Alríkisdómari mælir fyrir lögleiðingu marijúana 8. september 2012 22:00
Bandaríski alríkisdómarinn og lögspekingurinn Richard A. Posner sagði í vikunni að afnema ætti refsistefnu yfirvalda í Bandaríkjunum vegna neyslu og sölu kannabisefna. Hann sagði að lögleiðing kannabiss í landinu væri rökrétt þróun og að stór hluti fíkniefnalaga væri í raun óþarfi. „Það er fjarstæðukennt að refsa fólki fyrir að eiga eða dreifa marijúana," sagði Posner. „Ég sé í raun engan mun á neyslu slíkra efna og sígaretta." Posner lét ummælin falla þegar hann hélt erindi í Elmhurst háskólanum í Illinois fyrr í vikunni. Posner er afar áhrifamikill dómari við áfrýjunardómstól í Chicago. Þá er hann vafalaust kunnugur mörgum löglærðum einstaklingum enda hefur hann skrifað rúmlega fjörutíu bækur um lögvísi og hagfræði. „Að sama skapi er ég efins um fíkniefnalöggjöfina í heild sinni," sagði Posner. „Sú hugmynd að nota refsilöggjöf til að takast á við vandamál fíknar og misbeitingar hættulegra vímuefna er að mínu mati óskynsamleg." Þá sagði Posner að fíkniefnalöggjöfin í Bandaríkjunum væri ástæðan fyrir því að fangelsi þar í landi væru yfirfull. Hann benti á að lögleiðing kannabiss myndi spara bandaríska ríkinu rúmlega 41 milljarð á ári hverju — eða það sem nemur 5.056 milljörðum íslenskra króna. Hægt er að horfa á fyrirlestur Posners í heild sinni hér fyrir ofan.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Sammála því að erfitt haust sé í vændum Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Fleiri fréttir Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Sjá meira