Fleiri fréttir

Jarðskjálftamælum komið fyrir

Veðurstofa Íslands er að beiðni Landsvirkjunar að setja upp þrjá nýja jarðskjálftamæla við Kárahnjúka og er það gert til að fylgjast með virkni áður en og á meðan fyllt er í lón virkjunarinnar.

Blikur á lofti vegna verðbólgu

ASÍ segir blikur á lofti í efnahagshorfum og spáir aukinni verðbólgu á næsta og þarnæsta ári. Grétar Þorsteinsson var endurkörinn forseti ASÍ á ársfundi Alþýðusambandsins sem lauk í gær.

Sorpflutningur spennandi kostur

Alfreð Þorsteinsson stjórnarformaður Sorpu segir það spennandi kost að allt sorp af höfuðborgarsvæðinu verði flutt austur fyrir fjall og því fargað á svæði vestan við Þorlákshöfn.

Einn alvarlega slasaður

Ökumenn tveggja bíla slösuðust þegar fólksbíll, jeppi og fóðurflutningabíll rákust saman skammt ofan við Litlu Kaffistofuna í morgun. Hinir slösuðu voru fluttir á slysadeild Landsspítalans og er annar þeirra alvarlega slasaður. Fóðurbíllinn var með fullfermi og lokaði hann veginum.

Samkomulag náðist ekki

Ekki náðist samkomulag meðal fulltrúa aðildarsveitarfélaga Sorpstöðvar Suðurlands um lausn á ágreiningi varðandi starfsemi stöðvarinnar.

Á góðum batavegi

Sr. Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur hafði fyrir nokkrum dögum ákveðið að taka að þátt í stjórn landssöfnunar til styrktar hjartalækninga, þegar hann þurfti sjálfur í bráða hjartaþræðingu og aðgerð vegna alvarlegra stíflna í hjartaæðum.

6 vikur og 500 milljónir

Verkfall grunnskólakennara var blásið af í dag og á mánudag mæta rúmlega 4000 kennarar og 45 þúsund skólabörn til starfa eftir 6 vikna fjarveru. Hátt í hálfur milljarður króna hefur verið greiddur úr verkfallssjóði kennara.

Safnað fyrir gervihjörtum

Kaup á svonefndum gervihjörtum er markmið landsöfnunar sem hafin er til styrktar hjartalækningum hér á landi.

herstöðin minnkar stöðugt

Herstöðin á Miðnesheiði verður minni í sniðum með hverjum mánuði sem líður. Umtalsvert magn af vopnum hefur verið flutt þaðan og minnisblöð sýna að rætt er um að gera það svo lítið beri á.

Varnarliðið verst frétta

Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli hyggst ekki svara neinu um fréttir þess efnis að mikill samdráttur sé yfirvofandi á Keflavíkurflugvelli og bandaríski flugherinn taki yfir stjórn flugvallarins af flotanum.

Davíð til starfa

Hætt er við að þingstörf lamist að verulegu leyti í komandi viku, þótt þingfundur sé fyrirhugaður á þriðjudag, vegna setu 16 þingmanna og ráðherra á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi.

Úr bakherberginu

Kurr í Hafnarfjarðar-krötum Hugmyndir framtíðarhóps Samfylkingarinnar um einkavæðingu í skólum hefur farið fyrir brjóstið á mörgum flokksmönnum. Guðmundur Árni Stefánsson og Lúðvík Geirsson leiðtogar flokksins í Hafnarfirði eru þannig ekki ánægðir með að opnað sé á Áslands-skóla-ástand eins og einn flokksmaður orðaði það.

Vetrarfríi grunnskólanna aflýst

Vetrarfríi grunnskólanna í Reykavík, sem átti að hefjast á miðvikudaginn og standa út vikuna, verður aflýst. Ákvörðun um þetta var tekin á fundi fræðslunefndar borgarinnar í gær.

Hæfilega bjartsýnn

Ríkissáttasemjari segist hæfilega bjartsýnn á að miðlunartillagan sem hann lagði fram aðfaranótt föstudags verði samþykkt.

Miðlunartillaga er neyðarúrræði

Miðlunartillaga er ekki lög fram nema samningsaðilar telji að aðrar leiðir hafi verið reyndar til þrautar. Samkvæmt upplýsingum frá Alþýðusambandi Íslands hefur ríkissáttasemjari lagt fram miðlunartillögu í nokkur skipti. Til dæmis var lögð fram slík tillaga í deilu verslunarmanna árið 1988.

Enginn þrýstingur á félagsmenn

Miðlunartillagan leiðréttir ekki kjör kennara á þann hátt sem samninganefnd Kennnarasambands Íslands vonaðist eftir að sögn Eiríks Jónssonar, formanns sambandsins.

Samþykktin berst seint

Formenn allra svæðafélaga kennara á höfuðborgarsvæðinu samþykktu einróma á fundi á fimmtudagskvöldið að ef miðlunartillaga kæmi fram skyldi verkfalli ekki frestað heldur gengið til atkvæða um hana eins fljótt og mögulegt væri. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins í gær.

Hópur kennara vill fella tillöguna

Ólga er meðal stórs hóps kennara sem beinlínis vinnur gegn miðlunartillögu ríkissáttasemjara og vill fella hana. Samkvæmt viðmælundum Fréttablaðsins telur þessi hópur tillöguna vera hreina móðgun við stéttina og kjarabaráttuna sem hún hefur staðið í undanfarnar sex vikur.

Laun kennara hækka um 16,5%

Miðlunartillaga ríkissáttasemara er á svipuðum nótum og innanhússtillagan sem hann lagði fram á föstudaginn fyrir viku síðan. Kostnaðarhækkun sveitarfélaganna vegna miðlunartillögunnar er rétt rúmlega 26 prósent en var tæplega 26 prósent samkvæmt innanhússtillögunni.

Samsæri gegn neytendum

Ólöglegt samráð olíufélaganna er samsæri gegn atvinnulífinu og neytendum, segir forstjóri Samkeppnisstofnunar. Samkeppnisráð hefur sektað olíufélögin um tvö komma sex milljarða króna fyrir ólöglegt samráð, en talið er að samfélagslegur skaði vegna brota þeirra nemi um fjörutíu milljörðum króna. Olíufélögin ætla að áfrýja niðurstöðunni.

Kennarar ekki á eitt sáttir

Verkfall grunnskólakennara hefur verið blásið af. Miðlunartillaga er á leið til allra grunnskólakennara landsins. Forsætisráðherra segist sannfærður um að kennarar muni samþykkja tillöguna, en trúnaðarmenn kennara efast. Kennarar fóru fram á rausnarlega eingreiðslu á fundi Fræðsluráðs í dag til að geta endurskoðað kennsluáætlanir að afloknu verkfalli.

Vetrarfrí lagt niður

Fræðsluráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag að leggja niður vetrarfrí, sem átti að hefjast í næstu viku, þannig að skólastarf yrði með eðlilegum hætti. Formaður Félags grunnskólakennara segir að kennsla í vetrarfríinu kalli á yfirvinnugreiðslu til kennara.

Komnir heim

Íslensku friðargæsluliðarnir sem særðust í sprengjárás í Kabúl um síðustu helgi komu heim í dag. Þeir tjá sig ekki um gagnrýni á yfirmann þeirra.

2,6 milljarða sekt fyrir samráð

Olíufélögin Essó, Skeljungur og Olís þurfa að greiða 2,6 milljarða króna sektir vegna langvarandi og skipulagðs samráðs um verðlagningu, gerð tilboða og skiptingu markaða. Samkeppnisráð komst að þessari niðurstöðu á fimmtudag. Lögbrotin stóðu yfir í að minnsta kosti níu ár og áætlar Samkeppnisstofnun að samfélagsskaði af þeim nemi yfir 40 milljörðum króna. Olíufélögin þrjú ætla að áfrýja niðurstöðunni til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.

Um 500 dæmi um samráð

Með ákvörðun samkeppnisráðs um ólögmætt samráð olíufélaganna lauk umfangsmestu rannsókn sem samkeppnisyfirvöld hafa tekist á hendur. Hún hófst með húsleit í aðalskrifstofum olíufélaganna þann 18. desember 2001, eftir að Samkeppnisstofnun fékk vísbendingu um að ýmis háttsemi félaganna stangaðist á við samkeppnislög.

Kristinn sló tóninn

Kristinn Björnsson, fyrrverandi forstjóri Skeljungs, setti fyrstur fram það viðhorf að ekki væri æskilegt að stunda of harða samkeppni á olíumarkaðnum. Þetta kemur fram í niðurstöðu samkeppnisráðs. Skömmu eftir að Kristinn tók við sem forstjóri um mitt ár 1990, sló hann þann tón sem að mati ráðsins einkenndi alla samkeppni á olíumarkaði í rúman áratug þar á eftir.

Skeljungur fær ekki afslátt

Olíufélögin þrjú buðu öll Samkeppnisstofnun aðstoð við að ljúka rannsókn verðsamráðsins. Stjórnarmenn Essó riðu á vaðið nokkrum mánuðum eftir húsleit Samkeppnisstofnunar í húsakynnum olíufélaganna árið 2001. Í kjölfarið óskuðu Olís og Skeljungur einnig eftir að veita aðstoð.

Ánægja með lok rannsóknar

Ólöglegt samráð verður ekki látið viðgangast að sögn Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Hún segist vera ánægð með að rannsókn Samkeppnisstofnunar skuli vera lokið. "Þarna hefur verið sannað að ólöglegt samráð var haft milli fyrirtækja. Enda hafa fyrirtækin sjálf viðurkennt það."

Borgarstjóri í samráði

Fram kemur í niðurstöðu samkeppnisráðs um verðsamráð olíufélaganna, að Þórólfur Árnason borgarstjóri hafi í starfi sínu sem framkvæmdastjóri markaðssviðs Essó átt þátt í samráði félaganna þegar þau buðu í olíusölu til Reykjavíkurborgar árið 1996.

Niðurstaðan í marga staði gölluð

"Það eru lagaleg atriði í ákvörðun ráðsins sem þarfnast útskýringa og svo teljum við sönnunarkröfur engan veginn uppfylltar," segir Hörður Felix Harðarson, lögmaður Skeljungs. "Við töldum að ekki hefði verið gætt að andmælarétti og auk þess séu meint brot orðin fyrnd. Á þetta var hins vegar ekki fallist."

Rannveig forseti

Íslandsdeild Norðurlandaráðs hefur tilnefnt Rannveigu Guðmundsdóttur, þingmann Samfylkingarinnar, í embætti forseta Norðurlandaráðs, en þing ráðsins hefst í Stokkhólmi á morgun. Rannveig segist ætla að beita sér fyrir mannréttinda- og félagsmálum.

Óvíst hvort hún tekur gildi

Óvíst er hvort hin nýja stjórnarskrá Evrópusambandsins, sem undirrituð var með mikilli viðhöfn í morgun, tekur nokkurn tíma gildi. Bæði Bretar og Danir eru líklegir til að fella málið í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Voru að hlýða skipunum

Íslensku friðargæsluliðarnir þrír sem slösuðust í sjálfsmorðsárásinni í Kabúl sögðust hafa verið að hlýða skipunum er þeir stóðu vörð um teppabúð sem yfirmaður þeirra var að versla í. Þremenningarnir komu heim í gær. </font /></b />

Rannsókn að ljúka

Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir að nuddstofan sem auglýsi erótískt nudd hefði verið undir rannsókn á þeim forsendum að þar væri stundað vændi. Rætt var við á annan tug viðskiptavina, auk starfsmanna.

Keyrt á vörubíl

Umferðarslys varð á Ólafsfjarðarvegi í gær þegar fólksbíll, á leið norður fór á rangan vegarhelming og ók framan á vörubíl.

Ný drög að sáttatillögu

Forystumenn samninganefnda kennara og sveitarfélaga hafa verið boðaðir til fundar hjá Ríkissáttasemjara fyrir hádegi og samninganefndirnar í heild hafa svo verið boðaðar til sáttasemjara síðar í dag.

Þrír slasaðir eftir bílveltu

Þrír voru fluttir slasaðir á slysadeild eftir að bíll þeirra valt út af Reykjanesbraut í Kúagerði um klukkan fimm í morgun. Engin þeirra er í lífshættu. Einn var fastur í bílflakinu og þurftu björgunarmenn að beita klippum til að ná honum út.

Kveikt í gámum við Sorpu

Eldur var kveiktur í tveimur gámum í gámastöð Sorpu við Sævarhöfða upp úr miðnætti í nótt. Logaði glatt í hjólbörðum og rúmdínum þegar slökkvilið kom á vettvang. Slökkviliðsmenn heftu frekari útbreiðslu eldsins og slökktu hann. Brennuvargurinn er ófundinn.

Tunglmyrkvinn sást víða

Tunglmyrkvinn sást vel víðast hvar á landinu í nótt en skyggni tók að versna á höfuðborgarsvæðinu upp úr klukkan tvö í nótt þegar sjálfur almyrkvinn var að hefjast. Hann sást hins vegar vel víða á landinu.

Og Fjarskipti keyptu 90% hlutafjár

Eignarhaldsfélagið Og Fjarskipti hefur keypt 90 prósent hlutafjár í Norðurljósum sem reka sex útvarpsstöðvar, fjórar sjónvarpsstöðvar, gefa út tvö dagblöð, tímarit og reka netmiðil. Norðurljós verða þar með komin inn á verðbréfamarkaðinn.

Óbreytt ástand í kennaradeilunni

Ekkert markvert gerðist á fundi forystumanna samninganefnda kennara, sveitarfélaga og skólastjóra, sem hófst hjá Ríkissáttasemjara klukkan átta í morgun og lauk á tólfta tímanum. Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari sagði að ekkert nýtt hefði gerst á fundinum en þar hafi verið farið yfir stöðuna.

Vopnin kvödd

Svo til öll vopn Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli hafa verið flutt úr landi. Þetta kemur fram í Víkurfréttum. Þar segir að starfsemin á vellinum muni dragast verulega saman á næstu árum.

Dæmdur í 4 mánaða fangelsi

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í morgun tvítugan karlmann í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás og að framvísa fölsuðum lyfseðli í apóteki. Líkamsárásin átti sér stað í september á síðasta ári þegar maðurinn réðst á annan fyrir utan Félagsheimilið Festi í Grindavík og sló hann í andlitið þannig að kinnbein brotnaði.

Stærsti þjóðgarður Evrópu

Stærsti þjóðgarður Evrópu er orðinn að veruleika en Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra staðfesti nýja reglugerð um stækkun Skaftafellsþjóðgarðs í dag. Flatarmál þjóðgarðsins þrefaldast og verður hann rúmlega 4800 ferkílómetrar og er 57% Vatnajökuls nú innan hans, sem og Lakagígasvæðið.

Átelja ríkisstjórnina harðlega

Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands átelur harðlega að tíu mánuðir skuli vera liðnir án þess að þorri öryrkja hafi fengið þá kjarabót sem samið var um fyrir síðustu þingkosningar. Nú sé ár liðið frá því að ríkisstjórnin upplýsti að hún treysti sér ekki til að efna nema hluta samkomulagsins sem gert var.

Sjá næstu 50 fréttir