Innlent

Orkuveita Reykjavíkur gerir orkusölusamning við Norðurál

Hús Orkuveitu Reykjavíkur.
Hús Orkuveitu Reykjavíkur. MYND/365

Stjórn Orkuveitur Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gær orkusölusamning við Norðurál vegna fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Þetta kemur fram á heimasíðu Orkuveitu Reykjavíkur. Haft er eftir Guðmundi Þóroddssyni, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, að með samninginum sé orkusala frá varmastöðinni á Hellisheiði tryggð.

Fram kemur á heimasíðu Orkuveitu Reykjavíkur að umhverfismat vegna fyrirhugaðra framkvæmda Norðuráls og Orkuveitunnar standi nú yfir. Áformað er að afla raforku til rekstursins af Hengilssvæðinu, þar sem Orkuveitan rekur Nesjavallavirkjun og Hellisheiðarvirkjun. Samkvæmt samningnum mun Orkuveitan sjá Norðuráli fyrir 100 MW afli frá því um áramótin 2010 og 2011.

Þá kemur einnig fram á heimasíðu Orkuveitunnar að nú þegar selji Orkuveitan Norðuráli raforku til reksturs álversins á Grundartanga. Fyrstu vélar hennar voru teknar í notkun í október á síðasta ári. Í næsta áfanga verður tekin í notkun 33 MW lágþrýstivel. Orka frá henni mun fara á almennan markað og mun þá um 30 prósent raforkunnar frá Hellisheiði fara á almennan markað. Aflvélar númer fjögur og fimm verða teknar í notkun á næsta ári og framleiðsla á heitu vatni hefst síðan árið 2009.

Áætlað er að virkjunin muni geta sinnt væntanlegri eftirspurn eftir heitu vatni á höfuðborgarsvæðinu til ársins 2005, en fullgerð mun Hellisheiðavirkjun framleiða 270 til 300 MW af rafmagni og varmastöð sem afkastar allt að 400 MW.

Haft er eftir Guðmundi Þóroddssyni, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, að með samninginum sé orkusala frá fyrirhuguðum virkjunum tryggð. Þá segir hann það skipta miklu máli fyrir hagkvæmni hitaveitunnar að framleiða rafmagn samhliða heitavatnsframleiðslunni. Salan til Norðuráls tryggi að ný varmastöð á Hellisheiði með 30 kílómetra hitaveitulögn til borgarinnar muni ekki kalla á hækkun á heita vatninu.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×