Fleiri
Handjárn og olía í Hagkaupum Viðskiptavinir hvattir til að muna eftir bóndadeginum. 25.1.2013 14:07 Undirbúa opnun gossafns í Vestmannaeyjum Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum á Selfossi í dag að veita 10 milljónum króna til styrktar nýju gosminjasafni í Vestmannaeyjum sem hafinn er undirbúningur að, en á miðvikudaginn voru 40 ár liðin frá því gos hófst í Heimaey. Gert er ráð fyrir því að eitt af húsunum sem verið hafa undir ösku og hrauni í 40 ár verði grafið upp og nýtt sem lykilþáttur í safninu. Þá verði sett þar upp sýning þar sem eldgossins verður í minnst og jarðsögu og mótun Suðurlands gerð skil. Auk þess er ráðgert að í safninu verði fræðsla um náttúruvá á borð við eldgos og jarðskjálfta. 25.1.2013 14:02 Meintur barnaníðingur áfram í gæsluvarðhaldi Nú í morgun var í Héraðsdómi Vesturlands framlengt gæsluvarðhald yfir manni á fertugsaldri sem grunaður er um kynferðisbrot gegn ungum stúlkum samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Akranesi. 25.1.2013 13:53 Mesta sala á einu ári í sögu Porsche Fleiri Porsche sportbílar seldust á árinu 2012 en nokkru sinni fyrr í sögu þýska framleiðandans. Alls voru afhentir 141.075 Porsche sportbílar sem er 18,7% aukning frá árinu 2011. Þetta þykir umtalsverður árangur í ljósi efnahagskreppunnar. Sala á Porsche hefur aukist á hverju ári síðastliðin þrjú ár. Á þessu tímabili hefur salan aukist um 83,9%. "Árið 2012 var það árangursríkasta í sögu fyrirtækisins,“ sagði Matthias Müller, forstjóri og aðalframkvæmdastjóri Porsche á bílasýningunni í Detroit sem nú stendur yfir. "Lykilatriði í velgengni okkar er samheldinn og traustur hópur starfsmanna. Við höfum öll spil á hendi til að árið 2013 verði Porsche einnig gæfuríkt. Porsche hyggur á mikla markaðssetningu á þessu ári með nýjum tvinnbílum, eins og t.d. 918 Spyder og sportjeppanum Macan. Söluaukning Porsche var yfir 10% á öllum markaðssvæðum en mest var hún í Asíu og Kyrrahafslöndunum þar sem afhentir voru 50.376 nýir bílar sem er 23,6% aukning. Í Evrópu jókst salan um 13,5%. Í Bandaríkjunum jókst sala á Porsche um 20,7%. Á heimamarkaði, í Þýskalandi, naut Porsche einnig mikillar velgengni þar sem vinsældir 911, Cayenne, Panamera, Boxster og Cayman eru miklar. Þar nam aukningin tæpum 17%. Porsche 911 Carrera var sá bíll sem naut mestu söluaukningar hjá Porsche á síðasta ári. Aukningin nam alls 31,4%. Það er hins vegar Cayenne sportjeppinn sem er söluhæsta einstaka gerðin. Alls seldust 74.763 bílar á síðasta ári sem er 24,8% aukning. Þar af seldust 19.000 eintök af Cayenne S, Cayenne GTS og Cayenne Turbo og þar með heldur Porsche stöðu sinni sem söluhæsti bíllinn í flokki aflmestu sportjeppanna. 25.1.2013 13:15 Slys á leikskóla ekki lögreglumál Slys sem varð á leikskóla í Reykjavík á þriðjudag, þar sem þriggja ára stúlka höfuðkúpubrotnaði, var ekki þess eðlis að kalla þyrfti til lögreglu. 25.1.2013 13:01 Flokksráðsfundur VG um helgina Flokksráðsfundur Vinstri grænna er haldinn á Grand hótel um helgina og hefst seinnipartinn með ræðu Katrínar Jakobsdóttur varaformanns en um klukkan hálf sex heldur Steingrímur J. Sigfússon ræðu. Þar mun hann fara yfir stjórnmálin á kosningavetri en búast má við heitum fundi eftir þær miklu hræringar sem verið hafa í flokknum og stjórnarsamstarfinu að undanförnu. Nú síðast sagði Jón Bjarnason fyrrverandi ráðherra sig úr þingflokki VG og hafa þá fjórir þingmenn yfirgefið þingflokkinn á kjörtímabilinu. Almennar stjórnmálaumræður verða á fundinum klukkan átta í kvöld og má reikna með að órólega deild flokksins láti heyra í sér í þeim umræðum. 