Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Menntamálaráðherra efins um framhaldið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, sagði á Alþingi í morgun, að samræmd próf í núverandi mynd, í framhaldsskólum heyri líklega sögunni til, hún var þó ekki reiðubúin að slá þau af fyrr en að höfðu samráði við fagaðila. 6.12.2005 12:05
Ráðherra gerir alvarlegar athugasemdir við öryrkjaskýrslu Heilbrigðisráðherra mun í dag gera alvarlegar athugasemdir við skýrslu Stefáns Ólafssonar prófessors um hag öryrkja á Íslandi í samanburði við hag öryrkja annars staðar á Norðurlöndum. Stefán hefur nú þegar gert lítið úr athugasemdum forsætisráðherra, sem sagði að niðurstöður Stefáns væru rangar í mörgum meginatriðum. 6.12.2005 12:00
Héraðsdómshús landsins plástruð í dag Plástrar verða settir á héraðsdómshús landsins í dag í því augnamiði að vekja athygli á vanheilsu réttarkerfisins eins og það er orðað. Að plástruninni standa þau samtök og þær stofnanir sem standa að 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi undir yfirskriftinni: Heilsa kvenna, heilsa mannskyns: stöðvum ofbeldið. 6.12.2005 11:45
Útskrifaður af gjörgæsludeild eftir bílslys Maðurinn sem sem slasaðist alvarlega í hörðum árekstri jeppa og fólksbíls á mótum Akrafjallsvegar og Akranesvegar í fyrrakvöld, er enn á gjörgæsludeild en verður líklega útskrifaður þaðan síðar í dag og fluttur á almenna deild, að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild. 6.12.2005 11:15
Aukinn búðarþjófnaður um jólin Búðarþjófnaður tvöfaldast í desembermánuði á ári hverju. Mikið af fólki eru þá í verslunum og nýta þjófarnir sér það, sem sumir hverjir eru mjög bíræfnir. 6.12.2005 10:45
Enn á gjörgæsludeild eftir bruna Annar drengjanna sem brenndust illa þegar þeir voru fikta við eldfiman vökva í Grafarvogi fyrir rúmum tveimur vikum er enn á gjörgæslu, að sögn vakthafandi læknis. Ástand drengsins er stöðugt en óljóst er hvenær hann verður fluttur á almenna deild þar sem félagi hans dvelur nú, en hann brenndist ekki eins illa. 6.12.2005 10:15
Óvenjumikið um ótryggða og óskoðaða bíla Óvenju mikið erum ótryggða og óskoðaða bíla í umferðinni um þessar mundir og hefur Umferðarstofa sent lögregluembættum þrjátíu og þrjár þéttskrifaðar blaðsíður með númerum þessara bíla. 6.12.2005 10:00
Ýsan í sjötta sæti á fiskmörkuðum Ýsan, sem trónir lang efst á sölulista allra fiskbúða og endurspeglar þannig smekk flestra landsmanna á fisk, er hinsvegar í sjötta sæti á fiskmörkuðum, sem endurspeglar frekar smekk útlendinga. 6.12.2005 09:45
Sjúkraliðar semja við Launanefnd sveitarfélaga Sjúkaraliðafélag Íslands og launanefnd sveitarfélaga undirrituðu nýjan kjarasamning í gærkvöldi. Hann mun vera á sömu nótum og samningur sjúkraliða við Reykjavíkurborg og ríkið, sem nýverið voru gerðir. Nýi samningurinn verður borinn undir atkvæði félagsmanna á næstunni 6.12.2005 09:30
Svifryksmengun fimm sinnum yfir heilsuverndarmörk Svifryksmengun hefur fimm sinnum farið yfir heilsuverndarmörk í Reykjavík upp á síðkastið, síðast á laugardaginn. Þetta er samkvæmt mælingum við Grensás, en dæmi eru um hið sama víðar í borginni, til dæmis í Húsdýragarðinum. 6.12.2005 09:15
Formannsskipti í Mosfellsbæ Bjarki Bjarnason tók við formennsku í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði af Ólafi Gunnarssyni á aðalfundi félagsins í síðustu viku. Ólafur hafði gegnt formennsku frá stofnun félagsins árið 2001. 6.12.2005 09:00
Verðið lækkar mest í Nettó Verð matvælakörfunnar hefur lækkað um þrettán prósent í Nettó frá í byrjun október samkvæmt verðkönnun ASÍ sem gerð var undir lok síðasta mánaðar. 6.12.2005 08:45
Dæmdir fyrir að koma afla undan vigtun Tveir menn voru sakfelldir í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir brot á lögum um umgengni um nytjastofna sjávar og reglugerð um afladagbækur og vigtun sjávarafla. 6.12.2005 08:30
Mikil hálka á Austur- og Norðausturlandi Veruleg hálka er á milli Raufarhafnar og Þórshafnar og um Brekknaheiði. Mjög mikil hálka er einnig frá Egilsstöðum til Reyðarfjarðar um Fagradal og þaðan um Hólmahálsinn til Eskifjarðar, þar er einnig þoka. 6.12.2005 08:30
Hrímþoka á Akureyri Hrímþoka hefur verið á Akureyri í alla nótt og hefur hrímið meðal annars sest á allar trjágreinar og breitt eins konar flosteppi á jörðina. Stillt veður er í bænum og að sögn sjónarvotta var hann einna líkastur undraveröld í morgunsárið þegar birtan frá jólaljósunum brotnaði í ískristöllum út um allt. 6.12.2005 08:15
Ekkert samráð við íbúa eins og samþykkt var Samþykkt borgarstjórnar um samráð við íbúa um lagningu Sundabrautar eru virt að vettugi, að sögn stjórnarmanns hjá Íbúasamtökum Laugardals. Samtökin skora á alþingismenn að hafna frumvarpi um ráðstöfun á andvirði Landssímans, þar sem í því felist að við lagningu Sundabrautar verði farin svokölluð innri leið. 6.12.2005 08:00
Safnað á fölskum forsendum Félagsmál Mæðrastyrksnefnd í Kópavogi er ósátt við hvernig Mæðrastyrksnefnd Reykavíkur kynnir sig þegar styrkjum er safnað fyrir jólin. "Það er óeðlilegt að hringja og kynna sig bara sem Mæðrastyrksnefnd. Á landinu starfa sjö slíkar," segir María Marta Einarsdóttir, gjaldkeri Mæðrastyrksnefndar í Kópavogi. 6.12.2005 07:45
Lögreglumenn úr Reykjavík til að aðstoða við rannsókn á bruna Tveir sérfræðingar úr tæknideild lögreglunnar í Reykjavík eru væntanlegir til Ísafjarðar fyrir hádegi til að aðstoða lögregluna þar við að rannsaka eldsupptök í tvíbýlishúsi við Aðalstræti í gær þar sem karlmaður á sextugsaldri fórst. 6.12.2005 07:30
Kominn til meðvitundar eftir árás á Laugavegi Maðurinn, sem ráðist var á á Laugaveginum aðfararnótt laugardags, komst til meðvitundar á gjörgæsludeild Landsspítalans í gær og er á hægum batavegi .Árásarmaðurinn játaði verknað sinn við yfirheyrslur í gær og var sleppt að því loknu, en hann hafði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. 6.12.2005 07:15
Geir er sáttur við svörin Geir H. Haarde utanríkisráðherra telur að með yfirlýsingu Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í gær hafi íslensk stjórnvöld fengið fullnægjandi svör við spurningum um meinta fangaflutninga bandarísku leyniþjónustunnar um íslenska lofthelgi og flugvelli. 6.12.2005 07:00
Ikea flytur inn næsta haust Framkvæmdir eru hafnar við byggingu tæplega 21 þúsund fermetra stórverslunar Ikea í Urriðaholti í Garðabæ. Gert er ráð fyrir að Ikea flytji í nýja húsnæðið næsta haust og loki þá um leið versluninni í Klettagörðum. Gengið hefur verið frá því að Byko byggi tólf þúsund fermetra verslun í Urriðaholti og hefjast framkvæmdir eftir áramót. 6.12.2005 07:00
Útvarpsstjóri ánægður með nýtt frumvarp Páll Magnússon, útvarpsstjóri, er ánægður með nýtt frumvarp þess efnis að Ríkisútvarpinu verði breytt í hlutafélag. Hann telur að það muni styrkja sérstöðu Ríkisútvarpsins. 6.12.2005 07:00
Ríkisútvarpið verður gert að hlutafélagi Nýtt frumvarp um Ríkisútvarpið var kynnt í stjórnarflokkunum í gær. Ekki verður heimiluð sala þótt Ríkisútvarpinu verði breytt í hlutafélag. Menntamálaráðherra segir nefskatt léttari fyrir heimilin en afnotagjöld. 6.12.2005 06:45
