Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Samningurinn undirritaður Sjómenn og útvegsmenn undirrita klukkan þrjú kjarasamning, sem samþykktur var í gær. Þetta er í fyrsta sinn í yfir áratug sem sjómenn og útvegsmenn komast að samkomulagi um kaup og kjör, án afskipta stjórnvalda. 30.10.2004 00:01
Skeiðará er orðin mórauð Skeiðará er orðin mórauð og farin að vaxa, að sögn Jóns Benediktssonar í Freysnesi í Öræfum, en hann fór upp á Skeiðarárbrú fyrir um klukkustund til að fylgjast með hlaupinu. Hins vegar fannst engin brennisteinsfnykur af ánni. 30.10.2004 00:01
Gæti farið yfir mikið flatlendi Eldgos í Kötlu gæti haft í för með sér jökulhlaup sem færi til vesturs niður Markafljótsgljúfur og flæddi yfir stóran hluta flatlendis milli Eyjafjalla og Þjórsár. Líkurnar á slíku hlaupi eru þó ekki taldar miklar miðað við reynsluna af þeim 20 gosum sem kunnugt er um að orðið hafi síðan á landnámsöld, en hættan er eigi að síður fyrir hendi. 30.10.2004 00:01
Hlaup í Grímsvötnum "Þetta er talsvert stærra hlaup en hefur verið. Meira vatn er í Grímsvötnum nú en árið 2002. Við vitum ekki hvort mikið eignatjón verður vegna hlaupsins en ég býst við að það eigi ekki eftir að valda miklum skaða." 30.10.2004 00:01
Bílvelta í Breiðadal Bílslys varð aðfaranótt laugardags í Breiðadal í Önundarfirði. Tvennt var í bílnum og kom það á lögreglustöðina á Ísafirði klukkan korter fyrir eitt aðfaranótt laugardags og tilkynnti um slysið. 30.10.2004 00:01
Flutningabíll valt Flutningabíll með tengivagn valt skammt frá bænum Skarð í Dalsmynni í Grýtubakkahrepp á ellefta tímanum í gær. Flutningabíllinn var á leið austur á firði með tuttugu tonn af ófrosnum fiski. 30.10.2004 00:01
Innbrot í Reykjavík Brotist var inní raftækjaverslun í vesturhluta borgarinnar í kringum miðnætti í fyrrinótt. 30.10.2004 00:01
Sjö handteknir í Reykjavík Sjö manns voru handteknir grunaðir um fíkniefnaneyslu í húsi í austurhluta borgarinnar um tíu-leytið á föstudagskvöldið. 30.10.2004 00:01
Frístundaheimilin verða opin Fyrirhuguðu vetrarfríi starfsfólks frístundaheimila Reykjavíkurborgar sem átti að vera í næstu viku verður að öllum líkindum frestað og skóladagheimilin verða opin, að sögn Önnu Kristjánsdóttur, borgarfulltrúa R-listans. 30.10.2004 00:01
Skeiðará að vaxa Hlaup er hafið í Skeiðará. Áin hefur vaxið hægt og rólega í dag en engin jöklafýla hefur fundist, að sögn Jóns Benediktssonar í Freysnesi. Fyrstu merki hlaups sáust á jarðskjálftamælum í gær en þá kom fram órói við Grímsvötn í Vatnajökli þaðan sem hlaupin koma. 30.10.2004 00:01
Áhættumat um eldgos í Mýrdalsjökli Gerð áhættumats og áhættugreiningar vegna eldgosa og hlaupa til norður, vesturs og suðurs frá Eyjafjallajökli og vesturhluta Mýrdalsjökuls er lokið. 30.10.2004 00:01
Hylmt yfir samráð og gögnum eytt Olíufélögin reyndu skipulega að hylma yfir ólöglegt samráð sitt og eyða mikilvægum gögnum, samkvæmt Samkeppnisráði. Þau áttu í tíðum og skipulögðum samskiptum og lykilmenn í félögunum skiptust á skoðunum og upplýsingum og sendu athugasemdir og tillögur sín á milli. 30.10.2004 00:01
Kristinn markaði stefnuna Kristinn Björnsson, fyrrverandi forstjóri Skeljungs, markaði, að mati Samkeppnisráðs, þá stefnu sem einkenndi alla samkeppni á olíumarkaði í heilan áratug, en hann hóf störf hjá Skeljungi árið 1990. Kristinn taldi ekki æskilegt að samkeppnin yrði of hörð á markaðnum. 30.10.2004 00:01
Segist ekki hafa verið með Þórólfur Árnason, borgarstjóri og fyrrverandi markaðsstjóri Olíufélagsins ESSO, var með í samráði olíufélaganna vegna útboðs á olíusölu. Þórólfur segist ekki hafa vitað um náið samstarf forstjóra olíufélaganna. 30.10.2004 00:01
Gæti náð láglendi á hálftíma Stór hluti láglendis á milli Eyjafjalla og Þjórsár færi undir vatn ef þar yrði jökulhlaup í líkingu við það sem varð fyrir tólf hundruð árum í Markarfljóti. Hættumat vegna eldgosa í Eyjafjallajökli og Mýrdalsjökli sýnir að hlaup úr hlíðum jöklanna gæti náð láglendi á innan við hálftíma. 30.10.2004 00:01
Fá ríflega 16% hækkun Sjómenn fá ríflega sextán prósenta launahækkun samkvæmt nýjum kjarasamningi sem var undirritaður í dag. Það tók samninganefndir sjómanna og útvegsmanna tíu mánuði að komast að samkomulagi um nýjan kjarasamning og voru fulltrúar sjómanna, farmanna og fiskimanna og útvegsmanna því í hátíðarskapi þegar þeir mættu til að skrifa undir. 30.10.2004 00:01
Breiðþota yfirfarin hér á landi Tækniþjónustan á Keflavíkurflugvelli yfirfer nú í fyrsta sinn breiðþotu en þeim hefur hingað til verið flogið út til skoðunar. Þetta er vél af gerðinni 767 200 sem Loftleiðir hafa á leigu ,en hún flaug á milli Ísraels og New York, en mun næst verða staðsett í Portugal. 30.10.2004 00:01
Samskiptin komin í eðlilegt horf Sjómenn og útvegsmenn skrifuðu undir nýjan kjarasamning í gær en ekki hefur verið samið án verkfalls síðan 1992. Laun sjómanna hækka um 16,5 prósent. Samið var um lífeyrisgreiðslur, uppsagnafrest og fækkun í áhöfnum. Forysta sjómanna hefur loforð fyrir því að ekki verði hreyft við sjómannaafslætti á samningstímanum. 30.10.2004 00:01
Kaupmáttarrýrnun hjá kennurum Kennari í stjórn Kennarafélags Reykjavíkur segir að laun sumra kennara muni lækka þegar launaflokkar í potti verða festir í launatöflu. Eiríkur Jónsson segir breytinguna eina af forgangskröfum grunnskólakennara. 30.10.2004 00:01
Verkfallinu frestað Kennsla hefst í grunnskólum landsins á mánudag, eftir að deilendur í kennaradeilunni samþykktu í nótt að fresta kennaraverkfallinu á meðan báðar fylkingar kynntu sér nýja miðlunartillögu sáttasemjara og greiddu atkvæði um hana. 29.10.2004 00:01
Viðræður kynntar í dag Aðal samninganefndir sjómannasamtakanna hafa verið kallaðar til fundar í dag þar sem nefndunum verða kynntar þær samningaviðræður sem sjómenn hafa átti við útvegsmenn upp á síðkastið, en aðalnefndirnar hafa ekki verið kallaðar saman síðan í vor. 29.10.2004 00:01
50 árekstrar í gær Tæplega fimmtíu árekstrar urðu í hálkunni á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun, svo lögreglunni sé kunnugt um. Gera má ráð fyrir að árekstrarnir hafi verið talsvert fleiri, því nokkuð er um það að ökumenn geri sjálfir skýrslu á staðnum án afskipta lögreglu. Eignatjón er mikið, en engin slasaðist alvarlega. 29.10.2004 00:01
Tveir slasaðir eftir árekstur Ökumenn tveggja bíla slösuðust þegar fólksbíll, jeppi og fóðurflutningabíll lentu í árekstri skammt ofan við Litlu Kaffistofuna við Suðurlandsveg laust fyrir klukkan níu. Hinir slösuðu voru fluttir með sjúkrabílum á Slysadeild Landsspítalans, en hvorugur er í lífshættu. Fóðurbíllinn var með fullfermi og lokaði hann veginum. 29.10.2004 00:01
Nýr vegur um Tjörnes opnaður Nýr vegur um Tjörnes ásamt nýrri brú á Lónsós í Kelduhverfi verða formlega opnaðar klukkan þrjú í dag með því að Sturla Böðvarsson samgönguráðherra klippir á borða við áningarstað á Hringsbjargi. Þetta er einhver mesta vegagerð sem ráðist hefur verið í hérlendis á seinni árum en alls kostaði þessi liðlega 40 kílómetra vegarkafli um einn og hálfan milljarð króna. 29.10.2004 00:01
Grétar var sjálfkjörinn Grétar Þorsteinsson var endurkjörinn forseti Alþýðusambands Íslands í morgun. Fundarstjóri lýsti Grétar sjálfkjörinn forseta til næstu tveggja ára en enginn annar gaf kost á sér. 29.10.2004 00:01
Íslandsbanki greiðir mest Bankar, fjarskiptafyrirtæki og flugfélag, tróna á toppnum yfir hæstu greiðendur opinberra gjalda í Reykjavík. Álagningarskrá Reykjavíkur árið 2004, með gjöldum lögaðila verður lögð fram í lag og mun liggja frammi til og með 12. nóvember. Af fyrirtækjum í einarekstri trónar Íslandsbanki hæst, með tæplega 845 milljónir í heildargjöld. 29.10.2004 00:01
Skeljungur sektaður um milljarð Olíufélögin höfðu 6,6 milljarða króna af neytendum með ólöglegu samráði sín á milli frá 1. mars 1993 til 18. desember 2001. Samkeppnisráð ákvað í gær að sekta félögin öll um 1,1 milljarð króna. Esso og Olís fá þó afslátt fyrir samvinnu við Samkeppnisyfirvöld. 29.10.2004 00:01
Gaflarinn seldur Gaflarinn gengur kaupum og sölum í Hafnarfirði en hann er sérlegt merki Lionsklúbbs Hafnarfjarðar og er nú seldur til styrktar langveikum börnum. Í tilkynningu frá klúbbnum segir að söfnunarfénu verði varið til kaupa á öryggissímum fyrir langveik börn. Gaflaramerkið kostar fimm hundruð krónur og verður selt þar til verkefninu er lokið. 29.10.2004 00:01
Umhverfisráðuneytið í Skuggasund Skuggaleg framtíð blasir við umhverfisráðuneytinu, sem verður lokað og sambandslaust við það fram á þriðjudag. Umhverfisráðuneytið er að flytja og það er af þeim ástæðum sem þar verður allt lokað fram á þriðjudag. Síma- og tölvukerfi ráðuneytisins verða jafnframt óvirk fram á þriðjudag. 29.10.2004 00:01
Kennslan hefst á mánudag Kennsla hefst í grunnskólum landsins á mánudag, eftir að deilendur í kennaradeilunni samþykktu í nótt að fresta verkfallinu á meðan báðar fylkingar kynntu sér nýja miðlunartillögu ríkissáttasemjara og greiddu atkvæði um hana. 29.10.2004 00:01
Fjölmiðlafrumvarpið úr sögunni? Ritstjóri Frjálsrar verslunar segist líta svo á að fjölmiðlafrumvarpið sé endanlega dautt eftir að Norðurljós urðu dóttturfélag Og Vodafone í gær. Þó að forsendur frumvarpsins séu enn til staðar, myndi það nú kalla á slíkar uppstokkanir, að enginn leggi í slíkt. 29.10.2004 00:01
Rannveig forseti Norðurlandaráðs Rannveig Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, verður forseti Norðurlandaráðs næsta árið. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra mun hinsvegar stjórna Íslandi einn í næstu viku. 29.10.2004 00:01
Óvíst að stjórnarskráin taki gildi Stjórnarskrá Evrópusambandsins var undirrituð við hátíðlega athöfn í Róm í morgun. Óvíst er að hún taki nokkurn tíma gildi því aðildaríkin þurfa að samþykkja hana í þjóðaratkvæðagreiðslu. 29.10.2004 00:01
Olíufélög sektuð um 2,6 milljarða Samkeppnisráð hefur sektað þrjú olíufélög um samtals 2,6 milljarða króna fyrir ólögmætt samráð. Skeljungur hlaut hæstu sektina, 1,1 milljarð króna, OLÍS var sektað um 880 milljónir króna og ESSO um 605 milljónir króna. ESSO og Olís fengu lægri sektargreiðslu vegna samstarfs við samkeppnisyfirvöld við að upplýsa málið. 29.10.2004 00:01
Náið og mikið samráð Samráð olíufélaganna var bæði mikið og náið, að því er fram kemur í rökstuðningi samkeppnisstofnunar við sektir sem hafa verið lagðar á félögin. 29.10.2004 00:01
Skæður vírus kominn á kreik Nýr og mjög skæður tölvuvírus er kominn á kreik og hefur hann þegar borist til Íslands. Sagt er frá þessu í danska blaðinu Politiken og sagt að þetta sé nýtt afbrigði af hinum skæða Bagle. Ef vírusinn er ræstur reynir hann að dreifa sér um tölvuna og opna bakdyr þannig að þessir óprúttnu aðilar geti misnotað hana síðar. 29.10.2004 00:01
Stuðst við skriflegan samning Í samráði olíufélagnna þriggja var meðal annars stuðst við skriflegan samning um að þau skuli „ekki stuðla að né koma á viðbótar sölustöðum né smásöludælum til einkaafnota á framangreindum stöðum nema að fengnu samþykki hinna félaganna, enda falli sú sala einnig inn í skiptin." 29.10.2004 00:01
Fjölgaði um 93% 93% fleiri farþegar hafa flogið með Iceland Express á árinu 2004 en á sama tíma í fyrra. Frá febrúarlokum árið 2003, til loka október sama ár flutti félagið 111.700 farþega. Á sama tíma á þessu ári, alls átta mánuðum, hefur félagið flutt 215.500 farþega, eða 93% fleiri. 29.10.2004 00:01
Íslandsmiðill með lággjalda áskriftarsjónvarp Fjarskiptafyrirtækið Íslandsmiðill ehf. gangsetti formlega í dag fyrsta þráðlausa stafræna sjónvarpsdreifikerfið á Íslandi. Íslandsmiðill býður upp á lággjalda áskriftarsjónvarp, VAL+ og er hægt að velja á annan tug erlendra og innlendra sjónvarpsstöðva. Útsendingasvæðið er í fyrstu einskorðað við suðvesturhorn landsins. 29.10.2004 00:01
Nýr ritstjóri hefur störf Kári Jónasson hefur hafið störf sem ritstjóri Fréttablaðsins. Tekur hann við af Gunnari Smára Egilssyni sem orðinn er framkvæmdastjóri Norðurljósa. 29.10.2004 00:01
Ákvörðun samkeppnisráðs styðst ekki við lög "Við teljum að það séu engar lagalegar forsendur fyrir þessari niðurstöðu samkeppnisráðs eins og málið lá fyrir ráðinu," segir Hörður Felix Harðarson lögmaður Skeljungs um ákvörðun samkeppnisráðs um meint samráð olíufélaganna sem birt var í morgun. Hörður segir að máli félagsins verði skotið til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. 29.10.2004 00:01
Söfn, hótel og kartöfluhátíð Tillögur um sókn Suðurfjarða Vestfjarða í ferðaþjónustu og atvinnulífi hafa verið kynntar. Heimamenn binda miklar vonir við að þær bæti byggðaskilyrðin á svæðinu og komi því aftur á kortið. Árni Johnsen stýrði verkinu. </font /></b /> 29.10.2004 00:01
Mat á meintum ávinningi órökstutt Mat Samkeppnisstofnunar á ávinningi af meintu samráði olíufélaganna á árunum 1998-2001 er órökstutt að mati Skeljungs. Á vef félagsins segir að yfirgnæfandi líkur séu á að hækkun framlegðar, sem stofnunin lagði til grundvallar þessu mati, eigi sér aðrar og eðlilegri skýringar. 29.10.2004 00:01
Farið í fyrstu kílómetrana Jónas Snæbjörnsson, svæðisstjóri hjá Vegagerðinni í Reykjavík, segir að verið sé að leggja lokahönd á samninga við landeigendur í Hrauni í Grindavík um lagningu Suðurstrandarvegar. 29.10.2004 00:01
Dagbjört Þýri ráðin Nýr hjúkrunarforstjóri Hrafnistuheimilanna, var ráðinn í dag og er það Dagbjört Þyrí Þorvarðardóttir. Hún tekur við starfinu af Ragnheiði Stephensen, sem óskaði eftir að láta af störfum nú um áramótin. Dagbjört Þyrí hefur verið verkefnastjóri gæðamála á lyflækningasviði I á Landsspítala - háskólasjúkrahúsi frá september 2003. 29.10.2004 00:01