Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aðgerðir ríkisstjórnar í velferðarmálum verði vel tímasettar Davíð Oddsson seðlabankastjóri segir brýnt að ný aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í þágu barna og ungmenna sé vel tímasett. Hann segir skynsamlegt að hægja á, því mikil innspýting fjármuna sé ekki heppileg miðað við efnahagsástandið í landinu. 6.6.2007 12:14
Nýliðar í Norðurlandaráði Sex af þeim sjö fulltrúum sem Íslendingar tilnefna í sendinefnd Íslands í Norðurlandaráði hafa ekki setið í nefndinni áður og tæpur helmingur þeirra eru nýjir þingmenn. Kjartan Ólafsson, varaformaður sendinefndarinnar, er eini þingmaðurinn sem sæti átti í nefndinni fyrir kosningar. Árni Páll Árnason, Samfylkingu, verður nýr formaður sendinefndarinnar. 6.6.2007 12:14
Heitavatnsbruni leitt til þriggja dauðsfalla Á undanförnum árum hafa að minnsta kosti þrír látist hér á landi vegna brunasára sem þeir hlutu af of heitu vatni. Byggingarreglugerð á að koma í veg fyrir að fólk geti brennt sig á þennan hátt. 6.6.2007 12:12
Eigið fé smærri útgerða gufar upp við niðurskurð á þorskskvóta Eigið fé margra smærri útgerða gufar upp verði farið að tillögum Hafrannsóknastofnunar um þriðjungs niðurskurð á þorskkvótanum. Óttast er að bankarnir muni ganga að þeim fyrirtækjum og að margvíslegar kvótatilfærslur séu framundan. 6.6.2007 12:00
Tvær ungar íslenskar konur fengu blóðtappa vegna Yasmín pillunnar Tvær ungar íslenskar konur segjast hafa fengið blóðtappa í lungun eftir að hafa verið á Yasmin getnaðarvarnarpillunni. Lyfjastofnun og Icepharma segjast ekki hafa fengið tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir vegna hennar. Danska Lyfjastofnunin segir Yasmin pilluna ekki valda meiri aukaverkunum en aðrar getnaðarvarnarpillur. 6.6.2007 11:56
Kristján Leósson hlaut hvatningarverlaun Kristján Leósson eðlisverkfræðingur hlaut í morgun hvatningarverðlaun vísinda og tækniráðs fyrir rannsóknir á sviði örtækni. Geir H. Haarde, formaður vísinda og tækniráðs veitti verðlaunin á Rannsóknarþingi sem sett var í morgun. Kristján fékk 2.5 milljónir króna í sinn hlut. 6.6.2007 11:48
Stúdentar vilja frítt í strætó á öllu höfuðborgarsvæðinu Stúdentaráð Háskóla Íslands og Bandalag íslenskra námsmanna hafa sent stjórn Strætó bs. erindi þess efnis að frítt verði í strætó fyrir alla námsmenn á höfuðborgarsvæðinu á komandi skólaári. Aðeins níu prósent nemenda við Háskóla Íslands taka strætó í skólann eins og staðan er í dag. 6.6.2007 11:09
Útskrifaður af gjörgæslu eftir slys á Suðurlandsvegi Unga konan sem slasaðist í bílslysi á Suðurlandsvegi fyrir viku er enn í öndunarvél á gjörgæslu Landsspítalans í Fossvogi. Maðurinn sem var með henni í bílnum hefur verið útskrifaður af gjörgæsludeild og hefur verið fluttur á skurðdeild. Að sögn vakthafandi læknis er hann á batavegi. 6.6.2007 10:44
Vextir Íbúðarlánasjóðs hækka Vextir lána Íbúðalánasjóðs hafa verið hækkaðir um 0,05% í kjölfar útboðs á Íbúðabréfum í gær. Vextir lána með uppgreiðsluálagi eru nú 4,70%, en vextir lána án uppgreiðsluálags eru nú 4,95%. 6.6.2007 10:40
Hvað eru Íslendingar að gera í Danmörku? Flestir þeirra Íslendinga sem búsettir eru í Danmörku og stunda vinnu á annað borð starfa við að veita ýmiskonar þjónustu við atvinnurekstur. Í þessum geira starfa 530 Íslendingar en í tölum dönsku hagstofunnar vekur það athygli að aðeins 19 Íslendingar stunda sjóinn í Danmörku. 6.6.2007 10:34
Össur vill Nýsköpunarmiðstöð í Vatnsmýrina Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra setti Rannsóknarþing í morgun. Í ræðu hans kom fram að eitt af markmiðum hans sem iðnaðarráðherra væri að Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins sem tekur til starfa 1. ágúst fái framtíðarhúsnæði í Vatnsmýrinni. 6.6.2007 10:01
Vespur valda vandræðum í Vestmannaeyjum Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur ítrekað þurft að hafa afskipti af ökumönnum léttra bifhjóla, svokölluðum vespum. Fjórir voru stöðvaðir við akstur á vespum nýverið þar sem þeir höfðu ekki réttindi til að aka þeim. 5.6.2007 23:35
Bíll fauk útaf Vesturlandsvegi Jeppabifreið með kerru í afturdragi fór útaf Vesturlandsvegi við Hafnarfjall laust fyrir klukkan tíu í kvöld. Tveir voru í bílnum en þá sakaði ekki. Talið er vindhviða hafi feykt kerrunni til með þeim afleiðingum að ökumaður missti stjórn á bílnum. Nokkuð hvasst er á svæðinu að sögn lögreglu. 5.6.2007 22:21
Stal veski af roskinni konu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir manni sem hrifsaði handtösku af roskinni konu á Leifsgötu í hádeginu í dag. Maðurinn komst undan á hlaupum en konuna sakaði ekki. 5.6.2007 22:01
Útafkeyrsla í Keflavík Ungur ökumaður slapp með skrekkinn þegar að bíll sem hann keyrði fór útaf veginum á mótum Flugvallarvegs og Skólavegs í Keflavík um sjöleytið í kvöld. Pilturinn er 17 ára gamall en hann sakaði ekki. 5.6.2007 21:53
Telur samning Orkuveitunnar við Norðurál óráðlegan Orkusölusamningur Orkuveitu Reykjavíkur við Norðurál er ótímabær og óráðlegur að mati Dags B. Eggertssonar, oddvita Samfylkingarinnar í Reykjavík. Þetta kom fram í máli hans í viðtali í Íslandi í dag. Hann greiddi atkvæði gegn samninginum þegar stjórn orkuveitunnar samþykkti hann í dag. Svandís Svavarsdóttir, fulltrúi Vinstri grænna í stjórn Orkuveitunnar, gekk út af fundinum þegar tillaga hennar um að leynd á orkuverði yrði aflétt var felld. 5.6.2007 20:58
Ætlunin ekki að skaða atvinnulífið heldur ná niður verðbólgunni Davíð Oddsson seðlabankastjóri segir að bankinn eigi að sæta samfelldri gagnrýni og sé ekki yfir hana hafinn að neinu leyti. Markmið bankans sé hins vegar að ná verbólgunni niður og hækkun stýrivaxta sé eina tækið til þess. Ætlunin sé alls ekki að skaða atvinnulífið eins og Samtök atvinnulífsins vilji meina. 5.6.2007 19:35
Framleiðendur vilja skýrar reglur um notkun íslenska fánans Íslenskir framleiðendur hafa beðið í níu ár eftir reglugerð sem segir hvernig nota má íslenska fánann á umbúðir íslenskrar framleiðslu. Ekkert bólar á reglugerðinni og formaður samtaka iðnaðarins kallar eftir skýrum línum. 5.6.2007 19:31
Rökstuddur grunur um brot á samkeppnislögum Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að húsleit hjá Mjólkursamsölunni í morgun hafi verið gerð vegna rökstudds gruns um brot á samkeppnislögum. Ólafur Magnús Magnússon hjá Mjólku hf, segist fagna þessari aðgerð og treysta á réttláta niðurstöðu. Magnús Ólafsson, aðstoðarforstjóri MS, segist ekkert hafa að fela. 5.6.2007 19:24
Börnin í sérstökum forgangi Foreldrar eru hvattir til að hafa börnin í sérstökum forgangi í sumar svo forða megi þeim frá böli víns og vímuefna. Auglýsingaherferð SAMAN hópsins þess efnis var kynnt í dag. Heilbrigðisráðherra segir samvinnu einu leiðina í forvarnarstarfi. 5.6.2007 19:15
Stefnumótun gegn einangrun innflytjenda Upplýsingaflæði til foreldra grunnskólabarna af erlendum uppruna verður bætt samkvæmt stefnumótun sem kynnt var af menntaráði Reykjavíkur í dag. Aðstoð við aðlögun og virkni barnanna verður að auki stórefld. Þetta þykir mikilvægur þáttur í að sporna gegn mögulegri einangrun fjölskyldna af erlendum uppruna. 5.6.2007 18:40
Orkuveita Reykjavíkur gerir orkusölusamning við Norðurál Stjórn Orkuveitur Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gær orkusölusamning við Norðurál vegna fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Þetta kemur fram á heimasíðu Orkuveitu Reykjavíkur. Haft er eftir Guðmundi Þóroddssyni, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, að með samninginum sé orkusala frá varmastöðinni á Hellisheiði tryggð. 5.6.2007 18:14
