Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vinstri - grænir fá tvo menn í SV-kjördæmi Vinstri - grænir fá tvo menn kjörna í Suðvesturkjördæmi samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Fréttstofu Stöðvar 2. Flokkurinn fékk engan mann kjörinn í kjördæminu í síðustu kosningum. 19.4.2007 10:30
Samfylkingin sækir í sig veðrið Samfylkingin sækir í sig veðrið og bætir við sig sex prósentustigum í könnun Capasent Gallups fyrir Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. Samfylkingin fengi 24,1 prósent ef kosið yrði nú og er orðin stærri en Vinstri grænir sem tapa sex prósentustigum frá síðustu könnun og mælast nú með 19,1 prósent. 19.4.2007 10:15
Tíu slökkviliðsmenn á brunavakt í nótt Hópur tíu slökkviliðsmanna var á brunavakt í miðborg Reykjavíkur í alla nótt. Glæður leyndust víða í húsasamstæðunni á horni Lækjargötu og Austurstrætis þar sem stórbruninn varð í gærdag. 19.4.2007 09:50
Andrésarandarleikarnir settir í kvöld Andrésarandarleikarnir verða settir í kvöld kl 20:30 í íþróttahöllinni á Akureyri. Um 700 keppendur á aldrinum 7-14 ára eru á svæðinu og má búast við fjörugum leikum. Keppnin sjálf hefst svo í fyrramálið kl 9:00. Lögreglan á Akureyri er við öllu viðbúin og hefur aukið við sig fólki í löggæslu vegna mikils fjölda fólks í bænum, en búist er við að um 3500-4000 manns. 18.4.2007 19:58
Biskup Íslands fulltrúi lútherskra kirkna í London Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, verður fulltrúi lútherskra kirkna við biskupsvígslu í London. Biskup Íslands hefur þegið boð Rowan Williams, erkibiskups af Kantaraborg um að vera fulltrúi lútherskra kirkna er tilheyra Porvoo samkomulaginu við biskupsvígslu í Southwark dómkirkju fimmtudaginn 19. apríl næstkomandi. Tilefnið er vígsla nýs biskups í Wolverhampton, sr. Clive Gregory. 18.4.2007 19:33
Færri á nagladekkjum í ár en í fyrra Um 42% bifreiða eru á nagladekkjum samkvæmt talningu sem gerð var 11. apríl. síðastliðinn. Þetta er um 2-3% lægri tala en hefur verið síðustu árin. Önnur talning verður gerð í næstu viku. Frá og með 15. apríl var óleyfilegt að vera á nöglum. 18.4.2007 19:14
Stimpilgjöld verða felld niður Stimpilgjöld verða felld niður eins fljótt og þensla leyfir - sama hvaða flokkar komast til valda eftir kosningar. Allir stjórnmálaflokkar eru hlynntir afnámi stimpilgjalds. 18.4.2007 18:53
Unnur Svava sigrar í Raunveruleikum Landsbankans Unnur Svava sigraði í Raunveruleiknum Landsbankans í ár. En verðlaunin voru veitt í þriðja sinn í dag. 1.627 nemendur í 10. bekk tóku þátt í leiknum. Raunveruleikurinn er gagnvirkur hermileikur á netinu sem fræðir nemendur 10. bekkjar um ábyrga meðferð fjármuna og neytendamál. Í 18.4.2007 18:34
Framleiðsla hafin hjá Fjarðaáli á Reyðafirði Framleiðsla er hafin í Fjarðaáli, stærsta álveri á Íslandi. Fyrst um sinn verða aðeins fjörtíu ker keyrð í verksmiðjunni en búist er við að hún hafi náð fullum afköstum fyrir lok ársins. 18.4.2007 18:30
Farþegum hefur fjölgað um 150 prósent Farþegum sem fara um Egilsstaðaflugvöll hefur fjölgað um 150 prósent á undanförnum fjórum árum. Fyrstu þrjá mánuði þessa árs hefur fjölgunin verið 17 prósent. Hafnar eru framkvæmdir við stækkun flugstöðvarinnar á flugvellinum. 18.4.2007 18:30
Reykur tefur ekki flug frá Reykjavíkurflugvelli Reyk hefur laggt suður yfir miðbæ Reykjavíkur vegna brunans á Austurstræti og Lækjatorgi og í átt að Reykjavíkurflugvelli. Að sögn starfsmanna flugvallarins hefur reykurinn ekki haft nein áhrif á flugsamgöngur innanlands og von er á að flug verði í góðu lagi fram eftir kvöldi. 18.4.2007 17:58
