Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tap vegna Straumsvíkur hálfur milljarður Landsvirkjun verður að líkindum af um hálfum milljarði króna í sölutekjum frá álverinu í Straumsvík vegna óhappsins á dögunum. Stjórn fyrirtækisins felldi í dag tillögur um að svipta leyndinni af orkusölusamningunum til Alcoa. 26.6.2006 19:14
Rússneski flotinn kemur í haust Rússneski flotinn verður með umfangsmikla flotaæfingu rétt við strönd Íslands í haust, skömmu eftir að bandaríski herinn fer af landinu. Hér á landi hafa menn áhyggjur á mengunarhættu kjarnorkuknúinna skipa og kafbáta flotans sem ekki eru talin vera í sem bestu ástandi. Verið er að ganga frá samningum um leigu á fjórðu þyrlunni í þyrlubjörgunarsveit Gæslunnar. 26.6.2006 19:11
Sundabraut og hátæknisjúkrahúsi verði slegið á frest Starfandi formaður fjárlaganefndar vill að byggingu hátæknisjúkrahúss og Sundabrautar verði slegið á frest og öllu söluandvirði Símans verði varið í að viðhalda stöðugleika. 26.6.2006 19:00
Ný lög um réttarstöðu samkynhneigðra Nýju lögin um réttarstöðu samkynhneigðra sem samþykkt voru í byrjun mánaðarins munu taka gildi á morgun. Af því tilefni munu samtökin ' 78 efna til hátíðarsamkomu í Listasafni Reykjavíkur á morgun. 26.6.2006 18:45
Flugmaður í átökum Persónuvernd hefur úrskurðað að sýslumanninum á Keflavíkurflugvelli hafi verið óheimilt að senda yfirmanni flugmanns hjá Icelandair skýrslu um meint átök hans og starfsmanns IGS síðast liðið sumar. 26.6.2006 18:13
George Bush eldri á leiðinni til Íslands George H. W. Bush, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur þekkst boð forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar um að koma í heimsókn til Íslands 4.-7. júlí næstkomandi. 26.6.2006 18:01
Þjónar best hagsmunum fyrirtækisins að gefa ekki upp orkuverð Stjórn Landsvirkjunar ákvað á fundi sínum í dag að raforkuverð til Alcoa verði ekki gert opinbert. Stjórnin telur það þjóna best hagsmunum fyrirtækisins að orkuverð fáist ekki gefið upp. Helgi Hjörvar ætlar að taka málið upp á Alþingi. 26.6.2006 17:50
20.000 undirskriftir safnast í undirskriftarsöfnun Yfir 20 þúsund undirskriftir hafa safnast í undirskriftarsöfnun samtakanna Blátt áfram þar sem alþingismenn eru hvattir til að samþykkja lagafrumvarp Ágústs Ólafs Ágústsonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um afnám fyrningarfresta í kynferðisbrotum gegn börnum. 26.6.2006 16:19
Reykhólahreppur dæmdur til greiðslu bóta Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í dag að ekki sé leyfilegt að ráða aðra en sjúkraliða til sérhæfðra umönnunar og eða hjúkrunarstarfa nema að undangengin auglýsing hafi ekki borið árangur. 26.6.2006 15:43
Hagvöxtur meiri á Norðurlöndunum en á evrusvæðinu Hagvöxtur er meiri á Norðurlöndunum en að meðaltali í löndum á evrusvæðinu og almennt nokkuð mikill, þótt hann sé hvergi eins mikill og á Íslandi. 26.6.2006 15:31
Raforkuverð Alcoa ekki gert opinbert Stjórn Landsvirkjunar ákvað á fundi sínum í dag að það raforkuverð sem Alcoa greiðir til Landsvirkjunar verði ekki gert opinbert. Helgi Hjörvar, stjórnarmaður í stjórn Landsvirkjunar, lagði tillöguna fram eftir að forstjóri Alcoa sagði fyrirtækið greiða helmingi hærra verð fyrir raforku til álvers í Brasilíu. Hann hefur síðan sagt að hann hafi farið með rangt mál. 26.6.2006 15:00
GPS-tæki fræðir farþegana Avis-bílaleigan á Íslandi býður nú upp á nýja tækni sem hefur verið þróuð þar sem rödd fararstjóra hefur verið tengd við GPS-tæki. Tækið virkar þannig að þegar bíllinn er við sögufrægan stað hefur tækið upp raust sína og segir farþegum allt það helsta frá viðkomandi stað 26.6.2006 14:30