25.1.2013 12:07 Enginn samningsvilji af hálfu sveitarfélaganna "Kennarar vinna allt of mikið og skortir tíma til að sinna verkefnum sínum, en þeim hefur fjölgað mikið og áherslurnar breyst," segir Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara 25.1.2013 11:46 Hani var til stórra vandræða Hani, sem staðsettur var í parhúsi í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum, var til svo stórra vandræða á dögunum að kvartað var undan því við lögregluna. Í kvörtuninni kom fram að haninn léti í sér heyra á öllum tímum sólarhrings, ekki síst á nóttunni og væri þá ekkert á lágu nótunum. Hefði hann ýmist haldið fólki vakandi stóran hluta nætur, eða vakið þá sem náðu að festa svefn. Lögregla ræddi við eiganda hanans sem lofaði að fjarlægja hann úr þéttbýlinu. Nágrönnum var greint frá því og önduðu þeir léttar. 25.1.2013 11:31 Sjá næstu 50 fréttir
Frábært skíðaveður á Akureyri en lokað í Bláfjöllum og Skálafelli Skíðaáhugafólk norðan heiða og á höfuðborgarsvæðinu á ólíku saman að jafna í dag. 26.1.2013 12:06
Skákdagurinn haldinn hátíðlegur Skákdagurinn til heiðurs stórmeistaranum Friðriki Ólafssyni er haldinn hátíðlegur um allt land í dag. Fjölmörg skákmót, fjöltefli og skákheimsóknir verði af því tilefni í dag. 26.1.2013 11:55
Bjargvættur Star Trek leikstýrir næstu Star Wars mynd Bandaríkjamaðurinn J.J. Abrams mun leikstýra næstu Star Wars myndinni. Myndin verður sú sjöunda í röðinni. 26.1.2013 11:25
Yfir 100 sjúkraflutningar í nótt Tilkynnt var um kaldavatnsleka í íbúðarhúsi að Hraunbraut í Kópavogi um klukkan ellefu í gærkvöld. 26.1.2013 10:20
Nýir dómarar skipaðir Innanríkisráðherra hefur skipað í embætti tvo nýja dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 1. febrúar, þær Ingibjörgu Þorsteinsdóttur, settan héraðsdómara, og Ragnheiði Snorradóttur, héraðsdómslögmann. 26.1.2013 10:17
Viðræðum hjúkrunarfræðinga við Landspítala frestað Samninganefnd Landspítalans og hjúkrunarfræðingar ákváðu snemma í gærkvöldi að fresta viðræðum um endurskoðun stofnanasamnings til mánudags. 26.1.2013 10:03
Ráðist á mann í Hafnarstræti í nótt Ráðist var á mann í Hafnarstræti í Reykjavík um klukkan hálf fjögur í nótt. 26.1.2013 09:58
Fullur og skóf ekki af bílnum Ökumaður bifreiðar var stöðvaður í Garðabæ klukkan fjögur í nótt en sá reyndist ekki hafa hreinsað snjó nægilega vel af rúðum bifreiðar sinnar. Við nánari skoðun reyndist hann einnig vera ölvaður og var tekin skýrsla af honum í kjölfarið. 26.1.2013 09:55
Kviknaði í þurrkara Eldur kom upp í þurrkara í þvottahúsi á 5. hæð í fjölbýlishúsi að Asparfelli 12 í Breiðholti á ellefta tímanum í gærkvöld. 26.1.2013 09:54
21 knattspyrnuáhorfandi dæmdur til dauða Dómstólar kváðu í gær upp dauðadóm yfir 21 knattspyrnuáhorfanda í Port Said í Egyptalandi. Óeirðir brutust út að loknum knattspyrnuleik í borginni í febrúar á síðasta ári þar sem 74 létu lífið. 26.1.2013 09:42
Heimsmet í reykspólun Þessi hálffáránlegi atburður hefur verið skráður í Guiness heimsmetabókin sem fjölmennasta samhliða reykspólið. Þar þöndu 69 ökumenn hestöflin í bílum sínum svo af hlaust verra skyggni en á gamlárskvöld á Íslandi í skotgleðinni miðri. Á þetta horfðu 10.000 manns á bílasýningu í Canberra í Ástralíu og höfðu örugglega gaman af. Voru þarna að verki 35.000 hestöfl sem breyttu gúmmíi í þéttan reyk í allskonar lit, enda sumir með sérstaka litaglaða hjólbarða til verksins. Það tók 6 mánuði að skipuleggja atburðinn en ekki ekki nema 30 sekúndur að framkvæma hann. 26.1.2013 09:15
