Fleiri fréttir Aðeins ekið á 70 að Þríhnúkagíg Skipulagsstofnun segir að þótt áhrif af fyrirhuguðum mannvirkjum við Þríhnúkagíg séu að langmestu leyti afturkræf geti þau ásamt stígagerð haft neikvæð áhrif á verndargildi gígsins. Þá séu framkvæmdirnar innan vatnsverndarsvæðis. 4.1.2013 08:00 Snjóbræðslan brátt í gagnið Snjóbræðslukerfi sem lagt var undir Klapparstíg í nýafstöðnum endurbótum á milli Laugavegar og Hverfisgötu verður tengt öðru hvoru megin við helgina. 4.1.2013 08:00 Slökkviliðið kallað út 2.306 sinnum Slökkvilið Akureyrar var kallað út 2.306 sinnum á nýliðnu ári. Það er um 8% fjölgun frá fyrra ári. 1.768 sinnum var liðið kallað út á sjúkrabílum á nýliðnu ári, en það er um 13% aukning frá fyrra ári. 4.1.2013 08:00 Merki frá vita trufluðust Svo virðist sem einhver hafi skotið úr riffli á Hólmsbergsvita við Helguvík fyrir skömmu. Að öllum líkindum var skotið á vitaljósið því merkjasendingar vitans trufluðust. 4.1.2013 08:00 Prófuðu flóðbylgjusprengjur árið 1944 Gömul leyniskjöl sem nýlega fundust í skjalasafni nýsjálenska hersins sýna að Bandaríkjamenn og Nýsjálendingar þróuðu og prófuðu sprengjur sem gátu framkallað flóðbylgjur á síðustu árum seinni heimstyrjaldarinnar. 4.1.2013 07:09 Tólf ára drengur töluvert brenndur eftir rokeldspýtur Tólf ára drengur brenndist töluvert á hendi í gærkvöldi þegar heill stokkur af rokeldspýtum til að kveikja í flugeldum, fuðraði skyndilega upp í hendi hans við Þorláksgeisla í Reykjavík. Hann hlaut annars og þriðja stigs bruna og var fluttur á slysadeild. 4.1.2013 07:01 Handtekinn eftir að hafa ruðst inn í íbúð í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók tvo menn í annarlegu ástandi úr umferð í nótt og vistaði þá í fangageymslum. 4.1.2013 06:53 Óvissuástand áfram fyrir norðan vegna snjóflóða Enn er óvissuástand vegna snjóflóða á Mið-Norðurlandi. Snjóflóð upp á 3,5 að stærð féll í Hörgárdal í gær, en flóð af þeirri stærð geta kaffært bíla og skemmt hús. 4.1.2013 06:50 Hugo Chavez liggur þungt haldinn í öndunarvél Hugo Chavez forseti Venesúela liggur nú þungt haldinn í öndunarvél á Kúbu. Hann þjáist af mjög alvarlegri sýkingu í lungum og öndunarfærum eftir að hafa farið í fjórðu skurðaðgerð sína gegn krabbameini á Kúbu í síðasta mánuði. 4.1.2013 06:46 Rússar smíða nýja tegund af kjarnorkukafbátum Rússar hafa hleypt af stokkunum nýjum og mjög öflugum kjarnorkukafbát af tegundinni Borei. 4.1.2013 06:44 Handtóku 245 manns í tengslum við aðgerð gegn barnaklámi Lögregluyfirvöld víða í Bandaríkjunum hafa handtekið 245 einstaklinga í umfangsmikilli aðgerð gegn barnaklámi þar í landi. 4.1.2013 06:39 Fimm skip komin á loðnumiðin norðaustur af landinu Að minnsta kosti fimm loðnuskip eru haldin út til loðnuleitar og eru þau nú dreifð um svæði djúpt norðaustur af landinu. Ekki hafa enn borist fréttir af veiðum enn sem komið er, enda skipin ný komin á svæðið. 4.1.2013 06:37 Fundu bilunina í nótt sem sló út rafmangið í Árnessýslu Hópur línumanna frá Landsneti fann í nótt bilunina sem olli rafmagnsleysi nánast um alla Árnessýslu undir kvöld í gær. 4.1.2013 06:33 Hneyksli skekur 600 ára gamlan háskóla í Leipzig Hneyksli sem tengist líffæraígræðslum skekur nú hina 600 ára gömlu menntastofun, háskólann í Leipzig í Þýskalandi. 