Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tveir gistu fangaklefa í Keflavík Nokkur ölvun var í miðbæ Keflavíkur í nótt og fengu tveir að gista fangaklefa. Annar þeirra var handtekinn í morgun fyrir að sinna ekki fyrirmælum lögreglu. 29.7.2007 09:31
Banaslys í Grímsnesi Banaslys varð á Biskupstungnbraut við verslunina Minni-Borg í Grímsnesi laust fyrir klukkan átta í gærkvöldi. Ökumaður bifhjóls lést eftir að hann féll af hjóli sínu í árekstri við jeppa. Maðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á Slysadeild Landspítalans í Fossvogi en var úrskurðaður látinn þegar þangað var komið. Tildrög slyssins eru ekki að fullu ljós að sögn lögreglu. 29.7.2007 09:19
Móturhjólaslys í Grímsnesi Móturhjólamaður slasaðist þegar bíl var keyrt í veg fyrir hann á Biskupstungnabraut við Minni-Borgir í Grímsnesi laust fyrir klukkan átta í kvöld. Maðurinn keyrði á bílinn og kastaðist af hjólinu. 28.7.2007 20:07
Fjórir handteknir á Akureyri í kjölfar húsleitar Lögreglan á Akureyri handtók fjóra einstaklinga í nótt eftir að gerð var húsleit þar í bæ. Í húsinu fundust 15 grömm af hvítu efni og 17 skammtar af ofskynjunarlyfinu LSD. Fólkinu var sleppt að loknum yfirheyrslum í nótt. 28.7.2007 19:56
Sjö teknir fyrir hraðakstur í Borgarnesi Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði sjö ökumenn í dag fyrir hraðakstur. Sá sem fór hraðast mældist á 120 kílómetra hraða á Snæfellsnesvegi en þar er 90 kílómetra hámarkshraði. 28.7.2007 19:40
Landvernd vill að tímabundið virkjanaleyfi gildi í aðeins 1 ár Formaður Landverndar segir eðlilegra að tímabundið virkjanaleyfi Múlavirkjunar muni gilda í aðeins eitt ár, í stað fjögurra eða fimm eins og iðnaðarráðherra hefur talað um. Umhverfissamtökunum finnst einnig vanta viðurlög og þvingunarúrræði í málefnum smærri virkjana þegar framkvæmdaáætlunum er ekki fylgt. 28.7.2007 19:16
Óvenjulegt veðurfyrirbæri á Skeiðarársandi Skýstrokkur sást á Skeiðarársandi um klukkan hálfþrjú í gær. Skýstrokkar myndast mjög sjaldan á Íslandi, enda eru aðstæðurnar sem þarf til að mynda slík fyrirbæri sérstakar og yfirleitt ekki fyrir hendi í andrúmsloftinu yfir eða í grennd við landið. 28.7.2007 19:13
Áhyggjur af krónubréfum í kjölfar lækkunar hlutabréfa Áttatíu og fimm milljarðar eru á gjalddaga í svokölluðum krónubréfum í september. Í framhaldi af falli hlutabréfa í Bandaríkjunum óttast margir að þessir peningar hverfi allir úr íslensku hagkerfi. Ásgeir Jónsson hjá Kaupþingi telur að erlendir fjárfestar hafi enn trú á krónubréfum og því fari peningarnir hvergi. 28.7.2007 19:10
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segist ekki vanhæfur Forstjóri Samkeppniseftirlitsins hafnar því að vera vanhæfur í samkeppnismáli Mjólkursamsölunnar, Osta- og smjörsölunnar og Auðhumlu, eins og Mjólkursamsalan heldur fram. Forstjóri Mjólku óttast það að Mjólkursamsalan telji sig hafna yfir lög og starfsemi eftirlitsstofnanna. 28.7.2007 18:52
NATO þotur sinna eftirliti í lofthelgi Íslands Orrustuflugvélar á vegum Atlantshafsbandalagsins munu sinna reglubundnu eftirliti um lofthelgi Íslands, samkvæmt samkomulagi sem samþykkt hefur verið í fastaráði NATO. Fjórum sinnum á ári munu þotur bandalagsríkja fljúga hér eftirlitsferðir á kostnað ríkjanna sjálfra. Forsenda eftirlitsflugsins eru ratsjárstöðvarnar fjórar hér á landi, sem Íslendingar munu bera allan kostnað af. 28.7.2007 18:48
Vilja æfa lágflug yfir hálendi Íslands Beiðni um heimild til lágflugs á varnaræfingunni Norður víkingur mun berast Flugmálastjórn á næstunni en lágflugsæfingar á þessum árstíma falla ekki undir almennar reglur um heræfingar. Erfitt gæti reynst fyrir Flugmálastjórn að heimila æfingarnar þar sem Flugmálastjórn ber að vernda hagsmuni almennings og umferð ferðamanna um landið er mikil á þessum tíma. 28.7.2007 18:34
Ekið á reiðhjólamann í Garðabæ Ekið var á 19 ára gamla stúlku við Sigurhæð í Garðabæ laust eftir klukkan fjögur í dag. Stúlkan, sem var á reiðhjóli, var á leið yfir gatnamót þegar keyrt var á hana. 28.7.2007 17:50
Einar Oddur Kristjánsson jarðsunginn frá Flateyrarkirkju í dag Einar Oddur Kristjánsson alþingismaður var jarðsunginn frá Flateyrarkirkju í dag. Einar Oddur varð bráðkvaddur í fjallgöngu nærri heimabyggð sinni laugardaginn 14. júlí, sextíu og fjögurra ára gamall. Minningarathöfn var haldinn um hann í Hallgrímskirkju á miðvikudag. 28.7.2007 17:32
Aðstoðarorkumálaráðherra Bandaríkjanna heimsækir Hellisheiðarvirkjun Alexander Karsner, aðstoðarorkumálaráðherra Bandaríkjanna, heimsótti Hellisheiðarvirkjun í morgun í boði Orkuveitu Reykjavíkur. Alexander er hingað kominn til að kynna sér lausnir í nýtingu jarðhita til raforkuframleiðslu. Von er á sendinefndum bandarískra þingmanna á næstu vikum. 28.7.2007 16:46
Ók undir áhrifum kannabisefna Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði um þrjúleytið í nótt stúlku fyrir að aka undir áhrifum kannabisefna. Hún færð á lögreglustöð en sleppt að lokinni yfirheyrslu. 28.7.2007 16:32
Óvenjulegur gjörningur á Laugavegi Óvenjulegur gjörningur fór fram í dag fyrir framan vélhjólaverslunina Motors að Laugavegi 168. Listamaðurinn Daníel Hjörtur skar þá með keðjusög út andlitsmynd úr rekaviði. Tilefnið var annars vegar opnun vélhjólaverslunarinnar Motors og hins vegar opnun sýningar á verkum Daníels í versluninni. 28.7.2007 16:11
Saka íslensk lögregluyfirvöld um að brjóta alþjóðalög Íslensk lögregluyfirvöld gætu mögulega verið að brjóta alþjóðlög með því gera vegabréf mótmælenda á vegum samtakanna Saving Iceland upptæk. Þetta kemur fram í tilkynnningu frá samtökunum. Bresk kona á þrítugsaldri var handtekinn í gær vegna mótmæla við Kárahnjúkastíflu í fyrra. Hún neitaði að greiða 100 þúsund krónur í sekt og þarf því að sitja inni í átta daga. Samtökin hafa lokað tjalbúðum sínum í Mosfellsbæ. 28.7.2007 13:16
Matís opnar nýjan gagnagrunn Matís, Matvælarannsóknir Íslands, hefur opnað nýjan gagnagrunn um efnainnihald matvæla. Á vefnum er hægt að nálgast upplýsingar um efni í um 900 fæðutegundum. 28.7.2007 12:53
Truflanir á Digital Ísland á höfuðborgarsvæðinu Svæðisbundinna truflana gætir á útsendingum Digital Íslands á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt tilkynningu frá Vodafone. Ástæðan er rakin til óleyfilegra útsendinga frá fjarskiptabúnaði sem truflar tíðnisvið Digital Íslands. Tæknimenn vinna að því að leysa vandann. 28.7.2007 11:47
NATO samþykkir reglubundið eftirlit með lofthelgi Íslands Fastaráð Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefur samþykkt áætlun um reglubundið eftirlit með lofthelgi Íslands. Í Blaðinu í dag kemur fram að áætlunin feli í sér að herþotur frá NATO-ríkjunum muni hafa viðveru á Íslandi að minnsta kosti ársfjórðungslega. 28.7.2007 10:05
Tveir menn handteknir á Blöndósi í nótt Lögreglan á Blöndósi handtók einn mann í nótt vegna ölvunaraksturs og þá var annar handtekinn vegna óláta í heimahúsi. Fékk hann að sofa úr sér í fangageymslu. 28.7.2007 09:52
Gekk tvisvar í skrokk á sama manninum Á Ísafirði var maður tekinn fyrir ölvun við akstur og annar handtekinn undir morgun vegna líkamsárásar. Árásarmaðurinn réðst á mann í heimahúsi og fór í framhaldi af því í burtu en virðist hafa fengið einhverja bakþanka og efast um að barsmíðarnar hefðu skilað nægjanlega miklu því hann kom á nýjan leik í sama hús og réðst aftur á sama mann. 28.7.2007 09:50