Segir blaðið ótengt Framsókn Nýtt blað undir merkjum Tímans mun koma út í fyrsta sinn fimmtudaginn 31. janúar næstkomandi. Þetta staðfestir Helgi Þorsteinsson, sem hefur veg og vanda af útgáfunni og mun ritstýra blaðinu, að minnsta kosti fyrst um sinn. 26.1.2013 07:00
Á að móta áætlun um aukna hagsæld Myndaður hefur verið samráðsvettvangur sem á að móta langtímaáætlun um verkefni sem eiga að tryggja hagsæld á Íslandi. Allir formenn stjórnmálaflokka, aðilar vinnumarkaðarins, háskólasamfélagið og stjórnsýslan eiga sæti við borðið. 26.1.2013 07:00
15 milljarðar í lottóvinning Íslendingar geta nú tekið þátt í lottóleiknum EuroJackpot þar sem lágmarksupphæð fyrsta vinnings er 10 milljónir evra eða 1,7 milljarðar króna. 26.1.2013 07:00
Rússar hreinsa til í Norður-Íshafinu Nokkrir rússneskir kjarnorkukafbátar og verulegt magn af rússneskum kjarnorkuúrgangi er enn á hafsbotni í Norður-Íshafinu. Rússar eru farnir að taka þennan vanda alvarlega og hyggjast hreinsa þetta hafsvæði eftir því sem unnt reynist. 26.1.2013 07:00
Ákærður hagstofustjóri neitar að víkja Gríski hagstofustjórinn, Andreas Georgiou, sætir nú miklum þrýstingi frá undirmönnum sínum um að segja af sér. Hann verst ákæru fyrir að falsa tölfræðiupplýsingar um efnahag landsins og það þykir rýra traust stofnunarinnar. Hann neitar hins vegar að víkja. 26.1.2013 07:00
Fjöldi manns mótmælir í Kaíró Á annað hundrað manns særðust í átökum í Kaíró í gær. Átökin tengdust mótmælum sem stjórnarandstæðingar efndu til í tilefni þess að tvö ár voru liðin frá því uppreisnin gegn Hosni Mubarak hófst. 26.1.2013 07:00
Icesave-niðurstaða ekki meitluð í stein Þótt Ísland tapi Icesave-málinu fyrir EFTA-dómstólnum á mánudag er alls óljóst hvaða áhrif það muni hafa. Óþekkt að ríki fari í skaðabótamál við önnur ríki. Vaxtakostnaður áætlaður 35 til 100 milljarðar króna. Sækja þyrfti bætur á Íslandi. 26.1.2013 07:00
Eldur í Asparfelli Eldur kom upp í þvottahúsi á 5. hæð í fjölbýlishúsi að Asparfelli 12 í Breiðholti á ellefta tímanum í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var búið að slökkva eldinn þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang. Nú er unnið að reykræstun og hugsanlega verður einn fluttur á slysadeild vegna gruns um reykeitrun, að sögn varðstjóra. 25.1.2013 22:31
Ögmundur sér eftir Hjörleifi "Það er eftirsjá af þessum mikla baráttumanni,“ sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra á flokksráðsfundi VG sem stendur nú yfir á Grand Hóteli í Reykjavík. Hjörleifur Guttormsson, einn af stofnendum flokksins, tilkynnti félögum sínum í kvöld að hann hefði nú yfirgefið flokkinn. 25.1.2013 21:47
Obama skipar nýjan starfsmannastjóra í Hvíta húsið Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur skipað Denis McDonough, aðstoðar þjóðaröryggisráðgjafa, sem starfsmannastjóra Hvíta hússins. Hann tekur við af Jack Lew sem verður fjármálaráðherra Bandaríkjanna. McDonough og Obama hafa unnið saman síðan Obama var þingmaður í öldungardeildinni. 25.1.2013 21:30
Hjörleifur Guttormsson yfirgefur VG "Ég kveð Vinstri hreyfinguna grænt framboð hér og nú með blendum tilfinningum, og þakka um leið mörgum ykkar fyrir ánægjulega samfylgd,“ sagði Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi þingmaður og félagsmaður VG frá stofnun, á flokksráðsfundi VG sem stendur nú yfir á Grand Hóteli í Reykjavík. 25.1.2013 20:45
Um 20% mannkyns smituðust af svínaflensu Um 20% mannskyns, þar af helmingur skólabörn, smitaðist af svínaflenskuj fyrsta árið sem hún reið yfir heimsbyggðina árið 2009. Þetta sýna gögn frá 19 ríkjum sem fréttastofa BBC vísar til. Talið er að veiran hafi drepið 200 þúsund manns víðsvegar um heiminn. Rannsóknin var gerð á vegum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar var fjöldi fólks sem fékk nokkur einkenni án þess þó að fá þau öll. 25.1.2013 20:23
Skaut fast á fyrrum félaga Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna segir að ef þeir sem yfirgefið hafa þingflokkinn hefðu náð að sprengja ríkisstjórnina, hefðu stór mál eins og rammaáætlun í umhverfismálum ekki náð fram að ganga. Hann segir að fara eigi í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. 25.1.2013 19:59
Það hefði átt að kalla á lögreglu strax "Þetta er það alvarlegt slys að það hefði átt að kalla til lögreglu strax," segir Herdís Storgaard verkefnastjóri slysavarna barna og unglinga, um slys sem varð á leikskóla í Reykjavík á þriðjudag þar sem sem þriggja ára stúlka höfuðkúpubrotnaði. 25.1.2013 19:42
Tromsö eins og að flytja heim á Ísafjörð Ráðning Íslendings sem framkvæmdastjóra skrifstofu Norðurskautsráðsins er viðurkenning fyrir framlag Íslands til Norðurslóða, segir Magnús Jóhannesson, sem tók við starfinu í vikunni. Íslendingar buðu fram Reykjavík undir höfuðstöðvarnar en Tromsö hafði betur. Þjóðfánar þeirra átta ríkja sem mynda Norðurskautsráðsráðið voru leiddir fram við athöfn sem markaði stofnun fastaskrifstofu ráðsins. 25.1.2013 19:15
Gunna Dís spennt fyrir kvöldinu "Það eru búnar að vera æfingar í allan dag og allt búið að ganga eins og í sögu,“ segir Guðrún Dís Emilsdóttir, betur þekkt sem Gunna Dís, sem mun kynna Söngvakeppni sjónvarpsins í kvöld ásamt Þórhalli Gunnarssyni. 25.1.2013 19:00
"Hún er virkilega hrædd" Faðir sjö ára stúlku sem var rænt og káfað á henni, er ósáttur við að maðurinn sé ekki í varðhaldi. Hann segir dóttur sína hrædda við manninn, sem býr í næstu götu við þau. 25.1.2013 18:34
Óvissa með framboð þjóðernissinna "Það er algjörlega óvíst með framboð til alþingiskosninga þó listabókstaf sé úthlutað," segir Einar Gunnar Birgisson, meðlimur Bjartsýnisflokksins, framboðs hófsamra þjóðernissinna. 25.1.2013 17:25
Lögreglan varar við ótraustum ís - þingmaður hjálpaði pilti í vanda Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar fólk við því að hætta sér út á Reykjavíkurtjörn, en ísinn þar er ótraustur. 25.1.2013 16:38
Íslendingar hvattir til að njóta listar löglega Átak er hafið á vegum íslenskra listamanna, útgefenda og höfundaréttarsamtaka sem ætlað er að vekja almenning til umhugsunar um áhrif ólöglegs niðurhals. 25.1.2013 16:32
Hallgrímur hnýtir í Jón Viðar - vill gagnrýnendur á hærra plani Hallgrímur Helgason rithöfundur ræðst harkalega á leikhúsgagnrýnandann Jón Viðar Jónsson í DV í dag vegna gagnrýni þess síðarnefnda á leikriti William Shakespeare, Macbeth, sem er sýnt í Þjóðleikhúsinu þessa dagana. 25.1.2013 16:13
Fjögur brot gegn börnum kærð til lögreglu Þrjú af þeim fimm kynferðisbrotamálum sem lögreglan á Akranesi hefur nú til rannsóknar voru kærð eftir áramót. Af þessum fimm málum sem eru til rannsóknar snúast fjögur um brot gegn börnum. Fimmta rannsóknin snýr að broti þar sem samkynhneigður karlmaður er grunaður um að hafa brotið gegn sambýlismanni sínum. 25.1.2013 15:58
Toyota og BMW smíða saman rafmagnssportbíl Fyrirtækin tvö hafa nú bundist fastari böndum og hyggjast vinna saman að smíði sportbíls sem knúinn verður rafmagni. Í samningi þeirra á milli kveður á um samvinnu í þróun rafhlaða fyrir rafmagnsbíla sem unnið verður að til ársins 2020, þróun næstu kynslóðar vetnisbíla, samvinnu í smíði léttra undirvagna og smíði þessa rafmagnssportbíls. Samningnum fylgir ekki krosseignarhald á milli þessara stóru bílaframleiðanda. Fyrst fréttist af þessu samstarfi BMW og Toyota í desember 2011 en nú virðist samstarfið ætla að verða nokkuð víðtækt. Toyota og BMW hafa einnig bundist með kaupum Toyota á BMW dísilvélum. Munu 1,6 og 2,0 lítra dísilvélar frá BMW sjást í bílum Toyota á næsta ári. Samstarf fyrirtækjanna tveggja tekur einnig til fyrstu rafmagnsbíla BMW sem þýski framleiðandinn ætlar að kynna til leiks síðar á þessu ári í formi i3 borgarbílsins og ári seinna með i8 tvinnbílnum. 25.1.2013 15:45
Deiliskipulag á Brynjureit samþykkt Borgarráð samþykkti breytt deiliskipulag fyrir Brynjureit við Laugaveg á fundi sínum í gær, 24. janúar 2013. Samkvæmt nýju deiliskipulagi breytist ásýnd Laugavegar lítið en talsverðar breytingar verða á byggðinni við Hverfisgötu sem samræmd verður byggingum í nágrenninu. Á reitnum mun rísa blönduð og notaleg byggð íbúða og atvinnuhúsnæðis með göngugötum sem tengja Laugaveg, Hverfisgötu og Klapparstíg. 25.1.2013 15:37
Skoða aðstæður í Reykjavík fyrir íþróttaleika samkynhneigðra Sendinefnd á vegum GLISA, alþjóðaasamtaka samkynhneigðra verður í Reykjavík dagana 26. - 27. janúar næstkomandi til þess að skoða aðstæður í borginni vegna umsóknar Reykjavíkurborgar um að halda World Outgames, íþróttaleika samkynhneigðra, árið 2017. Nefndin kemur hingað til lands frá Miami í Bandaríkjunum sem kemur einnig til greina sem gestgjafi leikanna. 25.1.2013 15:25
Þúsundir flýja Sýrland á hverjum degi Á síðasta sólarhring er talið að 10 þúsund börn og fjölskyldur þeirra hafi flúið Sýrland yfir landamærin til Jórdaníu. Átök hafa harðnað í suðurhluta Sýrlands með þeim afleiðingum að næstum 20 þúsund flóttamenn hafa flúið til landamæranna. Í gærkvöldi komu næstum 3.500 manns í Zaatari flóttamannabúðirnar. Á hverjum klukkutíma koma allt að fimm rútur í búðirnar, flestar yfirfullar af örþreyttu og hræddu fólki sem flúið hefur heimili sín með þær fáu eigur sem það getur haldið á. 25.1.2013 14:20
Undirbúa opnun gossafns í Vestmannaeyjum Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum á Selfossi í dag að veita 10 milljónum króna til styrktar nýju gosminjasafni í Vestmannaeyjum sem hafinn er undirbúningur að, en á miðvikudaginn voru 40 ár liðin frá því gos hófst í Heimaey. Gert er ráð fyrir því að eitt af húsunum sem verið hafa undir ösku og hrauni í 40 ár verði grafið upp og nýtt sem lykilþáttur í safninu. Þá verði sett þar upp sýning þar sem eldgossins verður í minnst og jarðsögu og mótun Suðurlands gerð skil. Auk þess er ráðgert að í safninu verði fræðsla um náttúruvá á borð við eldgos og jarðskjálfta. 25.1.2013 14:02
Meintur barnaníðingur áfram í gæsluvarðhaldi Nú í morgun var í Héraðsdómi Vesturlands framlengt gæsluvarðhald yfir manni á fertugsaldri sem grunaður er um kynferðisbrot gegn ungum stúlkum samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Akranesi. 25.1.2013 13:53
Mesta sala á einu ári í sögu Porsche Fleiri Porsche sportbílar seldust á árinu 2012 en nokkru sinni fyrr í sögu þýska framleiðandans. Alls voru afhentir 141.075 Porsche sportbílar sem er 18,7% aukning frá árinu 2011. Þetta þykir umtalsverður árangur í ljósi efnahagskreppunnar. Sala á Porsche hefur aukist á hverju ári síðastliðin þrjú ár. Á þessu tímabili hefur salan aukist um 83,9%. "Árið 2012 var það árangursríkasta í sögu fyrirtækisins,“ sagði Matthias Müller, forstjóri og aðalframkvæmdastjóri Porsche á bílasýningunni í Detroit sem nú stendur yfir. "Lykilatriði í velgengni okkar er samheldinn og traustur hópur starfsmanna. Við höfum öll spil á hendi til að árið 2013 verði Porsche einnig gæfuríkt. Porsche hyggur á mikla markaðssetningu á þessu ári með nýjum tvinnbílum, eins og t.d. 918 Spyder og sportjeppanum Macan. Söluaukning Porsche var yfir 10% á öllum markaðssvæðum en mest var hún í Asíu og Kyrrahafslöndunum þar sem afhentir voru 50.376 nýir bílar sem er 23,6% aukning. Í Evrópu jókst salan um 13,5%. Í Bandaríkjunum jókst sala á Porsche um 20,7%. Á heimamarkaði, í Þýskalandi, naut Porsche einnig mikillar velgengni þar sem vinsældir 911, Cayenne, Panamera, Boxster og Cayman eru miklar. Þar nam aukningin tæpum 17%. Porsche 911 Carrera var sá bíll sem naut mestu söluaukningar hjá Porsche á síðasta ári. Aukningin nam alls 31,4%. Það er hins vegar Cayenne sportjeppinn sem er söluhæsta einstaka gerðin. Alls seldust 74.763 bílar á síðasta ári sem er 24,8% aukning. Þar af seldust 19.000 eintök af Cayenne S, Cayenne GTS og Cayenne Turbo og þar með heldur Porsche stöðu sinni sem söluhæsti bíllinn í flokki aflmestu sportjeppanna. 25.1.2013 13:15
Slys á leikskóla ekki lögreglumál Slys sem varð á leikskóla í Reykjavík á þriðjudag, þar sem þriggja ára stúlka höfuðkúpubrotnaði, var ekki þess eðlis að kalla þyrfti til lögreglu. 25.1.2013 13:01
Flokksráðsfundur VG um helgina Flokksráðsfundur Vinstri grænna er haldinn á Grand hótel um helgina og hefst seinnipartinn með ræðu Katrínar Jakobsdóttur varaformanns en um klukkan hálf sex heldur Steingrímur J. Sigfússon ræðu. Þar mun hann fara yfir stjórnmálin á kosningavetri en búast má við heitum fundi eftir þær miklu hræringar sem verið hafa í flokknum og stjórnarsamstarfinu að undanförnu. Nú síðast sagði Jón Bjarnason fyrrverandi ráðherra sig úr þingflokki VG og hafa þá fjórir þingmenn yfirgefið þingflokkinn á kjörtímabilinu. Almennar stjórnmálaumræður verða á fundinum klukkan átta í kvöld og má reikna með að órólega deild flokksins láti heyra í sér í þeim umræðum. 25.1.2013 12:07
Enginn samningsvilji af hálfu sveitarfélaganna "Kennarar vinna allt of mikið og skortir tíma til að sinna verkefnum sínum, en þeim hefur fjölgað mikið og áherslurnar breyst," segir Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara 25.1.2013 11:46
Hani var til stórra vandræða Hani, sem staðsettur var í parhúsi í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum, var til svo stórra vandræða á dögunum að kvartað var undan því við lögregluna. Í kvörtuninni kom fram að haninn léti í sér heyra á öllum tímum sólarhrings, ekki síst á nóttunni og væri þá ekkert á lágu nótunum. Hefði hann ýmist haldið fólki vakandi stóran hluta nætur, eða vakið þá sem náðu að festa svefn. Lögregla ræddi við eiganda hanans sem lofaði að fjarlægja hann úr þéttbýlinu. Nágrönnum var greint frá því og önduðu þeir léttar. 25.1.2013 11:31