Engin svefnlyf skilin eftir í mávavarpi Engin svefnlyf í tengslum við fyrirhugaðar svæfingar máva í vísindaskyni verða skilin eftir í vörpunum eftir að verkefninu lýkur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umhverfisstofnun. Svæfa á 600 pör máva í tilraun með svefnlyf í mávavörpum við Garðarholt, Korpúlfsstaðahólm og Þerney í júní. Íbúi á svæðinu undirbýr kæru til umhverfisráðuneytisins. 5.6.2007 17:49
Borgarfulltrúar setja sér siðareglur Stefnt verður að því að taka upp siðareglur fyrir borgarfulltrúa næsta haust en tillaga þessa efnis var samþykkt í borgarstjórn Reykjavíkur í dag. Reglunum er ætlað að skilgreina það hátterni sem kjörnir fulltrúar sýni að sér við störf sín fyrir hönd borgarinnar eins og segir í drögum að siðareglunum. 5.6.2007 17:27
Rannsókn á andláti manns í Hveragerði lokið Rannsókn lögreglunnar á andláti manns í Hveragerði þann 27. apríl er lokið. Niðurstöður úr krufningu benda ekki til að innvortis blæðingar mannsins og áverkar á nefi hans sé tilkomið vegna árásar eða átaka. 5.6.2007 17:15
Fyrrum ritstjórar DV dæmdir fyrir meiðyrði Páll Baldvin Baldvinsson og Björgvin Guðmundsson, fyrrum ritstjórar DV voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Reykjaness til að greiða Geir Hlöðveri Ericssyni 500 þúsund krónur í miskabætur vegna ummæla sem birtust í DV í apríl á síðasta ári. Málsatvik voru þau að í fréttum í DV var sagt frá aðgerðum fíkniefnalögreglunnar og víkingasveitarinnar þegar ráðist var inn í húsnæði við Ármúla, þar sem sagt var að fundist hefðu fíkniefni. 5.6.2007 17:05
Rannsókn á mannsláti í Hveragerði lokið Lögreglan á Selfossi hefur lokið rannsókn á mannsláti í heimahúsi í Hveragerði hinn 27. apríl. Samkvæmt niðurstöðu krufningar var um miklar innvortis blæðingar að ræða. 5.6.2007 16:40
Surtseyjarsýning í Þjóðmenningarhúsinu Í tilefni af því að 40 ár eru liðin frá lokum Surtseyjargossins stendur nú yfir sýning í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu sem ber heitið: Surtsey - jörð úr ægi. Þar er myndunar- og þróunarsaga Surtseyjar rakin frá myndun hennar og fram til dagsins í dag. 5.6.2007 16:30
Sýknaðir af ákæru um hópnauðgun Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag fjóra unglingspilta af ákæru um að hafa nauðgað 14 ára stúlku í nóvember 2005. Þeir voru ákærðir fyrir að hafa þröngvað stúlkunni til samræðis við sig, sumpart með ofbeldi og sumpart með því að notfæra sér ölvunar- og vímuefnaástand stúlkunnar. 5.6.2007 16:05
Ók niður gönguljósastaur Óhapp varð við gönguljósin á Miklubraut til móts við Skaftahlíð um hálf fjögur þegar bíll ók á gönguljósastaur. Ökumaðurinn virðist hafa sloppið ómeiddur en umferðarljósin á mótum Hringbrautar og Lönguhlíðar biluðu í kjölfarið. Töluverðar tafir hafa myndast á Miklubraut vegna þessa. Lögregla segir hugsanlegt að ökumaður hafi verið ölvaður. 5.6.2007 15:36
Viðbeinsbrotnaði í umferðaróhappi á Akureyri Tíu ára stúlka viðbeinsbrotnaði á Akureyri í klukkan eitt í dag þegar hún hjólaði inn í hlið bíls sem var á ferð. Stúlkan var með hjálm og er hann talinn hafa komið í veg fyrir að ekki fór verr. 5.6.2007 15:04
Ráðherra kynni áform stóriðjufyrirtækja fyrir almenningi Fulltrúar Sólar í Straumi, Sólar á Suðurnesjum og Sólar á Suðurlandi afhentu Þórunni Sveinbjarnardóttur, nýjum umhverfisráðherra, sameiginlega áskorun um að fela stofnunum ráðuneytisins að kynna fyrir almenningi heildarmynd áforma stóriðjufyrirtækja, orkufyrirtækja og orkuflutningafyrirtækja á Suður- og Suðvesturlandi. 5.6.2007 14:48
