Fleiri fréttir Vill færa Þorláksbúð frá Skálholtskirkju Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hvetur til þess í skýrslu sinni að samkomulag verði gert um að færa nýgerða yfirbyggingu yfir Þorláksbúð. Nefndin fjallaði um málið í kjölfar bréflegrar athugasemdar um ráðstöfun styrkja úr ríkissjóði til Félags áhugafólks um uppbyggingu Þorláksbúðar. 28.3.2013 06:00 Bara aurar miðað við tjónið „Þetta eru bara aurar miðað það sem hefði orðið ef við hefðum fengið verkið,“ segir Tyrfingur Guðmundsson, einn eigenda Hópbílaleigunnar, sem fékk í gær dæmdar um 249 milljónir króna í bætur frá íslenska ríkinu. 28.3.2013 06:00 Náðu að frysta 18.100 loðnutonn Loðnuvertíðinni er lokið hjá HB Granda og skip fyrirtækisins náðu að veiða úthlutaðan kvóta í lok síðustu viku. Afli skipanna nam alls 86.150 tonnum. Alls nam framleiðsla á frystum loðnuafurðum á vegum HB Granda um 18.100 tonnum á vertíðinni. 28.3.2013 06:00 Framsókn vildi ekki Landspítala Allt útlit var fyrir að þingstörfum mundi ljúka í gær í eins mikilli sátt og hægt var, miðað við deilur undanfarinnar daga. Samningar náðust daginn áður á milli formanna flokkanna um þingfrestun. Undir kvöldmat hljóp hins vegar snurða á þráðinn þegar Framsóknarflokkurinn neitaði að afgreiða lög um byggingu nýs Landspítala. 28.3.2013 06:00 Lést í slysi á Skeiðavegi Maðurinn sem lést í árekstri jeppa og dráttarvélar á Skeiðavegi mánudaginn 25. mars hét Ellert Þór Benediktsson. 28.3.2013 06:00 EasyJet eykur starfsemi sína Ferðamennska Breska flugfélagið EasyJet hefur ákveðið að tvöfalda starfsemi sína á Íslandi og bjóða upp á þrjár flugleiðir allt árið um kring. 28.3.2013 06:00 Glöggt fylgst með Heklu Óvissustig vegna óvenjulegra jarðhræringa í Heklu er enn í gildi. Engir atburðir eru þó í gangi sem benda til að eldgos sé yfirvofandi, segir í tilkynningu Almannavarna. 28.3.2013 06:00 Frekari aðgerða þörf gegn spillingu GRECO - samtök ríkja í Evrópuráðinu gegn spillingu, birtir í dag nýja matsskýrslu um Ísland. 28.3.2013 00:22 Kennarar undirbúi komu spjaldtölvanna Undirbúningur kennara ræður því hvort spjaldtölvuvæðing í skólum heppnast. Í greinargerð um möguleika spjaldtölvunotkun í grunnskólum Reykjavíkur segir að tæknin sem slík skipti ekki mestu, heldur hvernig bæta megi skólastarf. 28.3.2013 00:01 Fimm hælisleitendamál kærð á mánuði
Sjá næstu 50 fréttir
Vill færa Þorláksbúð frá Skálholtskirkju Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hvetur til þess í skýrslu sinni að samkomulag verði gert um að færa nýgerða yfirbyggingu yfir Þorláksbúð. Nefndin fjallaði um málið í kjölfar bréflegrar athugasemdar um ráðstöfun styrkja úr ríkissjóði til Félags áhugafólks um uppbyggingu Þorláksbúðar. 28.3.2013 06:00
Bara aurar miðað við tjónið „Þetta eru bara aurar miðað það sem hefði orðið ef við hefðum fengið verkið,“ segir Tyrfingur Guðmundsson, einn eigenda Hópbílaleigunnar, sem fékk í gær dæmdar um 249 milljónir króna í bætur frá íslenska ríkinu. 28.3.2013 06:00
Náðu að frysta 18.100 loðnutonn Loðnuvertíðinni er lokið hjá HB Granda og skip fyrirtækisins náðu að veiða úthlutaðan kvóta í lok síðustu viku. Afli skipanna nam alls 86.150 tonnum. Alls nam framleiðsla á frystum loðnuafurðum á vegum HB Granda um 18.100 tonnum á vertíðinni. 28.3.2013 06:00
Framsókn vildi ekki Landspítala Allt útlit var fyrir að þingstörfum mundi ljúka í gær í eins mikilli sátt og hægt var, miðað við deilur undanfarinnar daga. Samningar náðust daginn áður á milli formanna flokkanna um þingfrestun. Undir kvöldmat hljóp hins vegar snurða á þráðinn þegar Framsóknarflokkurinn neitaði að afgreiða lög um byggingu nýs Landspítala. 28.3.2013 06:00
Lést í slysi á Skeiðavegi Maðurinn sem lést í árekstri jeppa og dráttarvélar á Skeiðavegi mánudaginn 25. mars hét Ellert Þór Benediktsson. 28.3.2013 06:00
EasyJet eykur starfsemi sína Ferðamennska Breska flugfélagið EasyJet hefur ákveðið að tvöfalda starfsemi sína á Íslandi og bjóða upp á þrjár flugleiðir allt árið um kring. 28.3.2013 06:00
Glöggt fylgst með Heklu Óvissustig vegna óvenjulegra jarðhræringa í Heklu er enn í gildi. Engir atburðir eru þó í gangi sem benda til að eldgos sé yfirvofandi, segir í tilkynningu Almannavarna. 28.3.2013 06:00
Frekari aðgerða þörf gegn spillingu GRECO - samtök ríkja í Evrópuráðinu gegn spillingu, birtir í dag nýja matsskýrslu um Ísland. 28.3.2013 00:22
Kennarar undirbúi komu spjaldtölvanna Undirbúningur kennara ræður því hvort spjaldtölvuvæðing í skólum heppnast. Í greinargerð um möguleika spjaldtölvunotkun í grunnskólum Reykjavíkur segir að tæknin sem slík skipti ekki mestu, heldur hvernig bæta megi skólastarf. 28.3.2013 00:01
Stöðugleiki og nýr gjaldmiðill Samfylkingin leggur áherslu á að tryggja öllum öruggt húsnæði, vill mynda nýja þjóðarsátt um stöðugleika og hefja strax undirbúning upptöku evru. Árni Páll Árnason segir Fréttablaðinu frá því að flokkurinn ætli ekki að taka þátt í kosningaloforðasúpu. 28.3.2013 00:01
Málverk Picasso selt á nítján milljarða Aldrei hefur verk eftir listamanninn selst jafn dýru verði. 27.3.2013 21:45
Samkomulagi náð um þinglok Tillaga um breytingar á stjórnarskrá samþykkt. Síðasti þingfundur Jóhönnu Sigurðardóttur eftir 35 ár á þingi. 27.3.2013 21:34
Segir kynþáttafordóma hafa aukist á Íslandi Salmann Tamimi, varaformaður félags múslima á Íslandi, átti í orðaskiptum við starfsmann Matfugls í gær. 27.3.2013 20:39
Fullyrt að íslenskt súkkulaði eigi uppruna í barnaþrælkun Íslandsdeild alþjóðasamtakanna Stop the Traffik skorar á íslenskan almenning að þrýsta á íslenska sælgætisframleiðendur. 27.3.2013 20:11
Stefnt að þinglokum í kvöld þrátt fyrir deilur Enn logar allt í ágreiningi á Alþingi um stjórnarskrármálið og fleiri stór mál. Um hundrað stuðningsmenn nýrrar stjórnarskrár mótmæla nú á Austurvelli. 27.3.2013 18:41
Segir lög um ættleiðingar samkynhneigðra ekki hafa náð að þjóna tilgangi sínum Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Samtakanna 78, segir að bæta þurfi um betur og tryggja að lögin komist í framkvæmd. 27.3.2013 18:23
Tvær konur skipaðar í Héraðsdóm Reykjavíkur Kristrún Kristinsdóttir, lögfræðingur við embætti landlæknis, og Barbara Björnsdóttir, settur héraðsdómari, hafa verið skipaðar í embætti héraðsdómara með fast sæti við Héraðsdóm Reykjavíkur. Embættin tvö voru auglýst laus til umsóknar þann 30. janúar síðastliðinn. 27.3.2013 16:43
Ný simla í Húsdýragarðinn Eitt hreindýr bættist í litlu hreindýrahjörðinni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í gærkvöldi þegar veturgamalli simlu, sem er kvenkyns hreindýr, var sleppt í garðinum eftir ferðalag að austan. Þar hitti hún fyrir vetrungana Tind, Heiði og Austra og hina fimm vetra Regínu. 27.3.2013 16:32
Máttu ekki skoða tölvupóst fyrrverandi starfsmanns síns Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi tölvufyrirtækið Advanía, sem áður hét EJS, til þess að greiða Guðjóni Magnússyni, fyrrverandi starfsmanni 300 þúsund í miskabætur. Þá var fyrirtækið dæmt til að greiða 1200 þúsund krónur í málskostnað. Ástæðan er sú að fyrirtækið sótti tölvupóst á tölvupóstfang Guðjóns án hans vitneskju. Guðjón hóf störf hjá EJS í maí 2006 og vann hjá fyrirtækinu þar til 3. febrúar 2009 en hann var einn helsti sérfræðingur fyrirtækisins í Microsoft hugbúnaði. 27.3.2013 15:47
Aldrei sannað að Guðmundur og Geirfinnur hafi verið myrtir Aldrei hefur verið sannað með óyggjandi hætti að nein glæpaverk hafi verið unnið við hvarf Guðmundar Einarssonar og Geirfinns Einarssonar, sagði Jón Steinar Gunnlaugsson þáverandi lögmaður og síðar hæstaréttardómari í grein í Morgunblaðinu. Greinina ritaði Jón Steinar í ágúst 1997, fáeinum dögum eftir að Hæstiréttur hafnaði beiðni um endurupptöku málsins. 27.3.2013 15:07
Svartsýnar spár í Eurovision: Öndum bara rólega "Ég fer varlega í að skoða þessar spár og trúa þeim - keppnin er ekki hafin,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson, okkar helsti Eurovision-sérfræðingur. Veðmálasíðan Betsson.com spáir Íslandi 30. til 34. sæti og aðrar sambærilegar síður spá okkur svipuðum árangri. 27.3.2013 14:28
Ekki ætlunin að mismuna nemendum "Það er ekki ætlunin með þessu frumvarpi að auka mismun heldur stuðla að jafnrétti,“ segir Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. Blindrafélagið sendi í dag frá sér tilkynningu með greinagerð tveggja lögmanna þar sem fullyrt er að nýtt frumvarp um Lánasjóð íslenskra námsmanna. 27.3.2013 14:05
Enn óvissa vegna Heklu Óvissustig vegna Heklu er enn í gildi. Í tilkynningu frá almannavörnum segir að engir atburðir séu nú í gangi sem bendi til að eldgos sé yfirvofandi en í samráði við Veðurstofu Íslands verði áfram fylgst með þróun mála. Að óbreyttu verði staðan endurmetin í næstu viku. 27.3.2013 13:48
Samkynhneigð pör hafa ekki ættleitt börn Ekkert par af sama kyni, sem búsett er hér á landi, hefur ættleitt barn frá árinu 2006 - hvorki innan lands né erlendis frá. Svipaða sögu eru að segja þegar kemur að öðrum norrænum ríkjum. 27.3.2013 13:34
Að óbreyttu fá nýútskrifaðir lögreglumenn ekki vinnu Á annan tug lögreglumanna, sem útskrifuðust úr lögregluskólanum síðustu jól, fær enga vinnu þar sem niðurskurður síðustu ára hefur fækkað störfum verulega. Tuttugu í viðbót útskrifast næstu jól og sjá þeir heldur ekki fram á að fá vinnu við löggæslu. Formaður Landssambands lögreglumanna hefur áhyggjur af ástandinu. 27.3.2013 12:15
Blindir gagnrýna LÍN-frumvarp ráðherra Stjórn Blindrafélagsins telur að nýtt frumvarp menntamálaráðherra um LÍN feli í sér ólögmæta mismunun og brjóti gegn jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Blindrafélagið segir að höfundar frumvarpsins hafi lítið haft hliðsjón af hagsmunum og réttindum fatlaðra nemenda við gerð frumvarpsins. Máli sínu til stuðnings vísar Blindrafélagið til álitsgerðar sem Daníel Isebarn Ágústsson, hæstaréttarlögmaður og Páll Rúnar M. Kristjánsson héraðsdómslögmaður unnu. 27.3.2013 12:13
Dagskrártillaga Birgittu kolfelld Þingfundur var settur klukkan hálf tólf í dag eftir miklar samningaviðræður um lok þingsins. Svo virðist sem þokast hafi verulega í samkomulagsátt í gær. Rætt er um að breytingar á stjórnarskrá krefjist samþykkis 2/3 hluta þingmanna og þjóðaratkvæðagreiðsla veðri haldin sex til níu mánuðum síðar. Krafist verði samþykkis fjörutíu prósent kjósenda af kjörskrá. 27.3.2013 11:41
Upptakan af fallhlífastökkinu ekki birt Upptaka af því þegar Örvar Arnarson reyndi að hjálpa Andra Má Þórðarsyni að opna fallhlíf sína á Flórída á laugardag verður ekki birt. Þetta kom fram á blaðamannafundi lögreglu í Pasco-sýslu sem fór fram í gær. 27.3.2013 10:53
Þingfundi frestað meðan sáttatillögur eru ræddar Þingfundi sem hefjast átti klukkan hálf ellefu var frestað til klukkan hálf tólf. Stjórn og stjórnarandstaða eru væntanlega að leggja lokahönd á samkomulag sem fæddist í gærkvöld um þinglok. Fyrir fundinum liggja tuttugu og eitt mál, þau fyrstu um náttúruvernd og stuðningsaðgerðir vegna uppbyggingar á Bakka. 27.3.2013 10:50
Kínverskur 900 hestafla ofurbíll Hannaður af Samuel Chaffart sem teiknað hefur Nissan og Jaguar-Land Rover bíla. Kemst í 200 á innan við 10 sekúndum. 27.3.2013 10:45
Viðrar vel til skíðaferða Það verður gott veður um páskana víðast hvar á landinu, segir Björn Sævar Einarsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Það er ekkert hægt að kvarta sérstaklega yfir því. Hann gerir ráð fyrir því að hlýjast verði hér í bænum og víðar á Suðvesturlandi. "Á páskadag er spáð bjartviðri fyrir norðan og austan,“ segir hann. Horfur séu ágætar fyrir skíðafólk um helgina. "Það er helst á föstudaginn langa að það verði vindur á Austfjörðum,“ segir hann. 27.3.2013 10:27
Bílasala í Evrópu féll um 10,2% í febrúar Jókst þó í Bretlandi um 7,9%. Mest söluminnkun hjá Ford, GM og Fiat en aukning hjá Honda, Mazda og Hyundai 27.3.2013 08:45
Frans 1. hafnar lúxusíbúð og býr áfram á hóteli í Páfagarði Frans 1. páfi hefur ákveðið að flytja ekki inn í lúxusþakíbúðina sem fylgir embætti hans á toppi Apostolic hallarinnar í Páfagarði. 27.3.2013 07:49
Allt stefnir í þinglok í dag eða í kvöld Allt stefnir að þinglokum í dag eða í kvöld, eftir að verulega fór að þokast í samkomulagsátt meðal formanna þingflokkanna í gærkvöldi og í nótt. 27.3.2013 06:43
Cameron gefur hafrannsóknarstofnun djúpsjávarkafbát sinn Leikstjórinn James Cameron hefur ákveðið að gefa hafrannsóknarstofnun í Bandaríkjunum heimsfrægan djúpsjávarkafbát sinn. 27.3.2013 06:41
Allt með kyrrum kjörum á Heklusvæðinu Allt var með kyrrum kjörum á Heklusvæðinu í nótt nema hvað þar mældist einn smáskjálfti upp á 0,4 stig. 27.3.2013 06:33
Öflugur jarðskjálfti skók Taiwan í nótt Öflugur jarðskjálfti sem mældist sex stig skók Taiwan í nótt. Um 20 manns slösuðust í þessum skjálfta en hann olli því meðal annars að háhýsi sveifluðust til í höfuðborginni Taipei. 27.3.2013 06:31
Grunur um hundakjöt í karrýréttum í London Í heimildarþætti sem BBC sendir út í kvöld kemur fram að grunur leiki á því að hundakjöt hafi verið notað í karrýrétti í Bretlandi. 27.3.2013 06:29
Tvær bílveltur á veginum undir Hafnarfjalli Tveir bílar ultu með skömmu millibili út af þjóðveginum undir Hafnarfjalli á ellefta tímanum í gærkvöldi, eftir að þar myndaðist skyndilega ísing á veginum. 27.3.2013 06:26
Slökkviliðsstjóri frestar heimildum til að kveikja sinuelda Bjarni Þorsteinsson slökkviliðsstjóri í Borgarfirði frestaði í gær heimildum sýslumanns til að kveikja sinuelda á tveimur stöðum í Andakíl í Borgarfirði, vegna mikilla þurrka í gróðurlandi á svæðinu og hættu á að eldarnir fari úr böndunum. 27.3.2013 06:24
Danskir grunnskólakennarar í verkbanni eftir páska Aðeins kraftaverk getur komið í veg fyrir að allir grunnskólakennarar í Danmörku lendi í verkbanni af hálfu bæjar- og sveitarfélaga landsins eftir páska. 27.3.2013 06:16
Íslenskir fangar eru lengur í einangrun Leyfilegur hámarkstími fyrir fanga í einangrun er mun lengri hér á landi en tíðkast víða erlendis. Samkvæmt lögum má vista fólk í einangrunarklefum í hámark fjórar vikur, en lengur ef brot varðar að minnsta kosti tíu ára fangelsisvist. 27.3.2013 06:00
Ekki nýjar virkjanir hjá OR fyrr en mengunarmál leysast Orkuveita Reykjavíkur (OR) mun ekki reisa fleiri virkjanir á Hengilssvæðinu fyrr en fundist hefur lausn á brennisteinsvetnismengun. Fyrirtækið hefur óskað eftir frestun á gildistöku reglugerðar um hert skilyrði vegna útblásturs brennisteinsvetnis. Þau eiga að taka gildi 1. júlí á næsta ári. 27.3.2013 06:00
Semja um þröskuld við þjóðaratkvæði Alls þurfa 40 prósent kjósenda að samþykkja umdeildar breytingar á stjórnarskrá, samkvæmt hugmyndum formanna stjórnmálaflokkanna að samkomulagi í stjórnarskrármálinu. Nokkuð þokaðist í samkomulag á milli flokkanna í gær, en enn ber á milli í nokkrum málum. 27.3.2013 06:00