Innlent

Nýr ritstjóri hefur störf

Kári Jónasson hefur hafið störf sem ritstjóri Fréttablaðsins. Tekur hann við af Gunnari Smára Egilssyni sem orðinn er framkvæmdastjóri Norðurljósa. Kári var fréttastjóri Útvarps í 17 ár en starfaði á fréttastofunni í samtals 31 ár. "Ég hlakka til að takast á við þetta nýja starf, hér er mikið af kraftmiklu og góðu fólki sem hefur skipað Fréttablaðinu í röð öflugustu fjölmiðla Íslands. Þetta er víðlesnasta blað landsins og auðvitað fylgir því mikil ábyrgð að vera ritstjóri þess en hér eru miklir möguleikar og framtíðin björt."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×