4.1.2013 06:30 Áfram ófær um að loka Guantanamo Obama Bandaríkjaforseti segist nauðbeygður hafa staðfest lög sem gera honum áfram ókleift að loka Guantanamo-búðunum á Kúbu. Með lögunum tryggði hann Bandaríkjaher fjármagn til að halda áfram umsvifum sínum víða um heim. 4.1.2013 06:00 Björt framtíð ekki útibú frá Samfylkingunni Björt framtíð stefnir hærra. 3.1.2013 23:23 Brjálað að gera á bráðamóttöku Það er einkum gamalt fólk sem slasar sig í hálkunni. 3.1.2013 23:16
Sjá næstu 50 fréttir
Aðeins ekið á 70 að Þríhnúkagíg Skipulagsstofnun segir að þótt áhrif af fyrirhuguðum mannvirkjum við Þríhnúkagíg séu að langmestu leyti afturkræf geti þau ásamt stígagerð haft neikvæð áhrif á verndargildi gígsins. Þá séu framkvæmdirnar innan vatnsverndarsvæðis. 4.1.2013 08:00
Snjóbræðslan brátt í gagnið Snjóbræðslukerfi sem lagt var undir Klapparstíg í nýafstöðnum endurbótum á milli Laugavegar og Hverfisgötu verður tengt öðru hvoru megin við helgina. 4.1.2013 08:00
Slökkviliðið kallað út 2.306 sinnum Slökkvilið Akureyrar var kallað út 2.306 sinnum á nýliðnu ári. Það er um 8% fjölgun frá fyrra ári. 1.768 sinnum var liðið kallað út á sjúkrabílum á nýliðnu ári, en það er um 13% aukning frá fyrra ári. 4.1.2013 08:00
Merki frá vita trufluðust Svo virðist sem einhver hafi skotið úr riffli á Hólmsbergsvita við Helguvík fyrir skömmu. Að öllum líkindum var skotið á vitaljósið því merkjasendingar vitans trufluðust. 4.1.2013 08:00
Prófuðu flóðbylgjusprengjur árið 1944 Gömul leyniskjöl sem nýlega fundust í skjalasafni nýsjálenska hersins sýna að Bandaríkjamenn og Nýsjálendingar þróuðu og prófuðu sprengjur sem gátu framkallað flóðbylgjur á síðustu árum seinni heimstyrjaldarinnar. 4.1.2013 07:09
Tólf ára drengur töluvert brenndur eftir rokeldspýtur Tólf ára drengur brenndist töluvert á hendi í gærkvöldi þegar heill stokkur af rokeldspýtum til að kveikja í flugeldum, fuðraði skyndilega upp í hendi hans við Þorláksgeisla í Reykjavík. Hann hlaut annars og þriðja stigs bruna og var fluttur á slysadeild. 4.1.2013 07:01
Handtekinn eftir að hafa ruðst inn í íbúð í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók tvo menn í annarlegu ástandi úr umferð í nótt og vistaði þá í fangageymslum. 4.1.2013 06:53
Óvissuástand áfram fyrir norðan vegna snjóflóða Enn er óvissuástand vegna snjóflóða á Mið-Norðurlandi. Snjóflóð upp á 3,5 að stærð féll í Hörgárdal í gær, en flóð af þeirri stærð geta kaffært bíla og skemmt hús. 4.1.2013 06:50
Hugo Chavez liggur þungt haldinn í öndunarvél Hugo Chavez forseti Venesúela liggur nú þungt haldinn í öndunarvél á Kúbu. Hann þjáist af mjög alvarlegri sýkingu í lungum og öndunarfærum eftir að hafa farið í fjórðu skurðaðgerð sína gegn krabbameini á Kúbu í síðasta mánuði. 4.1.2013 06:46
Rússar smíða nýja tegund af kjarnorkukafbátum Rússar hafa hleypt af stokkunum nýjum og mjög öflugum kjarnorkukafbát af tegundinni Borei. 4.1.2013 06:44
Handtóku 245 manns í tengslum við aðgerð gegn barnaklámi Lögregluyfirvöld víða í Bandaríkjunum hafa handtekið 245 einstaklinga í umfangsmikilli aðgerð gegn barnaklámi þar í landi. 4.1.2013 06:39
Fimm skip komin á loðnumiðin norðaustur af landinu Að minnsta kosti fimm loðnuskip eru haldin út til loðnuleitar og eru þau nú dreifð um svæði djúpt norðaustur af landinu. Ekki hafa enn borist fréttir af veiðum enn sem komið er, enda skipin ný komin á svæðið. 4.1.2013 06:37
Fundu bilunina í nótt sem sló út rafmangið í Árnessýslu Hópur línumanna frá Landsneti fann í nótt bilunina sem olli rafmagnsleysi nánast um alla Árnessýslu undir kvöld í gær. 4.1.2013 06:33
Hneyksli skekur 600 ára gamlan háskóla í Leipzig Hneyksli sem tengist líffæraígræðslum skekur nú hina 600 ára gömlu menntastofun, háskólann í Leipzig í Þýskalandi. 4.1.2013 06:30
Áfram ófær um að loka Guantanamo Obama Bandaríkjaforseti segist nauðbeygður hafa staðfest lög sem gera honum áfram ókleift að loka Guantanamo-búðunum á Kúbu. Með lögunum tryggði hann Bandaríkjaher fjármagn til að halda áfram umsvifum sínum víða um heim. 4.1.2013 06:00
Mengunarslys gjörbreytti lífi skipverja á Röðli Dánartíðni skipverja sem lentu í einu stærsta mengunarslysi íslenskrar sjómannasögu er tvöfallt hærri en gerist meðal sambærilegra áhafna. 3.1.2013 21:37
Fárviðrið afhjúpaði veikleika í kerfinu Óskað hefur verið eftir sérstakri umræðu í þinginu vegna óveðursins á Vestfjörðum. 3.1.2013 21:29
Táraðist yfir viðbrögðum fólks Fjórtán ára stúlka hvetur fólk til að vera ánægt með líkama sinn. 3.1.2013 20:47
Dagurinn fór í viðtöl við erlendar fréttaveitur Eitt heitasta fréttaefni dagsins í heimspressunni var barátta íslenskrar stúlku um nafnið sitt. 3.1.2013 19:31
Olíustarfsemin byrjar á morgun - borpallur 2017 Morgundagurinn markar upphafið að olíuævintýri Íslendinga, að mati leitarstjóra Valiant Petroleum, sem segir allar rannsóknir benda til þess að Íslendingar verði olíuþjóð. Hann telur að fyrsti borpallurinn komi á Jan Mayen-svæðið á árunum 2017 til 2018. Fáir þekkja Drekasvæðið betur en Norðmaðurinn Terje Hagevang. 3.1.2013 18:42
Ekki lögbrot að strjúka einn - bara ef menn eru tveir eða fleiri Mismunandi reglur gilda um fanga sem strjúka úr fangelsum á Íslandi, eftir því hvort margir fangar sammælast um að strjúka eða einn fangi tekur upp á því óstuddur. 3.1.2013 18:17
Rafmagnslaust á Selfossi Rafmagnslaust er á Selfossi þessa stundina. Vísir hefur ekki náð tali af Selfossveitum til þess að fá upplýsingar um ástæður rafmagnsleysis. 3.1.2013 16:55
Lögreglan ekki með mannafla til þess að fylgjast með síbrotamanni Hæstiréttur Íslands staðfesti niðurstöðu Héraðsdóms Austurlands í dag þar sem karlmaður var dæmdur til þess að afplána 260 daga eftirstöðvar refsingar fyrir að brjóta á skilorði sem hann var á. 3.1.2013 16:54
Grunaðir þjófar úrskurðaðir í farbann Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag tvo pólska karlmenn í fjögurra vikna farbann, en þeir hafa setið í gæsluvarðhaldi ásamt einum öðrum frá því 20. desember. Lögreglan fór ekki fram á framlengingu á gæsluvarðhaldinu en óskaði þess í stað tveir af þeim skyldu sæta farbanni. 3.1.2013 16:54
Litháa vísað úr landi Hæstiréttur staðfesti í dag ákvörðun innanríkisráðuneytisins um að litháískur karlmaður, búsettur hér á landi, skyldi framseldur til Litháen. Maðurinn er grunaður um að hafa dregið sér 865 evrur sem framkvæmdastjóri fyrirtækis og að hafa heimildarlaust tekið út af reikningi annars manns með bankakorti sem hann komst yfir. Slík brot sem maðurinn er grunaður um geta varðað allt að sex ára fangelsi hér á landi. 3.1.2013 16:50
Volt er mættur Rafbíllinn Chevrolet Volt er kominn til landsins og verður bíllinn kynntur hjá Bílabúð Benna næstkomandi laugardag. Volt kemst um 60 km á rafhleðslunni einni saman og framleiðir auk þess eigin raforku sem lengir heildarökudrægi bílsins í allt að 500 km. "Volt er staðfesting á stöðu Chevrolet sem eins framsæknasta bílaframleiðanda heims", er haft eftir forsvarsmönnum Bílabúðar Benna. Segja þeir að stór orð hafi nú þegar verið höfð um hann og Volt hafi hlotið ótal verðlaun og viðurkenningar á mörkuðum bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. "Volt hefur verið á Bandaríkjamarkaði í tvö ár og eigendurnir þar hafa sett hann á topp ánægjulistans bæði árin. Volt var einnig útnefndur Bíll ársins 2011 af bæði Automobile Magazine og fagritinu Motor Trend. Hann hefur jafnframt hlotið sæmdarheitið "Umhverfisbíll ársins 2011“ hjá tímaritinu Green Car Journal. Nýjasta afrekið er afgerandi sigur á bílasýningunni í Genf þar sem hann hlaut titilinn "Bíll ársins 2012“. Dómnefndin var skipuð 59 leiðandi bílablaðamönnum frá 23 Evrópuríkjum.“ Chevrolet Volt verður frumsýndur gestum og gangandi laugardaginn 5. janúar, frá kl. 12 til 18 í Bílabúð Benna, Tangarhöfða 8. 3.1.2013 16:00
Segir Landspítalahugmyndina ekki tengjast fjármálum Kirkjunnar Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, segist hafa fengið mjög góð viðbrögð við þeirri hugmynd að Kirkjan hafi frumkvæði að söfnun fyrir tækjakaupum fyrir Landspítala Íslands. Þetta segir hún í tilefni orða Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, formanns velferðarráðs í fréttum RÚV, að skrýtið væri að Kirkjan sem sækist eftir meira fé úr ríkissjóði vilji hrinda slíkri hugmynd í framkvæmd. 3.1.2013 15:51
Kærir Skaupið meðal annars fyrir kynferðisbrot Ástþór Magnússon hefur kært Pál Magnússon til lögreglu vegna síðasta áramótaskaups auk þess sem hann hefur kvartað til Fjölmiðlanefndar, meðal annars fyrir kynferðisbrot. 3.1.2013 14:57
Meint brot lögreglumanna enn í rannsókn hjá Ríkissaksóknara Rannsókn á máli tveggja fyrrverandi starfsmanna Sérstaks saksóknara, þeirra Jóns Óttars Ólafssonar og Guðmundar Hauks Gunnarssonar, stendur enn yfir. Hún er á lokastigi segir Sigríður Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari, sem fer með rannsókn málsins. 3.1.2013 14:37
Hér dugar enginn "heimilskattaþvottur“ Jón Bjarnason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, segir á bloggsíðu sinni að ástæðan fyrir löku gengi flokks hans í nýjum þjóðarpúlsi Gallups sé sú að forystumenn flokksins séu of hallir undir vegferð Samfylkingarinnar um að sækja um aðild að ESB. 3.1.2013 14:18
Ísland heitasti og rómantískasti staðurinn á veturna Hið heimsfræga tímarit Hello! segir að Ísland sé heitasti og rómantískasti áfangastaðurinn til að heimsækja á veturna. Í umfjöllun á vef tímaritsins segir að ef maður horfi út um glugga flugvélarinnar þegar maður lendir á Keflavíkurflugvelli sé auðséð hvers vegna mynd Tom Cruise, Oblivion, var tekin upp hér á landi í sumar. Þá segir að landslagið sé einstakt. 3.1.2013 14:08
Fálki varð næstum úti í vestfirska storminum - íbúi á Flateyri bjargaði lífi hans "Við sáum fugl út um gluggann og héldum að þetta væri ugla, svo fórum við út og þá var þetta fálki. Við tókum hann inn því honum var svo kalt, hann var eiginlega hættur að geta hreyft sig,“ segir Steinunn Einarsdóttir íbúi á Flateyri, sem á dögunum fann fálka á Flateyri, nær dauða en lífi. 3.1.2013 14:04
Ætla að skapa 210 störf í Hafnarfirði Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, undirrituðu í dag samkomulag um framkvæmd átaksverkefnisins; Vinna og virkni – átak til atvinnu 2013. Samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu verða alls til 210 störf og starfstengd vinnumarkaðsúrræði í bænum í tengslum við átakið. 3.1.2013 13:59
Audi hættir við A2 rafbílinn Á bílasýningunni í Frankfurt árið 2011 kynnti Audi þessa útgáfu A2-bílsins, eingöngu drifinn áfram með rafmagni. Audi hafði þá uppi áform um að verða enginn eftirbátur annarra bílaframleiðenda í smíði rafbíla. Dræm sala á rafdrifnum bílum síðan þá hefur hinsvegar fengið fyrirtækið af þessum áformum og ekkert verður af smíði þessa bíls, sem keppa átti við BMW i3 og Mercedes Benz A-Class. Forsvarsmenn Audi létu hafa eftir sér að hönnun þessa bíls hafi verið ágætis verkfræðiæfing sem nýtist í framtíðinni, en lítil eftirspurn eftir rafmagnsbílum nú réttlæti hinsvegar ekki að þróuninni verði haldið áfram. Bíllinn átti að koma á markað árið 2014, bæði sem rafmagnsbíll og tvinnbíll. Hann var mjög léttur, eða ríflega 1.100 kg og mest smíðaður úr áli og koltrefjum. Hann var 114 hestöfl og átti að komast um 200 km á fullri hleðslu. 3.1.2013 13:45
Fjárhæðir bóta hækka um tæplega 4 prósent Fjárhæðir bóta almannatrygginga hækka um 3,9% samkvæmt frétt á heimasíðu Tryggingastofnunar. 3.1.2013 13:03
iPhone þakinn demöntum, 200 grímur af drottningunni og lifandi grís gleymdust Hann er furðulegur listinn yfir þá hluti sem hótelgestir í Bretlandi skildu eftir á herbergjum sínum á síðasta ári. 3.1.2013 13:02
Olíumálaráðherrann væntanlegur til landsins síðdegis Olíumálaráðherra Noregs, Ola Borten Moe, er væntanlegur til Íslands síðdegis til að vera við athöfn í Ráðherrabústaðnum á morgun, þegar tvö fyrstu olíusérleyfin á Drekasvæðinu verða undirrituð. 3.1.2013 12:53
Óvissustigi vegna snjóflóða aflýst Snjóflóðavakt Veðurstofu Íslands hefur aflýst óvissustigi vegna hættu á snjóflóðum á Norðanverðum Vestfjörðum og Sunnanverðum Vestfjörðum. 3.1.2013 11:53
Konan lýsti árásinni áður en hún lést - lögreglan vill dauðarefsingu yfir hrottunum Lögreglan í höfuðborg Indlands, Nýju-Delí, hefur ákært sex menn fyrir að hafa nauðgðað og myrt tuttugu og þriggja ára konu í strætisvagni í borginni um miðjan desember. Dómari tekur málið fyrir í dag en mennirnir sex munu ekki mæta sjálfir fyrir dómara af öryggisástæðum. 3.1.2013 10:46
Skaut á vita og skapaði hættu fyrir sjófarendur Í eftirlitsferð starfsmanna Siglingastofnunar í Hólmsbergsvita við Helguvík rétt fyrir áramót, uppgötvuðust skemmdarverk sem unnin hafa verið á vitanum. 3.1.2013 10:33