Þróa nýtt lyf við astma Allt útlit er fyrir að nýtt lyf við astma komi á markað innan fárra ára. Þróun lyfsins er komin langt á veg en lyfið hefur jákvæð áhrif á bólguþátt sem tengist astma en er þó ekki steralyf. Íslensk erfðagreining hóf lyfjaprófanir á tilraunalyfi við astma í maí 2005 í samstarfi við erlent lyfjafyrirtæki sem upphaflega þróaði lyfið við öðrum sjúkdómi. 26.6.2006 12:30
Stjórnendur Baugs vildu semja við Jón Gerald Stjórnendur Baugs vildu semja við Jón Gerald Sullenberger, fyrrverandi viðskiptafélaga sinn, um uppgjör á öllum skuldum og skuldbindingum við hann eftir að Baugur höfðaði mál á hendur Jóni Gerald í Flórída á sínum tíma. Þetta kemur fram í viðtali við Jón í Morgunblaðinu í morgun. 26.6.2006 12:15
Ósamið við alla ríkisstarfsmenn Ósamið er við alla ríkisstarfsmenn eftir að samkomulag náðist á hinum almenna vinnumarkaði um að framlengja kjarasamninga. Starfsmannafélag ríkisstarfsmanna hefur óskað eftir launaviðræðum við fjármálaráðuneytið. 26.6.2006 12:00
Ætlar að bæta viðskiptavinum sínum upp álagninguna Eigandi Bæjarins bestu hyggst bæta viðskiptavinum sínum upp óvænta og stórfellda verðhækkun á pylsu og kók aðfaranótt sunnudags. Starfsmaður í afleysingum ákvað upp á sitt einsdæmi að setja næturálagningu á þennan þjóðarrétt Íslendinga umrædda nótt. 26.6.2006 11:54
Fleiri karlar í atvinnuleit Heldur fleiri karlar en konur voru að leita sér að starfi hér á landi í apríl og maí sl., eða 12% karla og 8% kvenna. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Gallup gerði fyrir Jafnréttisráð. Ekki er marktækur munur milli kynja á því hvort skipt hafi verið um vinnuveitanda á síðastliðnum tveimur árum. 26.6.2006 11:31
Jákvæðar niðurstöður nýrra lyfjaprófana Íslensk erfðagreining kynnti í dag fyrstu niðurstöður fyrirtækisins á tilraunalyfi meðal astmasjúklinga. Lyfið reyndist hafa jákvæð áhrif á ýmsa þætti lungnastarfsemi og án þess að nokkrar alvarlegar aukaverkanir kæmu fram. 26.6.2006 09:43
Landsmót hestamanna hefst í dag Búist er við allt að 12 þúsund tvífættum gestum á Landsmót hestamanna, sem hefst á Vindheimamelum í Skagafirði í dag og stendur í viku. Þar munu hestamenn og hestaræktendur leiða saman um þúsund hesta sína, allt gæðinga. 26.6.2006 09:30
Sumar hálendisleiðir enn lokaðar fyrir umferð Enn eru nokkrar hálendisleiðir lokaðar fyrir allri umferð meðan frost er að fara úr jörð en annars er færð víðast hvar með eðlilegu móti miðað við árstíma. Næstkomandi fimmtudag verður gefið út kort um leyfðan akstur á vegum í óbyggðum. 26.6.2006 09:18
200 laxar veiðst í Norðurá Um 200 laxar hafa veiðst í Norðurá, það sem af er veiðitímabilinu sem mun vera meiri veiði en í nokkurri annarri á. Rétt er að taka fram að þar hefst veiðinn fyrr en í mörgum öðurm ám og þar veiða fleiri í einu en víða annarsstaðar. 26.6.2006 09:15
Ráðherrafundur EFTA hefst í dag Ráðherrafundur EFTA ríkjanna hefst á Höfn í Hornafirði í dag og lýkur á morgun. Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra stýrir fundinum en Ísland fer nú með formennsku í EFTA. 26.6.2006 08:58
Botninn dottinn úr síldveiði í bili Botninn virðist vera dottinn úr síldveiðunum í bili og eru nú öll síldveiðiskipin að leita úti fyrir norðanverðu Ausutrlandi, samkvæmt fregnum af miðunum í morgun. 26.6.2006 08:30
Sinueldur við Fossatún Slökkvilið og lögregla í Borgarnesi brugðust skjótt við þegar tilkynnt var um sinueld við Fossatún, skammt frá bænum um miðjan dag í gær, enda björgunarmenn minnugir stórbrunanna á Mýrum í vor. Tókst björgunarmönnum að slökkva eldinn á rúmri klukkustund en slökkviliðsmenn vöktuðu svæðið lengur. 26.6.2006 08:15
Steytti á skeri í Berufirði Betur fór en á horfðist þegar hraðfiskibáturinn Anna var að koma úr róðri í gær og steytti á skeri í Berufirði, með þeim afleiðingum að mikill leki kom að bátnum. Skipstjórinn ákvað að sigla honum upp í fjöru og kalla eftir aðstoð björgunarsveitar, slökkviliðs og lögreglu, sem komu á vettvang. 26.6.2006 07:45
Mínúturnar á milljónir króna Það eru Íslendingar sem framleiða það efni sem selst hraðast í heiminum í dag. Í grein danska blaðsins Politiken er fjallað ítarlega um Latabæjarþættina og sagt að það kosti sextíu og tvær milljónir að framleiða hvern þátt, eða tvær komma sex milljón krónur mínútan. 25.6.2006 19:19
Hefur heyrt að starfsfólki hafi verið hótað Trúnaðarmaður starfsfólks Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli hefur heyrt að erlendum starfsmönnum hafi verið hótað brottvísun úr landi ef þeir tækju þátt í mótmælaaðgerðum starfsfólksins í dag. Litlar tafir urðu á millilandaflugi frá Keflavíkurflugvelli í morgun þrátt fyrir aðgerðir starfsfólks Flugþjónustunnnar. 25.6.2006 19:14
Hætta við skólagöngu vegna langra biðlista Dæmi eru um að nýbúar hafi hreinlega gefist upp á að fara í nám á efri skólastigum hér á landi þar sem biðin til að komast á þéttsetna bekki framhaldsskólanna er hreinlega of löng. 25.6.2006 19:00
Bíða eftir framlengingu dvalarleyfis Hjón með tvö ung börn,sem dvalið hafa hér á landi í þrjú ár, bíða nú eftir framlengingu dvalarleyfis. Börnin þeirra þekkja ekkert annað land en Ísland og segir móðir þeirra ekki geta hugsað til þess að þau fái ekki að dvelja hér áfram. Yana frá Úsbekistan og Ramin Sana frá Afganistan voru meðal hælisleitenda árið 2003. Þeim fæddist sonur á meðan þau biðu eftir úrskurði um hæli hér á landi og mál þeirra vakti athygli á þeim tíma. Dvalarleyfi þeirra er nú runnið út en þau bíða eftir svari um hvort þau fái að dveljast hér til ársins 2007. Eldri sonur þeirra Thomas verður þriggja ára í nóvember. Hann þekkir ekkert annað land en Ísland og það gerir yngri sonurinn Daniel ekki heldur en hann er reyndar nýorðinn mánaðar gamall og þekkir því fátt annað en mjúkan móðurfaðminn. Jana og Ramin hafa bæði stundað nám hér á landi þó Jana sé nú frá námi af skiljanlegum ástæðum. Hana dreymir um að fá að komast í Kennaraháskólann. Þau hafa komið sér vel fyrir á Íslandi og vona að fá að vera áfram enda vill Jana ekki einu sinni hugsa um hvað yrði ef dvalarleyfi þeirra verður ekki framlengt. Þau segja Íslendinga hafa verið þeim hjónum afar góð. 25.6.2006 18:42
Fjórbrotnaði á ökkla við lundaskoðun Bandarísk kona fótbrotnaði illa í Stórhöfða síðdegis í gær. Læknisskoðun leiddi í ljós, að konan var fjórbrotin við ökkla og var hún flutt með sjúkraflugvél til Reykjavíkur þar sem gert var að brotinu. 25.6.2006 12:13
Millilandaflug að mestu á áætlun Millilandaflug er að mestu á áætlun þrátt fyrir aðgerðir starfsmanna IGS, dótturfélags Icelandair sem sér um þjónustustörf í Leifsstöð. En það lagði niður störf í morgun til að reyna knýja fram bætur á kaupum og kjörum sínum. Búist var við meiriháttar seinkunum á flugi til og frá landsins. Svo fór þó ekki. Yfirmenn gengu í störf þeirra sem lögðu niður vinnu og einhverjir starfsmenn tóku ekki þátt í aðgerðunum en þeim lauk klukkan átta. Aðeins urðu smávægilegar breytingar á flugi. Á starfsmannafundi sem haldinn var í gær ákvað starfsfólkið að leggja aftur niður störf næstu helgi, næðust ekki samningar um við Icelandair. Fulltrúar starfsmanna funduðu með Jóni Karli Ólafssyni, forstjóra Icelandair, milli klukkan sjö til átta. Starfsmennirnir sögðu fundinn hafa verið góðan og eru þeir bjartsýnir á framhaldið. 25.6.2006 08:17
