Innlent

Álfasala SÁÁ hefst á morgun

Hin árlega álfasala SÁÁ hefst á morgun en þetta er í 19. skipti sem hún fer fram.

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra keypti fyrsta álfinn í morgun en allur ágóði af söfnuninni rennur til unglingadeildar SÁÁ að Vogi. Þá fékk Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, einn álf að gjöf og var honum komið fyrir á vinstri öxl ráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×