Erlent

Fimm ára stelpu nauðgað á Indlandi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Í Nýju Delí á Indlandi.
Í Nýju Delí á Indlandi. Mynd/ Getty.
Fimm ára gamalli telpu var rænt, hún svelt og henni nauðgað í Nýju Delí á Indlandi í vikunni. Málið hefur valdið mikilli reiði á Índlandi og hafa mótmæli sprottið þar upp núna um helgina, eftir því sem fram kemur í New York Times.

Lögreglan handtók 25 ára gamlan mann í morgun vegna málsins. Hinn grunaði, Marnoj Kumar, er nýgiftur og hann fannst í gegnum farsímanet í bæ tengdaforeldra hans, eftir því sem indverskir fjölmiðlar greina frá.

Kumar bjó í íbúð á jarðhæð hússins sem foreldrar litlu telpunnar bjuggu í, en hún hvarf á sunnudagskvöldið síðasta. Foreldrar hennar tilkynntu hvarf hennar til lögreglunnar daginn eftir.

Í desember síðastliðnum var ungri konu rænt í Nýju Delí, henni nauðgað og misþyrmt. Hún lést skömmu síðar af sárum sínum. Mikil reiði braust líka út eftir þann atburð og var dauðarefsinga krafist yfir mönnunum sex sem voru þar að verki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×