Stór hluti starfsmanna IGS hefur lagt niður vinnu Stór hluti starfsmanna IGS, Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli, hefur lagt niður vinnu. Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, segir yfirmenn hafa gengið í nokkur af störfunum til að reyna að koma í veg fyrir miklar tafir. Innritun gengur vel og enn eru engar tafir en hann segir erfitt að segja til um hvað verður. Starfsmenn Flugþjónustunnar eru nú að safnast saman í komusal flugstöðvarinnar. 25.6.2006 05:39
Skógarhöggsmaður Íslands varði titilinn Skógarhöggsmaður Íslands varði titil sinn á Íslandsmeistaramótinu í skógarhöggi sem haldið var í Hallormsstaðaskógi í blíðskaparveðri í dag. Lárus Heiðarsson skógræktarráðunautur stóð uppi sem sigurvegari í lok dagsins og heldur því titlinum skógarhöggsmaður Íslands annað árið í röð. 24.6.2006 19:30
Attenborough sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við HÍ David Attenborough var sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Háskóla Íslands við útskrift skólans í dag. Hátt í eitt þúsund stúdentar voru brautskráðir frá Háskóla Íslands í dag. 24.6.2006 19:09
Hungraðir mávar á Sandskeiði Hungraðir mávar sjást víðs vegar í fæðuleit og hafa þeir til dæmis valdið flugmönnum á Sandskeiði vandræðum. En þar hafa þeir sótt í kjötmjöl sem dreift var á melana þar til uppgræðslu. Margir sem hafa átt leið um Sandskeið síðustu tvær vikurnar hafa eflaust orðið varir við mergð máva skammt við flugvöllinn þar. Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs eru samtök sem standa að uppgræðslu með lífrænum úrgangi og gerðu þau nú í júní tilraun með kjötmjöl til uppgræðsu. Dreifing kjötmjölsins, sem unnið er úr sláturúrgangi, var gerð í samráði við heilbrigisyfirvöld á staðnum og yfirdýralækni og eiga ekki að ógna vatnsbólum á nokkurn hátt. Vegna mávanna var ákveðið að hætta dreifingu kjötmjölsins á Sandskeiði og fara með hluta kjötmjölsins og dreifa því á sandana við Þorlákshöfn þar sem ekki er hætta á að mávar trufli flugumferð. 24.6.2006 19:04
Condolezza Rice óskar Valgerði til hamingju Condolezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, óskaði í dag Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra til hamingju með efnahagsárangurinn á Íslandi sem Rice taldi Valgerði að þakka frá árum hennar sem iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Í símtali í dag ítrekaði Rice við Valgerði þá ósk að lending næðist í varnarmálaviðræðum ríkjanna á næsta fundi sendinefndanna í næsta mánuði. 24.6.2006 18:58
Nýbúi útskrifast úr Kennaraháskólanum Fyrsti nýbúinn frá Asíu útskrifaðist úr Kennaraháskóla Íslands í dag. Hún kom til landsins fyrir tólf árum og vonar að hún verði öðrum nýbúum hvatning til þess að feta menntaveginn. 24.6.2006 18:48
Búast má við töfum tvöþúsund farþega Starfsmenn Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli ætla að leggja niður störf frá klukkan fimm í fyrramálið til klukkan átta. Ekkert þokast í deilu starfsfólksins og stjórnenda Flugþjónustunnar þrátt fyrir fundarhöld í dag. Farþegar á leið til og frá landi á morgun mega búast við nokkrum töfum. Deilur hafa staðið í nokkurn tíma milli stjórnenda Flugþjónustunnar og starfsmanna, sem meðal annars sinna innritun í flug og hleðslu farangurs í flugvélarnar. Starfsmennirnir eru óánægðir með kjör sín og vinnuaðstöðu og segja þeir álagið oft keyra fram úr hófi. Ákveðið var að boða til setuverkfalls til krefjast bóta á núverandi ástandi. Gunnar Olsen, framkvæmdastjóri Flugþjónustunnar, fundaði í dag með starfsmönnum hjá öllum deildum. Á fundunum var reynt að afstýra boðum aðgerðum. Gunnar sagði þá hafa rætt málin og útskýrt fyrir stafsmönnum að um ólöglegar aðgerðir væri að ræða sem gætu haft afleiðingar í för með sér. Hann sagði eftir fundina að hann vonaðist til þess að starfsfólkið myndi sinna störfum sínum á morgun en þó væri ómögulegt