Semja um þröskuld við þjóðaratkvæði Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 27. mars 2013 06:00 stjórnlagaráð Stjórnarflokkarnir telja sig ekki hafa meirihluta fyrir því að þvinga í gegn atkvæðagreiðslu um stjórnarskrá. Frá fundi stjórnlagaráðs sem samdi drög að stjórnarskrá.fréttablaðið/gva
Alls þurfa 40 prósent kjósenda að samþykkja umdeildar breytingar á stjórnarskrá, samkvæmt hugmyndum formanna stjórnmálaflokkanna að samkomulagi í stjórnarskrármálinu. Nokkuð þokaðist í samkomulag á milli flokkanna í gær, en enn ber á milli í nokkrum málum. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, sat fund formannanna í gær. Hún sagði frá samkomulagsgrunninum á Facebook en formennirnir hafa hingað til verið tregir til að gefa upp um hvað það snýst. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, staðfesti við Fréttablaðið í gærkvöldi að breytingarnar hefðu verið ræddar. „Við höfum verið að ræða áframhaldandi breytingar á breytingarákvæði stjórnarskrár. Það hefur verið rætt um að setja 40 prósenta samþykkisþröskuld, sem þýðir 80 prósenta þátttöku í mjög umdeildum stjórnarskrárbreytingum,“ segir hún. Fleiri mál standa þó út af borðinu en stjórnarskráin. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því, meðal annars úr Framsóknarflokknum, að flokkurinn hafi lítinn áhuga að sjá lög um nýjan Landspítala verða að veruleika. Þá hefur verið rætt um gildistöku nýrra náttúruverndarlaga, en ekki náðst saman enn. Viðræður fóru fram í nokkrum hópum í gær og gengu sumpart vel. Illugi Gunnarsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, segir viðræðurnar um margt hafa gengið vel. „Við höfum verið að færast nær samkomulagi. Það hefur gengið ágætlega í dag [gær] og menn hafa fundið lausnir á ágætum meirihluta málanna. Það eru þó enn þá nokkur mál sem standa út af, en þau eru ekki mörg.“ Nokkuð hefur verið rætt um hvort stjórnarflokkarnir hyggist beita 71. grein laga um þingsköp og knýja fram atkvæðagreiðslu um stjórnarskrána. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er hins vegar ekki meirihluti fyrir samþykkt hennar.
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Fleiri fréttir Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Sjá meira