Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kannabis í Vesturbæ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í vesturbæ Reykjavíkur í gær. Við húsleit var lagt hald á rúmlega 70 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Ekki var að sjá að búið væri í íbúðinni en húsnæðið virðist hafa verið notað í þeim eina tilgangi að rækta kannabis. Karl á fertugsaldri var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu. 15.1.2013 19:46
Er þetta furðulegasta myndbandið á internetinu í dag? Á Facebook-síðu sem ber yfirskriftina "Ótrúleg og klikkuð myndbönd“ birtist þetta myndband fyrir tæpum sólarhring. Það sem fólki er efst í huga er einfaldlega spurningin: Hvað er í gangi? 15.1.2013 19:42
Íslenskir námsmenn í skuldasúpu eftir viðskipti við Halldór Viðar Sanne Tugir Íslendinga, í mörgum tilvikum ungir námsmenn með lítið fé milli handanna, sitja í skuldasúpu eftir viðskipti sín við svikahrappinn Halldór Viðar Sanne sem nú situr í gæsluvarðhaldi. Þeir sem verst urðu úti skulda milljónir. 15.1.2013 18:45
Heimili barnaníðings í gæsluvarðhaldi lagt í rúst Brotist var inn á heimili barnaníðingsins Gunnars Jakobssonar á Stokkseyri aðfaranótt laugardags. Gunnar hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því á föstudag grunaður um að hafa brotið kynferðislega gegn börnum. 15.1.2013 17:49
Topplaus og dónalega kraftmikill Bentley Enn halda þeir áfram að birtast nýju og flottu bílarnir á bílasýningunni í Detroit sem stendur yfir. Einn þeirra eigulegastur hlýtur að teljast þessi blæjuútgáfa af Bentley GT Speed. Í húddinum leynist 12 strokka og 6 lítra sleggja sem sér hjólunum fyrir 616 hestöflum að fíflast í malbikinu. Með þeim getur hann reyndar ferðast á því á 325 km ferð. Þá er líklega betra að vera búinn að loka blæjunni eða að minnsta kosti taka af sér hattinn. Þessi annars nokkuð þungi sleði er ekki nema 4,1 sekúndu í hundrað og 9,7 sek. Í 160 km hraða. Tog vélarinnar nemur 800 Newtonmetrum. Til að hressa örlítið uppá útlit bílsins er hann á 21 tommu felgum. Blæja bílsins hefur verið prófuð í allt að 30 stiga frosti og 50 stiga hita og þolið það bæði jafnvel, sem og monsúnrigningar og fyrir vikið á farþegum allsstaðar að líða eins.... það er vel. 15.1.2013 17:00
Svindlarar afhúpaðir frammi fyrir alþjóð Hið opinbera í Danmörku greiðir um fimm til tólf milljarða danskra króna, eða um 280 milljarða íslenskra króna, í félagslegar bætur til fólks sem á ekki rétt á félagslegum styrk. Þetta kemur fram í raunveruleikaþætti sem sýndur er í danska ríkissjónvarpinu. Sjónvarpsmenn fylgja þar starfsmönnum sveitarfélaga og lögreglunni sem hafa eftirlit með því að opinberir styrkir séu ekki misnotaðir. Svikin eru svo opinberuð fyrir framan öllum þeim sem áhuga hafa á að sjá. 15.1.2013 16:44
Þekkirðu manninn á myndinni? - Eftirlýstur vegna lögreglurannsóknar Maðurinn á meðfylgjandi mynd er eftirlýstur af lögreglunni vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu vinsamlegast beðnir um að hringja í lögregluna í síma 444-1000. Upplýsingum má einnig koma á framfæri á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum til lögreglunnar á fésbókinni. 15.1.2013 16:20
Fimm kærur á hendur Karli Vigni Alls hafa fimm kærur borist vegna Karls Vignis Þorsteinssonar eftir að Kastljós hóf umfjöllun um mál hans. Þar er um að ræða mál þar sem fjórir karlmenn koma við sögu og ein kona. 15.1.2013 15:44
Halldór Laxness með mest seldu bókina Það er ljóst að bókaunnendur hugsi töluvert um heilsuna eftir jólin, en mest selda bókin á tímabilinu 1. til 12. janúar var bókin 6 kíló á 6 vikum. Þetta kemur fram í lista Rannsóknaseturs verslunarinnar sem tekinn er saman fyrir Félag íslenskra bókaútgefenda. 15.1.2013 15:28
Jón Þorsteinn stefnir DV Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs, hefur stefnt Reyni Traustasyni, ritstjóra DV, og Inga Frey Vilhjálmssyni, fréttastjóra blaðsins, vegna umfjöllunar um gjaldeyrisviðskipti Jóns Þorsteins. 15.1.2013 15:21
Ók 1.500 km í stað 150 vegna GPS-villu Sabine Moreau, 67 ára gömul kona frá Belgíu, ætlaði að sækja vinkonu sína um 150 km leið, en endaði í Zagreb í Króatíu sem er um 1.500 km frá heimili hennar. Þetta tókst henni aðallega af tvennum sökum, bilun í leiðsögn GPS-tækisins sem hún studdist við og ótrúlega lélegri athyglisgáfu hennar. Heimili konunnar er í Hinault Erquelinnes í Belgíu og vinkonan beið á lestarstöð í Brussel, sem er um tveggja tíma akstur. Þess í stað ók Sabine í tvo sólarhringa og lagði á ferð sinni að baki 1.500 kílómetra, enda var hún komin á hinn endann í álfunni að leiðarenda. Hún verður að teljast efnileg til þátttöku í Le Mans þolaksturskeppninni í ár með slíka seiglu í handraðanum, enda er í keppninni trauðla hægt að ruglast af leið þar sem hún er lokaður hringur. Á leið sinni þurfti Sabine tvisvar að fylla á tankinn og hún dottaði nokkrum sinnum í vegköntum. Að sögn hennar sjálfrar var hún nokkuð annars hugar, en fyrr má nú vera! "Ég sá allskonar umferðarskilti í Þýskalandi, Austurríki og að lokum í Zagreb í Króatíu. Þá áttaði ég mig á því að ég var ekki í Belgíu lengur!“ Fyrir suma tekur það vonandi styttri tíma. 15.1.2013 15:15
Skúringakona ók lest á hús í Svíþjóð Skúringakona slasaðist þegar lest í Stokkhólmi fór af sporinu og lenti á íbúðablokk um klukkan hálftvö í nótt að staðartíma. Þegar lestin kom á endastöð í Saltsjobaden, suðaustur af Stokkhólmi, hægði hún ekki á sér heldur ók á hindranir á enda sporsins og áfram á nálæga byggingu. Við stjórn lestarinnar var hreingerningarkona sem hafði stolið henni. Hún slasaðist alvarlega í árekstrinum og henni var flogið á spítala. Það þykir ganga kraftaverki næst að enginn byggingunni hafi slasast og engir farþegar voru í lestinni. 15.1.2013 15:12
Öllum uppgjafarhermönnum tryggð vinna Bandaríski smásölurisinn Wal-Mart mun í dag tilkynna um áætlun sína að bjóða öllum uppgjafarhermönnum þjóðarinnar vinnu. 15.1.2013 15:08
Fyrirtæki vöruð við flóknum svikum tölvuþrjóta Lögregla á Norðurlöndum varar við tölvuinnbrotum sem eiga sér stað í samskiptum norrænna og kínverskra fyrirtækja í þeim tilgangi að komast yfir lögmætar greiðslur fyrir vörur og þjónustu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra. 15.1.2013 14:58
Myndin mun ekki gera lítið úr WikiLeaks "Ég hef reynt að gera mitt besta til þess að tryggja að þetta verði ekki and-WikiLeaks-mynd," segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar um fyrirhugaða kvikmynd um vefsíðuna WikiLeaks og forsvarsmann hennar, Julian Assange. 15.1.2013 14:52
Kannast þú við úlpuþjófinn? Þremur verðmætum úlpum var stolið úr fatahengi í anddyri Fjölbrautaskóla Suðurlands síðastliðinn föstudag 11. janúar klukkan 08:25. 15.1.2013 14:35
Fæstar sakfellingar á Suðurlandi Töluverður munur er á sakfellingarhlutfalli héraðsdóma á Íslandi samkvæmt gögnum sem Páll Hilmarsson tók saman og vann úr af vefsíðu héraðsdómanna. 15.1.2013 14:33
Eitrað illgresi í klettasalatspokum Eitrað illgresi fannst í nokkrum pokum af ítölsku klettasalati. Mistökin uppgötvuðust eftir að nokkrir neytendur höfðu fengið eitrunaráhrif, m.a. sviða og bólgur í munnholi. Heilbrigiseftirlit Reykjavíkur tilkynnti þá Matvælastofnun að innkalla skyldi salatið. Ráðlagt er að skola salat og tína úr lauf sem eru frábrugðin. 15.1.2013 13:58
Lögregla þarf rýmri heimildir til að fást við kynferðisbrot Flestir þeirra gesta sem mættu á fund allsherjar- og menntamálanefndar í morgun þar sem fjallað var um kynferðisbrot gegn börnum voru þeirrar skoðunnar að lögregla ætti að fá rýmri heimildir til þess að beita svokölluðum virkum tálbeitum á Netinu, í því skyni að góma barnaníðinga. Á fundinn mættu fulltrúar frá innanríkisráðuneyti, Ríkissaksóknara, Barnaverndarstofu, Stígamótum og lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu auk Svölu Ísfeld Ólafsdóttur lögfræðingi og sérfræðingi í kynferðisbrotum gegn börnum. 15.1.2013 13:47
Benz kynnir CLA í Berlín í dag Mercedes-Benz mun kynna til leiks glænýjan bíl, CLA-Class á alþjóðlegri tískuviku Mercedes-Benz sem hefst í Berlín í dag 15. janúar. CLA er fjögurra dyra sportlegur bíll hannaður sem coupé og verður í boði með 4MATIC fjórhjóladrifi ásamt miklum búnaði. Hönnunin er sportleg og sækir hann nokkuð svip til CLS-Class og er ekki leiðum að líkjast. Kraftmikið grillið að framan lítur út fyrir að vera alsett demöntum og straumlínulagaðar hliðar bílsins og sportlegur afturhluti hans eru talsvert fyrir augað. Mikið er lagt upp úr vönduðu efnisvali í innréttingunni, sem búast má við af Benz. Bíllinn verður einnig fáanlegur með panomaric glerþaki. CLA er með lægstu loftmótstöðu sem um getur í bíl eða 0.22 Cd. CLA-Class er framleiddur með 1,6 og 2,0 lítra bensínvélum sem skila 122 og 156 hestöflum. Kraftmesta útfærslan CLA 250 er með 211 hestafla vél. Tvenns konar díselvélar bjóðast. Sú minni mun skila 136 hestöflum og togið er 300 NM og sú stærri 170 hestöflum og 350 NM í togi en á sama tíma er CO2 losunin aðeins 109 g/km. Allar vélarnar í nýjum CLA-Class verða með ECO start/stop búnaði. Hægt verður að fá bílinn með nýrri sex gíra beinskiptingu eða 7G-DCT sjálfskiptingu eins og er í nýjum A-Class. Nýr CLA-Class er með árekstrarvara en búnaðurinn greinir þegar fjarlægð frá bíl eða kyrrstæðri mótstöðu er of lítil og lætur ökumann vita með mynd- eða hljóðmerki. CLA er væntanlegur á markað í apríl hjá Öskju og hingað til lands fyrri hluta sumars. CLA er ætlað stórt hlutverk á Bandaríkjamarkaði, en hann er minnst bíll Benz sem þarf er seldur, þar sem hvorki A-Class né B-Class eru í boði. 15.1.2013 13:38
Réttað í máli Stúlku eftir helgi Aðalmeðferð fer fram í máli Stúlku Bjarkardóttur Rúnarsdóttur næstkomandi mánudag. 15.1.2013 13:36
Þrír látnir í umferðarslysi á Skáni - Fimmtán eru slasaðir Talið er að um 15 til 20 manns hafi slasast í umferðarsylsi sem varð á brú á Skáni í Svíþjóð fyrr ídag. Staðfest hefur verið að þrír létust í árekstrinum, að því er fram kemur á vef Aftonbladet. Þar kemur ekki fram hvernig þessar hörmungar vildu til en fullyrt er að um 100 bílar séu hluti af þessum fjöldaárekstri. Þar af eru um 50 fólksbílar og um 50 stærri bifreiðar. 15.1.2013 13:07
Útkoman týpísk Hollywood-steypa "Ég hef heyrt ávæning af handritinu og það hefur ekki verið til þess að auka bjartsýni mína um að þarna sé vel farið með. Ég treysti Hollywood ekki sérstaklega vel til þess að vera skrásetjari sögunnar," segir Kristinn Hrafnsson talsmaður WikiLeaks. 15.1.2013 12:59
Kraftatröllið Audi RS7 Ekki skarta margir fjöldaframleiddir fólksbílar 560 hestöflum, hröðun í hundraðið á 3,9 sekúndum og 305 kílómetra hámarkshraða. Það gerir þó Audi RS7 sem svipt var af hulunni á bílasýningunni í Detroit í gær. Vélin í bílnum er 4,0 lítra V8, en með tveimur túrbínum sem skýrir ógnaraflið. Þrátt fyrir allt þetta afl eyðir bíllinn aðeins 9,8 lítrum. Það skýrist af því að vélin slekkur á fjórum af átta strokkum ef ekki er stigið gáskalega á bensíngjöfina. Ef það er hinsvegar gert koma hinir strokkarnir inn á örfáum hundraðshlutum úr sekúndu. Við vélina er boltuð átta gíra Tiptronic sjálfskipting sem sendir aflið til allra hjólanna, eins og títt er með Audi bíla. Bremsurnar á bílnum eru að sjálfsögðu jafn ógnarlegar og vélin og bremsudiskarnir heilir 39 cm í þvermál. Bíllinn er að mestu byggður á hástyrktarstáli og áli. Fá má hann með loftpúðafjöðrun og er með henni er hægt að lækka bílinn um 20 mm. Þó bíllinn sé með "coupe“-lagi er hann samt með 535 lítra skotti. 15.1.2013 12:23
IKEA tók umdeildan skógarhöggsmann úr umferð Auglýsing sem var gerð fyrir Ikea í aðdraganda síðustu jóla var tekin úr umferð. Samkvæmt heimildum Vísis var ástæðan sú að kvartanir bárust frá áhorfanda um efni hennar. 15.1.2013 11:46
Segir yfirvöld opna á ritskoðun á Internetinu Með frumvarpi um landslénið .is, sem Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra mun leggja fyrir Alþingi í dag, er verið að fara aftur til fornaldar að sögn Jens Péturs Jenssonar, framkvæmdastjóra ISNIC. 15.1.2013 11:37
Átak gegn langtímaatvinnuleysi af stað Liðsstyrkur, sameiginlegt atvinnuátak stéttarfélaga, atvinnurekenda, sveitarfélaga og ríkisins gegn langtímaatvinnuleysi fór af stað í morgun. 15.1.2013 11:04
Fékk magakveisu á lokametrunum Pólfarinn Vilborg Arna Gissurardóttir fékk magakveisu í gær þegar Hún átti aðeins 55 kílómetra eftir af göngunni en hún er búin að ganga síðan í nóvember. Í bloggi sem hún heldur úti skrifar Vilborg: 15.1.2013 10:32
Áfram eitt barn á mann í Kína Kínverjar munu ekki láta af stefnu sinni að takmarkarka barnseignir í landinu. Pör í þéttbýli mega aðeins eignast eitt barn og þannig mun það vera áfram. 15.1.2013 10:18
Börðust við þakplötur og fjúkandi skilti Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi var kölluð út á þriðja tímanum í nótt þegar tilkynning barst um að skilti á fyrirtæki í bænum væri að fjúka. 15.1.2013 10:12
iPhone svindlarinn hafði fé af um hundrað manns Halldór Viðar Sanne, sem situr í gæsluvarðhaldi í Kaupmannahöfn fyrir að svíkja fé út úr fólki er grunaður um að hafa svikið um 100 manns. Þetta segir Henning Schmidt, yfirmaður efnahagsbrotadeildar dönsku lögreglunnar í samtali við Vísi. Hann er talinn hafa staðið einn að svindlinu. 15.1.2013 09:51
Óveður á Kjalarnesi og undir Hafnafjalli Óveður er á Kjalarnesi og undir Hafnafjalli. Vindur gengur hinsvegar mikið niður á þessum slóðum og norðanverðu Snæfellsnesi eftir því sem líður á morguninn. 15.1.2013 08:53
Rammaáætlun verður að lögum Alþingi samþykkti Rammaáætlun með 36 atkvæðum í gær. Friðlýsing á verndarsvæðum fer strax af stað, segir umhverfisráðherra. Stjórnarandstaðan telur pólitík hafa tekið yfir vísindalegt ferli og tækifæri til sáttar hafi glutrast niður. 15.1.2013 07:00
Varð undir veghefli en kláraði vaktina Pétri Óla Péturssyni tókst með snarræði að bjarga eigin lífi þegar hann varð nærri undir veghefli sem hann ók sjálfur. Hann segist aðeins vera skrámaður og bólginn og gat klárað vaktina í fyrrinótt. 15.1.2013 07:00
ESB-viðræður verði ekki að bitbeini í kosningabaráttu Aðildarviðræður Íslands og ESB hafa verið settar í hægagang en viðræður um samningskafla sem þegar eru hafnar halda áfram. Utanríkisráðherra segist reyna að forða því að ESB verði að stóru deilumáli í kosningunum. 15.1.2013 07:00
Frakkar fá stuðning í aðgerðum í Malí Íslamistar sem ráða norðurhluta Afríkuríkisins Malí hafa náð völdum í bæ í miðju ríkinu, nær höfuðborginni en þeir hafa hingað til komist. Frakkar hafa hert aðgerðir sínar í landinu og hermenn frá Afríkuríkjum koma til liðs við þá. 15.1.2013 07:00
Bæjarritarinn rekinn eftir 25 ár á Akranesi Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari á Akranesi til 25 ára og settur bæjarstjóri um tíma, var rekinn úr starfi fyrir helgi. Bæjarstjórnin segir Jón hafa brugðist trúnaði með því að tvírukka fyrir akstur og fundarsetur. Fordæmalaus vinnubrögð, segir Jón. 15.1.2013 07:00
Flestir geta fengið vegabréf Reglum sem gilt hafa um utanlandsferðir Kúbverja hefur nú verið breytt og geta nú flestir þeirra fengið vegabréf. Áður þurftu Kúbverjar sérstakt leyfi til utanlandsferðar auk þess sem þeir þurftu að sýna fram á að þeim hefði verið boðið til annars lands. 15.1.2013 07:00
Hefðum lagt fram 13 milljarða Væri Ísland aðildarríki í ESB og evrusamstarfinu myndi hlutur landsins í stöðugleikasjóð Evrópusambandsins (ESM) nema ríflega þrettán milljörðum króna í formi ábyrgða á lánveitingum sem evruríkin ábyrgjast. Um einskiptisframlag væri að ræða, sem yrði skráð í fjárlögum sem eign ríkissjóðs, en ekki kostnaður. Þetta kemur fram í svari utanríkisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur, þingkonu Framsóknarflokks. 15.1.2013 07:00
Íbúar mótmæla læknisleysi um helgar „Þetta er grafalvarlegt mál og í raun spurning um hvort fólk geti búið hér áfram,“ segir Hjördís Vilhjálmsdóttir, einn íbúa í Grundarfirði sem berjast gegn fyrirhuguðum niðurskurði sem þýðir að ekki verður starfandi læknir í bænum um helgar. 15.1.2013 07:00
Fleiri ábendingar eftir Kastljós Kynferðisafbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu finnur fyrir því að meira er um ábendingar og hringingar til embættisins vegna kynferðisbrotamála í kjölfar umfjöllunar Kastljóss um brot Karls Vignis Þorsteinssonar. Þetta segir Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar. 15.1.2013 07:00
Hundrað milljónir á trúarhátíð Hindúahátíðin Kumbh Mela hófst í Allahabad í Indlandi í gær. Hátíðin er haldin á tólf ára fresti og er einhver stærsta trúarsamkoma sem haldin er í heiminum. 15.1.2013 07:00
Hvítlauk smyglað frá Noregi til ESB-landa Tveir breskir ríkisborgarar eru taldir standa á bak við umfangsmikið smygl á hvítlauk frá Noregi til Evrópusambandslanda. Sænskir tollverðir á landamærum Noregs og Svíþjóðar fundu mikið magn hvítlauks í vöruflutningabíl sem var á leið til Svíþjóðar og hafa sænsk yfirvöld farið fram á handtöku og framsal höfuðpauranna. 15.1.2013 07:00
Mafíuforingi segist vita hvar Jimmy Hoffa er grafinn Hvarf verkalýðsforingjans Jimmy Hoffa er enn og aftur komið í sviðsljós bandaríska fjölmiðla. Fyrrum liðsforingi í mafíunni í Detroit segir að hann viti hvar Hoffa sé grafinn. 15.1.2013 06:56
Segir Umhverfisstofnun sniðganga reglugerð Umhverfisstofnun virðist ætla að sniðganga reglugerð um bráðamengun hafs og stranda, þar sem segir að stofnunin skuli gera viðeigandi ráðstafanir í slíkum tilvikum, segir Björn Steinar Pálmason, bæjarstjori á Grundarfirði. 15.1.2013 06:54