Ekki innlend mengunarheimild fyrir olíuhreinsistöð 20. apríl 2007 18:35
Ekki er svigrúm er fyrir mikla mengun gróðurhúsalofttegunda frá olíuhreinsistöð miðað við núgildandi lög og alþjóðasamninga. Slík stöð yrði að leggja með sér mengunarkvóta frá öðru ríki eða kaupa hann á markaði. Áform um olíuhreinsistöð á Vestfjörðum hefur vakið upp spurningar um mengun og mengunarhættu. Í Noregi eru nýtískulegar hreinsistöðvar reknar nálægt íbúðabyggð án teljandi árekstra. Á það við um þessa sem er rétt við Bergen og er jafnstór þeirri sem menn áforma að reisa vestra - líklegast í dýrafirði. Hafsteinn Helgason, verkfræðingur sem sérstaklega skoðaði þessi mál fyrir iðnaðaráðuneytið fyrir 10 árum segir að stöð sem heimsótt var nálægt Ósló væri í góðri sátt við umhverfið. Þar væri allt frárennsli hreinsað, lyktarmengun væri nánast engin og stöðin hin snyrtilegasta, enda öll vinnslan í lokuðum ferlum. Mikil pípuvirki og tankar einkenna þessar stöðvar. Menn geta greint á um hættu af skipaflutningum með olíu en tíðar ferðir risaolíuskipa yrðu til landsins. Ólafur Egilsson, talsmaður Íslensk hátækniðiðnaðar sagði í fyrradag að skipin væru sértaklega styrkt til hafíssiglinga. Benti hann á að nú þegar væri mikil umferð olíuskipa í grennd við landið en með stöðinni kæmu til landsins risastórir dráttarbátar og mengunarvarnarbúnaður til að bregðast við mögulegum óhöppum. Mætti því segja að öryggið myndi aukast. En það fylgir stöð af þessu tagi mengun gróðurhúsalofttegunda. Norska stöðin sem fulltrúar íslands skouðu fyrir 10 árum er helmingi minni en sú sem áformað er að reisa vestra en losar samt 315 þúsund tonn af koltvísýringi á ári og 1000 tonn af Brennisteinstvísýringi. Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri í Umhverfisráðuneytinu segir að miðað við innlendar heimildir til losunar og alþjóðlegar skuldbindingar er ekkert svigrúm til að taka þetta inní mengunarbókhaldið - nema menn leggi með sér mengunarheimildir eða kaupi mengunarkvóta. Ekki náðist í Ólaf Egilsson til að spyrja hann um það hvort Íslenskur hátækniiðnaður hefði aðgang að mengunarkvóta vegna áforma fyrirtækisins.
Mest lesið Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Innlent Fleiri fréttir Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Sjá meira