að segja til um hvort af aðgerðunum yrði. Samkvæmt heimildum NFS er mikill hiti í starfsfólkinu og jókst eftir fundina í dag. Eftir fundi með Gunnari í morgun var þegar boðað til neyðarfundar þar sem allir viðstaddir greiddu atkvæði með aðgerðum á morgun. Starfsmennirnir eru ósáttir við að hafa ekki fengið nein svör í dag og segja viðmót yfirmanna á fundunum síst til þess fallið að lægja öldur. Starfsmennirnir segja ekkert duga nema aðgerðir og segja þá sem verða á vakt á morgun ætla að leggjan niður vinnu og hina að mæta í Flugstöðina og sitja með þeim til að sýna þeim samstöðu en um nokkur hundruð starfsmenn er að ræða. Samkvæmt heimildum NFS er nú enn meiri samstaða meðal starfsfólks og ef bótakrafa verið gerð á hendur þeim eftir aðgerðirnar þá ætli allir starfsmenn að kasta frá sér aðgangskortum og ganga út af vinnustaðnum. Stup Jón Karl. Aðgerirnar, ef af þeim verður, munu hafa áhrif á ferðir um tvö þúsund farþega til og frá landinu. Starfsmenn sem NFS ræddi við í morgun segir erfitt að ráðleggja farþegum hvernig þeir eigi að haga áætlunum sínum á morgun þegar búast má við töfum. En verði af aðgerðum, sem allt bendir til, má búast við að áætlanir riðlist fram eftir degi. 24.6.2006 18:46
Unglingsstúlkur í brjóstastækkanir Dæmi eru um að stúlkur allt niður í fimmtán ára aldur leiti til lýtalækna til að breyta útliti sínu. Lýtalæknar segja að slíkt sé aðeins gert í undantekninga tilfellum og þá helst ef sálfræðingur vísi þeim til þeirra. Lýtalæknirinn Ottó Guðjónsson sagðist kannast við að svo ungar stúlkur gengjust undir útlitsbreytingar þó hann legði á það ríka áherslu að slíkt væri aðeins gert í undantekninga tilvikum. 24.6.2006 14:07
Stefnir í vinnustöðvun á Keflavíkurflugvelli Enn er stál í stál í deila starfsfólks og stjórnenda Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli. Samkvæmt upplýsingum NFS hafa fundir framkvæmdastjóra með starfsmönnum í morgun ekki skilað tilætluðum árangri og komið í veg fyrir vinnustöðvun í fyrramálið. 24.6.2006 13:06
Hluti lyflækningadeildar í einangrun Hluti af lyflækningadeild Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvoginum hefur verið sett í einangrun eftir að veirusýking kom þar upp. Á deildinni eru þrettán sjúklingar og nokkrir starfsmenn og hefur hluti þeirra fengið veirusýkinguna sem felur í sér uppsöl og niðurgang. 24.6.2006 12:22
Vélarvana við strendur Grindavíkur Lítill fiskibátur varð vélarvana úti fyrir ströndum Grindavíkur laust fyrir hádegi . Starfsmenn Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar þar í bæ kváðust hafa sent út bát af öryggisátæðun sem væri að fylgja skipverjum til hafnar. 24.6.2006 12:14
Tómas Zoëga verður ekki aftur yfirlæknir Tómas Zoëga hefur látið af störfum við Landspítala Háskólasjúkrahús. Hæstiréttur Íslands úrskurðaði fyrr í mánuðinum að tilfærsla Tómasar í starfi hafi verið ólögmæt. 24.6.2006 10:51
Kattholt yfirfullt og fjárvana Kattholt er yfirfullt og fjárvana. Formaður Kattavinafélags Íslands á í deilum við nágrannasveitarfélögin um greiðslur fyrir dýrin. Sífellt færist í aukana að kettir séu skildir eftir í pappakössum á þröskuldi Kattholts auk þess sem kettir finnast á vergangi hingað og þangað um höfuðborgarsvæðið. 24.6.2006 09:56
Þrír teknir á ofsahraða Lögreglan á Keflavíkurflugvelli gómaði í nótt þrjá ökumenn á ofsahraða á Strandarheiði. Sá sem hraðast ók var á 182 km. Hann var sviptur ökuskírteininu á staðnum en við það kom í ljós að pilturinn var ekki kominn með fullgilt skírteini. Í síðustu viku varð slys á þessu svæði og segir lögreglan að það sé leitt að sjá að slíkir atburðir hafi ekki þau áhrif að ökumenn sjái sóma sinn í að aka á skikkanlegum hraða. 24.6.2006 09:51