Þakið á Austurstræti 22 er fallið Þakið af Austurstræti 22, húsinu sem skemmtistaðurinn Pravda er til húsa er féll um fimmleytið. Verið er að vinna af því að rífa niður það sem eftir er af þakinu. Ekki er gert ráð fyrir að slökkvistarf klárist fyrr en í kvöld. 18.4.2007 17:33
Flugvöllurinn er á góðum stað. Núverandi flugvöllur í Vatnsmýrinni er á góðum stað fyrir flugsamgöngur en flugvallarsvæðið er dýrmætt sem byggingarland. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu samgönguráðherra og borgarstjóra. 18.4.2007 17:19
Slökkvistarf stendur langt fram á nótt Slökkviliði hefur tekist að stöðva útbreiðslu eldsins í Lækjargötu 2 en þar logaði mikill eldur fyrr í dag. Unnið er að því að rífa þakplötur af Austurstræti 20 og allt þakið af húsi númer 22. Búist er við að það taki tvo til þrjá tíma í viðbót að slökkva eldinn en að slökkvistarf muni standa langt fram á nótt. Slökkviliðsstjóri heldur fréttamannafund klukkan 18. 18.4.2007 16:46
Biskup Íslands fulltrúi lútherskra kirkna við biskupsvígslu í London Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, verður fulltrúi lútherskra kirkna við vígslu nýs biskups í Southwark dómkirkjunni í Englandi sem fram fer á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá biskupsstofu. 18.4.2007 16:45
Lögregla og slökkvilið hafi unnið af fumleysi og fagmennsku Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu er meðal þeirra sem fylgist með aðgerðum niðri í miðbæ þar sem hús á horni Austurstrætis og Lækjargötu brenna. Sagði hann í samtali við Stöð 2 slökkvilið og lögreglu hafa unnið sem einn maður af fumleysi og fagmennsku að málinu. 18.4.2007 16:36
Verður að endurreisa götumyndina sem fyrst Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri segist vilja byrja sem fyrst á því að endurreisa götumyndina í miðbænum eftir brunann á horni Austurstrætis og Lækjargötu. Í samtali við Stöð 2 sagði Vilhjálmur lögreglu og slökkvilið hafa staðið sig vel í aðgerðunum. 18.4.2007 16:25
Sorgleg sjón fyrir miðbæinn „Þetta er mjög sorgleg sjón fyrir miðbæinn," segir Tómas Kristinsson, eigandi Café Óperu sem er á annarri hæð Lækjargötu 2 sem brennur nú í miðbænum. 18.4.2007 16:14
Húsnæði Iðu fullt af reyk Mikill reykur er inni í húsnæði Iðu sem stendur við hlið Café Óperu. Að sögn eiganda er ekki vitað hversu miklar skemmdir hafa orðið á húsnæðinu en það er nú úr allri eldhættu. Töluvert af fólki var inni í Iðu þegar vart varð við eldinn við hliðiná en vel gekk að tæma húsið. 18.4.2007 16:11
Slökkviliðsmenn leggja sig í mikla hættu Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins, sem er á vettvangi brunans í miðbænum segir slökkvistarf hafa gengið vel en mikið starf sé enn eftir. Hann segist stoltur af framgöngu sinna manna en þeir leggi sig í mikla hættu. 18.4.2007 16:01
Reykvarnarkerfi á Hótel Borg fóru í gang Öll reykvarnarkerfi á Hótel Borg fóru í gang þegar reykinn frá brennandi húsunum lagði yfir hótelið. Á hótelinu eru nú um 80 gestir og búið að loka öllum gluggum til að koma í veg fyrir reykskemmdir. 18.4.2007 15:52
Eldurinn sagður hafa kviknað í söluturni Húsin sem brenna í miðbæ eru að Lækjargötu 2 og Austurstæti 20. Að sögn heimildarmanns Stöðvar 2 og Vísis kom eldurinn upp í söluturninum Fröken Reykjavík og barst þaðan í báðar áttir. Bein útsending er á Vísi frá slökkvistarfi. 18.4.2007 15:33
Meirihluti landsmanna hlynntur því að Landspítalinn auglýsi þjónustu sína opinberlega Traust almennings til Landspítalans-háskólasjúkrahúss hefur aukist á undanförnum árum samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir spítalann. Meirihluti landsmanna eru hlynntir því að spítalinn auglýsi þjónustu sína opinberlega í fjölmiðlum. 18.4.2007 15:24
Stórbruni í hjarta borgarinnar Allt tiltækt slökkvilið berst nú við eld sem kom upp í húsi á horni Lækjargötu og Austurstrætis þar sem Kebab-húsið og veitingahúsið Prvavda eru meðal annars til húsa. Tilkynnt var um eldinn rétt fyrir klukkan tvö og segir slökkviliðið að eldur sé í þaki og steypu og um mikið verk virðist að ræða. 18.4.2007 14:15
Slökkvilið kallað að Pravda vegna elds Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur verið kvatt að veitingastaðnum Pravda í Lækjargötu í miðbæ Reykjavíkur en þar var tilkynnt um eld fyrir stundu. Ekki liggur fyrir hversu mikill hann er þar sem slökkvilið var að koma á staðinn en lið var kallað út frá öllum stöðvum. 18.4.2007 14:01
Fyrirhuguð olíuhreinsistöð þverbrýtur alþjóðlegar skuldbindingar Fyrirhuguð olíuhreinsistöð á Vestfjörðum mun þverbrjóta alþjóðlegar skuldbingar íslenskra stjórnvalda varðandi takmörkun á útstreymi gróðurhúsaloftegunda. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Náttúruverndarsamtökum Íslands. Samtökin segja árleg losun koltvísýrings vegna stöðvarinnar muni nema milljón tonnum á ári og auka útstreymi um 30 prósent hér á landi. Þau gagnrýna ráðamenn fyrir þekkingarleysi. 18.4.2007 13:55
Barnabókaverðlaun menntasviðs afhent í dag Barnabókaverðlaun menntasviðs Reykjavíkurborgar verða afhent formlega klukkan 16 í dag. Afhending fer fram í Höfða og er þetta í 35. skiptið sem verðlaunin eru afhent. 18.4.2007 13:33
Hlýtur ein æðstu vísindaverðlaun Rússlands Þorsteinn Ingi Sigfússon, prófessor við Háskóla Íslands, verða veitt Alheimsverðlaunin Global Energy International Prize fyrir rannsóknir sínar í orkumálum. Þetta var tilkynnt í dag. Verðlaunin eru ein æðsta viðurkenning rússneska lýðveldisins fyrir vísindarannsóknir. 18.4.2007 13:17
Akureyrarlistinn býður ekki fram í vor Búið er að blása af fyrirhugaðan Akureyrarlista fyrir þingkosningarnar í vor. Talsmaður listans segir að öfgafull umræða eigi þátt í þessari ákvörðun. 18.4.2007 12:45
Yfir helmingur veitingahúsa lækkaði ekki verð 1. mars Meira en helmingur veitingahúsa og sjötíu prósent mötuneyta lækkuðu ekki verð hjá sér eftir 1. mars þegar virðisaukaskattur á matvæli lækkaði. Þetta kemur fram í skýrslu Neytendastofu. Um 400 ábendingar bárust frá almenningi til stofunnar. 18.4.2007 12:28
Þyrfti 15 sinnum stærra landsvæði en birgðastöð í Örfirisey Olíuhreinsistöðin sem fyrirtækið Íslenskur hátækniiðnaður áformar að reisa á Vestfjörðum yrði jafnstór og stærsta olíuhreinsistöð í Noregi. Hún þyrfti fimmtán sinnum stærra landsvæði en olíubirgðastöðin í Örfirisey. 18.4.2007 12:16
Snjór á Akureyri á síðasta vetrardegi Norðlendingar vöknuðu upp við nokkurra sentímetra jafnfallinn snjó í morgun eftir óvenju milda tíð undanfarið. Þótti sumum það skjóta skökku við þar sem sumardagurinn fyrsti er á morgun. 18.4.2007 12:15
Dæmdur fyrir að aka undir áhrifum fjölmargra fíkniefna Karlmaður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands til að greiða 180 króna sekt í ríkissjóð fyrir meðal annars brot gegn fíkniefna- og umferðarlögum. Maðurinn keyrði undir áhrifum fjölmargra fíkniefna frá Ölfusborgum í átt að Reykjavík en endaði úti í hrauni á Hellisheiðinni. 18.4.2007 12:03
Hægt að gera við Muuga en ekki hér á landi Allar líkur eru á því að það sé hægt að koma Wilson Muuga í lag aftur. Ekki er til slippur hér á landi sem er nógu stór til þess og því þarf að draga skipið til Suður-Evrópu. Skipið náðist á flot í gær en þá höfðu tíu til tólf menn unnið nótt sem nýtan dag í sautján daga við að koma því í sjóhæft ástand. 18.4.2007 11:56
Ný könnun um fylgi flokka í SV-kjördæmi á Stöð 2 í kvöld Fjórði kosningafundur Stöðvar 2 hefst skömmu fyrir klukkan sjö í kvöld þegar oddvitar stjórnmálaflokkanna í Suðvesturkjördæmi leiða saman hesta sína í Lækjarskóla í Hafnarfirði. 18.4.2007 11:46
Boðið á leiklestur hjá LA fyrir eina krónu Leikfélag Akureyrar fagnar á morgun 90 ára afmæli sínu og af því tilefni munu leikarar leiklesa Æfintýri á gönguför í Samkomuhúsinu í kvöld klukkan 20. Miðaverð á leiklesturinn í kvöld verður það sama og árið 1907, ein króna. 18.4.2007 11:37
Sigtúnshúsið loks klárað Það er kominn tími til að klára Sigtúnshúsið við Suðurlandsbraut en rösk þrjátíu ár eru liðin frá því bygging þess hófst. Stórvirkar vinnuvélar fara nú mikinn við þetta sögufræga hús sem löngum hýsti einn vinsælasta skemmtistað landsmanna, kenndan við Sigtún. 18.4.2007 11:22
Dæmdur fyrir að stinga mann í handlegginn Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa stungið mann í handlegginn með hnífi. Atvikið átti sér stað í heimahúsi í Vestmannaeyjum þar sem nokkrir menn sátu að sumbli. 18.4.2007 10:41
Ætlaði að stytta sér leið yfir götu en endaði í fangelsi Ölvaður karlmaður sem ætlaði að stytta sér leið með því að klifra yfir götugrindverk á Snorrabraut í nótt endaði í fangelsi. Maðurinn slasaðist við klifrið og var seinna fluttur á slysadeild Landspítalans í Fossvogi en hann kvartaði undan verkjum í brjósti. 18.4.2007 10:26
Opið í Bláfjöllum í dag Skíðasvæðið í Bláfjöllum verður opið í dag, síðasta vetradag, en veður er nú mjög gott í fjöllunum og færð góð. Í Kóngsgili verða tvær lyftur opnar og þá verður kaðallyfta við Bláfjallaskála einnig opin. 18.4.2007 10:07
Reisugildi vegna nýs Háskólatorgs HÍ Starfsmenn og stúdentar Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands fagna í reisugildi í dag byggingu nýs Háskólatorgs við Háskóla Íslands. Um er að ræða tíu þúsund fermetra þjónustu- og kennslubyggingu á háskólalóðinni sem hafist var handa við fyrir réttu ári og verður vígð í lok þessa árs, á fullveldisdaginn 1. desember. 18.4.2007 10:06
Gengur vel að draga Wilson Muuga til hafnar Vel gengur að draga flutningaskipið Wilson Muuga til hafnar og er von á skipinu til Hafnarfjarðarhafnar um klukkan ellefu í kvöld. Dráttarbáturinn Magni hefur verið með skipið í togi allt frá því það var dregið á flot um sex leytið í kvöld. 17.4.2007 22:02
Hagkvæmniathugun vegna álvers á Bakka haldið áfram Iðnaðarráðuneytið, Norðurþing og Alcoa hafa komið sér saman um að halda áfram hagkvæmniathugun vegna álvers á Bakka við Húsavík. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Alcoa og Norðurþingi. 17.4.2007 20:23
Útlendingar áhugasamir um orkumál Íslendinga Áhugi umheimsins á orkumálum Íslendinga er orðinn slíkur að það er nánast í hverri viku sem einhverjir erlendir fréttamiðlar og sjónvarpsstöðvar koma til landsins til að kynnast því sem hér er að gerast 17.4.2007 20:16
Allir flokkar vilja lengja fæðingarorlofið Allir stjórnmálaflokkar landsins vilja lengja fæðingarorlofið, flestir í tólf mánuði. Enginn stærstu flokkanna vill þó lofa lengingu strax á næsta kjörtímabili. Sjálfstæðisflokkurinn vill einn flokka skoða stöðu Íbúðalánasjóðs. 17.4.2007 19:26