Stóðu vaktina í sautján klukkustundir 19. apríl 2007 18:51 MYND/Vilhelm
Slökkviliðsmenn stóðu vaktina í sautján klukkustundir í miðbæ Reykjavíkur í gær og í nótt vegna brunans þar. Hundrað og tíu starfsmenn slökkviliðsins voru að störfum þegar mest var. Tilkynning um eldinn barst klukkan 13:52 og var strax allt tiltækt slökkvilið sent á staðinn. Eldur var bæði í húsunum að Lækjargötu 2 og Austurstræti 22. Slökkviliðið var komið á staðinn sex mínútum síðar. Fyrstu menn á vettvang gerðu sér strax grein fyrir hversu mikið umfang brunans var og því ákveðið að kalla allt starfsfólk slökkviliðsins út. Hundrað og tíu manns voru að störfum þegar mest var. Mikill eldur var í þaki Austurstrætis 22 og eldtungur stóðu út um glugga Lækjargötu 2. Reykkafarar voru strax sendir inn. Klukkan tvö lokaði lögreglan götum í kring. Reykur stóð í suðvestur og lagði yfir nærliggjandi hús, allt að Háskóla Íslands. Fjöldi fólks safnaðist saman í Lækjagötu til að fylgjast með slökkvistarfinu. Um klukkan hálf þrjú var búið að ná stjórn á eldinum. Enn var þó hætta til staðar en slökkviliðinu hafði tekist að koma í veg fyrir að eldurinn færi í nærliggjandi hús. Um þrjú leytið komu slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja til að aðstoðar. Rétt fyrir klukkan fjögur tókst slökkviliðinu að slökkva að mestu eldinn í Lækjargötu 2. Eldur logaði þó enn glatt í Austurstræti 22. Um fjögur leytið var óttast að þakið á Austurstræti 22 væri að hrynja. Á sama tíma kom krani frá Hringrás á staðinn og var hann notaður til að rífa húsið og slökkvistarfi innandyra hætt. Um fimm leytið féll þakið á Austurstræti 22, þar sem skemmtistaðurinn Pravda var til húsa. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, lögregla og borgaryfirvöld héldu blaðamannafund klukkan sex. Á honum var greint frá því að talið væri að eldurinn hefði kviknað í söluturni á milli húsanna í Austurstræti og Lækjartorgi. Um kvöldmatarleytið tókst að ráða niðurlögum eldsins. Lögreglan ákvað að hafa aukinn viðbúnað í miðbænum yfir nóttina. Tólf slökkviliðsmenn, dælubíll og körfubíll voru áfram á staðnum og síðar um kvöldið var slökkviliðsmönnum á svæðinu fækkað niður í átta. Slökkvistarfi lauk klukkan sex í morgun og fóru slökkviliðsmenn af vettvangi klukkan sjö. Þá voru sautján klukkustundir síðan að fyrstu mennirnir mættu á vettvang. Í morgun tók svo við frágangur á tækjum og búnaði.
Mest lesið Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Innlent Fleiri fréttir Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Sjá meira