Eldur í ruslageymslu í Grafarvogi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan hálffjögur í nótt eftir að eldur kom upp í ruslageymslu við fjölbýlishús í Grafarvogi. Í fyrstu var óttast að kviknað væri í húsinu og var allt tiltækt slökkvilið kallað á staðinn. Fljótlega kom þó í ljós að íbúðarhúsum stæði ekki hætta af eldinum. Engan sakaði í eldsvoðanum. 28.7.2007 09:46
Flugdólgar handteknir á Keflavíkurflugvelli Lögreglan á Suðurnesjum þurfti að fjarlægja tvo menn á fimmtugsaldri úr flugvél Icelandair síðdegis í gær vegna ölvunar. Þeir létu að sögn lögreglu ófriðlega og hafði annar þeirra danglað í farþega. Mennirnir gistu fangageymslu í nótt þar sem þeir fengu að sofa úr sér. 28.7.2007 09:22
Truflanir á útsendingum Digital Ísland Svæðisbundinna truflana gætir á útsendingum Digital Íslands á höfuðborgarsvæðinu. Ástæðan er rakin til óleyfilegrar útsendingar frá fjarskiptabúnaði er truflar tíðnisvið Digital Ísland. 27.7.2007 20:52
Mokveiði í Elliðaánum Tæplega tvöhundruð laxar voru veiddir í Elliðaánum í síðustu viku og eru árnar aflahæstu ár landsins sé miðað við lax á hverja stöng. Í gær hafði 427 löxum verið landað úr Elliðaánum samkvæmt samantekt sem birt er á vef Landssambands veiðifélaga. 27.7.2007 19:45
Engin göng til Eyja - Árni Johnsen vill rannsaka áfram Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögu samgönguráðherra um að hætta öllum áformum um jarðgöng til Vestmannaeyja vegna mikils kostnaðar og óvissu. Árni Johnsen, alþingismaður, telur alla flokka hafa svikið kosningaloforð um að ljúka rannsóknum vegna málsins. Samkomulag hefur náðst um fimmtán aukaferðir á ári með Herjólfi. 27.7.2007 19:27
Virkjanir teknar fastari tökum í framtíðinni Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra telur að Múlavirkjun á Snæfellsnesi hefði ekki átt að vera undanþegin umhverfismati á sínum tíma. Hann segir virkjanir af þessari stærðargráðu verða teknar fastari tökum í framtíðinni. Nýtt virkjanaleyfi Múlavirkjunar verður takmarkað til fjögurra eða fimm ára. 27.7.2007 18:58
Bjartsýnn á að bjór komist í búðir Formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, Borgar Þór Einarsson, er bjartsýnn á að núverandi ríkisstjórn leyfi sölu á léttvíni og bjór í matvöruverslunum - þrátt fyrir að einn ötulasti baráttumaður þess á þingi, Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hafi lýst því yfir að hann muni ekki beita sér í málinu. 27.7.2007 18:45
Simpsons á íslensku Sveinn Ernir fréttamaður hjá Baugsmiðlinum Stöð 6 verður rekinn í kvöld og upphefst þá barátta hans gegn miðlinum. Hómer, Marge, Bart og Magga flækjast í málið en eigandi miðilsins er herra Burns. Þetta er meðal þess sem gerist í fjögur hundraðasta þættinum af Simpson fjölskyldunni sem í kvöld verður í fyrsta skipti á íslensku. 27.7.2007 18:38
Mjólkursamsalan vill að Samkeppnisstofnun víki Mjólkursamsalan, Auðhumla og Osta- og smjörsalan hafa farið fram á það í Héraðsdómi Reykjavíkur að forstjóra Samkeppniseftirlitsins og öðrum starfsmönnum þess verði gert að víkja sæti við meðferð stjórnsýslumáls sem höfðað hefur verið gegn fyrirtækjunum. 27.7.2007 18:37
Ætla að halda Smartkortunum Reykjavíkurborg mun ekki hætta þróun og vinnu við uppsetningu Smartkorta hvort sem Strætó dregur sig út úr samstarfinu eður ei. Þar er litið á kortin sem tæki til sóknar í markaðssetningu. 27.7.2007 18:36
Svona eru lögin Dómsmálaráðherra sér ekki ástæðu til að breyta því að fólki sem dæmdar eru bætur vegna ofbeldis, þurfi sjálft að sækja bæturnar í hendur ofbeldismanna. 27.7.2007 18:30
Keyrt á gangandi vegfaranda í Hafnarfirði Keyrt var á gangandi vegfaranda á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði um fimmleytið í dag. Að sögn sjónarvotta er um að ræða unglingsstúlku sem var að fara yfir gangbraut á grænu ljósi. 27.7.2007 17:30
Forsætisráðherra á Íslendingadögum í Kanada Geir H. Haarde forsætisráðherra og Inga Jóna Þórðardóttir, eiginkona hans, eru á leið í opinbera heimsókn til Kanada þar sem þau munu dvelja dagana 28. júlí til 8. ágúst næstkomandi. Þau munu fara til Nova Scotia, Nýfundnalands, Labrador og Manitoba. Forsætisráðherra mun funda með ráðamönnum, fulltrúum félagasamtaka og fyrirtækja. 27.7.2007 17:18
Engin göng til Eyja Öll áform um gerð jarðganga milli lands og Vestmannaeyja verða lögð á hilluna. Þetta var tillaga Kristjáns L. Möller samgönguráðherra, sem ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag, þegar ráðherran kynnti skýrslu um mat á kostnaði á gerð jarðganga milli Vestmannaeyja og lands. 27.7.2007 16:22
Tvennt slasaðist í mótorhjólaslysi á Öxnadalsheiði Ökumaður og farþegi á mótorhjóli slösuðust þegar hjól þeirra datt ofarlega í Bakkaselsbrekku á Öxnadalsheiði fyrr í dag. Að sögn lögreglunnar á Akureyri var fólkið á vesturleið þegar það reyndi að taka fram úr bíl, en datt þá af hjólinu. Fólkið var flutt á slysadeild en mun ekki vera alvarlega slasað. 27.7.2007 16:00
Ritskoðun á internetinu breiðist út Ritskoðanir á vegum ríkisstjórna á notkun internetsins hafa nú breiðst út til fleiri en 20 landa sem nota ýmsar reglugerðir til þess að koma í veg fyrir að fólk sé á netinu og kæfa hverskonar pólitíska andstöðu. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar skýrslu frá OSCE, Öryggis- og framfarastofnun Evrópu, sem ber heitið „Að stjórna internetinu.“ 27.7.2007 15:39
Ríkisstjórnin leggur áform um Vestmannaeyjagöng á hilluna Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögu Kristjáns Möller samgönguráðherra um að leggja öll áform um gerð Vestmannaeyjaganga á hilluna. Tillagan var gerð í ljósi hins mikla kostnaðar og óvissu vegna jarðfræðilegra aðstæðna við gerð jarðganganna, sem gerð var grein fyrir í nýrri skýrslu um málið frá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. um mat á kostnaði á gerð jarðganga milli Vestmannaeyja og lands. Samgönguráðherra gerði grein fyrir þessari niðurstöðu ríkisstjórnarinnar á fréttamannafundi áðan. 27.7.2007 15:33
Fleiri barnabílstólar í bílaleigubílum Fjöldi barnabílstóla hjá bílaleigunum hefur verið aukinn eftir að ný reglugerð um búnað barna í bílum var gefin út. Reglugerðin gerir auknar kröfur um verndarbúnað barna. 27.7.2007 15:27
Tveir stöðvaðir fyrir ölvunarakstur í gær og nótt Lögreglan tók tvo ökumenn fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Karlmaður á sjötugsaldri var stöðvaður í Hafnarfirði og 19 ára piltur var tekinn í miðborginni. 27.7.2007 12:49
Fólk í annarlegu ástandi stal bíl Þremur bílum var stolið í Reykjavík í gær. Einum var stolið í Breiðholti í gærmorgun en bíllinn fannst svo síðdegis á öðrum stað í borginni. Tveir piltar og stúlka, sem öll eru undir tvítugu, voru handtekin vegna málsins. 27.7.2007 12:40
Bette Midler í kvöldverði á Bessastöðum Bandaríska söng- og kvikmyndaleikkonan Bette Midler snæddi í gærkvöldi kvöldverð á Bessastöðum í boði forseta Ísland. Midler mætti á Bessastaði ásamt eiginmanni sínum og dóttur í gær. Leikkonan og fjölskylda hennar snæddu kvöldverð með forsetanum en Dorrit Moussaieff forsetafrú var erlendis. 27.7.2007 12:00
Gengu þvert yfir landið Göngugarparnir Hilmar Egill Sveinbjörnsson og Gunnar Júlíus Helgason úr Vogum luku í gærkvöldi göngu sinni þvert yfir landið. Gangan hófst þann 6. júlí og er því búin að taka 20 daga. 27.7.2007 11:59
Hálfur milljarður í súginn Allt útlit er fyrir að greiðslukortakerfi sem sett var upp hjá Strætó verði aldrei tekið í notkun. Nálægt hálfum milljarði króna hefur verið varið í verkefnið en fyrirtækið sem hannaði það varð gjaldþrota. 27.7.2007 11:58