Fleiri fréttir

Skálinn að Stöng er úreltur

Efnt verður til hugmyndasamkeppni um hönnun ásýndar og umhverfis fornleifa við Stöng í Þjórsárdal. Fornleifavernd ríkisins stendur fyrir keppninni í samvinnu við Skeiða- og Gnúpverjahrepp og Arkitektafélag Íslands.

Náttúran í ljósmyndasamkeppni

Náttúra er þema þriðju ljósmyndakeppninnar sem Fréttablaðið stendur fyrir í sumar. Vonast er eftir fjölbreytilegum myndum sem fanga náttúru Íslands á áhugaverðan hátt og senda þátttakendur inn sínar eigin ljósmyndir.

Hundrað ára hús að gistiheimili

Félagið RR Hótel sem hefur hug á að kaupa eitt hundrað ára hús Félags bókagerðarmanna við hlið Þjóðleikhússins vill fá að að breyta eigninni í gistiheimili.

Fái fleiri vegrið á Strandirnar

„Full þörf er á veg-riði á þessum slóðum og raunar miklu víðar á Ströndum,“ segir á fréttavefnum strandir.is þar sem greint er frá því að nú sé unnið að uppsetningu vegriðs á Djúpvegi númer 61 þar sem hann liggur yfir Víðidalsá, rétt sunnan Hólmavíkur. Einnig sé ætlunin að setja veg-rið á sama vegi á nokkrum stöðum á Steingrímsfjarðarheiði í þessari lotu. „Sveitarstjórn Stranda-byggðar hefur sérstaklega bent á mikilvægi þess að vegrið verði sett á neðri kantinn í norðanverðum Kollafirði þar sem leiðin liggur um Forvaða og víðar þar sem kanturinn er mjög brattur og langt niður í fjöru,“ segir á strandir.is.- gar

Færri aka göng undir Hvalfjörð

Vegagerðin segir að nú í júlí hafi umferð um Hvalfjarðargöng dregist saman um tæp 6 prósent miðað við júlí í fyrra. Í júní dróst umferð um göngin hins vegar aðeins saman um 02, prósent miðað við í fyrra. „Mest dregst umferð saman á laugardögum eða um 10,5 prósent en það samsvarar því að um 750 færri bílum hafi verið ekið um Hvalfjarðargöng að meðaltali hvern laugardag í júlí,“ segir Vegagerðin og bætir við að samanlagt í júní og júlí hafi umferð um göngin minnkað um 3 prósent frá í fyrrasumar. „Það samsvarar því að um 230 færri bílum á sólarhring hafi verið ekið um göngin að meðaltali.“ - gar

Boris Johnson með mest fylgi

Félagar í breska Íhaldsflokknum vilja helst fá Boris Johnson, borgarstjóra í London, til að verða næsta leiðtoga flokksins.

Basescu slapp með skrekkinn

Innan við helmingur kosningabærra manna tók þátt í kosningum í Rúmeníu á sunnudag sem snerust um það hvort víkja ætti Traian Basescu forseta úr embætti.

Hótað fangelsi fyrir þjófnað

Einn af háværustu gagnrýnendum Vladmir Putins, forseta Rússlands, hefur verið sakaður um þjófnað. Hans gæti beðið tíu ára fangelsi verði hann ákærður og fundinn sekur.

Giftast eftir 48 ára aðskilnað

Lena Henderson og Roland Davis voru unglingar þegar þau gengu í það heilaga. Hjónabandið endaði þó með ósköpum. Tuttugu árum og fjórum börnum seinna var sambandinu slitið. Núna, 48 árum eftir skilnaðinn, undirbúa þau sitt seinna brúðkaup.

Niðurskurður haft veruleg áhrif á störf lögreglunnar

Stefán Eiríksson, lögreglustjóri, segir að of langt hafi verið gengið í niðurskurði til löggæslu á höfuðborgarsvæðinu. Þrátt fyrir fækkun afbrota þá sé ljóst að fækkun starfsmanna hafi haft veruleg áhrif á ýmsa þætti.

Elísabet sóttist eftir hlutverki Bond-stúlkunnar

Elísabet 2. Bretadrottning bað sérstaklega um að fá að leika Bond-stúlkuna í setningarathöfn Ólympíuleikanna. Drottninginn, sem 86 ára gömul, þótti taka sig vel út við hlið Daniel Craig sem fór með hlutverk spæjarans.

"Skiltaskjálfta ber að sefa"

"Þetta kemur mér á óvart," segir Jakob Frímann Magnússon, framkvæmdastjóri Miðborgarinnar okkar, aðspurður um ákvörðun byggingafulltrúa um að fjarlægja auglýsingaskilti sem sólarhringsfyrirvara í miðborginni.

"Borgin ákveður og okkur ber að hlýða"

Skiptar skoðanir eru um ákvörðun Reykjavíkurborgar um að fjarlæga rangstæð auglýsingaskilti í miðborginni á morgun. Kaupmaður á Laugavegi segir borgaryfirvöld ófær um að ræða málin.

Jórunn lærir móðurmálið með undraverðum árangri

Þrátt fyrir að hafa byrjað að læra íslensku fyrir þremur vikum hefur Jórunn Hjaltadóttir, átján ára gömul stúlka búsett í Noregi, náð ótrúlega góðum tökum á málinu. En framfarir hennar eru ekki einsdæmi.

Vill ræða mál Nubos af yfirvegun

Steingrímur J. Sigfússon segir betra að ræða mál Huangs Nubos af yfirvegun en að hrópast á í fjölmiðlum. Ríkisstjórnin mun skipa hóp ráðherra til að mynda afstöðu ríkisstjórnarinnar til framkvæmdana.

Rangstæð skilti fjarlægð úr miðborginni

Rangstæð skilti í miðborginni verða fjarlægð á morgun. Nokkuð hefur borið á því að undanförnu að auglýsingaskilti á gangstéttum hindri vegfarendur og hafa ábendingar þess efnis borist Reykjavíkurborg.

Vefur borgarinnar liggur niðri

Vefur Reykjavíkurborgar hefur legið niðri frá því klukkan hálf þrjú í dag en samkvæmt Hirti Grétarssyni, upplýsingatæknistjóra borgarinnar, er talið að lítil óværa hafi komist inn í kerfi borgarinnar. Hann segir að engin hætta sé á ferðum og að tjónið verði ekki neitt, nema þá helst að íbúar borgarinnar geti ekki sótt sér upplýsingar á vefinn. Einungis vefurinn reykjavikurborg.is liggur niðri en aðrir vefir borgarinnar eiga að virka, en þeir eru á þriðja hundrað. Vonast er til að hægt verði að opna vefinn um kvöldmatarleytið.

Verjendur Annþórs og Barkar kæra til Hæstaréttar

Verjendur Annþórs Kristján Karlssonar og Barkar Birgissonar munu kæra úrskurð Héraðsdóms Suðurlands, um að vitni fái að gefa skýrslu nafnlaust í máli gegn þeim, til Hæstaréttar. Annþór og Börkur eru grunaðir um að hafa orðið Sigurði Hólm Sigurðssyni, samfanga sínum, að bana á Litla Hrauni í vor. Þeir hafa að auki verið sökuð um fjölmörg alvarleg ofbeldisbrot, framin á liðnu ári á höfuðborgarsvæðinu.

Börn í sérstakri hættu á tjaldsvæðum

Mikil hætta getur skapast þegar bílar eru geymdir við hlið aftanívagna og tjalda en ekki á sérstökum bílastæðum, eins og áður tíðkaðist. Hætta er á því að ekið sé yfir fólk á tjaldsvæðum og eru börn í sérstakri hættu. Þetta segir Fjóla Guðjónsdóttir, forstöðumaður forvarna hjá Sjóvá. Hún segir að hér landi hafi orðið banaslys á tjaldsvæði sem rekja megi til þess að barn hljóp samsíða akandi bíl. Alltof algegnt sé að ekið sé um tjaldsvæði. Fjóla vill vekja athygli ökumanna og forráðamanna barna á þessari hættu nú þegar verslunarmannahelgina er framundan.

600 milljónir án rafmagns

Hundruð námuverkamenn eru fastir neðanjarðar og yfir 600 milljónir manna eru án rafmagns í norðurhluta Indlands eftir að dreifingarkerfi rafmagns í landinu hrundi í morgun. Þetta er í annan daginn í röð sem slíkt gerist en í gær voru um 300 milljónir Indverja án rafmagns um tíma af sömu ástæðum. Fjölmargar lestir eru stopp og er unnið að því að koma fólki upp úr neðanjarðarlestarkerfi höfuðborgarinnar Delhi. Orkumálaráðherra landsins segir að ástæðan fyrir rafmagnsleysinu sé sú að nokkur héröð séu að nota meira rafmagn en gert er ráð fyrir. Unnið er að viðgerð en rafmagnsleysið er það mesta í áratugi í Indlandi.

Of Monsters and Men tilnefnd til MTV-verðlauna

Íslenska hljómsveitin Of Monsters and Men er tilnefnd til MTV-verðlaunanna sem verða afhent í Los Angeles í byrjun september. Hátíðin er stærsta sinnar tegundar en hún er tileinkuð tónlistarmyndböndum frægra tónlistarmanna. Íslensku krakkarnir eru tilnefndir fyrir myndbandið við lagið Little Talks í flokknum; Besta listræna leikstjórn. Í sama flokki eru til að mynda söngkonan Katy Perry og tónlistarmennirnir Drake og Rihanna, tilnefnd.

Tilraunasprengja sem gleymdist að fjarlægja

Komið hefur í ljós að böggullinn sem fannst við bandaríska sendiráðið í Osló í morgun var tilraunasprengja sem starfsmenn bandaríska sendiráðsins höfðu gleymt að fjarlægja. Sprengjan var fest undir bíl sem var stöðvaður við öryggisleit í sendiráðinu. Þegar sprengjunnar varð vart greip um sig nokkur ótti og svæðið var rýmt í 500 metra radíus. Vopnaðir lögreglumenn gættu svæðisins. Tveimur tímum síðar, eða rétt fyrir klukkan tólf að íslenskum tíma, var hættuástandi aflýst.

Talið er að 200 þúsund hafi flúið Aleppó

Talið er að um 200 þúsund manns hafi flúið borgina Aleppó um helgina og undirbúa þjóðir sig undir aukin straum flóttamanna. Forstjóri Útlendingastofnunnar segir að hér á landi verði fylgt fordæmi annarra Evrópuþjóða um að fólk verði talið flóttamenn við það eitt að koma frá Sýrlandi og fái að auki viðbótarvernd.

Árni Páll: Styrking krónunnar jákvæð - ríkisfjármálin aðalmálið

Styrking krónunnar undanfarin misseri og innflæði á gjaldeyri sem það hún byggist á er fagnaðarefni, segir Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra. Hann segir ríkisfjármálin skipta miklu máli ef stíga eigi skref í átt að afnámi gjaldeyrishafta.

Hættuástandi aflýst í Osló

Hættuástandi hefur verið aflýst í miðborg Oslóar þar sem óttast var að sprengju hefði verið komið fyrir í morgun. Lögreglan skrifaði skilaboð á twitter um að allir þeir sem höfðu farið af svæðinu mættu snúa þangað aftur, eftir því sem fram kemur í Verdens Gang.

Skæð flensa herjar á landsel

Vísindamenn í Bandaríkjunum hafa greint nýja tegund innflúensu í landsel, sem talið er að geti smitast í bæði menn og dýr. Flensan er kölluð því óþjála nafni H3N8 og talið er að hún hafi valdið dauða fjölda sela á Nýja Englandi á síðasta ári. Vísindamenn telja mögulegt að flensan hafi smitast úr fuglum. Þeir telja að þessi flensan sé til marks um að sífellt sé hætta á að mannskæð flensa geti brotist út.

Íslenska sendiráðið ekki rýmt

Starfsmenn íslenska sendiráðsins í Osló þurfa ekki að rýma bygginguna þar sem húsnæðið er ekki innan 500 metra radíus frá dularfulla pakkanum undir bíl við bandaríska sendiráðið. Sprengjusveit lögreglunnar er á staðnum er að rannsaka pakkann sem grunur leikur á að sé sprengja.

Tímósjenkó í forystuframboð

Stjórnarandstöðuflokkarnir í Úkraínu hafa ákveðið að sameinast um Júlíu Tímósjenkó sem forystuframbjóðanda sinn í þingkosningum í haust.

Særður björn ógnar öryggi

Lögregla og Náttúruvernd ríkisins í Noregi leita nú að særðu bjarndýri í Saltdal í norðurhluta landsins og hafa beðið almenning á svæðinu að hafa varann á.

Segir Ísraela hafa yfirburði

Bandaríski forsetaframbjóðandinn Mitt Romney segir Ísraela hafa menningarlega yfirburði gagnvart Palestínumönnum og segir velgengni Ísraela í efnahagsmálum staðfesta það.

Gæsluvarðhald í hálft ár enn

Rússneska kvennapönksveitin Pussy Riot neitar ásökunum um að hafa verið með óspektir á almannafæri, en þarf að dúsa í hálft ár áfram í gæsluvarðhaldi.

Grindhvalavaðan horfin frá Akranesi

Ekkert hefur spurst til grindhvalavöðunnarsem lónaði ut af Njarðvík í fyrradag og Akranesi í gærmorgun. Talið er að allt að tvö hundruð dýr séu í vöðunni.

Sjá næstu 50 fréttir