Innlent

Gengu þvert yfir landið

Göngugarparnir Hilmar Egill Sveinbjörnsson og Gunnar Júlíus Helgason úr Vogum luku í gærkvöldi göngu sinni þvert yfir landið. Gangan hófst þann 6. júlí og er því búin að taka 20 daga.

Þeir félagar gengu frá Fonti á Langanesi út á Reykjanestá, alls 650 kílómetra leið. Að meðaltali hafa þeir því lagt ríflega 30 kílómetra hvern dag. Á lokaáfanga göngunnar í gær gengu þeir frá Soginu um 30 km leið út á Reykjanestá og slógust nokkrir vinir og vandamenn í för með þeim síðasta spölin.

Veðrið lék við þá félaga allan tímann enda voru þeir sólbrenndir og hraustlegir að sjá í gærkvöldi og kváðust ekki kvíða því að fá harðsperrur núna þegar göngunni er lokið enda greinilega garpar í toppformi.

Safnað var áheitum fyrir gönguna sem renna munu til styrktar UMF Þrótti í Vogum og hafa viðbrögð verið góð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×