Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rice í vinnuheimsókn til Íslands á föstudag Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kemur í vinnuheimsókn til Íslands á föstudaginn og ræðir bæði við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra og Geir H. Haarde. 28.5.2008 17:16
Um þrjá mánuði að vinna sér inn ævilaun verkafólks Laun æðsta stjórnanda Kaupþings árið 2006 jafngiltu því að í kringum 10. mars væri hann búinn að vinna sér inn upphæð sem venjulegt verkafólk er alla starfsævina að strita fyrir. 28.5.2008 16:46
Ráðist gegn veggjakroti í Kópavogi Allt að 20 milljónir króna verða veittar til þess að hreinsa veggjakrot og annan viðlíka óþrifnað af mannvirkjum í eigu Kópavogsbæjar á þessu ári. Þetta ákvað bæjarráð Kópavogs. 28.5.2008 16:12
Stuðningsklúbbur landsliðs Wales afhenda Barnaheillum peningagjöf Talsmenn stuðningsklúbbs landsliðs Wales afhentu í morgunn (28. maí) Barnaheillum – Save the Children peningagjöf til styrktar baráttu samtakanna gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum. 28.5.2008 15:46
Hættir sem formaður BGS vegna deilna innan stjórnar Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, hefur látið af formennsku hjá Bílgreinasambandinu vegna deilna um markaðsaðferðir Heklu og vegna þess að meirihluti stjórnar sambandsins hafnaði tillögu hans um að koma á fót siðanefnd. 28.5.2008 15:24
Mál 10-11 lögreglumanns ekki komið til ríkislögreglustjóra Mál lögreglumannsins sem sést taka ungan pilt kverkataki í verslun 10-11 í Grímsbæ á myndbandi á Netinu hefur ekki borist ríkislögreglustjóra og því hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort honum verði vikið úr starfi. 28.5.2008 15:01
Staðfest að Ólafur Ragnar var einn í framboði til forseta Dómsmálaráðuneytið hefur staðfest að Ólafur Ragnar Gímsson hafi verið einn í kjöri til embættis forseta Íslands 28.5.2008 14:44
Kærður fyrir að stela yfir 30 líkkistum af Fóstbróður sínum Eyþór Eðvarðsson, fyrrverandi útfararstjóri, hefur kært Rúnar Geirmundsson, formann Félags útfararstjóra, fyrir stuld á yfir þrjátíu líkkistum. Kisturnar hurfu úr geymslu og fundust síðan hjá Rúnari. Verðmæti kistanna er um fjórar milljónir. Rúnar segist hafa keypt þær af öðrum manni sem sagðist eiga þær og hefur einnig kært Eyþór til lögreglu. 28.5.2008 13:49
Óskar fór alltaf með lyfin til Magnúsar Óskar Arnórsson áfengisráðgjafi sem sótti lyf fyrir Magnús Skúlason, yfirgeðlækni á Sogni, segir ekkert launungarmál hvað hann hafi gert við lyfin. Þeim hafi hann skilað til Magnúsar enda hafi hann einungis verið að sendast fyrir hann. 28.5.2008 13:46
Rúmlega 900 látnir í umferðinni á 40 árum 916 manns hafa látist í umferðarslysum á síðustu 40 árum, eða frá því að hægri umferð var tekin upp, samkvæmt upplýsingum Umferðarráðs. Það stendur nú fyrir umferðaröryggisviku. Bent er á að það jafngildi því að allir íbúar Bolungarvíkur eða Blönduóss hefðu látist. Þessi fjöldi dugir einnig til að fylla fjórar Boeing 757 þotur. 28.5.2008 13:40
Vilja að farið verði yfir gjaldtökuheimildir háskóla Minnihlutinn í menntamálanefnd vill að menntamálaráðherra skipi starfshóp til þess að fara yfir gjaldtökuheimildir opinberra háskóla og framkvæmd þeirra. 28.5.2008 13:13