Háseti missti fót við ökkla Skipstjóri á togveiðibáti hefur verið dæmdur í mánaðarfangelsi og sviptur skipsstjórnarréttindum í þrjá mánuði vegna slyss sem varð um borð vestur af Sandgerði 10. mars sl. Fangelsisvistin var skilorðsbundinn í þrjú ár. 6.12.2005 06:30
Árásarmaður játaði sök Karlmanni á þrítugsaldri, sem sat í gæsluvarðhaldi vegna stórfelldrar líkamsárásar á rúmlega þrítugan mann um helgina, hefur verið sleppt eftir að hann játaði sök. Málið telst upplýst, að sögn Harðar Jóhannessonar, yfirlögregluþjóns í Reykjavík. 6.12.2005 06:30
Fávitar og örvitar teknir úr reglugerð Stutt er síðan Íslendingar notuðu orðin fávitastofnanir, fávitar, vanvitar og örvitar í opinberum gögnum og manna á milli. Þessi orð heyrast ekki lengur um málefni þroskaheftra. Á árum áður var haldin spjaldskrá yfir fávita og örvita. 6.12.2005 06:15
Maður lét lífið í eldsvoða Maður lést í eldsvoða á Ísafirði í gærdag. Tilkynnt var um eld í íbúð að Aðalstræti, sem er við miðbæinn, skömmu fyrir klukkan fjögur. Slökkvilið og lögregla komu fljótlega á vettvang og fór reykkafari inn í íbúðina og fann þar íbúa hennar látinn. Enginn annar var í íbúðinni. 6.12.2005 06:15
Þingmenn vilja lægri sektir Frestað hefur verið fram yfir áramót máli sem rekið er í Héraðsdómi Reykjavíkur á hendur framkvæmdastjóra og stjórnarmanni flutningafyrirtækis sem sakaður er um að standa ekki skil á virðisaukaskatti og opinberum gjöldum árin 2000 til 2002. Í millitíðinni gætu lög um brot mannsins breyst. 6.12.2005 06:00
Næstir á eftir finnska ríkinu Eignarhlutur Straums - Burðaráss í finnska flugfélaginu Finnair er kominn upp í tæp ellefu prósent. Straumur, sem er næststærsti hluthafinn í flugfélaginu á eftir finnska ríkinu, hefur verið að bæta við sig hlutum jafnt og þétt á árinu. 6.12.2005 06:00
Hátæknisjúkrahús við brautarenda Reykjavíkurflugvallar Deilt er um hvort flugvöllurinn í Vatnsmýrinni muni þjóna landsbyggðinni nægilega vel ef ákveðið verði finna honum nýjan stað. Formaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar segir það einungis spurningu hvert flugvöllurinn fari. 6.12.2005 06:00
Endursýningar á gömlu íslensku efni Rætt hefur verið um hlutverk Ríkisútvarpsins hvað varðar varðveislu og aðgengi að gömlu íslensku sjónvarpsefni. Þykir mörgum sem vinna að heimildamyndum Ríkisútvarpið selja gamalt myndefni of háu verði. 6.12.2005 06:00
Hálfur milljarður í rekstrarafgang Samkvæmt drögum að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að tekjur umfram gjöld nemi um hálfum milljarði króna. Áætlunin miðast við að íbúar sveitarfélgsins verði um 5.300 í árslok og er þá ekki tekið tillit til íbúafjölgunar samhliða sameiningu Fjarðabyggðar, Austurbyggðar, Mjóafjarðarhrepps og Fáskrúðsfjarðarhrepps í sumar. 6.12.2005 05:45
Stefna gefin út á Nýgifs Búið er að gefa út stefnu fyrir hönd Brasilíumannanna fimm sem störfuðu hjá Nýgifs og verður málið tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í næstu viku. Einnig hefur verið óskað kyrrsetningar á fjármunum Nýgifs til tryggingar kröfu Brasilíumannanna. 6.12.2005 05:45
Fótbrotnaði eftir árás fíkils Íbúar við Laugaveg segja að sóðaskapurinn þar sé yfirgengilegur eftir nætur um helgar. Fólk noti lóðirnar sem salerni og skilji eftir sig tómar flöskur, dósir, sprautur og annan óþverra. Nýlega varð einn íbúinn fyrir árás fíkniefnaneytanda um hábjartan dag og fótbrotnaði í viðureigninni. 6.12.2005 04:45
Ribbaldakapitalismi á matvörumarkaði? Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að hér á landi ríki einhvers konar ribbaldakapitalismi eins og í Rússlandi á frumskeiði markaðsvæðingar. Þetta sagði hún í ljósi þess að hér ríkti einokun á matvörumarkaði þar sem Baugur hefði hér rúmlega 60 prósenta markaðshlutdeild. Spurði hún viðskiptaráðherra um það hvernig bregðast skyldi við. 5.12.2005 23:40