Vandi sjávarbyggða til umræðu á Alþingi Vandi sjávarbyggðanna var til umræðu utan dagskrár á Alþingi í dag. Málshefjandi var varaþingmaður Vinstri grænna norðvesturkjördæmi og sjávarútvegsráðherra var til andsvara. Fleiri þingmenn fylgdu svo í kjölfarið. 5.6.2007 14:21
Fiskimálasetur opnað í Mósambík Fiskimálasetur var nýlega tekið í notkun í norðanverðri Mósambík. Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) lagði ásamt Þróunarsamvinnustofnun Breta (DIFID) til fjármagn til byggingar á nýju húsnæði undir setrið í hafnarborginni Quelimane. 5.6.2007 14:20
Íkveikja í Vestmannaeyjum Í dagbók lögreglunnar í Vestmannaeyjum kemur fram að um kvöldmatarleytið í gærkvöldi var tilkynnt um að eldur væri í búnaði þjóðhátíðarnefndar sem geymdur er á svæði þjónustumiðstöðvar bæjarins. 5.6.2007 14:05
Dæmdur fyrir að ætla að selja yfir 400 e-töflur Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í 22 mánaða fangelsi fyrir að hafa í fórum sínum hátt í 420 e-töflur sem ætlaðar voru til sölu. Töflurnar fundust á heimili foreldra mannsins í fyrrasumar. 5.6.2007 13:58
Reiðhjól í búðum ólögleg Meira en þriðjungur nýrra reiðhjóla í verslunum á Höfuðborgarsvæðinu hafa ekki nægilegan öryggisbúnað, eða 38%. Þau eru því ólögleg samkvæmt reglugerð. 5.6.2007 13:35
Tveir dæmdir og tveir sýknaðir af morðinu á Jóni Þór Dómstóll í El Salvador hefur dæmt tvo menn í sjötíu ára fangelsi hvorn fyrir morðið á Jóni Þór Ólafssyni og Brendu Salinas fyrir tæpu einu og hálfu ári. Réttað var yfir fjórum mönnum og voru tveir sýknaðir. 5.6.2007 13:26
Biðlistum eytt, fæðingarorlof lengt og barnabætur hækkaðar Ríkisstjórnin hyggst eyða biðlistum hjá Barna og unglingageðdeild Landspítalans og Greiningarstöð ríkisins, lengja fæðingarorlofið í áföngum og hækka barnabætur til tekjulágra. Þá munu atvinnutekjur ellilífeyrisþega og vistmanna 70 ára og eldri ekki hafa áhrif á fjárhæð ellilífeyris og almannatryggingar. 5.6.2007 12:36
Þorskkvóti á norðurslóð gæti dregist saman um 100 þúsund tonn Alþjóðahafrannsóknaráðið ICES leggur til að að þorskveiðar í Barentshafi verði skornar niður um 15 þúsund tonn á næsta ári og að aflinn verði 409 þúsund tonn. Þá leggur ráðið til að að þorkveiðar verði bannaðar með öllu í Norðursjó á næsta ári, en áætlaður afli þar í ár verður 20 þúsund tonn. 5.6.2007 12:15
Aðstoðarforstjóri segir húsleitarheimild byggja á veikum grunni Magnús Ólafsson, aðstoðarforstjóri MS, segir að dómur héraðsdóms frá því í gær sem heimilaði Samkeppniseftirlitinu að gera húsleit í höfuðstöðvum MS í morgun, byggi á afskaplega veikum grunni. Hann segir fyrirtækið ávallt hafa upplýst samkeppniseftirlitið um stöðu mála á hverjum tíma, og að Mjólkursamsalan hafi ekkert að fela. 5.6.2007 12:11
Krónan lækkar enn Krónan hélt áfram að lækka í morgun eftir að hafa lækkað um rúm tvö prósent í gær, sem er mesta lækkun á einum degi um langt skeið. 5.6.2007 12:00
Móta stefnu í málefnum barna af erlendum uppruna Efla á íslensku- og móðurmálskennslu fyrir börn af erlendum uppruna í grunnskólum Reykjavíkur, skýra verklagsreglur við innritun slíkra barna í skóla og koma á laggirnar vinafjölskyldum fyrir fjölskyldur barna af erlendum uppruna til þess að bæta aðlögun og virkni barnanna í reykvískum skólum. 5.6.2007 11:51
Megum flytja inn ótakmarkað vín Sænskum stjórnvöldum er óheimilt að banna einstaklingum að flytja inn áfengi samkvæmt niðurstöðu Evrópudómstólsins í Lúxemborg. Það stríðir gegn frjálsu vöruflæði innan Evrópska efnahagssvæðisins. Hér á landi er innflutningur til einkaneyslu frjáls, og ekkert þak á leyfilegu magni. 5.6.2007 11:42
Húsleit vegna gruns um samkeppnisbrot Fulltrúar frá Samkeppniseftirlitinu stormuðu inn á skriftstofur Mjólkursamsölunnar, Auðhumlu og Osta- og smjörsölunnar á Bitruhálsi í morgun vegna gruns um að fyrirtækin hefðu brotið samkeppnislög. 5.6.2007 11:24