Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Húsbíll fauk af veginum Húsbíll fauk út af veginum undir Ingólfsfjalli og hafnaði í skurði laust fyrir klukkan níu í morgun. Farþegar sluppu ómeiddir en bíllinn liggur enn utan vegar. 10.9.2012 09:52
Ólympíufarar koma heim í dag Í tilefni af góðum árangri íslensku keppendanna í Ólympíumóti fatlaðra í London munu Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra taka á móti Ólympíuförunum á Keflavíkurflugvelli við komu þeirra frá London. 10.9.2012 09:46
Veðurstofan frestar vígslu vegna veðurs Veðurstofa Íslands hefur frestað vígslu á veðursjá á Austurlandi, sem til stóð að vígja á morgun, vegna veðurs. Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands þá verður að fresta vígslunni til miðvikudagsins 12. september vegna slæmrar veðurspár á morgun. 10.9.2012 09:39
Víkurskarð ófært fólksbílum vegna óveðurs Víkurskarð er ófært fólksbílum vegna veðurs og ísingar. Að sögn lögreglunnar á Akureyri er flutningabíll í vandræðum í skarðinu og teppir hann umferð. 10.9.2012 08:19
Hitabeltisstormurinn Leslie nær til Íslands sem lægð Hitabeltisstormurinn Leslie gekk í gær yfir Bermúdaeyjar á Atlantshafi og stefnir nú hraðbyri að ströndum Nýfundnalands. 10.9.2012 07:01
Lítið um vandræði vegna veðursins í nótt Þrátt fyrir töluvert rok víðast hvar á landinu í gærkvöldi og í nótt hefur verið lítið um vandræði vegna veðursins. 10.9.2012 06:49
Kona fyrrum Þýskalandsforseta segist ekki hafa verið vændiskona Bettina Wulff eiginkona Christian Wulff fyrrum forseta Þýskalands hefur gefið eiðsvarna yfirlýsingu fyrir dómstól í Hamborg um að hún hafi aldrei starfað sem vændiskona. 10.9.2012 06:33
Yfir tvær milljónir manna án rafmagns á Kúbu Yfir tvær milljónir manna voru án rafmagns í Havana höfuðborg Kúbu í gærkvöldi og nótt. Rafmagn komst á að nýju snemma í morgun. 10.9.2012 08:20
Talibanar ætla að fella Harry Bretaprins Talibanar ætla sér að fella Harry Bretaprins í Afganistan ef þeim gefst tækifæri á slíku. 10.9.2012 07:27
Nánast öll börn í leikskólum borgarinnar í heilsdagsvistun Leikskólaplássum sem í boði eru í Reykjavík hefur fjölgað um 19 prósent frá árinu 2000. Hjá borginni hefur þeim fjölgað um 11,4 prósent, úr 5.240 plássum í 5.837 pláss í ár. Þegar sjálfstætt starfandi skólum er bætt við hefur plássum fjölgað úr 5.670 árið 2000 í 6.750 í ár. Fréttablaðið leitaði upplýsinga hjá Reykjavíkurborg um þróunina í leikskólamálum. 10.9.2012 07:00
Afhenda Afgönum stjórnina á Bagram fangelsinu Bandaríski herinn mun á næstu dögum afhenda afgönskum stjórnvöldum yfirráðin yfir hinu alræmda Bagram fangelsi en þar eru hýstir um 3.000 af vígamönnum Talibana og grunaðra hryðjuverkamanna. 10.9.2012 06:47
Sir Paul McCartney hlaut æðstu heiðursorðu Frakklands Tónlistarmaðurinn Sir Paul McCartney hefur hlotið æðstu heiðursorðu Frakklands fyrir framlag sitt til tónlistarinnar. 10.9.2012 06:28
Sífellt fleiri vinna svart Svört atvinnustarfsemi virðist færast í vöxt í ferðaþjónustu og byggingastarfsemi. Þetta hefur komið í ljós í sumar í könnunum ríkisskattstjóra, Alþýðusambands Íslands (ASÍ), og Samtaka atvinnulífsins (SA), í tengslum við átakið Leggur þú þitt af mörkum? Átakinu er beint gegn svartri atvinnustarfsemi. 10.9.2012 06:00
Leita svara um uppruna í arfgerð makríls Vísindamenn Hafrannsóknastofnunarinnar, Matís og Háskóla Íslands ásamt norskum, færeyskum, grænlenskum og kanadískum vísindamönnum rannsaka arfgerð makríls í Norður-Atlantshafi í samvinnu við útgerðarfyrirtæki. Markmiðið er að varpa ljósi á uppruna makríls innan íslenskrar, færeyskrar og norskrar lögsögu, segir á heimasíðu Hafró. 10.9.2012 04:00
Frakkar stórtækir í fiskkaupum Gríðarleg magnaukning hefur orðið í útflutningi á ferskum þorski og ýsu til Frakklands á fyrstu sjö mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í samantekt Landssambands smábátaeigenda úr gögnum Hagstofu Íslands. Aukningin er 49% í þorskinum og 127% í ýsu. 10.9.2012 03:00
Boltar í stað stóla í kennslustofunum Í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ eru ekki bara boltar í íþróttahúsnæði skólans heldur líka í sumum kennslustofum. Þegar nemendur þurfa að losna við óróa úr líkamanum í kennslustund geta þeir setið á sérstökum bolta en samtímis verið á hreyfingu. 10.9.2012 02:00
Biðlistar lengri en færri sýkjast Biðlistar á Landspítalanum lengjast þvert á markmið spítalans að fækka þeim kerfisbundið. Þetta kemur fram í pistli forstjórans, Björns Zoëga, sem hefur áhyggjur af þróuninni. Í skrifum hans kemur fram að í dag eru um tvö þúsund sjúklingar á biðlistum spítalans "en það er nokkur fjölgun frá því 1. janúar síðastliðinn, þvert á markmið okkar um að fækka verulega á biðlistunum,? segir Björn. 10.9.2012 01:00
Túristinn Curiosity - Tók sjálfsmynd á Mars Vitjeppinn Curiosity, sendiherra mannkyns á Mars, er greinilega ekki svo frábrugðin okkur hér á jörðu niðri. Farið afhjúpaði hégóma sinn þegar það kannaði rannsóknararm sinn á dögunum og laumaðist til að taka af sér sjálfsmynd. 9.9.2012 22:00
Segir börn flýja frá Sýrlandi vannærð Sýrlensk börn í flóttamannabúðum UNICEF í Jórdaníu eru ofbeldisfull og þjást af næringarskorti þegar þau koma í búðirnar. Þetta segir íslensk kona sem starfar þar. Hún segist hafa séð sjö ára stelpur slást eins og fullorðna karlmenn. 9.9.2012 20:30
"Sjálfstæðisflokkurinn má ekki verða teboðshreyfing Íslands" Sjálfstæðisflokkurinn má ekki einangrast yst á hægri vængnum og verða að teboðshreyfingu Íslands segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður og fyrrverandi varaformaður flokksins. Þá er hún ósátt við að Ragnheiður Elín Árnadóttir hafi verið sett af sem þingflokksformaður. 9.9.2012 18:45
Skorið niður um á fimmta hundrað milljónir hjá sérstökum saksóknara Skorið verður niður hjá sérstökum saksóknara um tæpan hálfan milljarð króna í fjárlögum næsta árs, ef stjórnvöld fylgja áætlunum embættisins sjálfs. Áætlanir embættisins gera ráð fyrir að starfsmönnum þess fækki niður í 50 á næsta ári, en þeir eru 110 í dag. 9.9.2012 18:30
