Segist hafa talað kjarnyrta íslensku og vitnað í dóm Hæstaréttar 26. júlí 2008 11:38 Agnes Bragadóttir
Agnes Bragadóttir segist hafa verið að tala kjarnyrta íslensku og vitna í dóm Hæstaréttar þegar hún lét ummæli falla um þingmanninn Árna Johnsen í þættinum „Í bítið á Bylgjunni" fyrir skömmu. Fram hefur komið í fréttum að Árni íhugi að fara í meiðyrðarmál vegna ummælanna og er kominn með lögfræðing í málið. „Hann er dæmdur glæpamaður. Hann var mútuþægur, dæmdur fyrir umboðssvik í tveggja ára fangelsi og svo stígur hann fram, maðurinn sem aldrei iðraðist, hafði aldrei gert neitt rangt, upphefur sjálfan sig ..." sagði Agnes m.a á Bylgjunni. Hún bætti því síðan við að Árni væri hálfgert stórslys og ætti að hafa vit á því að halda kjafti. Agnes var gestur í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi ásamt Sigurði G. Guðjónsson lögfræðingi. Hún sagðist hafa frétt af málinu í gær og sagði stórmerkilegt að maðurinn sem væri þekktur fyrir að heilsa að sjómannasið í Vestmannaeyjum og væri almennt ekki talin tepra hefði ekkert þýðingarmeira að hugsa um þessa dagana. Aðspurð hvort hún hefði ekki verið nokkuð stóryrt sagði Agnes. „Já ég er það frekar þegar ég fæ tækifæri til þess að tala en þegar ég skrifa, því þá þarf ég að hemja mig. En þarna tel ég mig hafa verið að tala kjarnyrta íslensku. Það liggur fyrir með dómi Hæstaréttar fyrir hvað Árni Johnsen er dæmdur," sagði Agnes og bætti því við að hún væri einungis að vitna í þann dóm. „Ef það eru meiðyrði að álíta það að maðurinn sé hálfgert stórslys þá sit ég bara uppi með það." Sigurður G. Guðjónsson var spurður um álit sitt á málinu og sagði hann að sumt þarna væru gildisdómar og álit Agnesar á Árna. „Álit manna verða ekki dæmd dauð og ómerk almennt," sagði Sigurður sem taldi málið geta orðið torsótt fyrir Árna Johnsen.
Mest lesið Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Innlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs Innlent Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Innlent „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Innlent Eldur í íbúð við Snorrabraut Innlent Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Erlent Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Erlent Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Innlent Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Vara fólk við póstum og skilaboðum frá Grundarheimilunum Vara við póstum frá Grund og „jafnréttisþreyta“ Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Fjárlög, skattar og skipti á dánarbúum á laugardagsþingi Þau fái heiðurslaun listamanna Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Sjá meira