Ný simla í Húsdýragarðinn Jón Hákon Halldórsson skrifar 27. mars 2013 16:32 Fjögur veturgömul hreindýr eru í garðinum.
Eitt hreindýr bættist í litlu hreindýrahjörðinni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í gærkvöldi þegar veturgamalli simlu, sem er kvenkyns hreindýr, var sleppt í garðinum eftir ferðalag að austan. Þar hitti hún fyrir vetrungana Tind, Heiði og Austra og hina fimm vetra Regínu. Það voru þeir Sveinn Ingimarsson bóndi og skytta og Ívar Karl Hafliðason sem fönguðu simluna ofan við Hengifoss sem er í norðanverðum Fljótsdal. Þeir Sveinn og Ívar Karl ásamt Skarphéðni Þórissyni fönguðu einnig hin dýrin sem komu í garðinn fyrir mánuði, með netbyssu sem skotið var yfir dýrin af um 10 metra færi líkt og nú. Fimm vetra simlan Regína er borin í garðinum og hefur verið nýju íbúunum til halds og trausts. Svenni skytta ók sjálfur með simluna til Reykjavíkur og nefndi hana Gullbrá. Opið verður í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum alla páskahelgina frá klukkan 10 til 17. Hringekja, lest, ökuskóli og fallturn verða opin frá klukkan 12 til 16:30 auk þess sem blásið verður í Ærslabelg þegar þurrt er í veðri. Þá verður teymt undir börnum í hestagerðinu alla páskana frá klukkan 14 til 14:30. Nýr hestur kom nýlega í garðinn en sá heitir Hamar frá Sperðli og er brúnskjóttur á lit. Auk hans búa í garðinum vindótta hryssan Gola og geldingarnir Öngull og Fylkir. Stóðhesturinn Markús frá Langholtsparti dvelur að auki í garðinum í vetur sem gestur.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira