Fleiri
Mannskæð árás í Mogadishu Átta féllu og tuttugu særðust í sprengjuárás í morgun. 18.3.2013 15:38 Mexíkóskum bílaframleiðendum fjölgar VUHL hefur fengið fjárstuðning frá Mexíkóskum yfirvöldum og meðal birgja eru Ford og Magna Steyr. 18.3.2013 15:29 Vörukarfan í Hagkaup hækkaði um 4% Vörukarfa ASÍ hækkaði um 4,2% í Hagkaup á einum mánuði, samkvæmt nýjustu mælingu. Vörukarfan hefur hækkað í 10 verslunum af þeim 15 sem verðlagseftirlitið heimsækir. 18.3.2013 14:46 Tíu ökumenn ákærðir Eftirmálar þess sem talið er vera dýrasti árekstur sögunnar. 18.3.2013 14:28 Engar reglur um ber hér á landi Enn hefur ekki tekist að finna sökudólg lifrarbólgufaraldursins í Danmörku 18.3.2013 14:02 Varað við svifryki í Reykjavík Styrkur svifryks (PM10) verður líklega yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík í dag, mánudaginn 18. mars. Í dag er hægur vindur, götur þurrar og engar líkur á úrkomu. 18.3.2013 13:18 „Töffaraskapur í aðdraganda kosninga“ Fjármálaráðherra gagnrýnir umræðu um skort á samráði. 18.3.2013 13:18 Gunnar vill samtals 10 milljónir frá Krosskonum Gunnar Þorsteinsson, fyrrverandi forstöðumaður í Krossinum, krefst þess að talskonur Krosskvenna, Ásta Knútsdóttir og Sesselja Engilráð Barðdal, greiði honum hvor um sig greiði honum 5 milljónir króna í skaðabætur. Þá krefst hann þess að Vefpressan, útgefandi vefritsins Pressunnar greiði sér fimm milljónir vegna umfjöllunar um ásakana kvennana um kynferðisofbeldi. Lögreglan lét rannsókn á máli Gunnars niður falla svo ekki kom til ákæru. 18.3.2013 13:16 Gotti fór bara á djammið Ostastrákurinn Gotti, sem fjarlægður var af stalli sínum í Sundhöll Selfoss síðastliðinn mánudag, fannst í heilu lagi í íbúðarhverfi á Selfossi í gærkvöldi. 18.3.2013 12:57 Segist hafa fengið fullt umboð fyrir öll skref Þingmönnum var heitt í hamsi á þingi í dag þegar rætt var um fundarstjórn forseta og þurfti þingforseti að biðja þingmenn um að róa sig. 41 mál eru á dagskrá fundarins í dag þar á meðal málamiðlunartillaga formanna Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og Bjartrar framtíðar sem hefur vakið miklum taugatitringi. Ekki síst í röðum Samfylkingarmanna. 18.3.2013 12:50 Ekki ákveðið hvort flugbrautinni verði lokað Formaður Framsóknarflokksins segir óæskilegt að ríkisvaldið taki þátt í að þoka Reykjavíkurflugvelli burt með því að selja hluta flugvallarins undir íbúðabyggð. Innanríkisráðherra segir ekki ákveðið hvort þriðju brautinni verði lokað. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun. Framtíð Reykjavíkurflugvallar var fyrsta málið sem tekið var upp þegar þing kom saman að nýu í morgun eftir helgarleyfi en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, vitnaði til þess að Katrín Júlíusdóttir fjármálaráðherra, varaformaður Samfylkingarinnar, hefði selt fyrrverandi varaformanni Samfylkingarinnar, Degi B. Eggertssyni, sem fulltrúa Reykjavíkurborgar, hluta af landi ríkisins í Vatnsmýri með það í huga að byggja þar íbúðahverfi og leggja af þriðju flugbraut vallarins. Sigmundur Davíð kvaðst ekki vita til þess að formleg ákvörðun hefði verið tekin um að leggja þá flugbraut af enda gengdi hún ákveðnu öryggishlutverki. Ástæða væri fyrir því að flugbrautin væri þarna og æskilegt væri að flugvöllurinn væri sem öruggastur. "Og jafnframt þá að það sé óæskilegt að ríkið sé að taka þátt í einhverskonar þrýstingi um það að reyna smátt og smátt að þoka flugvellinum burt með því að byggja alveg upp að honum," sagði Sigmundur Davíð. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kvaðst hafa gagnrýnt samkomulagið og sagði það misráðið. "Því þetta er komið undir því hvort tiltekinni flugbraut verði lokað og það mál hefur ekki verið til lykta leitt," sagði Ögmundur. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, kvaðst ráða af orðum innanríkisráðherrans að fjármálaráðherra og formaður borgarráð hefðu farið fram úr sjálfum sér með undirritun samkomulagsins. Hann spurði hvort samningurinn væri eitthvað meira en viljayfirlýsing tiltekinna stjórnmálamanna úr Samfylkinguinni. 18.3.2013 12:41 Dagaspursmál hvenær Herjólfur siglir til Landeyja Á heimasíðu Herjólfs kemur fram að nú sé spurning um daga frekar en vikur hvenær skiptið hefji siglingar á milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja. 18.3.2013 12:33 Ritun byggðasögunnar ekki lokið eftir 33 ár "Við höfum ekki nákvæma stöðu á verkefninu í dag en mér skilst að upphæðin sé komin hátt í 50 milljónir króna. Sparisjóður Strandamanna tekur á sig hluta af því en stór hluti skuldarinnar eru vextir.“ 18.3.2013 11:54 Bókanir ekki skilyrði fyrir baði Þótt mælst sé til þess að gestir Bláa lónsins bóki heimsókn þangað fyrirfram þegar bókunarvélin verður komin í loftið er enn hægt að fara þangað óbókaður. Þetta segir í orðsendingu frá Bláa lóninu vegna fréttar í Fréttablaðinu og á Vísi í dag um nýtt bókunarkerfi. 18.3.2013 11:22 Sjá næstu 50 fréttir
Norðurskautsráð verði eini vettvangurinn Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, og Össur Skarphéðinsson, starfsbróðir hans, eru sammála um að rétt sé að fleiri ríkjum verði veitt áheyrnaraðild að Norðurskautsráði. Það myndi tryggja ráðið í sessi sem hinn eina umræðuvettvang um málefni sem tengjast norðurslóðum. Þetta kom fram í máli ráðherranna á setningarathöfn alþjóðlegrar ráðstefnu um áskoranir og tækifæri á norðurslóðum sem nýstofnað Rannsóknasetur um norðurslóðir stendur fyrir. 19.3.2013 07:00
Kennir parinu að nokkru um árásina Sex menn voru handteknir á sunnudag í Madya Pradesh á Indlandi, sakaðir um að hafa ráðist á par frá Sviss, bundið manninn við tré og nauðgað konunni. 19.3.2013 07:00
Geta ekki veitt nægan stuðning "Nú er sex vikna bið eftir að fá nýjan tíma,“ segir Karólína Stefánsdóttir, félagsráðgjafi hjá Fjölskylduráðgjöfinni á Akureyri. "Inn í þetta blandast svo alvarlegur skortur á heimilislæknum svo þetta er orðinn vítahringur. Fólk upplifir eilífa bið eftir stuðningi.“ 19.3.2013 07:00
Skipin ekki að fá neitt af loðnu Loðnuvertíðinni er að ljúka er mat Alberts Sveinssonar, skipstjóra á Faxa RE, en skipin eru almennt ekki að fá neinn teljandi afla á miðunum í Breiðafirði. 19.3.2013 07:00
Vill efla rannsóknir við skólann Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA), hefur verið ráðinn rektor Háskólans á Bifröst frá og með 1. júlí næstkomandi. 19.3.2013 07:00
Mikil snjóflóðahætta á Tröllaskaga Mikil snjóflóðahætta er á utanverðum Tröllaskaga, eða í Fjallabyggð, að mati Veðurstofunnar, og hafa nokkur flóð þegar fallið þar. 19.3.2013 06:43
Þyrla sótti slasaðan sjómann um borð í loðnuskipi Sjómaður slasaðist við vinnu sína um borð í loðnuskipi, þegar það var statt á Breiðafirði í gærkvöldi. 19.3.2013 06:40
Fundað til mðnættis Umræðan á Alþingi um stjórnarskrárfrumvarpið fór í málþóf í gær og var þingfundi frestað á miðnætti. Þá var á annan tug þingmanna enn á mælendaskrá. 19.3.2013 06:38
Tvö innbrot í borginni í nótt Tvö innbrot voru framin á höfuðborgarsvæðinu í nótt og komust þjófarnir undan í báðum tilvikum. 19.3.2013 06:34
Vara við nýrri tegund svínaflensu sem er ónæm fyrir öllum lyfjum Vísindamenn í Ástralíu hafa varað við nýjum svínaflensuvírus sem greinst hefur í landinu en þessi vírus er ónæmur fyrir öllum þekktum flensulyfjum þar á meðal Tamiflu. 19.3.2013 06:30
Kælikerfin í kjarnorkuverinu í Fukushima eru óvirk Kælikerfin í þremur af fjórum kjarnakljúfum í kjarnorkuverinu í Fukushima eru óvirk eftir að rafmagnsbilun sló þau út í gærkvöldi. 19.3.2013 06:29
Sinubruni í Reykjavík í morgun Tilkynnt var um sinubruna efst í Húsahverfinu í Reykjavík um klukkan hálf fimm í morgun og slökkviliðið þegar sent á staðinn. 19.3.2013 06:27
B-52 sprengjuflugvélar æfa kjarnorkuárás á Norður Kóreu Í sameiginlegum heræfingum Suður Kóreumanna og Bandaríkjamanna sem nú standa yfir í Suður Kóreru hafa B-52 sprengjuflugvélar æft kjarnorkuárás á Norður Kóreu. 19.3.2013 06:22
Herjólfur siglir til Landeyjahafnar í dag Herjólfur byrjar siglingar til Landeyjahafnar í dag og siglir fjórar ferðir daglega á milli lands og Eyja, samkvæmt vetraráætlun. 19.3.2013 06:19
Rútuslys í Indlandi kostaði 32 manns lífið Rútuslys í Indlandi kostaði 32 manns lífið og 13 slasaða í gærdag. 19.3.2013 06:17
Gífurlegar öryggisráðstafanir fyrir messu Frans 1. á Péturstorginu Gífurlegar öryggisráðstafanir hafa verið gerðar í Róm í dag en þá tekur Frans 1. páfi formlega við embætti sínu með messu á Péturstorginu. 19.3.2013 06:14
Ekið á lögn þrátt fyrir bann Nokkrar skemmdir uppgötvuðust á Nesjavallalögn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) í gær og benda ummerki eindregið til þess að ekið hafi verið á hana. Þetta er, að því er fram kemur í tilkynningu OR, í annað skiptið á stuttum tíma sem viðlíka atvik á sér stað, en í janúar var einnig ekið á pípuna. 19.3.2013 06:00
"Bréfberar“ keyptu bréf fyrir tugi milljarða Kaupin sem sérstakur saksóknari hefur ákært fyrir í markaðsmisnotkunarmálinu gegn stjórnendum og starfsmönnum Kaupþings banka, sem segir frá á forsíðu blaðsins, gengu þannig fyrir sig að eigin viðskipti Kaupþings, þ.e. deild innan bankans, keyptu laus hlutabréf. 19.3.2013 06:00
Þingrof ekki í sjónmáli Fundi Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, með þingflokksformönnum í kvöld varðandi það hvenær ljúka ætti þingi skilaði engum árangri. Það er því alls óljóst hvenær þing verður rofið. 18.3.2013 22:57
Rafmagn komið á í Fossvogi Nú á rafmagn að vera komið á á öll þau svæði sem urðu rafmagnslaus í biluninni nú fyrr í kvöld en hún varð í háspennustreng Orkuveitu Reykjavíkur í Fossvogi. 18.3.2013 22:40
Rafmagnslaust í Fossvogi Bilun kom upp í dreifikerfi Orkuveitu Reykjavíkur í kvöld og er þess vegna rafmagnslaust í Fossvogi í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur er um að ræða háspennubilun í Elliðarárstöðinni. Verið er að vinna að viðgerð og er talið að hún geti tekið allt að einni klukkustund. 18.3.2013 21:46
Funda um þinglok Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, boðaði þingflokksformenn á fund sinn klukkan hálftíu í kvöld til þess að ræða þinglok. 18.3.2013 21:26
Myndir þú hjálpa vini þínum? Ný auglýsing slær í gegn Þær eru mismunandi auglýsingaherferðirnar sem fyrirtæki ráðast í og hefur ný herferð danska bjórframleiðandans Carlsberg vakið mikla athygli á netinu síðustu daga. 18.3.2013 20:30
Sterkasta kaffi í heimi Mike Brown vinnur nú að því að markaðssetja sterkasta kaffi í heimi - kaffið ber nafnið Death Wish Coffee. Kaffið er tvisvar sinnum sterkara en espresso og á umbúðunum eru neytendur varaðir við "mörgum andvöku nóttum“. 18.3.2013 19:48
Einar Ben hafði rétt fyrir sér - Ferðamenn vilja sjá Norðurljósin Ferðamenn jafnt sem Íslendingar horfðu til himins síðastliðna nótt þegar norðurljósin skörtuðu sínu fegursta. Mikil sóknarfæri fyrir ferðmannaiðnaðinn fylgja þessari óhefðbundnu söluvöru en hátt í tuttugu þúsund ferðamenn hafa farið í norðurljósaferðir það sem af er ári. 18.3.2013 19:36
Bændur klippa enn halann af Algengt er að íslenskir svínabændur klippi sjálfir halann af grísum sínum. Þrátt fyrir það segir í reglugerð um aðbúnað og heilbrigði svína að aðeins megi skera halann af telji dýralæknir brýna nauðsyn til. Dýralæknir eigi að framkvæma aðgerðina. 18.3.2013 18:45
Besta málamiðlun í Vatnsmýri útilokuð Besta mögulega málamiðlun um framtíð Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri yrði útilokuð, segir atvinnuflugmaðurinn Ómar Ragnarsson, um þá ákvörðun fjármálaráðherra að selja borginni hluta flugvallarins undir íbúabyggð. Ómar, sem er einn reyndasti flugmaður Íslendinga, varar við því í samtali við Stöð 2 að umrætt svæði verði tekið undir íbúabyggð þar sem með því yrði girt fyrir málamiðlun sem kæmi til móts við kröfur um aukna íbúðabyggð en bætti jafnframt notagildi vallarins. Ómar segir að lenging austur-vestur-brautarinnar út í sjó, svo hún verði aðalbraut vallarins, geti ein og sér stórminnkað ónæði af flugvellinum. Hann vill jafnframt að skoðað verði að leggja nýja en styttri norður-suður-braut, til að nota í hvössum norðan- og sunnanáttum, nokkurn veginn eins og hér er sýnt, með stefnu framhjá Kársnesinu til suðurs en til norðurs yfir Arnarhól. Þannig mætti leggja af bæði núverandi norður-suðurbraut og litlu brautina og losa mikið rými undir byggð en halda notagildi vallarins. Ómar segir aðalatriðið að sýna framsýni og eyðileggja ekki í fljótræði möguleika á mismunandi lausnum. 18.3.2013 18:45
Þú munt bara sjá svona einu sinni á ævinni Halastjarnan Ison er á leið til jarðarinnar og birtist okkur í 60 milljón kílómetra fjarlægð á jóladag. 18.3.2013 18:01
Íslendingar fylgja særðum hermönnum á Suðurpólinn Það kemur í hlut Íslendinga að fylgja særðum hermönnum á Suðurpólinn í lok ársins. 18.3.2013 17:36
Hillary Clinton styður hjónabönd samkynhneigðra Hillary Clinton fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýsti því yfir í dag að hún styddi hjónabönd samkynhneigðra. Það er eitthvað sem hún hefur ekki gert áður. 18.3.2013 17:29
„Þörfin er til þó hið opinbera hafi ekki viðurkennt hana“ Gunnar Smári Egilsson segir börn alkóhólista þurfa stuðning. 18.3.2013 16:34
Mexíkóskum bílaframleiðendum fjölgar VUHL hefur fengið fjárstuðning frá Mexíkóskum yfirvöldum og meðal birgja eru Ford og Magna Steyr. 18.3.2013 15:29
Vörukarfan í Hagkaup hækkaði um 4% Vörukarfa ASÍ hækkaði um 4,2% í Hagkaup á einum mánuði, samkvæmt nýjustu mælingu. Vörukarfan hefur hækkað í 10 verslunum af þeim 15 sem verðlagseftirlitið heimsækir. 18.3.2013 14:46
Engar reglur um ber hér á landi Enn hefur ekki tekist að finna sökudólg lifrarbólgufaraldursins í Danmörku 18.3.2013 14:02
Varað við svifryki í Reykjavík Styrkur svifryks (PM10) verður líklega yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík í dag, mánudaginn 18. mars. Í dag er hægur vindur, götur þurrar og engar líkur á úrkomu. 18.3.2013 13:18
„Töffaraskapur í aðdraganda kosninga“ Fjármálaráðherra gagnrýnir umræðu um skort á samráði. 18.3.2013 13:18
Gunnar vill samtals 10 milljónir frá Krosskonum Gunnar Þorsteinsson, fyrrverandi forstöðumaður í Krossinum, krefst þess að talskonur Krosskvenna, Ásta Knútsdóttir og Sesselja Engilráð Barðdal, greiði honum hvor um sig greiði honum 5 milljónir króna í skaðabætur. Þá krefst hann þess að Vefpressan, útgefandi vefritsins Pressunnar greiði sér fimm milljónir vegna umfjöllunar um ásakana kvennana um kynferðisofbeldi. Lögreglan lét rannsókn á máli Gunnars niður falla svo ekki kom til ákæru. 18.3.2013 13:16
Gotti fór bara á djammið Ostastrákurinn Gotti, sem fjarlægður var af stalli sínum í Sundhöll Selfoss síðastliðinn mánudag, fannst í heilu lagi í íbúðarhverfi á Selfossi í gærkvöldi. 18.3.2013 12:57
Segist hafa fengið fullt umboð fyrir öll skref Þingmönnum var heitt í hamsi á þingi í dag þegar rætt var um fundarstjórn forseta og þurfti þingforseti að biðja þingmenn um að róa sig. 41 mál eru á dagskrá fundarins í dag þar á meðal málamiðlunartillaga formanna Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og Bjartrar framtíðar sem hefur vakið miklum taugatitringi. Ekki síst í röðum Samfylkingarmanna. 18.3.2013 12:50
Ekki ákveðið hvort flugbrautinni verði lokað Formaður Framsóknarflokksins segir óæskilegt að ríkisvaldið taki þátt í að þoka Reykjavíkurflugvelli burt með því að selja hluta flugvallarins undir íbúðabyggð. Innanríkisráðherra segir ekki ákveðið hvort þriðju brautinni verði lokað. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun. Framtíð Reykjavíkurflugvallar var fyrsta málið sem tekið var upp þegar þing kom saman að nýu í morgun eftir helgarleyfi en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, vitnaði til þess að Katrín Júlíusdóttir fjármálaráðherra, varaformaður Samfylkingarinnar, hefði selt fyrrverandi varaformanni Samfylkingarinnar, Degi B. Eggertssyni, sem fulltrúa Reykjavíkurborgar, hluta af landi ríkisins í Vatnsmýri með það í huga að byggja þar íbúðahverfi og leggja af þriðju flugbraut vallarins. Sigmundur Davíð kvaðst ekki vita til þess að formleg ákvörðun hefði verið tekin um að leggja þá flugbraut af enda gengdi hún ákveðnu öryggishlutverki. Ástæða væri fyrir því að flugbrautin væri þarna og æskilegt væri að flugvöllurinn væri sem öruggastur. "Og jafnframt þá að það sé óæskilegt að ríkið sé að taka þátt í einhverskonar þrýstingi um það að reyna smátt og smátt að þoka flugvellinum burt með því að byggja alveg upp að honum," sagði Sigmundur Davíð. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kvaðst hafa gagnrýnt samkomulagið og sagði það misráðið. "Því þetta er komið undir því hvort tiltekinni flugbraut verði lokað og það mál hefur ekki verið til lykta leitt," sagði Ögmundur. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, kvaðst ráða af orðum innanríkisráðherrans að fjármálaráðherra og formaður borgarráð hefðu farið fram úr sjálfum sér með undirritun samkomulagsins. Hann spurði hvort samningurinn væri eitthvað meira en viljayfirlýsing tiltekinna stjórnmálamanna úr Samfylkinguinni. 18.3.2013 12:41
Dagaspursmál hvenær Herjólfur siglir til Landeyja Á heimasíðu Herjólfs kemur fram að nú sé spurning um daga frekar en vikur hvenær skiptið hefji siglingar á milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja. 18.3.2013 12:33
Ritun byggðasögunnar ekki lokið eftir 33 ár "Við höfum ekki nákvæma stöðu á verkefninu í dag en mér skilst að upphæðin sé komin hátt í 50 milljónir króna. Sparisjóður Strandamanna tekur á sig hluta af því en stór hluti skuldarinnar eru vextir.“ 18.3.2013 11:54
Bókanir ekki skilyrði fyrir baði Þótt mælst sé til þess að gestir Bláa lónsins bóki heimsókn þangað fyrirfram þegar bókunarvélin verður komin í loftið er enn hægt að fara þangað óbókaður. Þetta segir í orðsendingu frá Bláa lóninu vegna fréttar í Fréttablaðinu og á Vísi í dag um nýtt bókunarkerfi. 18.3.2013 11:22