Bílar

Heimsmet í reykspólun

35.000 hestöfl að verki.

Þessi hálffáránlegi atburður hefur verið skráður í Guiness heimsmetabókin sem fjölmennasta samhliða reykspólið. Þar þöndu 69 ökumenn hestöflin í bílum sínum svo af hlaust verra skyggni en á gamlárskvöld á Íslandi í skotgleðinni miðri.

Á þetta horfðu 10.000 manns á bílasýningu í Canberra í Ástralíu og höfðu örugglega gaman af. Voru þarna að verki 35.000 hestöfl sem breyttu gúmmíi í þéttan reyk í allskonar lit, enda sumir með sérstaka litaglaða hjólbarða til verksins.

Það tók 6 mánuði að skipuleggja atburðinn en ekki ekki nema 30 sekúndur að framkvæma hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×