Fleiri fréttir

Skógrækt telur grisjun í Öskjuhlíð "vitleysu“

„Þetta samkomulag kemur eins og skrattinn úr sauðarleggnum,“ segir Helgi Gíslason, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, um fyrirhugaðar framkvæmdir á og í nágrenni Reykjavíkurflugvallar, sem Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Jón Gnarr borgarstjóri undirrituðu samkomulag um fyrir helgi. Það kveður meðal annars á um að lækka skuli gróður í Öskjuhlíðinni af öryggisástæðum.

Ekki mikill áhugi á sjóræningjapólitík

Það virtist ekki vera mikill áhugi meðal gesta Kolaportsins á að ræða við frambjóðendur Pírata í kynningarbás sínum á Gleðistíg á laugardag. Básinn var staðsettur á móti kynningarsvæði Dögunar og ekki leið á löngu þar til heyrðist frá keppinautunum. "Endilega kíkið hingað,“ kallaði einn frambjóðandi Dögunar til blaðakonu og ljósmyndara Fréttablaðsins þar sem þau reyndu árangurslaust að fá fólk í viðtöl vegna píratanna.

Hjúkra grútarblautri súlu "heima í stofu“

„Það skal viðurkennast að þetta er óvenjulegur gestur. Þetta er hins vegar ekki einsdæmi í sjálfu sér. Frá því að við Róbert tókum við rekstri Náttúrustofunnar fyrir um 12 árum höfum við tekið á móti fjölda fugla sem hafa þarfnast aðhlynningar. Við útskrifuðum grútarblauta langvíu um miðjan mars,“ segir Menja von Schmalensee, sviðsstjóri Náttúrustofu Vesturlands (NSV), sem hefur undanfarna daga haft fullvaxna súlu, sem er einn stærsti sjófugl Íslands, inni á heimilinu til hjúkrunar.

Villikindur í Þorgeirsfirði

Björgunarsveitarmenn úr Ægi frá Grenivík fundu í gær þrjár sprelllifandi kindur í Þorgeirsfirði, þegar þeir voru þar við æfingar.

Þjófur á ferð í Haukadal

Lögreglan á Selfossi handtók í gær þjóf, sem stolið hafði dýrum varningi úr minjagripaversluninni við Geysi í Haukadal.

Kajakmaður drukknar

Banaslys varð þegar kajakræðari drukknaði úti fyrir Herdísarvík síðdegis í gær.

Vatnsskortur í Kína

Nú liggur fyrir að 186 manns biðu bana í miklum jarðskjálfta sem reið yfir suð-vesturhluta Kína, í Sichuan-héraði, nú um helgina.

Skip Landsbjargar endurnýjuð

Slysavarnafélagið Landsbjörg og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra undirrituðu í gær samkomulag um greiðslur úr ríkissjóði vegna viðhalds og endurbóta björgunarskipa félagsins. Þau eru 14 talsins.

Skuldamál heimilanna mikilvægasta kosningamálið

Gylfi Magnússon, fyrrverandi viðskiptaráðherra, telur hugmynd Framsóknar, um að nýta svigrúm í samningum við kröfuhafa gömlu bankana, til að lækka skuldir heimilanna raunhæfa. Hins vegar sé féð ekki í hendi og því óráðlegt að lofa slíku.

Bræðurnir hefðu hugsanlega gert fleiri árásir

Talið er að bræðurnir sem grunaðir eru um að bera ábyrgð á sprengingunni í Boston maraþoninu hafi ætlað sér að gera fleiri árásir. Þetta segir Ed Davis, lögreglustjórinn í Boston.

Vissara að Færeyingar verði sjálfstæðir áður en olían finnst

Atvinnumálaráðherra Færeyja, Jóhan Dahl, kveðst handviss um að Færeyingar verði olíuþjóð. Högni Hoydal, formaður Þjóðveldisflokksins, segir mikilvægt að Færeyingar fái sjálfstæði áður en olían finnst, - olíufundur geti leitt til þess að Danir verði tregari að slíta sambandinu. Kannanir sýna að Færeyingar skiptast nokkurn veginn til helminga í afstöðunni til þess hvort slíta eigi sambandinu við Dani. En gæti stór olíufundur breytt miklu í sjálfstæðismálunum? Stuðningur Dana nemur um ellefu prósentum af fjárlögum Færeyja og yrði væntalega óþarfur ef olían finnst. Högna Hoydal finnst tryggast að fá sjálfstæðið áður: "Við sjáum hvað er að gerast í Grænlandi. Það er sama mál.

Samkomulag um endurbætur á björgunarskipum

Samkomulag var undirritað í dag milli Slysavarnafélagsins Landsbjargar og innanríkisráðherra um greiðslur úr ríkissjóði vegna viðhalds og endurbóta björgunarskipa félagsins. Samkomulagið undirrituðu Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Hörður H. Harðarson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Eldur kom upp í Skeifunni 11

Eldur kom upp í Skeifunni 11 um klukkan fimm en búið er að slökkva hann. Verið er að reykræsta. Ekki hafa fengist upplýsingar á þessari stundu í hverju kviknaði.

Óvíst hvort yngri árásarmaðurinn muni nokkurn tímann tala

Hugsanlegt er að aldrei verði hægt að taka skýrslu af Dzhokhar Tsarnaev,yngri bróðurnum, sem grunaður er um að hafa staðið að sprengjutilræðinu í Boston á mánudag. Hann liggur alvarlega særður á sjúkrahúsi og er mállaus vegna þess að hann hlaut skot í hálsinn. Hann var handtekinn á föstudagskvöld en eldri bróðir hans var skotinn til bana nóttina áður.

Hlauparar minntust þolenda sprengjuárásarinnar

Hlauparar í maraþoninu í Lundúnum í dag þögðu í 30 sekúndur áður en hlaupið hófst til þess að minnast þolenda sprengjuárásarinnar í Boston á mánudaginn. um 35 þúsund manns tóku þátt í maraþoninu. Þúsundir söfnuðust saman á götum til þess að fylgjast með hlaupurunum þegar þeir lögðu af stað frá Blackheath og voru margir með svört sorgarbönd.

Lóan komin í Elliðaárdal

Lóan er komin í Elliðaárdal. Fuglaáhugamaður á ferð um dalinn sá tvær lóur í dag og smellti nokkrum ljósmyndum af þeim. Hann kvaðst fyrst hafa heyrt hinn angurblíða söng lóunnar, hjarta sitt hafi þá tekið kipp, og hann gengið á hljóðið og fljótlega fengið staðfestan grun sinn. Lóurnar spókuðu sig í móa skammt frá bökkum Elliðaánna, ofan við gömlu Vatnsveitubrúna, ekki langt frá svæði Fáks, og voru þær því strangt til tekið í þeim hluta dalsins sem nefnist Víðidalur. Fuglaáhugamaðurinn telur lóuna í ár um viku til tíu dögum seinna á ferðinni í Elliðardal miðað við undanfarinn áratug. Hún sé núna á svipuðum tíma og var fyrir síðustu aldamót, þegar hún var að koma í dalinn í kringum 20. apríl. Eftir aldamót hafi hún hins vegar verið fyrr á ferðinni, og fyrstu lóurnar yfirleitt sést milli 9. og 14. apríl, þar til núna. Hann giskar á að kuldakastið að undanförnu og óhagstæðar vindáttir fyrir farfugla geti skýrt þessa seinkun lóunnar í ár.

Ríkasti maður Bretlands

Alisher Usmanov er ríkasti maður Bretlands, samkvæmt lista Sunday Times. Alisher, sem er upprunninn frá Rússlandi, er þekktastur fyrir að eiga 30% hlut í Arsenal. Eignir hans eru metnar á 13,3 milljarða króna, samkvæmt listanum sem birtur var í dag.

Að meðaltali þrjú vitni í kynferðisbrotamálum

Að meðaltali 3 vitni gefa lögreglu skýrslu í hverju kynferðisbrotamáli. Rannsókn lögreglunnar í nauðgunarmálum byggir á mjög fjölbreyttri vinnu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Hildur Fjóla Antonsdóttir, mann- og kynjafræðingur, og Þorbjörg

Vilja að verksamningi um Álftanesveg verði frestað

Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands skora á framkvæmdaraðila nýs Álftanesvegar, að fresta undirritun verksamnings við Íslenska aðalverktaka þar til fyrir liggur fullnægjandi úttekt á núverandi vegstæði í samræmi við svokallaða núlllausn samkvæmt lögum. Þau minna á að eldhraun eins og Gálgahraun njóta sérstakrar verndar samkvæmt náttúruverndarlögum.

Missti stjórn á bílnum á Eyrarbakkavegi

Bílvelta varð á Eyrarbakkavegi í morgun. Ökumaður fólksbíls missti stjórn á honum með þeim afleiðingum að bíllinn valt. Hann meiddist ekki alvarlega.

Kerry kominn frá Tyrklandi

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, John Kerry, lauk í nótt sólarhrings heimsókn sinni til Tyrklands. Þar reyndi Kerry að miðla málum milli yfirvalda í Ísrael og Tyrklands en andað hefur köldu milli þeirra síðan tíu tyrkneskir sjálfboðaliðar létust í árás Ísraelsmanna á skip sem flutti hjálpargögn og aðrar nauðsynjar til Gazastrandarinnar árið tvö þúsund og tíu.

Réðst á lögreglumann

Ölvuð kona var handtekin eftir að hún sló lögreglumann í andlitið og sparkaði í hann í veitingahúsi Reykjavík um tvöleytið í nótt. Lögreglumaðurinn var við almennt vínhúsaeftirlit þegar konan réðst að honum. Konan gistir fangageymslur og verður yfirheyrð síðar í dag.

Óvíst hvenær yngri bróðirinn verður yfirheyrður

Ekki liggur fyrir hvenær hægt verður að yfirheyra hinn nítján ára gamla Dzhokhar Tsarnaev sem grunaður er um að hafa staðið að sprengjuárásunum í Boston síðastliðinn mánudag. Hann liggur enn þungt haldinn á sjúkrahúsi í borginni en hann slasaðist alvarlega í skotbardaga við lögreglu í bænum Newtown á föstudaginn.

Gríðarleg gæsla í maraþoni

Áætlað er að hundruð lögreglumanna muni bætast í þann hóp lögreglumanna sem áætlað var að myndu standa vörð þegar maraþonhlaup fer fram í London á sunnudag. Þetta verður gert til þess að róa almenning eftir að sprengjuárás var gerð í maraþoni í Boston á mánudag.

Bandaríkjamenn þekkja ekki muninn á Tékklandi og Tjetjeníu

Bandaríkjamenn virðast margir hafa ruglað saman Tékklandi og Tjetjeníu í umræðunni á samfélagsmilum um sprengingarnar í Boston maraþoninu. Tékknesk yfirvöld hafa af þessu töluverðar áhyggjur eins og sjá má í yfirlýsingu frá Petr Gandalovi?, sendiherra Tékka í Bandaríkjunum.

59 milljónum ríkari

1. vinningur í lottóinu gekk út í kvöld, en hann var 59 milljónir króna. Miðinn var keyptur í Hamraborg í Kópavogi en lottótölur kvöldsins voru 20 24 25 32 36 Bónustalan var: 30. Það er því ljóst að heppinn lottóspilari en 59 milljónum króna ríkari. Tveir hlutu bónusvinning og fær hvor um sig 326.450 krónur.

Sigmundur Davíð útilokar ekkert

Formaður Framsóknarflokksins segir flokkinn hvorki útiloka stjórnarsamstarf til hægri eða vinstri eftir kosningar þrátt fyrir að varaformaður flokksins hafi gefið annað í skyn.

Tollvörðurinn íhugar skaðabótamál vegna gæsluvarðhalds

Tollvörður sem sat í einangrun í fjórar vikur vegna gruns um aðild að fíkniefnainnflutningi, íhugar að höfða skaðabótamál á hendur ríkinu vegna vistarinnar. Sjö aðilar voru ákærðir vegna málsins í gær og var tollvörðurinn ekki þar á meðal.

Handtökur í Breiðholti

Fjölmennt lið lögreglu var kvatt að Vesturbergi í Breiðholti í morgun. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur Vísir ekki náð tali af lögreglu til að fá staðfest hvað þarna var á seyði ,en sjónarvottur segir í tölvupósti til Vísis að þrír menn hafi verið handteknir. Sjónarvotturinn segir jafnframt að lögreglan hafi tekið einhvern varning af mönnunum og sett í poka en hafði ekki grun um hvort þar gæti hafa verið þýfi, fíkniefni eða annað.

Allt bendir til þess að bræðurnir hafi verið einir að verki

Á þessari stundu bendir allt til þess að Dzhokar Tsarnaev and Tamerlan Tsarnaev, bræðurnir sem grunaðir eru um að bera ábyrgð á sprengingunni í Boston maraþoninu á mánudag hafi verið einir að verki. Þetta segir Edward Deveau, lögreglustjóri hjá lögreglunni í Boston, í samtali við CNN fréttastöðina.

Fimm ára stelpu nauðgað á Indlandi

Fimm ára gamalli telpu var rænt, hún svelt og henni nauðgað í Nýju Delí á Indlandi í vikunni. Málið hefur valdið mikilli reiði á Índlandi og hafa mótmæli sprottið þar upp núna um helgina.

Einn var fluttur á slysadeild eftir árekstur

Þriggja bíla árekstur varð á Sæbrautinni í dag og var einn fluttur á slysadeild, en tveir sjúkrabílar voru sendir á staðinn. Á mbl.is kemur fram að áreksturinn virðist hafa orðið milli flutningabíls með tengivagn og fólksbíls. Að sögn sjónarvotta á vettvangi virðist sem för bílanna hafi endað inni á plani bílaþvottastöðvar við Sæbrautina, skammt frá Holtagörðum.

„Hrein sóun á landi og almannafé“

"Þótt sumir sjái enga fegurð í hrauni þá þarf ekki sérfræðing til að sjá að mislæg gatnamót fyrir 2.500 manns er hrein sóun á landi og almannafé," segir Andri Snæ Magnason í grein um fyrirhugaðan Álftanesveg yfir Gálgahraun í Garðabæ. Mikill styr hefur staðið um þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru í hrauninu.

Ástvinir þeirra sem fórust í Boston fagna handtökunni

Fjölskyldur þeirra sem fórust í sprengingunum í Boston á mánudaginn fögnuðu í nótt þegar ljóst var að Dzhokhar Tsarnaev, yngri bróðirinn sem stóð að árásunum, hafði verið handtekinn í Watertown, úthverfi Boston. Sá eldri var skotinn til bana í fyrrinótt.

Sjá næstu 50 fréttir