"Hann var alltaf glaður, ótrúlega fyndinn og einstakur" Átján ára Íslendingur var myrtur í Tulsa í Óklahómafylki í gærmorgun. Bandarískir fjölmiðlar segja að ekkert bendi til þess að morðinginn hafi þekkt piltinn og hann hafi því verið fórnarlamb tilgangslauss fólskuverks. Vinir hans úr Hagaskóla hittust í dag. Þeir segja hann hafa verið einstaklega skemmtilega manneskju. 9.9.2012 18:30
Áður verið framið morð þar sem íslenski pilturinn dó Staðurinn þar sem íslenski pilturinn var myrtur í Tulsa í gærmorgun er sami staður og fólk á þrítugsaldri var myrt á þann 30. ágúst í fyrra. Íslenski pilturinn var staddur á bílastæði við QuikTrip matsölustað þegar hann og maður á fertugsaldri, sem var með honum, voru skotnir. Sá íslenski lést en samferðarmaður hans særðist illa. 9.9.2012 15:54
Átján ára Íslendingur skotinn til bana í Tulsa Átján ára íslenskur piltur var skotinn til bana í borginni Tulsa í Óklahómafylki í Bandaríkjunum í gær morgun, bandarískur maður liggur alvarlega slasaður á sjúkrahúsi eftir sömu árás og pilturinn lét lífið í. Lögregla leitar mannsins. 9.9.2012 12:12
Ölvaður þjófur reyndi að stela vespu Ölvaður þjófur var handtekinn ásamt félaga sínum eftir þeir höfðu slegist við öryggisverði í verslun við Skógarlind á þriðja tímanum í dag. 9.9.2012 18:02
Eldri systirin komin til meðvitundar Eldri dóttir bresku hjónanna sem skotin voru til bana í Chevaline við frönsku Alpana fyrr í vikunni er nú komin til meðvitundar. Stúlkan er sjö ára gömul. Hún særðist alvarlega í skotárásinni og hefur verið haldið sofandi síðan þá. Stúlkan hafði bæði verið skotin í öxlina og barin. 9.9.2012 16:32
Fyrsti stormur vetrar - huga ber að lausamunum Vátryggingafélag Íslands, VÍS, bendir fólki á að huga að lausum munum, sólhúsgögnum, trampólínum, útigrillum og öðru slíku. 9.9.2012 15:26
Erlendir uppreisnarmenn ryðja sér til rúms í Sýrlandi Erlendum íslamistum sem nú berjast við hlið uppreisnarmanna í Sýrlandi hefur fjölgað þó nokkuð á síðustu vikum. Þetta segir franskur læknir sem hefur á síðustu vikum hlúð að fórnarlömbum átakanna í Aleppo, fjölmennustu borg Sýrlands. 9.9.2012 15:16
Framsókn í lykilstöðu fyrir kosningar Vaxandi líkur eru á því að Framsóknarflokkurinn verði í lykilstöðu þegar kemur að myndum ríkisstjórnar næsta vor. Þetta segir Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðið, í pistli sem birtist eftir hann á vefsvæðinu Evrópuvaktin í dag. 9.9.2012 14:26
Rifinn hanski í réttarhöldunum yfir Simpson? Grunur leikur á að fyrrverandi verjandi O. J. Simpsons, sem sýknaður var af morðákærum fyrir tæpum sautján árum, hafi átt við eitt af lykilsönnunargögnum í málinu. 9.9.2012 13:54
Nyrsta hlaup landsins haldið í Grímsey Norðurheimskautsbaugshlaup TVG-Zimsen var haldið í Grímsey í gær. Er þetta fyrsta almenningshlaupið sem efnt er til í Grímsey. 9.9.2012 13:41
Vatnsleki í Verkmenntaskóla Austurlands Þó nokkuð tjón varð í Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupsstað í gær þegar heitavatnsrör sprakk. Öll önnur hæð skólans stórskemmdist. 9.9.2012 13:32
Ekki svigrúm til frekari launahækkana Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins telur að ekki sé svigrúm til frekari launahækkana við endurskoðun kjarasamninga um áramótin þrátt fyrir tvö til þrjú prósent launaskrið á árinu. Hann segir mikilvægt að nota svigrúm fyrirtækja til að lækka verðbólgu. 9.9.2012 13:06
"Höftin voru erfiðasta ákvörðun þingferils míns" Varaformaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir atvinnuvegafjárfestingu stjórnarflokkanna en bendir á að fjárfestar sýni samt sem áður áhuga, þrátt fyrir höftin. 9.9.2012 12:19
Skýstrókar í New York Enginn særðist en talsverðar eignarskemmdir urðu í New York-borg í Bandaríkjunum í nótt þegar tveir skýstrókar fóru þar yfir. Annar kom niður í Queens hverfi og hinn í Brooklyn. 9.9.2012 11:30
Ágreiningur Bandaríkjamanna og Rússa enn til staðar Enn er mikill ágreiningur milli Bandaríkjamanna og Rússa um hvernig beri að bregðast við borgarastríðinu í Sýrlandi. 9.9.2012 11:00
Eftirsótt Biblía og óumbeðnar nærbuxur Biblía sem áður tilheyrði Elvis Presley, konungi rokksins, var slegin hæstbjóðanda á fimmtíu og níu þúsund pund, eða sem samsvarar ellefu og hálfri milljón íslenskra króna á Elvis-uppboði í Manchester í gær. 9.9.2012 11:00
Hvassviðri, slydda og snjókoma Spáð er allt að 40 metrum á sekúndu á sunnanverðu landinu frá Kjalarnesi austur að Austfjörðum í dag. Þá má gera ráð fyrir afar hvössum vindhviðum við fjöll. 9.9.2012 10:55
Telpan heldur heim til Bretlands Unga stúlkan sem komst lífs af þegar foreldrar hennar og amma voru skotin til bana í Chevaline við frönsku Alpana á miðvikudag heldur heim til Bretlands í dag. 9.9.2012 10:30
Hvalbeinahliðið við Núp í Dýrafirði fékk andlitslyftingu Í dag verður sérstök hátíðardagskrá í Grasa- og trjágarðurinn Skrúði á Núpi í Dýrafirði og verður hvalbeinahliðið þar endurnýjað. 9.9.2012 10:05
Með minniháttar áverka eftir hestaslys Áverkar eldri konu frá Bandaríkjunum sem slasaðist þegar hún féll af hestbaki við Laxárdal í Dölum í gærkvöld eru minni en upphaflega var talið. 9.9.2012 09:24
Blæddi úr slagæð Stuttu eftir miðnætti í nótt kom tæplega fimmtugur karlmaður á slysadeild með slagæðarblæðingu. Hann hafði verið á bar á Laugavegi og fengið þar glas í höfuðið. 9.9.2012 09:22
Harður árekstur við Hvalfjarðargöng Tveir bílar lentu saman á gatnamótum Vesturlandsvegar og Hvalfjarðarvegar á tíunda tímanum í gærkvöld. 9.9.2012 09:20
Aleppo án rennandi vatns Nýskipaður erindreki Sameinuðu Þjóðanna í Sýrlandi, Lakhdar Brahimi, mun funda með utanríkisráðherrum Arababandalagsins í Kaíró í Egyptalandi á næstu dögum. Brahimi hefur nú formlega tekið við kyndlinum frá Kofi Annan sem sagði starfi sínu sem friðarsamningamaður lausu á dögunum. Brahimi mun nú reyna að miðla málum milli stríðandi fylkinga í landinu. 8.9.2012 23:00
Alríkisdómari mælir fyrir lögleiðingu marijúana Bandaríski alríkisdómarinn og lögspekingurinn Richard A. Posner sagði í vikunni að afnema ætti refsistefnu yfirvalda í Bandaríkjunum vegna neyslu og sölu kannabisefna. Hann sagði að lögleiðing kannabiss í landinu væri rökrétt þróun og að stór hluti fíkniefnalaga væri í raun óþarfi. 8.9.2012 22:00