Steypa stífluvegg í skammdeginu Einhverjir harðsnúnustu byggingaverkamenn landsins steypa þessa dagana tvöhundruð metra háan og snarbrattan stífluvegg Kárahnjúkastíflu í fimbulkulda og skammdegi. Þetta eru einkum Kínverjar sem vinna störf sem hraustir íslenskir karlmenn hafa hrökklast frá. 5.12.2005 23:39
Telur iðnaðar- og viðskiptaráðherra mæla fyrir tæknilegum viðskiptahindrunum Varaformaður Samfylkingarinnar telur iðnaðar- og viðskiptaráðherra mæla fyrir tæknilegum viðskiptahindrunum. Í ljós hefur komið að heildarkostnaður við endurbætur á varðskipinu Ægir í Póllandi var 2 milljónum króna yfir tilboða Slippstöðvarinnar á Akureyri. 5.12.2005 23:31
Auglýsir eftir stefnu í loftlagsmálum Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, auglýsti eftir stefnu stjórnvalda í loftlagsmálum, það er, hvernig ríkisstjórnin ætlar að bregðast við hinni miklu vá sem af loftlagsbreytingum kann að hljótast. Umhverfisráðherra segir að stjórnvöld muni þrýsta á Bandaríkin og Ástralíu að taka þátt í Kyoto-bókuninni. 5.12.2005 23:26
Seðlabankastjóri segir að núverandi gengi krónunnar muni ekki standast Davíð Oddsson seðlabankastjóri segir að núverandi gengi krónunnar muni ekki standast en menn séu að búa í haginn fyrir það að óhjákvæmileg breyting verði þolanleg. Gengi krónunnar lækkaði um 1,3% í dag og hefur nú krónan lækkað um 5% á skömmum tíma. 5.12.2005 23:15
Hefur óskað eftir minnisblaði sem ríkisábyrgðarsjóður sendi Fjármálaráðuneytinu Lúðvík Bergvinsson hefur óskað eftir minnisblaði sem ríkisábyrgðarsjóður sendi Fjármálaráðuneytinu um afstöðu hans til frekari ríkisábyrgðar vegna Íbúðalánasjóðs. Hann segir að þingið geti ekki tekið upplýsta afstöðu fyrr en minnisblaðið liggi fyrir. 5.12.2005 22:59
Ríkisútvarpinu verður breytt í hlutafélag Ríkisútvarpinu verður breytt í hlutafélag, samkvæmt frumvarpi sem þingflokkar ríkisstjórnarinnar samþykktu að leggja fram í dag. Ekki er einhugur innan stjórnarflokkanna um málið. 5.12.2005 22:51
Maður lést í eldsvoða á Ísafirði Rúmlega fimmtugur maður lést í eldsvoða á heimili sínu á Ísafirði í dag. Slökkviliðið var enn að störfum við að ráða niðurlögum eldsins um kvöldmatarleiti. Tilkynnt var um eld í íbúð við Aðalstræti 25 í gegnum neyðarlínu rétt fyrir klukkan fjögur í dag. 5.12.2005 22:32
Utanríkisráðherra segir yfirlýsingu Condoleezzu Rice svara spurningum íslenskra stjórnvalda um ólögmæta fangaflutninga Í yfirlýsingu sem Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sendi frá sér í dag segir hún leyfilegt samkvæmt alþjóðalögum að flytja fanga milli landa sem ekki hefur verið réttað yfir. Condoleezza sagði jafnframt að bandarísk stjórnvöld gangi úr skugga um að hvers lags yfirheyrsluaðferðir sé við lýði í þeim löndum sem taka á móti föngunum. Bandarísk yfirvöld líði ekki að fangar séu pyntaðir. 5.12.2005 21:48
Og Vodafone margfaldar flutningsgetu GSM notenda: Og Vodafone hefur tekið í notkun svokallaða EDGE tækni (Enhanced Data Rates for Global Evolution) sem margfaldar flutningsgetu í farsímum viðskiptavina fyrirtækisins. EDGE nær fyrst um sinn til viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu og í Eyjafirði. 5.12.2005 20:30
Bráðamóttaka við Sjúkrahúsið Vog opnuð á ný á morgun Bráðamóttaka fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga verður opnuð á ný við Sjúkrahúsið á Vogi á morgun. Á síðastliðnum tveimur mánuðum hefur tekist að tryggja næga fjármuni til að opna bráðmóttökuna á ný. 5.12.2005 20:21