Innlent

Olíufélög sektuð um 2,6 milljarða

Samkeppnisráð hefur sektað þrjú olíufélög um samtals 2,6 milljarða króna fyrir ólögmætt samráð. Skeljungur hlaut hæstu sektina, 1,1 milljarð króna, OLÍS var sektað um 880 milljónir króna og ESSO um 605 milljónir króna. ESSO og Olís fengu lægri sektargreiðslu vegna samstarfs við samkeppnisyfirvöld við að upplýsa málið. Samkeppnisráð telur að olíufélögin hafi hagnast um 6,5 milljarða króna vegna ólögmæts samráðs.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×