Álfasala SÁÁ hefst á morgun Hin árlega álfasala SÁÁ hefst á morgun en þetta er í 19. skipti sem hún fer fram. 28.5.2008 12:45
Myndasaga eftir Hugleik prýðir nýja símaskrá Símaskráin 2008 kom út í morgun. Hún er með nýstárlegu sniði í ár. Myndasaga eftir Hugleik Dagson prýðir síður hennar. Höfundurinn áritar fyrstu hundrað eintökin. 28.5.2008 12:28
Tjón í bruna í Eyjum hleypur hugsanlega á milljónum Grunur leikur á að kveikt hafi verið í sviðsbúnaði þjóðhátíðar Vestmannaeyja undir morgun með þeim afleiðingum að hann skemmdist töluvert 28.5.2008 12:22
Söguleg sátt um skjaldborg um orkulindir Söguleg sátt hefur náðst um að slá skjaldborg um orkulindir þjóðarinnar, sagði formaður iðnaðarnefndar á Alþingi í morgun þegar ljóst var að þingheimur myndi allur styðja meginefni frumvarps iðnaðarráðherra um að tryggja að mikilverðustu vatns- og jarðhitaréttindi verði í eigu ríkis og sveitarfélaga. 28.5.2008 12:13
Þorði ekki að segja frá alvarleika misnotkunarinnar „Ég hef lifað í skömm, sektarkennd og sjálfsásökunum," segir Marta Guðlaugsdóttir. Marta var ásamt Ragnari Haukssyni, eiginmanni sínum, viðmælandi Kompáss í gær. 28.5.2008 11:51
Dæmdur fyrir að ráðast á gest á heimili sínu Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á konu sem var gestkomandi á heimili hans í Hveragerði. 28.5.2008 11:34
Fundu 25 grömm af kókaíni við húsleit Lögreglan fann í gærkvöld það sem talið er vera 25 grömm af kókaíni við húsleit í fjölbýlishúsi í Reykjavík. Karl á fertugsaldri var handtekinn vegna rannsóknar málsins en hann hefur áður komið við sögu hjá lögreglu vegna fíkniefnamála. 28.5.2008 11:07
Íslendingurinn sem var stunginn gekkst undir aðgerð í nótt Maðurinn sem var stunginn ítrekað með hníf í söluturni við Colbjørnsensgade í Kaupmannahöfn í gærkvöld er enn á sjúkrahúsi, samkvæmt upplýsingum frá Þóri Jökli Þorsteinssyni, sendiráðspresti í Kaupmannahöfn. 28.5.2008 10:46
Skópörum raðað umhverfis Dómkirkjuna Í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá því að skipt var yfir í hægri umferð er nú haldin sérstök umferðaröryggisvika á vegum Umferðarráðs. Klukkan eitt í dag munu nemendur Listaháskóla Íslands hefjast handa við að raða upp hundruðum skópara fyrir framan og til hliðar við Dómkirkjuna sem ætlað er að tákna þá sem látist hafa hér á landi í umferðarslysum á þessum tíma. Einar Magnús Einarsson, upplýsingafulltrúi hvetur almenning til að koma niður á Austurvöll í góða veðrinu í dag og taka þátt í samverustundinnni. 28.5.2008 10:25
Langur þingfundur fram undan Þingfundur hófst í dag klukkan tíu og bíður ærið verk þingmanna þar sem 57 mál eru á dagskrá. 28.5.2008 10:20
Meirihluti aðildarfélaga BHM saman í kjaraviðræður við ríkið Mikill meirihluti aðildarfélaga Bandalags háskólamanna ákvað á fundi í gærkvöld að hefja formlega samvinnu í viðræðum við ríkið um kjarasamninga. 28.5.2008 10:15
Ungliðar í VG óánægðir með þingflokkinn Ung vinstri græn lýsa yfir óánægju með framgöngu þingmanna Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs þegar frumvörp um heildarlög grunnskóla annars vegar og leikskóla hins vegar voru afgreidd í annarri umræðu á Alþingi á mánudag. 28.5.2008 09:35
Þriðja hvert hjónaband endar með skilnaði Ríflega þriðja hvert hjónaband hér landi endar með skilnaði samkvæmt samantekt Hagstofunnar þar um. 28.5.2008 09:18
Meira af sandsíli við Vestmannaeyjar Sjómenn í Vestmannaeyjum segja að nú sé mun meira sandsíli í fiskinum en í fyrra og bíða Eyjamenn nú í ofvæni eftir því að lundinn staðfesti það með því að fara að verpa á rétum tíma. 28.5.2008 08:43
Ók ofurölvi á Akureyri Lögreglan á Akureyri tók ofurölvi konu úr umferð í nótt. Vegfarandi hafði samband við lögregluna og tilkynnti um hættulegt ökulag konunnar. Eftir stutta leit sá lögreglan til hennar og náði að stöðva hana áður en hún færði sér eða öðrum að voða.- 28.5.2008 08:32
Vilja óskerta starfsemi Íbúðalánasjóðs Stéttarfélag Þingeyinga varar við hugmyndum um að skerða starfssemi Íbúðalánasjóðs og segir að tilgangur sjóðsins sé að stuðla að því að landsmenn geti búið við öryggi og jafnrétti í húsnæðism,álum. Hann gegni lykilhlutverki í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á landsbyggðinni, ekki síst núna, þegar kreppi að hjá bönkunum. 28.5.2008 08:17
Dönsk hjón festust á hálendinu Björgunarsveitarmenn frá Blönduósi komu dönskum hjónum til hjálpar, eftir að þau höfðu fest bíl sinn í aurbleytu á hálendinu. Þau voru á leið frá Kjalvegi í Mælifellsdal í Skagafirði. Björgunarmenn náðu jeppa hjónanna upp úr festunni og fylgdu þeim til byggða. Vegurinn er lokaður en merkingum mun vera ábótavant. 28.5.2008 07:55
Sviðsbúnaður Þjóðhátíðar skemmdist í eldi Sviðsbúnaður þjóðhátíðar Vestmannaeyja skemmdist töluvert í eldi í morgun, en búnaðurinn er geymdur í porti við áhaldahús bæjarins við Heiðaveg. Vegfarandi tilkynnti lögreglu um mikinn reyk frá portinu og var slökkviliðið kallað út. 28.5.2008 07:51
Ljósleiðari rofinn við Þórshöfn Ljósleiðari Mílu er rofinn við Þórshöfn og gætu áhrif bilunarinnar orðið víðtæk á tal- og gagnasamband á Austurlandi, segir í tilkynningu frá Mílu. 28.5.2008 06:54
Íslendingar komast í gegnum erfiðleikana Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði við eldhúsdagsumræður á Alþingi í dag að Íslendingar hefðu áður staðið frammi fyrir áföllum og komist í gegnum þau og það myndi þjóðin einnig gera núna. Hann ætti von á að erfiðleikarnir myndu víkja fyrir betri tíð. 27.5.2008 20:23
Nýir orkugjafar og nýsköpun eru framtíðin Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra lagði áherslu á nýja orkugjafa og nýsköpun í landinu í ræðu sinni á eldhúsdegi Alþingis í kvöld. 27.5.2008 20:46
Guðni sakar Geir um blekkingar Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði í eldhúsdagsumræðum á Alþingi nú undir kvöld að ríkisstjórnin væri sundruð í mörgum málum og byggi við minnkandi tiltrú landsmanna. Hann vitnaði í sr. Bjarna Jónsson, fyrrverandi dómkirkjuprest. „Oft var þörf, en nú er nauðsyn að biðja fyrir ríkisstjórninni,“ sagði Guðni. 27.5.2008 20:34
Segir árás lögreglumanns í 10/11 verslun ekkert einsdæmi Sveinn Ævars Sveinsson, tvítugur nemi úr Garðabæ, segir að árás lögreglumanns í 10/11 verslun í gærkvöld sé ekkert einsdæmi. Sveinn nefbrotnaði eftir viðskipti sín við lögreglu í fyrra. 27.5.2008 20:14
Efnahagsvandi fyrirsjáanlegur Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, flutti fyrstu ræðu á eldhúsdagsumræðum sem hófust rétt fyrir klukkan átta. 27.5.2008 20:12
Segir ríkisstjórnina ósamstíga í mörgum málum Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagði við eldhúsdagsumræður í kvöld að auka ætti þorskveiðarnar. Það væri samdóma álit þeirra manna sem hann hefði rætt við að ekki væri ástæða til að fara eftir þeim mörkum sem Hafrannsóknarstofnun hafi sett. 27.5.2008 20:50
Fimm sinnum meira í auglýsingar en vatn handa bágstöddum Fimm sinnum meira fé fór í að auglýsa vatnsviku UNICEF heldur en safnaðist til að tryggja börnum í vanþróuuðum ríkjum vatn. 27.5.2008 18:50
Vg fagnar frestur á innflutningsfrumvarpi Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fagnar því að frumvarpi til laga þar sem opnað er fyrir innflutning á hráu kjöti hafi verið frestað fram á haust, eins og fram kemur í viðtali við landbúnaðarráðherra í Bændablaðinu í dag. 27.5.2008 17:37
Yfir helmingur telur ríkisstjórnina hafa staðið sig illa Meirihluti landsmanna telur að ríkisstjórnin hafi staðið sig illa í stjórnun efnhagsmála samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir fréttastofu Stöðvar tvö 27.5.2008 17:27
Kalli Bjarni fær að afplána á Kvíabryggju Idolstjarnan Karl Bjarni Guðmundsson fær að afplána tveggja ára fangelsisdóm sinn á Kvíabryggju. Þangað er hann nú kominn eftir að hafa eytt tæpum mánuði í afplánun í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Kalli Bjarni fékk fangelsisdóm fyrir að hafa flutt inn tæp tvö kíló af kókaíni á síðasta ári. 27.5.2008 17:04
Móðir fórnarlambsins: Hrottalegar aðfarir lögreglu Móðir piltsins sem lögreglumaður tók kverkataki í verslun 10-11 í gær segir aðfarir lögreglumannsins hrottalegar en fjölskyldan hefur ekki tekið ákvörðun um hvort atvikið verði kært. Lögreglumaðurinn mun ekki sinna lögreglustörfum á meðan málið er í rannsókn. 27.5.2008 17:00
Magnús geðlæknir: Segist ekki á leiðinni í meðferð Magnús Skúlason yfirgeðlæknir á Sogni segist ekki vera á leiðinni í meðferð eins og kom fram í fréttum Rúv í hádeginu. Í Fréttablaðinu í morgun er sagt frá því að landlæknisembættið sé með til rannsóknar mál þar sem Magnúsi er gert að sök að hafa ávísað ávanabindandi fíknilyfjum á menn án þeirrar vitundar. Magnús vill lítið tjá sig um málið en segist vera að meta stöðuna og gera viðeigandi ráðstafanir. 27.5.2008 16:55
Dæmdur fyrir að slá mann með gangstéttarhellubroti Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa slegið annan mann í höfuðið með broti úr gagnstéttarhellu þannig að hann hlaut sár á höfði. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir að hafa sparkað í bakið á manninum. 27.5.2008 16:46
Eldur slökktur í Laxfossi við Sundabakka Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kvatt niður á Sundabakka laust eftir klukkan þrjú í dag vegna tilkynningu um eld í skipinu Laxfossi sem er í eigu Eimskips. 27.5.2008 16:26
10-11 lögreglumaður sendur í frí Lögreglumaðurinn sem sést taka pilt hálstaki í verslun 10-11 í Grímsbæ á myndbandi á Netinu mun ekki sinna störfum á vegum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á meðan mál hans er í rannsókn. 27.5.2008 16:15
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent