Fleiri fréttir

Grænt ljós á grisjun skógar í Öskjuhlíð

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Jón Gnarr borgarstjóri skrifuðu í gær undir samkomulag um endurbætur á aðstöðu á Reykjavíkurflugvelli. Norðaustur/suðvestur flugbrautin verður lögð niður og flugöryggi við austur/vestur flugbrautina verður bætt með því að lækka gróður í Öskjuhlíðinni, er meðal fjölmargra atriða sem í samkomulaginu felast.

Morðið á Sigrid í dómi í haust

Rannsókn vegna morðsins á hinni sextán ára Sigrid Schjetne lýkur bráðlega og er búist við því að réttarhöld yfir í málinu hefjist í haust. Sigrid hvarf í ágúst síðastliðnum. Lík hennar fannst mánuði síðar skammt frá þeim stað þar sem hún sást síðast. Hún lést af völdum höfuðáverka.

Allt veltur á Framsóknarflokknum

Kosningabaráttan hefur að miklu leyti snúist upp í það hvor flokkanna verður stærri; Framsóknar- eða Sjálfstæðisflokkur. Samstjórn þeirra er líklegasta stjórnarmynstrið og stærri flokkurinn fær forsætisráðherraembættið. Framsókn hefur frekar valmöguleika

Skuldirnar leiðréttar yfir heitri kakósúpu

"Ég verð að segja að ég er ekki að kaupa þetta. Mér finnst persónulega tekið ansi stórt upp í sig þegar fólki eru gefnar miklar væntingar sem eru ekki í hendi, eins og sérfræðingar tjáðu sig um nýlega. Ég er á því að það sé betra að lofa minna og fara frekar í eitthvað sem er meira í hendi og raunhæfara,“ segir Guðmundur Ragnar Guðmundsson, eigandi Prentmets, um útskýringar frambjóðenda Framsóknarflokksins um skuldaniðurfellingar á komandi kjörtímabili.

Á hærri launum eftir ákúrur um greiðslur

Ríkisendurskoðun gagnrýnir laun forstöðumanns Þjóðskrár. Hann hefur hærri laun en forstjórinn. Laun hans hækkuðu eftir fyrri gagnrýni á háar greiðslur til hans. Ráðuneytið mun kalla forstjóra ÞÍ til fundar vegna launakjara mannsins.

Pervez Musharraf handtekinn

Pervez Musharraf, fyrrverandi yfirmaður herforingjastjórnarinnar í Pakistan, var handtekinn í gær. Hann á yfir höfði sér ákæru vegna landráða eftir að hann setti nokkra hæstaréttardómara í stofufangelsi árið 2007 í kjölfar þess að hann lýsti yfir neyðarlögum.

Telur Bjarnarflagsvirkjun ekki ógna lífríki Mývatns

Forstjóri Landsvirkjunar segir unnt að reisa Bjarnarflagsvirkjun án þess að lífríki Mývatns sé á nokkurn hátt stefnt í hættu. Hann útilokar ekki nýtt umhverfismat en segir að allar athugasemdir hafi legið fyrir þegar Alþingi samþykkti virkjunina fyrir þremur mánuðum. Mótmæli náttúruverndarsamtaka gegn Bjarnarflagsvirkjun hafa verið áberandi frá því í haust en þrátt fyrir þau samþykkti Alþingi rammaáætlun í janúar þar sem grænt ljós var gefið á þessa umdeildu virkjun.

Helmingur þeirra sem er nauðgað 19 ára eða yngri

Helmingur þolenda í nauðgunarmálum er 19 ára eða yngri á meðan meðalaldur geranda er 29 ár. Vinir og kunningjar eru gerendur í 37 prósenta tilvika. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu um meðferð nauðgunarmála sem birt var í morgun.

Flugbraut lögð af og blönduð byggð reist

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra skrifaði í dag undir samkomulag við Jón Gnarr borgarstjóra um að hluti flugvallarsvæðisins í Vatnsmýri verði tekinn undir blandaða byggð og að minnsta flugbraut Reykjavíkurflugvallar verði lögð af, - gegn því að borgin leyfi að ný flugstöð verði reist. Samkomulag innanríkisráðherrans og borgarstjórans var undirritað í afgreiðslu Flugfélags Íslands og staðfestir samkomulag sem fjármálaráðherra og formaður borgarráðs undirrituðu á sama stað fyrir sex vikum.

Tollvörðurinn ekki ákærður

Sjö karlmenn hafa verið ákærðir í tengslum við umsvifamikið amfetamínsmygl fyrr á þessu ári. Þetta er eitt stærsta fíkniefnamál á Íslandi í langan tíma.

Segir atvinnulífið heimtufrekt

"Ég nenni ekki að fara í fleiri fyrirtæki. Ég nenni ekki að tala við fólk sem reynir að gera lítið úr mér en heimtar samt að ég geri fyrir þá allt sem ég get.“ Þetta segir Inga Sigrún Atladóttir, frambjóðandi Vinstri-grænna meðal annars í grein sinni "Ég er kommúnisti“ sem birtist á Eyjunni í morgun.

Varaborgarfulltrúi staddur í Boston

"Við erum staddar hérna í Beacon Hill, sem er hinum megin við ána frá því sem ástandið er sem mest," segir Diljá Ámundadóttir, varaborgarfulltrúi í samtali við Vísi. Diljá er ásamt vinkonu sinni í Boston, en þær voru á Fleetwood Mac tónleikum sem fóru fram í gær.

Hverjir eru Tsarnaev-bræður?

Bekkjarsystkini yngri bróðurins segja hann vingjarnlegan trúð. Frændi bræðranna segir þann eldri "aumingja sem átti skilið að deyja“.

Fékk notaðan plástur í munninn með brauðbitanum

Sigurbjörg Pálsdóttir, íbúi í Hveragerði, fékk notaðan plástur upp í sig þegar hún var að borða bananabrauð frá Ekta brauði í gær. Sigurbjörg hafði keypt brauðið fyrr í vikunni í Bónus í Árbæ.

Forsetinn í ráðgjafanefnd um sjálfbæra orku

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur að ósk Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, og Jim Yong Kim, framkvæmdastjóra Alþjóðabankans, tekið sæti í nýrri ráðgjafanefnd um sjálfbæra orku sem þeir hafa sett á laggirnar. Fyrsti fundur ráðgjafanefndarinnar hófst í morgun í höfuðstöðvum Alþjóðabankans í Washington með ræðum Ban Ki-moon og Jim Yong Kim.

Gamla fólkið á Akureyri fær iPad

Öldrunarheimilin á Akureyri hafa sett upp þráðlaust net og keypt spjaldtölvur á fyrir íbúa. Samhliða því hefur upplýsingamiðlun á heimasíðu öldrunarheimilanna og samfélagsmiðlum verið efld til mikilla muna. Markmiðið er að hvetja til aukinnar virkni íbúa með hjálp upplýsinga- og tölvutækninnar. Í fyrsta áfanga þessa verkefnis hefur spjaldtölvum og þráðlausu neti verið komið upp á tveimur af fimm heimilum.

Er þetta yngri sprengjumaðurinn?

Skilaboð ganga um veraldarvefinn þess efnis að hér sé að finna síðu yngri mannsins, á samfélagsmiðlinum vk.com, sem grunaður er um að hafa sprengt sprengjur með vofeiflegum afleiðingum í Boston á mánudaginn ásamt bróður sínum.

Róbert Wessman skorar á stjórnvöld

"Eitt af brýnustu hagsmunamálum Íslendinga er að hefja nýja sókn til bættra lífskjara með fjölgun starfa, auknum kaupmætti og meiri lífsgæði að leiðarljósi. Íslenskt atvinnulíf hefur verið læst í fjármagnshöft um nærri fimm ára skeið sem skýrir að stórum hluta þá stöðnun sem ríkt hefur hérlendis á þessum tíma,“ segir í skilaboðum til stjórnmálamanna sem hópur einstaklinga sendi frá sér í dag.

Varað við sterkum vindhviðum á Kjalarnesi

Varað er við sterkum vindhviðum á Kjalarnesi í dag en reiknað er með vindhviðum frá 30 til 35 metrar á sekúndu. Gert þó ráð fyrir því að vindurinn gangi niður síðdegi.

Grunaður um að reyna að smygla 300 grömmum af kóki

Rúmlega fertugur karlmaður situr nú í gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglunnar á Suðurnesjum á tilraun til að smygla nær 300 grömmum af kókaíni til landsins. Tveir karlmenn til viðbótar hafa setið í gæsluvarðhaldi vegna málsins en þeim hefur nú verið sleppt.

Fundu tugi kannabisplantna

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði kannabisræktun í íbúðarhúsnæði í umdæminu í fyrrakvöld. Farið var í húsleit á staðnum að fengnum dómsúrskurði Héraðsdóms Reykjaness.

Um 40% þolenda í kynferðisbrotamálum yngri en 18 ára

Um 40% brotaþola í kynferðisbrotamálum eru yngri en 18 ára og þar af leiðandi börn að aldri. Gerendur eru hins vegar eldri, þótt einnig séu dæmi um mjög unga gerendur, eða allt niður í 12 ára gamla. Þetta gefur því til kynna að þau kynferðisbrot sem koma til rannsóknar lögreglu einkennist af aðstöðu- og þroskamun.

Hættir við að slátra villiköttum

Yfirvöld í Sochi í Rússlandi, þar sem vetrarólympíuleikarnir verða að ári, hafa nú bakkað með umfangsmikla áætlun sem gekk út á að slátra fækingsköttum og hundum í stórum stíl.

Umsátrinu lokið

Nú hefur verið greint frá nöfnum beggja þeirra sem grunaðir eru um að hafa staðið fyrir sprengingunum við Boston-maraþonið. Mennirnir eru bræður, en lögregla skaut annan þeirra til bana í morgun. Hinn er enn á flótta.

Viðkvæmur nágranni

Íbúi á neðstu hæð sætti sig ekki við samkvæmi á 4. hæð í fjölbýlishúsi á Selfossi.

Saltsýruleki á Laugarvatni

Hættuástand skapaðist í heilsulindinni Fontana á Laugarvatni í gærkvöldi, þegar 60 lítrar af saltsýru láku úr geymi í geymslukjallara hússins.

"Svaraðu já eða nei"

Kennarar í MR spurðu menntamálaráðherra beittra spurninga á hádegisfundi með VG í gær. Helst var rætt um lyf, samgöngumál, umhverfismál og mikla óánægju með menntamál. Fréttablaðið var á fundinum og lagði við hlustir.

Sjá næstu 50 fréttir