Dómur um Icesave kveðinn upp 28. janúar Dómurinn í Icesave málinu verður kveðinn upp þann 28. janúar næstkomandi í Luxemborg. Málflutningur fór fram í haust, en ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, Hollendingar, Bretar og Evrópusambandið stefndu Íslandi eftir ítrekaðar samningatilraunir. 3.1.2013 10:24
Árborg fylgist grannt með uppblásna íþróttahúsinu Formaður bæjarráðs Árborgar, Eyþór Arnalds, segir bæjaryfirvöld fylgjast grannt með uppblásna íþróttahúsinu í Hveragerði en bæjarráðið hefur verið skoðað það af alvöru að verða sér út um slíkt mannvirki samkvæmt frétt sunnlenska fréttavefsins dfs.is um málið. 3.1.2013 10:23
VSÓ leigir rafbíl af Thrifty Rafbílavæðingin er augljóslega hafin á Íslandi þótt hún fari hægt af stað. Rafbílar eru boðnir til sölu hjá nokkrum bílaumboðum landsins. Auk þess eru þeir nú orðnir aðgengilegir fyrirtækjum og fólki landsins á annan hátt því bílaleigan Thrifty, sem rekin er af Brimborg, býður nú Citroën C-Zero rafbíl til leigu. Í tilkynningu frá Thrifty segir að bílaleigan gæti þess jafnan að bjóða bíla sem eru útbúnir nýjustu spartækni en líklega er ekki hægt að ganga lengra í spartækninni en að bjóða bíl sem notar ekkert innflutt eldsneyti. Sífellt fleiri leigutakar á íslenskum bílaleigumarkaði leggja áherslu á að leigja sparneytna bíla. Bílaleigumarkaðurinn hefur tekið töluverðum breytingum á síðustu árum enda hefur fall krónunnar á ýmsan hátt stutt við aukinn straum ferðamanna til Íslands. Veik króna þýðir einnig að íslensk fyrirtæki þurfa að leita ýmissa leiða til að ná markmiðum sínum í umhverfismálum, eins og að leigja rafbíl fremur en kaupa hann. Frá árinu 2010 hefur bílaleigan Thrifty boðið bíla sem fá frítt í stæði í 90 mínútur í Reykjavík. Bíll sem uppfyllir þau skilyrði getur verið mjög þægilegur fyrir fyrirtæki sem þurfa að sinna mörgum erindum innan dagsins í miðborginni. Af 412 bíla heildarflota Thrifty eru 273 bílar knúnir sparneytnum dísilvélum. Í íslensku samhengi er einnig áhugavert fyrir verkfræðistofu að ráða yfir ökutæki sem nýtir íslenska orku sem framleidd er af viðskiptavinum fyrirtækisins sem gerir rekstur bílsins eins umhverfisvænan og kostur er. Í samtali við Egil Jóhannsson, forstjóra Brimborgar sem flytur inn Citroën rafbílinn, kemur fram að töluvert rekstrarlegt hagræði náist með því að leigja rafbíl. Til að mynda er miklu fyrirsjáanlegra hver rekstarkostnaður bílsins er þar sem allur kostnaður bílsins, fyrir utan rafhleðsluna sjálfa, er innifalinn í leiguverðinu. Það má einnig horfa í kostnað á hverja ekna 100 kílómetra því þar er munurinn gríðarlegur. Á Citroën C-Zero kosta 100 kílómetrar aðeins um 170-260 krónur en til samanburðar kostar um 1920 krónur að reka sparneytinn bíl sem gengur fyrir hefðbundnu eldsneyti. Guðjón Jónsson, sviðsstjóri öryggismála og stjórnunar hjá VSÓ ráðgjöf, segir það jákvætt fyrir fyrirtækið að leigja rafbíl þar sem VSÓ ráðgjöf er með vottað umhverfisstjórnunarkerfi og samgöngustefnu sem kalli á viðeigandi eftirfylgni. Slík eftirfylgni felst meðal annars í því að starfsmönnum fyrirtækisins standa til boða afnot af vespu, reiðhjóli og nú rafmagnsbíl auk þess sem starfsfólk fær frítt í strætó. Allt miðar þetta að því að draga úr umhverfisáhrifum rekstrarins. 3.1.2013 10:16
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent