Fleiri fréttir

Afleiðingar höfuðhöggs Jónasar metnar

Lögmaður Jónasar Garðarssonar, fyrrverandi formanns Sjómannafélags Reykjavíkur, óskaði eftir því að dómkvaddir matsmenn legðu mat á hvort Jónas hafi verið fær um að taka meðvitaðar rökréttar ákvarðanir eftir slysið á Viðeyjarsundi sökum höfuðhöggs sem hann hlaut. Mál Jónasar var tekið fyrir í Hæstarétti í morgun.

Sjá helst sóknarfæri í virkjunarlóni sem nú telst umhverfisslys

Frambjóðendur þeirra tveggja flokka sem helst kenna sig við umhverfisvernd hafa, spurðir um sóknarfærin í atvinnumálum, sérstaklega nefnt Bláa lónið. Forstjóri Hitaveitu Suðurnesja segir að samkvæmt gildandi lögum sé Bláa lónið umhverfisslys, sem yrði ekki leyft í dag.

Ekki innlend mengunarheimild fyrir olíuhreinsistöð

Ekki er svigrúm er fyrir mikla mengun gróðurhúsalofttegunda frá olíuhreinsistöð miðað við núgildandi lög og alþjóðasamninga. Slík stöð yrði að leggja með sér mengunarkvóta frá öðru ríki eða kaupa hann á markaði.

Byggt upp í sömu mynd

Hreinsun á brunarústunum við Lækjartorg hafa verið stöðvaðar á meðan ákveðið er hvernig verður staðið að enduruppbyggingu á svæðinu. Borgaryfirvöld hafa ákveðið að byggt verði upp í sem næst upprunalegri mynd og munu beita skipulagsvaldi, ef með þarf, til að fylgja þeirri stefnu eftir. Rannsókn á stórbrunanum stendur yfir og er íkveikja nú ekki útilokuð frekar en aðrar orsakir.

Voru eldsupptökin ekki í Fröken Reykjavík?

Myndir sem birtar hafa verið á netinu gefa til kynna að eldurinn í húsasamstæðunni á horni Austurstrætis og Lækjargötu hafi hugsanlega ekki átt upptök sín í söluturninum Fröken Reykjavík eins og gefið hefur verið til kynna í fréttum. Myndirnar sýna að klukkan sex mínútur fyrir tvö, um það leyti sem tilkynnt var um eldinn, voru menn komnir upp á þak veitingahússins Pravda. Þeir virðast vera að huga að eldinum.

Hátt í 100 manns án atvinnu

Hátt í eitt hundrað manns misstu vinnuna eftir brunann í miðbæ Reykjavíkur síðastliðinn miðvikudag. Tveir stærstu veitingastaðirnir sem brunnu höfðu hátt í 70 starfsmenn. Þeir eru báðir með tryggingu sem tryggir starfsmönnum laun á meðan þeir eru í atvinnuleit.

Meintur þjófur á lyfjum ekur í gin ljónsins

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn fyrir lyfjaakstur síðdegis í gær. Það sem gerir mál hans fremur sérstakt er vettvangur brotsins en maðurinn var stöðvaður í porti lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu. Þangað hafði hann komið til að hitta kunningja sinn að máli en sá var í haldi lögreglu sem hafði stöðvað hann nokkru áður fyrir að aka undir áhrifum lyfja. Ekkert varð af fundum félaganna en sá fyrrnefndi sneri þá frá en birtist svo skömmu síðar undir stýri bifreiðar sem hann hafði ekið inn í port lögreglustöðvarinnar. Akstur hans var umsvifalaust stöðvaður og maðurinn handtekinn en hann var í annarlegu ástandi. Af kunningjanum er það að segja að í bíl hans fannst allnokkuð af munum sem taldir eru vera þýfi úr innbrotum í bíla á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga. Munirnir voru haldlagðir.

Nýsjálendingur tjaldaði á einkalóð

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð í austurborgina í gærmorgun en þar hafði karlmaður reist tjald og lét fara vel um sig. Maðurinn, sem reyndist vera ferðamaður frá Nýja-Sjálandi, var að elda sér morgunverð þegar lögreglumenn komu á vettvang. Honum var leyft að klára árbítinn en gert grein fyrir að þarna gæti hann ekki dvalist. Hann hafði tjaldað á einkalóð. Ekki er vitað hvar hann gisti í nótt en tjaldsvæði eru almennt ekki opnuð fyrr en um miðjan maí. Ferðamaðurinn er ekki fyrsti tjaldbúinn sem lögregla hefur afskipti af þetta vorið. Á dögunum bárust fréttir af tjaldi í útjaðri borgarinnar en þar var smá gleðskapur í gangi þegar að var komið. Allt fór friðsamlega fram og ekki þótti ástæða til frekari afskipta en þeir tjaldbúar höfðu í önnur hús að venda yfir nóttina.

Olíuhreinsað um helgina á strandstað Muuga

Engin bráðahætta stafar af olíunni sem kom í ljós á strandstað Wilson Muuga þegar hann náðist á flot. Starfsmaður frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja kannaði aðstæður við strandstað á miðvikudaginn. Samkvæmt mati hans var ekki um bráðahættu að ræða. Í dag fóru fulltrúar frá Umhverfisstofnun ásamt starfsmanni Heilbrigðiseftilitsins á vettvang til að meta umfang nauðsynlegra hreinsunaraðgerða. Hreinsa þarf olíu úr fjörunni og fjarlæga nokkuð af þangi/þara á takmörkuðu svæði fyrir sunnan Gerðakotstjörn. Hreinsun verður framkvæmd um helgina.

Gleymdi hverjum hann lánaði bílinn - Kærði þjófnað

Karlmaður á miðjum aldri kom á lögreglustöð í gær til að kæra þjófnað á bíl. Þegar betur var að gáð reyndist maðurinn hafa lánað bílinn sinn fyrir hálfum mánuði. Þá var maðurinn við drykkju og mundi nú öll málsatvik að því undanskildu hver fékk bílinn að láni. Með hjálp lögreglu tókst að finna bílinn sem er nú væntanlega kominn aftur í réttar hendur. Í gær var sömuleiðis tilkynnt um skemmdir á innanstokksmunum í íbúð á höfuðborgarsvæðinu. Húsráðandi hafði brugðið sér frá í sólarhring en á meðan dundu ósköpin yfir. Við rannsókn kom hinsvegar í ljós að ekki var um innbrot að ræða. Annar heimilismaður hafði drukkið ótæpilega og reyndist sá sekur í málinu. Tjónvaldurinn viðurkenndi verknaðinn en gat engar skýringar gefið aðrar en þær að um ölæði hefði verið að ræða.

Rúmlega 450 börn skráðu sig í áheyrnarprufu hjá LA

Rúmlega 450 ungmenni skráðu sig í áheyrnarprufu hjá Leikfélagi Akureyrar í dag vegna þátttöku í leiksýningunni Óvitar. Löng biðröð myndaðist fyrir framan hús leikfélagsins áður en skráningar hófust.

Sakar Moggann og Ríkisútvarpið um óvönduð vinnubrögð

Morgunblaðið og RÚV styðjast við ómarktæka könnun til að sýna fylgi Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi minna en það í raun og veru er að mati Kristins H. Gunnarssonar, þingmanns. Þetta kemur fram á heimasíðu Kristins.

Bílaflotinn mengar mest í Reykjavík

Útstreymi gróðurhúsaloftegunda frá fólksbílum í Reykjavík jókst um 30 prósent á tímabilinu 1999 til 2005. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar um umhverfisvísa borgarinnar. Á sama tíma hefur mengandi úblástur frá strætisvögnum dregist saman um 13 prósent.

Sjúkraþjálfun Dorritar miðar vel

Dorrit Moussaieff forsetafrú er á góðum batavegi eftir að hafa lærbrotnað á skíðum í Aspen í lok síðasta mánaðar. Hún er í reglubundinni sjúkraþjálfun og miðar þjálfuninni vel. Dorrit gekkst undir mikla aðgerð eftir slysið.

Fagnar yfirlýsingu ráðherra varðandi Palestínu

Sveinn Rúnar Hauksson, formaður Félagsins Ísland-Palestína fagnar þeirri yfirlýsingu Valgerðar Sverrisdóttur, utanríkisráðherra að taka eigi upp eðlileg samskipti við þjóðstjórn Palestínumanna. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá formanninum.

Nýtt kort af hjóla- og göngustígum

Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar hefur sett upp kynningarsíðu með nýjum kortum og upplýsingum um hjóla- og göngustíga á höfuðborgarsvæðinu. Nýr áningarstaður verður settur upp við Breiðholtsbraut milli Fákssvæðis og Elliðavatns í sumar.

Tímamótasamningur um grænt hverfi í Garðabæ

Í dag var skrifað undir samsstarfssamning Garðabæjar og Urriðaholts ehf. um uppbyggingu á Urriðaholti, nýjum bæjarhluta í Garðabæ. Þar er gert ráð fyrir rúmlega 1.600 íbúðum og að íbúatalan verði um 4.400. Íbúðabyggð verður í suðurhlíð holtsins, ofan við Urriðavatn. Svæðið er austan við reitinn þar sem ný verslun IKEA reis nýlega.

Nokkrir aðilar hafa áhuga á Wilson Muuga

Nokkrir aðilar hafa þegar sýnt því áhuga að kaupa Wilson Muuga af núverandi eigendum. Guðmundur Ásgeirsson, stjórnarformaður Nesskipa, eigenda skipsins, sagði í fréttum okkar á miðvikudaginn að ekki væri til aðstaða hér á landi til að gera við skipið.

Stúdentar opna loforðasíðu

Stúdentaráð Háskóla Íslands opnar í dag heimasíðuna loford.is þar sem stefnuskrá ráðsins er borin saman við stefnuskrá stjórnmálaflokkanna í menntamálum. Stúdentar vilja með þessu vekja athygli á mikilvægi menntamála í komandi kosningum.

Mál Jónasar fyrir Hæstarétti í morgun

Mál Jónasar Garðarssonar, fyrrverandi formanns Sjómannafélags Reykjavíkur, var tekið fyrir í Hæstarétti í morgun. Jónas var í byrjun júní á síðasta ári dæmdur í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi.

Framtíð húsanna við Lækjartorg rædd í Ráðhúsinu

Niðurrifsstarf í brunarústunum við Lækjartorg hefur verið stöðvað á meðan næstu skref verða ákveðin um framtíð lóðarinnar. Nú stendur yfir fundur í Ráðhúsinu þar sem þessi mál eru rædd en öll vinnan miðast við þá pólitísku yfirlýsingu borgarstjóra að götumyndin verði endurreist í sem upprunalegustu mynd.

Foreldrar virði útivistarreglur ungmenna í sameiningu

Lögreglan hvetur foreldra til að standa saman að því að útivistarreglur séu virtar nú þegar sól hækkar á lofti og skólunum fer að ljúka. Í tilkynningu frá lögreglunni er foreldrum bent á að þau beri ábyrgð á börnum sínum til a.m.k. 18 ára aldurs en að sumarið sé sá tími þegar mest lausung sé á krökkunum.

VÍS bótaskylt fyrir hönd Orkuveitunnar vegna vatnslekatjóns

Vátryggingafélag Íslands, tryggingafélag Orkuveitu Reykjavíkur hefur farið yfir skýrslur um tjónið sem hlaust af heitavatnslekanum á Vitastíg á miðvikudagskvöldið. Þeir hafa komist að þeirri niðurstöðu að tryggingafélagið sé bótaskylt fyrir hönd Orkuveitunnar vegna tjónsins sem hlaust af. Ekki er ljóst hversu tjónið er mikið en ljóst að það hleypur á milljónum króna.

Lemstraður og drukkinn undir stýri

Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur til að greiða 130 þúsund krónur í sekt fyrir að aka undir áhrifum áfengis. Fullyrðingum mannsins um að hann hefði drukkið áfengi eftir að akstri lauk þótti ekki trúverðug.

Óprúttinn leikur að veifa 500 störfum framan í Vestfirðinga

Mikil umferð risaolíuskipa yrði til og frá landinu ef olíuhreinsistöð yrði reist á Vestfjörðum. Loftmengun frá slíkri stöð myndi ganga á skjön við mengunarskuldbindingar Íslendinga samkvæmt Kyoto-sáttmálanum, segja Náttúruverndarsamtök. Þau kalla það óprúttin leik að veifa 500 störfum framan í Vestfirðinga.

Sólin skein á sumardaginn fyrsta

Sólin skein á flesta landsmenn í dag á sumardaginn fyrsta. Reykvíkingar fjölmenntu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn.

Skrautleg saga húsanna sem brunnu

Húsin sem brunnu í hjarta borgarinnar í gær eiga sér skrautlega sögu. Þaðan var Íslandi stjórnað af Jörundi hundadagakonungi, þarna var fyrsta alvöru ljósmyndastofan, hífaður lögrelguþjónn lék undir dansi, prestnemar lærðu, ölvaðir hírðust í Svartholinu og tískumeðvitaðir Íslendingar keyptu sér föt.

Stóðu vaktina í sautján klukkustundir

Slökkviliðsmenn stóðu vaktina í sautján klukkustundir í miðbæ Reykjavíkur í gær og í nótt vegna brunans þar. Hundrað og tíu starfsmenn slökkviliðsins voru að störfum þegar mest var.

Eins og tifandi tímasprengja

Rafvirki sem vann í húsunum sem brunnu í gær líkir ástandi rafmagnsmála í þeim við tifandi tímasprengju. Kristján Kristjánsson rafvirkjameistari vann að rafmagninu í húsinu á horni Lækjargötu og Austurstræti fyrir skemmstu.

Framleiðsla hafin í stærsta álveri landsins

Framleiðsla er hafin í Fjarðaáli, stærsta álveri á Íslandi. Fyrst um sinn verða aðeins fjörtíu ker keyrð í verksmiðjunni en búist er við að hún hafi náð fullum afköstum fyrir lok ársins.

Lýsi hlaut útflutningsverðlaun forseta Íslands

Lýsi hlaut í dag útflutningsverðlaun forseta Ísland sem afhent voru við hátíðlega athöfn að Bessastöðum. Það var Katrín Pétursdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, sem veitti verðlaununum viðtöku úr hendi Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands.

Íslandshreyfingin kynnir fimm efstu sætin í NV-kjördæmi

Íslandshreyfingin - lifandi land kynnti í dag fimm fyrstu frambjóðendur sína í Norðvesturkjördæmi. Í fyrsta sæti er Pálína Vagnsdóttir, athafnakona úr Bolungarvík, Sigurður Valur Sigurðsson, ferðamálafræðingur frá Akranesi, í öðru sæti og Sólborg Alda Pétursdóttir, kennari úr Skagafirði, í því þriðja.

Umferðarslys á Þorlákshafnarvegi

Umferðarslys varð á mótum Þorlákshafnarvegar og Suðurstrandarvegar um klukkan fjögur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi var um að ræða tvo bíla en ekki liggur fyrir hver tildrög slyssins voru.

Bók um Íslandstúr Sigur Rósar gefin út í sumar

Bók um ferðalag hljómsveitarinnar Sigur Rósar um Ísland á síðasta ári lítur dagsins ljós þann 1. júní. Bókin hefur fengið nafnið ´in a frozen sea - a year with sigur rós´ og er það Jeff Anderson sem er höfundur hennar, en forlag hans A+R, gefur bókina út.

Góð aðsókn á ferðahátíð í borginni

Mikil þátttaka hefur verið helstu dagskrárliðum ferðahátíðarinnar Ferðalangur á heimaslóð sem haldin er í dag í og við höfuðborgarsvæðið. Þetta er í fjórða sinn sem hátíðin er haldin en með henni á að hvetja almenning til að skoða umhverfi sitt með augum ferðamannsins.

Samfylkingin upp á landsvísu en niður í Suðvesturkjördæmi

Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn bæta við sig fylgi á landsvísu í nýrri könnun Capasent Gallups en Vinstri grænum fatast flugið og Framsókn tapar fylgi. Samfylkingin tapar hins vegar verulegu fylgi í Suðvesturkjördæmi en Vinstri grænir koma í fyrsta skipti mönnum á þing í kjördæminu, samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Stöð 2.

Telur hundruð fugla hafa drepist vegna olíumengunar frá Muuga

Talið er líklegt að hundruð fugla hafi drepist vegna olíumengunar frá Wilson Muga í Hvalsnesfjöru. Starfsmaður Náttúrustofu Reykjaness fann í gærmorgun fyrstu olíublautu fuglana og hann gagnrýnir að vöktun á lífríkinu hafi ekki verið á svæðinu meðan skipið var þar.

Segja brunavarnir hafa verið í góðu lagi á Pravda

Eigendur skemmtistaðarins Pravda, sem brann til kaldra kola í gær, segja brunavarnir í húsinu hafa verið í mjög góðu ásigkomulagi og allar viðeigandi varúðarrástafanir hafi verið til staðar.

Sjá næstu 50 fréttir