótt þrjá ökumenn vegna ölvunaraksturs. Tæplega þrítugur karlmaður var stöðvaður í Árbæ en aksturslag hans vakti athygli lögreglumanna við eftirlit en maðurinn ók of hratt miðað við aðstæður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 25.7.2008 15:59
Sækir ekki um virkjanaleyfi vegna dómsmáls Landsvirkjun sækir ekki um leyfi vegna virkjana í neðanverðri Þjórsá á meðan að héraðsdómur hefur til meðferðar kæru á hendur fyrirtækinu, að sögn Friðriks Sophussonar forstjóra Landsvirkjunar. 25.7.2008 15:48
Ók bifhjóli á 150 km hraða Lögreglan stöðvaði í gær 18 ára pilt sem ók bifhjóli sínu á tæplega 150 kílómetra hraða á Kringlumýrarbraut til móts við Nesti. Fyrir þennan vítaverða akstur á hann yfir höfði sér 140 þúsund króna sekt og ökuleyfissviptingu í tvo mánuði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 25.7.2008 15:28
Vill opinbera rannsókn á störfum fjármálafyrirtækja Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokksins, vill að fram fari opinber rannsókn á starfsemi fjármálafyrirtækja undanfarin ár. Þingflokkur Framsóknarflokksins hefur að sögn Bjarna rætt málið. 25.7.2008 14:45
Sérstakri fartölvu stolið frá Opnum kerfum Síðastliðna nótt, aðfaranótt 25. júlí, var brotist inn í Verslun Opinna kerfa að Höfðabakka 9. Höfðu innbrotsþjófarnir á brott með sér nokkrar HP fartölvur, þar á meðal tölvur úr nýrri línu sem kynnt hefur verið fyrir skólavertíðina sem hefst á næstu vikum. 25.7.2008 14:41
Síbrotamaður fékk 18 mánaða fangelsisdóm Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Ragnar Davíð Bjarnason í 18 mánaða fangelsi fyrir vörslu fíkniefna og fyrir að aka bifreið án réttinda. 25.7.2008 14:33
Þingkona VG dáist að Saving Iceland „Ég bara dáist að þessu unga fólki sem sýnir afstöðu sína með þessum hætti og vill með því vekja aðra til umhugsunar, um það sem er að gerast í umhverfismálum ekki bara hér á íslandi heldur heiminum öllum," segir Álfheiður Ingadóttir þingmaður Vinstri-Grænna. Hún er ánægð með framgöngu samtakanna Saving Iceland, sem undanfarin sumur hafa mótmælt virkjanaframkvæmdum og stóriðjustefnu á Íslandi. 25.7.2008 13:00
Tók skóflustungu að álveri sem hann hefur ekki tekið afstöðu til Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra var einn þeirra Samfylkingarmanna sem fór í gær að Þjórsárbökkum að kynna sér fyrirhuguð virkjunaráform á svæðinu. Í fréttatilkynningu frá Samfylkingunni segir að fundurinn hafi gengið glimrandi vel. 25.7.2008 12:44
Tekur undir með VG og vill að þing komi saman Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokksins, tekur undir beiðni þingflokks Vinstri grænna að Alþingi komi saman eftir verslunarmannahelgi til að fjalla um stöðu og horfur í efnahags- og atvinnumálum. 25.7.2008 12:15
Friðrik var vaknaður Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segist hafa verið vaknaður og búinn að fara í sturtu þegar 10 til 15 einstaklingar frá Saving Iceland heimsóttu hann klukkan rúmlega 7 í morgun. 25.7.2008 11:52
Árásin á áfangaheimilinu ekki einsdæmi „Það er ljóst að atvik af því tagi sem hér er vitnað til hafa og munu koma upp hvort sem um er að ræða á heimilum fatlaðra eða annars staðar," segir Þór Þórarinsson skrifstofustjóri í Félagsmálaráðuneytinu. Eins og fram kom í fjölmiðlum í vikunni réðst vistmaður á áfangaheimili svæðisskrifstofu fatlaðra í Reykjavík á forstöðumann heimilisins og stakk hann þrisvar með hnífi. Forstöðumaðurinn slasaðist ekki alvarlega. 25.7.2008 11:19
Maðurinn fannst látinn í Esjunni Pólverjinn sem leitað hefur verið að síðan um hádegisbil í gær, fannst látinn í Gunnlaugsskarði í Esjunni fyrir stundu. Um þrjátíu manns hafa leitað hans í morgun með þyrlu og leitarhundum. 25.7.2008 10:56
Björgvin G hitti sænskan kollega sinn Málefni Norðurlandaráðs og framtíð norræns samstarfs voru efst á baugi þegar Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra fundaði með sænska samstarfsráðherranum Cristinu Husmark Pehrsson í gær. 25.7.2008 10:52
Rann í hálku og fékk fjórar milljónir frá ríkinu Kona sem var við vinnu á Heilbrigðisstofnun Selfoss árið 2003 fékk dæmdar tæpar fjórar milljónir frá íslenska ríkinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Konan fór í mál við ríkið eftir að hún hlaut áverka á fæti við vinnu. 25.7.2008 10:29
Enn leitað í Esjunni Maðurinn sem leitað hefur verið að í Esjunni frá því um hádegisbil í gær er enn ekki fundinn. Að sögn Slysavarnarfélagsins Landsbjargar eru nú um 30 manns við leit með hunda. 25.7.2008 10:27
Saving Iceland vöktu Friðrik Sophusson Um níuleytið í morgun fóru 30 meðlimir úr Saving Iceland hópnum inn í höfuðstöðvar Landsvirkjunnar að Háaleitisbraut 68 og trufluðu þar vinnu. 25.7.2008 09:35
Ölvaður ökumaður reyndist án bílprófs Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði ölvaðan ökumann í Keflavík í gærkvöldi og reyndist hann aldrei hafa tekið bílpróf. 25.7.2008 07:56
Mikið grjóthrun undir Eyjafjöllum Mikið grjóthrun varð úr fjallshlíð undir Eyjafjöllum í gærkvöldi og olli það meðal annars skemmdum á Suðurlandsvegi, þar sem umferð tepptist þar til grjót hafði verið rutt af honum. 25.7.2008 07:41
Árangurslaus leit að nakta manninum í Esjunni í nótt Fimmtíu til sextíu björgunarsveitarmenn leituðu án árangurs í alla nótt á Esjunni að nakta manninum, sem sást í hlíðum fjallsins í gær. 25.7.2008 06:59
50 til 60 leita í nótt – Aðgerðir aftur af stað á fullum þunga er birtir Enn hefur ekkert sést til mannsins sem sást labba nakinn upp hlíðar Esjunnar fyrr í dag. Leit hefur staðið yfir frá hádegi og hafa nokkuð hundruð manns tekið þátt í leitinni auk þyrlna. 24.7.2008 23:34
Texti við nýtt Baggalútslag þykir senda undarleg skilaboð Nýtt lag Baggalúts, Þjóðhátíð ’93, hefur vakið sterk viðbrögð fyrir nokkuð opinskáan texta um fyllirí og kynlífsfarir. Segir meðal annars í textanum: „Kengdrukknar kellingar kaffæra Herjólfsdal – þrjá daga á ári. Slíkt ber að nýta sér. Því skaltu flýta þér og reyna að góma eitt grey meðan þær geta ekki synt á brott úr Heimaey.“ 24.7.2008 21:54
Fólk hafi varan á vegna grjóthruns Grjóthrun hefur verið rétt undir Eyjaföllum, við bæinn Steina, og samkvæmt lögreglunni á Hvolsvelli hafa stórir grjóthnullungar náð vel á annað hundrað metra yfir veginn. 24.7.2008 22:57
Ríkið dæmt til að greiða bætur vegna hálkuslyss Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag íslenska ríkið til þess að dæma sjúkraliða á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi tæpar fjórar milljónir króna vegna vinnuslyss 24.7.2008 22:41
Tvö alvarleg bílslys í dag Tvö nokkuð alvarleg bílslys urðu síðdegis í dag og voru allavega fjórir fluttir á sjúkrahús í kjölfarið samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum. 24.7.2008 21:21
Íslenskir athafnarmenn í vandræðum vegna spillingarmála Byggingaframkvæmdum á tveggja ferkílómetra landi á Spáni, sem athafnamennirnir Björgólfur Thor Björgólfsson og Róbert Wessmann keyptu fyrir 10 milljarða árið 2005, hefur verið frestað þar sem ekki hefur fengist byggingaleyfi vegna spillingarmála sem komu upp þar í landi. 24.7.2008 20:20
Ferðaheimild til Bandaríkjanna þarf framvegis að sækja um á netinu Þeir sem ferðast til Bandaríkjanna þurfa framvegis að sækja um ferðaheimild á netinu áður en haldið er af stað. 24.7.2008 20:05
Vinna hefst brátt við niðurrif vararafstöðvarinnar í Elliðaárdal Framkvæmdir við niðurrif gömlu vararafstöðvarinnar í Elliðaárdal hefjast í haust. Kostnaður við að rífa húsið hleypur á tugum milljóna króna. 24.7.2008 19:47
Ekkert lát á byggingaleyfisumsóknum í Kópavogi Ekkert lát virðist vera á umsóknum um byggingaleyfi í Kópavogi þrátt fyrir kreppu á fasteignamarkaði. Um sextán hundruð íbúðir eru fokheldar á höfuðborgarsvæðinu þar af um þriðjungur í Kópavogi. 24.7.2008 18:33
Matsáætlun fyrir Kröfluvirkjun II kynnt Skipulagsstofnun hefur borist tillaga Landsvirkjunar að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum Kröfluvirkjun II sem verður allt að 150 megavatta jarðhitavirkjun við Kröflu í Skútustaðahreppi. 24.7.2008 17:36
,,Það er búið að slá Bitruvirkjun af" Ekkert verður af virkjun Bitru og vangaveltur um annað eru óþarfar, að sögn Ólafs F. Magnússonar borgarstjóra. ,,Það er búið slá Bitruvirkjun af og það stendur á meðan að núverandi meirihluti F-lista og Sjálfstæðisflokks fer með stjórn borgarinnar." 24.7.2008 17:30
Björgunarsveitir á hálendinu hafa fengið um 150 hjálparbeiðnir Björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar hafa fengið hátt í 150 aðstoðarbeiðnir frá ferðafólki á hálendinu það sem af er sumri. 24.7.2008 16:39
Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald yfir innbrotsþjófi Tveir menn voru úrskurðaðir í sex daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur síðdegis á þriðjudag. Mennirnir voru handteknir á mánudag ásamt tveimur öðrum mönnum vegna þriggja innbrota í Hafnarfirði og Garðabæ. 24.7.2008 16:35
„Fáránlegt að taka lán fyrir bíl eða jakkafötum“ „Það er í raun og veru glæpsamlegt finnst mér að rukka 25 prósent vexti," segir Salmann Tamimi, formaður félags múslima á Íslandi. Múslimar búa við nokkuð sem mörgum öðrum þætti líklega eftirsóknarvert í miðri kreppunni. Samkvæmt trú sinni mega þeir hvorki þiggja né greiða vexti af lánsfé. 24.7.2008 16:16
„Karlmenn segja nei við nauðgunum" Á morgun hefst opinberlega átak Karlahóps Femínistfélags Íslands sem ber merkið „Karlmenn segja Nei við nauðgunum." Byrjar átakið með baráttutónleikum gegn kynbundnu ofbeldi sem eru annað kvöld á Organ. Átak Karlahópsins verður í gangi fram yfir verslunarmannahelgina. 24.7.2008 16:14
Sorgleg staða vegna Listaháskólans Stjórn Torfusamtakanna harmar þá sorglegu stöðu sem upp er komin með áformum Listaháskóla Íslands um niðurrif sögulegrar húsaraðar við Laugaveg. 24.7.2008 16:06
Samfylkingarfólk skoðar neðri Þjórsá Á fjórða tug Samfylkingarfólks sem styður verndun neðri Þjórsár heimsækir í kvöld íbúa á svæðinu og fer í skoðunarleiðangur um svæðið sem fer undir vatn ef virkjunin verður að veruleika. Virkjunaráform í neðri Þjórsá hafa mætt andstöðu heimamanna. 24.7.2008 15:37
Liðsauki kallaður út til að leita mannsins í Esjunni Maðurinn sem leitað hefur verið að á Esjunni í dag er enn ófundinn. Um 70-80 björgunarsveitar og lögreglumenn hafa leitað mannsins í dag. Kallaður hefur verið út liðsauki frá Suðurnesjum og Vesturlandi og er áætlað að um leitarmenn verði um 120 eftir einn til tvo tíma. 24.7.2008 15:31
Búið að finna föt nakta mannsins á Esjunni Björgunarsveitir og lögregla hafa ekki enn fundið manninn sem tilkynnt var um að væri nakinn á gangi í Esjunni um hádegi í dag. Hinsvegar er búið að finna föt mannsins en talið er að hann sé útlendingur. 24.7.2008 14:28
Dómara urðu á réttarfarsleg mistök „Það kemur mér mjög á óvart að dómari hafi ekki leyft lögmönnum að færa rök fyrir máli sínu áður en úrskurður var kveðinn upp," segir Sigurður Líndal, professor emeritus í lögfræði. 24.7.2008 14:00
Fangelsismálastjóri ósáttur við Kvíabryggjufrétt DV Páll Winkel fangelsismálastjóri gagnrýnir vef- og prentmiðil DV fyrir að birta í dag frétt um fanga í fangelsinu Kvíabryggju sem sagður er stunda þar líkamsrækt af atorkusemi. Rekur blaðið feril fangans og segir hann stórhættulegan auk þess að birta myndir. 24.7.2008 13:54
Handleggsbraut sambýliskonu og son hennar Karlmaður var í gær dæmdur í Héraðasdómi Reykjaness í átta mánaða fangelsi fyrir að hafa ítrekað ráðast á fyrrverandi sambýliskonu sína og tvö börn hennar. Dómurinn er skilorðbundinn til sex mánaða. Að auki var hann dæmdur til að greiða fórnarlömbunum skaðabætur. 24.7.2008 13:11
Íslendingi hótað með hnífi á Sunny Beach Vísir sagði frá því fyrr í vikunni að dönsk ungmenni myndu enn flykkjast í svall á sumardvalarstaðinn Sunny Beach í Búlgaríu. Ströndin sem gengur undir nafninu Nauðgunarströndin í norrænum fjölmiðlum er annáluð fyrir ofbeldi og nauðganir. Þrátt fyrir þetta orðspor virðist aðsóknin ekki fara minnkandi. Íslenskir útskriftarnemar dvöldu þar árið 2006 24.7.2008 13:00